Dagur - 19.08.1986, Side 12
Akureyri, þriðjudagur 19. ágúst 1986
Þjónusta fyrir
háþrýstislöngur
olíuslöngur og barka
Pressum
tengin á
Fullkomin tækni
vönduð vinna
Eyjafjörður:
Góðar horfur hjá
kartöflubændum
- Búist við a.m.k. tífaldri uppskeru
„Ég er ekki byrjaður af neinni
alvöru, rétt að prufa bara
hvernig uppskeran er og það
sem komið er lofar góðu,“
sagði Ari B. Hilmarsson bóndi
að Þverá í Öngulsstaðahreppi
í Eyjafírði er hann var spurður
um horfur hjá kartöflubænd-
um í haust.
Ari setti niður um 16 tonn af
útsæði í vor og reiknar með góðri
uppskeru. „Ég hef trú á því að
það verði í góðu meðallagi, eða
um tíföld uppskera,“ sagði hann.
Þær kartöflur sem Ari er búinn
að taka upp eru komnar á mark-
að „og hafa rokið út“. Alla vega
biðja kaupmenn um meira,“ sagði
hann og reiknaði með því að
byrja af fullum krafti við upp-
tökuna um næstu mánaðamót.
Kartöflubændur í Eyjafirði eru
flestir ef ekki allir farnir að
„kíkja undir“ svo reikna má með
nýjum kartöflum á markað í
kringum næstu mánaðamót. gej-
Hrísey:
Sóttkvíabú fyrir
loðdýr í haust?
„Við erum að berjast í að
koma upp sóttkvíabúi í Hrísey
og vonum að það takist í haust,
þannig að við getum flutt inn
refi fyrripartinn í vetur,“ sagði
Jón R. Björnsson, fram-
kvæmdastjóri íslenskra loðdýra-
ræktenda. Hann sagðist búast
við að þarna yrði hægt að hafa
um 100 dýr í sóttkví, en ekkert
hefði verið ákveðið ennþá með
stærð hússins.
Þau dýr sem flutt verða inn eru
að hluta til nýjar tegundir af blá-
ref sem myndu fjölga litaafbrigð-
um og að einhverjum hluta dýr af
stofni sem fyrir er, til kynbóta.
Veiddi
30 kg lúðu
Á sunnudaginn var veiddist 30
kg lúða á Pollinum innan við
Eyrina.
Það var trillukarlinn Jón Sig-
urðsson sem veiddi þennan stóra
fisk. Að sögn kunnugra mun það
vera algjört einsdæmi að svo stór
lúða sem þessi veiðist þetta inn-
arlega í firðinum.BV
Aðspurður sagði Jón, að menn
búist við að verð á minkaskinn-
um fari heldur hækkandi, af
þeirri ástæðu að framboð á þeim
hafi ekki aukist nema um 1,5%
frá síðasta ári. En verð á minka-
skinnum fór nokkuð mikið niður
í vetur, en hækkaði svo aftur að-
eins í vor. Næstu uppboð verða
nú í september.
Um refaskinnin sagði Jón, að
lítið væri um spádóma og slíkt
hefði reynst mönnum erfitt gegn-
um árin. Um 12% aukning væri á
framboði og litaafbrigðum hefði
fjölgað mjög mikið. Af þeim sök-
um væri sóttkvíabú orðið mjög
brýnt. Jón kvað verð á minnka- og
refaskinnum vera í lægð núna.
Til samanburðar sagði hann að á
5 ára tímabili hefði meðalverð á
refaskinnum verið 2400 kr. en
væri nú 1400. En á minkaskinn-
um 1500 kr., en væri nú 10-1100.
Þetta hefði dregið úr að fleiri
hefðu farið út í þessa grein, en
þeir sem væru að byrja hefðu
fjölgað, svo búin færu stækkandi.
Taldi hann að þessi hæga þró-
un skapaði meiri líkur á að hægt
væri að halda utan um þá þætti
sem eru þessari grein samfara, sé
vöxturinn of ör er hætta á að þeir
fari úr böndum. -þá
Hvað skyldi hún vera að pæla þessi stúlka.
Mynd: RÞB
Snældu-Blesi:
Stendur
fyrir sínu
„Hann hefur það ágætt bless-
aður. Að vísu er hann enn í
spelkunni, en það virðist ekk-
ert angra hann,“ sagði Magni
Kjartansson bóndi í Árgerði í
Eyjafirði, en hann á einn
þekktasta stóðhest á íslandi,
sem er Snældu-BIesi. En Blesi
hefur hlotið betri og meiri
umönnun en flestir aðrir
hestar.
Magni sagði að Blesi væri
búinn að gagnast um 50 hryssum
fram til þessa og allt gengið vel.
„Hann virðist kunna vel við þetta
hlutskipti sitt. Merarnar eru
leiddar undir hann, því ekki er
ráðlegt að sleppa honum lausum
í hólfi, það fylgja því svo mikil
læti og hann er ekki til slíkra
hluta,“ sagði Magni.
Snældu-Blesi virðist vera vin-
sæll graðhestur, því menn hafa
komið úr öðrum landshlutum
með merar til að halda undir
hann. „Eins eru menn að hringja
í mig úr öllum áttum og spyrja
um líðan hans.“
- Má reikna með því að hann
losni við spelkuna fljótlega?
