Dagur - 11.09.1986, Blaðsíða 1
69. árgangur Akureyri, fímmtudagur 11. september 1986 169. tölublað
Venjulegir og
demantsskornir
trúlofunarhringar
Afgreiddir samdægurs
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Alþjóðlegt skákmót á Akureyri?
Hann var ánægður með góða veðrið, þessi ungi maður við sundlaugina.
Mynd: RÞB
Ólafsfjörður:
Til Noregs að
skoða Merkúr
„Það stendur allt við það sama
og allt í óvissu þessa stund-
ina,“ sagði Gunnar Sigvalda-
son framkvæmdastjórí Sæbergs
í Ólafsfírði, en það fyrirtæki
var meðal margra sem bauð í
skipið Merkúr sem áður hét
Bjarni Benediktsson og liggur
nú við festar í Noregi eftir
miklar endurbætur.
Gunnar sagði að Ólafsfirðingar
hefðu ekkert í höndunum um að
þeir fengju skipið. Þrátt fyrir það
ætla Gunnar og fleiri aðilar sem
tengjast málinu í Ólafsfirði að
fara til Noregs að skoða skipið,
því mikill áhugi er á staðnum að
skipið komi þangað.
Sæberg átti 4. lægsta tilboðið í
Merkúr og er nú þegar búið að
ræða við þá aðila sem áttu lægri
tilboð. Ekki virtust horfur á
samningum við þá aðila og kom
því röðin að Sæbergi og eru ein-
hverjar horfur á að samningar
takist.
Tilboð Sæbergs í Merkúr var
upp á 281 milljón króna og var
það 4. lægsta tilboðið eins og
áður sagði. gej-
Samstarf Námsflokka Akur-
eyrar og Tómstundaskólans:
„Býst við
samþykki“
Bæjarráð hafnar fjárstuðn-
ingi sem lofað hafði verið
- „Ákvörðun bæjarráðs undarleg á allan hátt,“
„Ég veit nú ekki hvað ég á að
segja um þetta mál, það er allt
hið furðulegasta. Staðan er sú
að ég hef fengið neitun um
fjárstuðning sem ég bað aldrei
um. Það hafði verið ákveðið af
bæjarstjórn Akureyrar að
halda þetta mót og ég hafði
samband við bæjarstjóra til að
fá endanlegar dagsetningar. Þá
fékk ég bréf til baka þar sem
mér var tilkynnt að bærinn
hygðist ekki styrkja þetta og ég
sendi þá bréf þar sem ég bað
um nánari skýringar. Ég bíð
ennþá eftir svari við því,“
sagði Jóhann Þórir Jónsson
hjá tímaritinu Skák.
í fundargerð bæjarráðs frá 21.
ágúst sl. kemur fram að borist
hafi erindi frá tímaritinu Skák
þar sem óskað sé eftir fjárstuðn-
ingi við alþjóðlegt skákmót sem
tímaritið hafi áhuga á að halda á
Akureyri í október nk. „Bæjar-
ráð hafnar málaleitan þessari,"
segir svo í fundargerð.
Jóhann Þórir telur hins vegar
að málum hafi ekki verið þannig
háttað. Segir hann að í janúar
1985 hafi verið ákveðið í samráði
við bæjarstjórn að halda alþjóð-
legt skákmót á Akureyri og hafi
upphaflega staðið til að það yrði í
mars á sama ári. Segir Jóhann að
bæjarstjórn hafi þá verið búin að
ákveða að veita 400 þúsund kr. til
mótsins, auk þess sem hún hafi
ætlað að útvega húsnæði undir
mótið og lokahóf í tengslum við
það. Vegna annríkis hafi hins
vegar verið ákveðið að fresta
Norðurland:
Afli smábáta 25%
meiri en í fyrra
- Rúmlega 5 þús. tonn komin á iand
Allt bendir til þess að afli smá-
báta undir 10 tonnum verði
20% meiri en á síðasta ári. Þá
öfluðu smábátar tæplega 25
þúsund tonna, en nú er reikn-
að með um 30 þúsund tonnum
á land.
