Dagur - 07.08.1986, Blaðsíða 9
7. ágúst 1986 - DAGUR - 9
.íþróttir.-
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Knattspyrnan:
Upp og niður
- baráttan í 1. og 2. deild í algleymingi
Um helgina fer fram ein
umferð í 1. og 2. deild og koma
þeir leikir eflaust til með að
greiða úr þeirri flækju er ríkir í
báðum deildum. í 1. deild eru
það tvö lið, Fram og Valur sem
skara fram úr en síðan eru fjög-
ur lið sem berjast um að fylgja
þeim eftir. Þór er í 6. sæti en
eftir að ÍBK tapaði þremur stig-
um til Víðis þá opnast mögu-
leiki fyrir Þór á 3. sæti deildar-
innar. En til þess að sá mögu-
leiki verði að einhverju öðru en
draumi einum saman þá er sig-
ur gegn KR á föstudagskvöld
brýn nauðsyn.
I 2. deild virðist fljótt á litið allt
standa opið. Fimm efstu liðin
virðast öll eiga jafna möguleika á
að komst upp, þó verða sum lið að
teljast jafnari en önnur.
KA efsta lið deildarinnar á úti-
leik gegn Prótturum. Próttarar
eru sýnd veiði en ekki gefin því
líklegt verður að teljast að sunn-
Bjarni Sveinbjörnsson leikur hugsanlega með gegn KR.
anmenn selji sig dýrt til aö spila
ekki í 3. deild aö ári.
Selfyssingar fá Einherja í heim-
sókn en þeir Vopnfirðingar með
Njál Eiðsson fremstan í farar-
broddi hafa komið mörgum á
óvart í sumar. Til að eiga nokkra
möguleika á I. deildar sæti er sig-
ur bráðnauðsynlegur fyrir Ein-
herja sem er með 20 stig en Sel-
foss hefur 25.
Þá eru það Völsungar sem eru í
3. sæti með 23 stig en þeir unnu
sinn síðasta leik sem vargegn KA
1:0. Húsvíkingar fara til Njarð-
víkur en UMFN er með 14 stig og
siglir lygnan sjó í deildinni. Það
gildir það sama um Völsung og
Einherja - ef þessi leikur tapast
þá eru líkurnar á 1. deildar sæti
hverfandi.
KS er í baráttu í hinum enda
deildarinnar, er í þriðja neðsta
sæti með 12 stig. Síðasti leikur KS
var heima gegn Þrótti og vannst
hann 1:0. Eftir þann sigur gátu
Siglfirðingar andað léttar en þó
bíður hættan enn við dyrnar svo
að KS þarf að taka stig af ÍBÍ á
laugardag. Leikurinn fer fram á
ísafirði.
„Stefnum á þrjú stig“
Dagur hafði samband við þjálfara
Þórs Björn Árnason og spurði
hann hvernig leikurinn legðist í
hann.
„Þetta eru áþekk lið þó svo að
þeir hafi rassskellt okkur fyrir
sunnan og svo hérna heima. Við
stefnum því á þrjú stig og ef það
Tryggvi Gunnarsson markahæsti leikmaður 2. deildar hefur skorað 17 mörk.
gengur upp þá er ekki óraunhæft
að stefna á 3.-4. sætið í deildinni.
Það er hugsanlegt að Bjarni
Sveinbjörnsson sem meiddist
snemma í sumar geti tekið þátt í
leiknum gegn KR og það er
kannski að hann geti komið ein-
hverju lagi á sóknarleikinn. En
umfram allt er að ná í stigin þrjú.‘L
Ég er enginn spámaður til að
segja um hvaða lið fara upp en
það ætti að koma í Ijós í næstu
tveimur umferöum.“ Þetta sagði
Gústaf Björnsson þjálfari KA er
blaðamaður spurði hann út í 2.
deildina og möguleika KA gegn
„Megum ekki
misstíga okkur“
„Þetta leggst ágætlega í mig en
við verðum bara að vinna þennan
leik. Við megum ekkert misstíga
okkur úr þessu. Nú þó að Þróttar-
arnir séu í næstneðsta sæti þá er
engin ástæða til að vanmeta þá,
alls ekki.
Bein lýsing
Leik KA og Þróttar sem fram
fer í kvöld verður lýst í KA-
heimilinu.
Það er sjálfur Þormóður Ein-
arsson sem ætlar að lýsa af stakri
snilld. Leikurinn hefst klukkan
19.