„Ég vona það. Þeir læknar sem
hafa annast hann ætluðu að taka
röntgenmynd af honum í þessum
mánuði og bíð ég eftir því að þeir
hafi tíma til þess. Á meðan er
hann hér heima við hús og fer vel
um hann,“ sagði Magni. gej-
Einhverjir fá viðbót
á skattana sína
Skattrannsókn lokið í máli KSÞ
„Þessu máli er lokið af okkar
hálfu og í raun getum við hér
ekkert sagt meira um það,“
sagði Gunnar Oddsson hjá
skattrannsóknarstjóra er hann
var spurður um framgang
rannsóknar á málum KSÞ á
Svalbarðseyri og þeirra sem
málinu tengjast.
Gunnar sagði að skattstjóra á
Norðurlandi hefði verið send
Bæjarsjóður Sauðárkróks:
Stendur ekki í skilum
„Málið er að bæjarsjóður hef-
ur ekki staðið í skilum með lán
veitnanna. Það er það sem við
erum ósáttir með en erum
nokkuð sáttir við að eitthvað
af peningunum fari í bæjar-
sjóð,“ sagði Páll Pálsson veitu-
stjóri hita- og vatnsveitu í sam-
tali við blaðið.
Nokkur umræða hefur verið
um skil bæjarsjóðs á fjármunum
veitnanna síðastliðin ár. Páll
sagði að samkvæmt reikningum
sem honum hafa nýlega borist í
- með lán veitnanna
hendur þá skuldaði bærinn hita-
veitunni um síðastliðin áramót
1800 þúsund og vatnsveitunni um
tvær og hálfa milljón. Þar að auki
voru lán í vanskilum. Þrátt fyrir
góðar og miklar yfirlýsingar á
síðasta ári að borga af lánunum
þá var það ekki gert og það er
gremjulegt þegar veiturnar skila
eins miklu í bæjarsjóð eins og
raun ber vitni, sagði Páll.
Páll kvað veiturnar alltaf hafa
skilað hagnaði, mikið hafi verið
um framkvæmdir síðastliðin ár,
stór endurnýjunarverkefni sem
loks væri farið að sjá fyrir endann
á. Engin lán hafa verið tekin síð-
an 1981 þegar borað var. Hita-
veitan hafi verið endurnýjuð
algerlega af tekjum fyrirtækisins
og þar að auki skilað einhverju í
bæjarsjóð. Þess má að lokum
geta að hitaveita Sauðárkróks var
samkvæmt skýrslum í lok síðasta
árs sú fimmta ódýrasta af stærri
veitunum. Þar kostar nú að
kynda meðalstórt einbýlishús
1332 kr. á mánuði miðað við 4ra
lítra notkun. -þá
skýrsla skattrannsóknarstjóra.
„Hann tekur síðan ákvörðun um
það hvort ástæða sé til gjalda-
hækkunar á grundvelli þeirra
upplýsinga sem hann hefur í okk-
ar skýrslu. Einnig var ríkissak-
sóknara send skýrslan vegna
kæru frá Aðalsteini Jónssyni, þar
sem ríkissaksóknari var með
upplýsingar í málinu.
Skattamálið sem slíkt hefur
ekki komið til okkar. Skattrann-
sóknarstjóri frétti af málinu
vegna frumkvæðis okkar og tók í
framhaldi af því ákvörðun um
rannsókn. Við höfum síðan feng-
ið afrit af skýrslu hans um
málið,“ sagði Bragi Steinarsson
hjá ríkissaksóknara. „Þar sem
ekki er fallinn gjaldþrotaúrskurð-
ur í málinu er það utan okkar
seilingar. Við reiknum þó með
því að fá að sjá eitthvað af því
aftur. Það var rökstuddur grunur
um að einhverjir aðilar hefðu
þegið laun sem ekki voru gefin
upp til skatts. Ríkisskattanefnd
tekur ákvörðun í slíkum
málum,“ sagði Bragi.
„Við höfum fengið afrit af
þessari skýrslu frá skattrannsókn-
arstjóra og munum afgreiða það
sem vísað verður til okkar í þessu
sambandi. Þar er um að ræða
leiðréttingar, hvort sem er hjá
félaginu sjálfu eða einstakling-
um,“ sagði Jón Dalmann
Ármannsson settur skattstjóri á
Norðurlandi eystra. „Ég get ekki
gefið upp fjölda einstaklinga sem
fá leiðréttingu á greiðslum, en
þau mál eru afgreidd jafnóðum
og þau berast,“ sagði Jón
Dalmann.
Vitað er að nokkrir aðilar er
tengjast málinu hafa fengið bréf
frá skattstjóranum á Akureyri.
„Fólki er tilkynnt um það ef gefn-
ar eru upp viðbótartekjur og því
gefinn kostur á að gera athuga-
semdir, en síðan kemur málið til
venjulegrar álagningar og leiðr-
éttingar,“ sagði Jón Dalmann
Ármannsson. gej-
Akureyri:
Lést eftir
eldsvoða
Konan sem flutt var á Sjúkrahús-
ið á Akureyri eftir bruna sem
varð í fyrrakvöld á Akureyri, lést
í gærmorgun. Konan hét Margrét
Halldóra Harðardóttir, 38 ára að
aldri. Hún lætur eftir sig eigin-
mann og fimm börn.