Fyrstu 7 mánuði þessa árs
höfðu smábátar aflað um 20.500
tonna á móti 17.300 tonnum í
fyrra. Eru þetta bráðabirgðatölur
frá Fiskifélagi íslands. Aflaaukn-
ing hcfur orðið mest á Austfjörð-
um.
Samkvæmt tölum Fiskifélags-
ins hafa smábátar á Norðurlandi
aflað 5.050 tonna fyrstu 7 mánuði
ársins á móti 4.019 tonnum í
fyrra. Er það rúmlega 25%
aflaukning.
Á Suður- og Suðvesturlandi
höfðu borist á land fyrstu 7 mán-
uðina 6.968 tonn. Á Austurlandi
voru það 5.989 tonn og á Vest-
fjörðum 2.440 tonn. gej-
segir Jóhann Þórir Jónsson hjá tímaritinu Skák
þessu fram í október á þessu án.
„Ég var því ekki að fara fram á
fjárstuðning nú um daginn heldur
var ég að biðja um endanlegar
dagsetningar. Ég var búinn að
hafa samband við marga sterka
skákmenn, t.d. Hort, Miles,
Spassky og Larsen svo einhverjir
séu nefndir, og lýstu þeir allir
áhuga sínum á þessu. Einnig
hafði ég gengið í fyrirtæki á
Akureyri og athugað með stuðn-
ing þeirra og fengið mjög góðar
viðtökur. Ég hef eytt bæði tíma
og peningum í undirbúning og
því get ég alls ekki sætt mig við
þessa furðulegu neitun. Svo má
heldur ekki gleyma því að Akur-
eyri yrði ekki aðeins í landsfrétt-
um lieldur kæmist hún áreiðan-
lega í heimsfréttirnar því þetta
yrði þriðja til fjórða sterkasta
skákmót í heiminum í ár.
Ákvörðun bæjarráðs er því
undarleg á allan hátt. Mér fyndist
ekkert óeðlilegt þó bærinn vildi
fresta þessu, það væri vel skiljan-
legt, en það er ófært að ætla að
Ijúka málinu á þennan hátt,“
sagði Jóhann Þórir Jónsson.
JHB
1 i t í
fl I
p'.
■ 1 ■p
r tJLsíi í m
Loksins heima!
Mynd: RÞB
—segir Báður Halldórsson
Samkomulag hefur verið gert
milli Námsflokka Akureyrar
og Tómstundaskólans sem
rekinn er af Menningar- og
fræðslusambandi alþýðu um
samstarf þessara tveggja aðila
um rekstur fyrirtækis sem
kemur til með að heita Náms-
flokkar Akureyrar - Tóm-
stundaskólinn.
Eins og kunnugt er var Bárði
Halldórssyni veitt heimild til að
reka námsflokkana á eigin
ábyrgð og fékk hann til þess
þrjár kennslustofur í húsi Gagn-
fræðaskólans. Að sögn Bárðar
sendu hann og Hclgi Guðm-
undsson formaður M.F.A. sam-
eiginlegt bréf til bæjarstjórnar
þar sem þess var farið á leit að
hún veitti samþykki sitt fyrir því
að Tómstundaskólinn kæmi inn
í samkomulag það sem hann
hafði áður gert viö bæjaryfir-
völd.
Samstarf þetta mun, ef að lík-
um lætur, verða meö þeim hætti
að fjárhagurinn verður tvískipt-
ur að öðru leyti en því að ýrniss
konar samciginlcgum kostnaði
verður dcilt. Námsgjöld, kenn-
aralaun og kennararáðningar
verða samræmd og námsfram-
boð mjög aukið. Bárður taldi
að bréfið yrði tekið fyrir í
bæjarráði nú í vikunni og ef
þetta yrði samþykkt sem hann
reiknaði fastlega mcð myndi
innritun hefjast 22. september.
ET
Húsavík:
Fyrstu síld-
inni landað
Fyrsta síldin í haust er farin að
veiðast í Skjálfanda og er hún
nýtt til beitu. Bátur kom með
eitthvað smávegis síðastliðinn
sunnudag. Á þriðjudag fengu
Pálmi og Benedikt Héðinssynir
þrjár tunnur og síðan fimm tunn-
ur á miðvikudag. Um 90 prósent
af síldinni er stór og veiddist hún
í net við Lundey. SS