Þrótti. bv
^
STAÐAN
Stadan í 2. . deild íslands-
niótsins í knattspyrnu er
þessi:
Völsungur-KA 1:0
Víkingur-Selfoss 1:1
Einherji-IBI 1:0
UMFN-Skallagrímur 4:0
KS-Þróttur 1:0
KA 12 74-1 31: 8 25
Selfoss 12 7-4-1 25: 8 25
Völsungur 12 7-2-3 28: 9 23
Víkingur 12 6-3-3 32:15 21
Einherji 11 6-2-3 14:15 20
ÍBÍ 12 3-6-3 22:18 15
UMFN 12 4-2-6 20:27 14
KS 12 3-3-6 16:19 12
Þróttur 11 2-2-7 16:23 8
Skallagrimur 12 0-0-12 4:67 0
Landsmótið
að Jaðri
næsta sumar
Golfsamband Islands fór
nýverið fram á það við GA að
landsmótið í golfi 1987 yrði
haldið á Jaðarsvelli á Akur-
eyri.
Á fundi stjórnar GA sem hald-
inn var síðastliðið þriðju-
dagskvöld var ákveðið að ganga
að þessu boði Golfsambandsins
þannig að 46. landsmótið í golfi
mun fara fram á Akureyri.
Jafnframt var samþykkt á þess-
um fundi að stefna á að halda
Körfubolti:
Kári ráðinn
Eins og kunnugt er vann
körfuboltalið Tindastóls sig
upp í 1. deild síðastliðið
vor.Kári Marísson þjálfari liðs-
ins hefur ákveðið að halda
áfram og mun hann sem áður
bæði þjálfa og leika .
Litlar mannabreytingar eru
fyrirsjáanlegar hjá liðinu, þó
mun Ingimar Jónsson sem leikið
hefur með Njarðvíkingum undan-
farin ár snúa heim og leika með
liðinu auk þess sem hann mun sjá
um þjálfun yngri flokkanna.
Unglingalandsliðsmaðurinn
Haraldur Leifsson mun ekki
leika með í vetur þar eð hann
slasaðist illa á fæti í vor.
Norðurlandamótið í golfi 1989 á
Jaðarsvelli.
Tveir valdir í
landsliðið
Tveir ungir Akureyringar hafa
nú verið valdir í landsliðið í
golfi. Það eru þeir Björn
Axelsson og Magnús H
Karlsson.
Björn spilar í landsliði 21 árs
og yngri og mun liðið taka þátt í
alþjóðlegu móti í Belgíu innan
skamms. Magnús spilar aftur á
móti með liði 15 ára og yngri en
það lið heldur til Ítalíu til keppni.
Leikja-
námskeið
Knattspyrnufélag Akureyrar
mun gangast fyrir leikjanám-
skeiði dagana 11. til 25. ágúst.
Skráning fer fram í KA-heimil-
inu í dag og á morgun í síma 23482
milli klukkan 16 og 18. Námskeið-
ið hefst svo á mánudagsmorgun
klukkan 10.
Það var oft hart barist í leikjunum í 5. flokki.
5. flokkur:
Snilldartaktar
- Þór jafnaði á elleftu stundu
Á miðvikudag fór fram seinni
umferð Akureyrarmótsins í 5.
flokki og voru spilaðir þrír
leikir, a, b og c-lið. Leikirnir
voru skemmtilegir á að horfa
og er greinilegt að félögin geta
litið óhrædd til frámtíðarinnar
með þessi efni innan sinna her-
búða.
A-lið KA varð Akureyrar-
meistari þrátt fyrir að leikurinn á
miðvikudag hafi endað með jafn-
tefli 2:2. Fyrri leikurinn endaði
nefnilega með 4:1 sigri KA. í
hálfleik á miðvikudag hafði ekk-
ert mark verið skorað en í þeim
seinni dró til tíðinda. KA komst í
2:0 með mörkum þeirra Rúnars
Snæland og Þorvaldar M. Sig-
björnssonar. En Þórsarar létu
ekki deigan síga og náðu að jafna
rétt fyrir leikslok. Mörk Þórs
skoruðu Elmar Eiríksson og
Rúnar Halldórsson.
KA vann leik b-liðanna með
tveimur mörkum gegn einu. Þessi
sigur KA var ekki nógu stór þar
eð Þórsarar unnu fyrri leikinn
með sömu markatölu. Liðin
þurfa því að reyna með sér aftur
og verður haustmótsleikurinn lát-
inn gilda sem úrslitaleikur. Mörk
KA skoraði Gunnlaugur Torfa-
son en mark Þórs skoraði Orri
Stefánsson.
Það voru Þórsarar sem burst-
uðu leik c-liðanna 5:1 og urðu
þeir því Akureyrarmeistarar.
Mörkin fyrir Þór skoruðu Krist-
ján Kristjánsson 2, Sigurður Haf-
þórsson 1, Geir Aðalsteinsson 1
og Róbert Guðmundsson 1.