Dagur - 07.08.1986, Blaðsíða 5

Dagur - 07.08.1986, Blaðsíða 5
7. ágúst 1986 - DAGUR - 5 nóg var til af: íss. Þegar tímar liðu urðu ljósker- in aukaatriði í Harbin. Nú bein- ist öll athyglin að listilega gerð- um hofum, höllum, görðum og brúm. Á milli bygginganna standa risastór tígrisdýr og drekar, trönur og lótusblóm sem verða til úr ísblokkunum með hjálp saga, hamra og meitla. Slíkt er mikil nákvæmn- isvinna. Gosbrunnar og turnar eru lýstir upp bæði að innan og utan með fjölda mis- litra pera. Mesta skemmtun býður þó hin risastóra rennibraut upp á. Hún er meira en 10 metra há og gerð úr mörg hundruð ístíglum sem felldir eru svo haganlega hver að öðrum að hún þarf eng- an frekari stuðning. Á árunum 1966-1969, meðan menningarbyltingin stóð, þurftu íbúar Harbin að aflýsa íshátíð- inni. Rauðliðarnir bönnuðu þessa skrautsýningu. Ástæðan: Úrelt list. Norræn fiskimálaráð- stefna á Akureyri Dagana 18.-20. ágúst nk. verður haldin hér á landi á veg- um sjávanitvegsráöuneytisins 20. norræna fískimálaráðstefn- an. Ráðstefnur þessar eru haldnar annað hvert ár til skiptis á Norðurlöndunum. Gert er ráð fyrir að um 200 norrænir fulltrúar ráðuneyta, stofnana og hagsmunasamtaka í sjávarútvegi sæki ráðstefnuna og auk þeirra inunu koma um eitt hundrað norrænna gesta. Ráðstefnan verður haldin á Hótel KEA á Akureyri. Sjávarútvegsráðherra, Halldór Ásgrímsson setur ráðstefnuna mánudaginn 18. ágúst. Á dagskrá ráðstefnunnar eru fjölda mörg efni og má þar nefna menntamál, markaðsmál, fisk- eldismál og vísindamál. í tengslum við ráðstefnuna verður haldinn formlegur fundur sjávarútvegsráðherra Norður- landanna og verða á dagskrá þess fundar mörg mál er varða sam- vinnu landanna á sviði sjávarút- vegsmála. Þetta er í fyrsta sinn sem form- legur fundur sjávarútvegsráð- herra Norðurlandanna er haldinn. - segir ferðaþjónustufólk á Steinsstöðum Á Steinsstöðum í Tungusveit Lýtingstaðahreppi í Skagafirði eru allir möguleikar að taka á móti ferðafólki og hafa allmargir ferðamenn viðdvöl þar á ferð sinni um landið. Þegar Dagur var þar á ferðinni á dögunum voru skólastjórahjónin í Steinsstaða- skóla þau Kristján Kristjánsson og Sigrfður Jónsdóttir tekin tali en þau veita þessari þjónustu við ferðamenn forstöðu. Þau kváðu þó nokkra umferð hafa verið í sumar og upppantað hefði verið í svefnpokapláss í skólanum allflestar helgar. Kristján sagði eiginlega merki- legt hvað kæmu margir miðað við hvað þetta væri illa merkt. Hann sagði allt í lagi fyrir þá sem væru við veg númer eitt, þeir gætu sett upp merkingar, en hinir sem væru lengra frá veginum mættu ekkert láta af sér vita. Sigríðui sagðist halda að merkingin á veg- inum fram í sveitina gerði það að verkum að margir keyrðu fram- hjá. Fólk yrði hikandi þegar það sæi skiltið merkt Sprengisands- Kristján Kristjánsson og Sigríður Jónsdóttir. Myndir: -þá - Og þið segið að þó nokkuð af fólki hafi komið hingað í sumar? „Já og það er t.d. upppantað í svefnpokapláss næstu tvær helgar," sögðu þau Kristján og Sigríður að lokum. -þá Félagsheimilið Argarður, Stcinsstaðaskóli og byggðia í kring. leið og héldi að það kæmi beint inn á öræfi ef það færi þennan veg og ekkert byggt ból á leið- inni. „Þetta er mjög illa merkt hjá Vegagerðinni,-' sagði hún. - En er góð aðstaða fyrir ferðamenn hér á staðnum? „Já við teljum hana góða. Það er góð aðstaða í skólanum, svefn- pokapláss, eldhús með öllum áhöldum sem er mikið notað og borðstofa. Þá er hér nýleg sund- laug sem var tekin í notkun 1980 og heitur pottur. Á tjaldstæðun- unr er innisalerni og heitt og kalt vatn. Einnig erum við í tengslum við hestaleiguna á Varmalæk,'1 sagði Sigríður. „Það virðist henta mörgum að dvelja hérna og ferðast um ná- grennið. Héðan er stutt til Siglu- fjarðar, Hóla og út á Skaga. Einnig er kominn akfær vegur fram Mælifellsdalinn upp að skálanum við Ströngukvísl. Eins eru margir sem fara Austurdalinn að sjá Merkigilið, Jökulsárgljúfr- ið og Ábæjarkirkju sem talin er fyrirmynd Laxness að kirkjunni í Atomstöðinni. Svo er svolítið um að fólk hafi áhuga á að prófa kláfinn yfir Jökulsárgljúfrið á Skatastöðum, sem ég held að sé sá eini sinnar tegundar á landinu sem notaður er í dag," sagði Kristján.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.