Dagur - 11.09.1986, Blaðsíða 3
11. september 1986 - DAGUR - 3
A Hitt leikhúsið á „Heimilinu ’86“:
„Ohress með aðsóknina“
- segir Páll Baldvin Baldvinsson framkvæmdastjóri
Næsti nágranni Dags á „Heim-
ilinu ’86“ var Hitt leikhúsið.
Sýningarbás þeirra var óneit-
anlega svolítið sérstakur því
hann var sá eini sem var
svartur, hvar sem á hann var
litið.
Þegar blaðamaður kom við hitti
hann fyrir framkvæmdastjórann,
Pál Baldvin Baldvinsson. Hann
tók ljúflega í að svara nokkrum
spurningum, sérstaklega „af því
að þú ert í svo flottum jakka.
Hvar fékkstu þetta eiginlega?“
Þegar umræðum um jakkann var
lokið var Páll spurður hvaða
erindi Hitt leikhúsið ætti á sýn-
ingu sem þessa.
„Við erum fyrst og fremst að
hitta fólkið og spyrja um það sem
okkur langar að vita. Það má
segja að þetta sé óformleg skoð-
anakönnun. Nú, svo erum við að
selja Megasarpakkann og minna
á að við séum til. Það eru margir
sem halda að við höfum einungis
sett upp eina sýningu en vita ekki
af því að Hitt leikhúsið stendur í
plötuútgáfu og fleiru með leiklist-
inni.“
Aðspurður hvort það hefði
gengið vel hjá þeim þessa daga
sem sýningin stóð sagði Páll svo
vera. „Okkur hefur verið veitt
töluverð athygli, kannski að
hluta til vegna þess hvað básinn
er sérstakur í útliti. Hins vegar er
ég að mörgu leyti óhress með
þessa sýningu. Það veldur mér
vonbrigðum hve mikill hluta sýn-
ingargesta er ungur að árum,
nánast krakkar. Ég er líka óhress
með aðsóknina og mér sýnist sem
undirbúningur hafi ekki verið
nógu góður. Það er kannski ekki
við góðu að búast þegar skipt er
um eigendur mánuði áður en sýn-
ingin er opnuð," sagði Páll.
Ekkert mun enn vera ákveðið
með verkefni vetrarins hjá Hinu
leikhúsinu, enda er fyrirtækið
húsnæðislaust sem stendur. „Það
er erfitt að skipuleggja sýningar
þegar húsnæðið vantar en ég
vona að það fari að rætast úr
því,“ sagði Páll Baldvin Bald-
vinsson. JHB
500hross
flutt út
Sundurlyndi
í Rípurhreppi
í byrjun næsta mánaðar kemur
hingað til lands á vegum Félags
hrossabænda og Búvörudeild-
ar SIS sérstaklega búið gripa-
flutningaskip. Ingimar Ingi-
marsson á Hólum í Hjaltadal
sagðist í viðtali við blaðið vita
til þess að búið væri að panta
flutning fyrir tvö hundruð Iíf-
hross og hefðu mörg af þeim
verið keypt af útlendingum í
kringum landsmótið í fyrra.
Þá sagði Ingimar að flytja ætti
300 sláturhross út, þeim fjölda
hefði verið skipt niður á milli
landshluta og ættu Norðlending-
ar að útvega 100 hross. Hann
kvað útflutning sláturhrossanna
vera í þeim tilgangi að ná flutn-
ingskostnaðinum niður.
Jóhann Steinsson hjá Búvöru-
deild Sambandsins sagði það
verð sem bændur fengju fyrir
sláturhrossin vera gildandi
afsláttarverð á sláturdýrum.
Kostina við þennan útflutning
kvað hann vera tvenns konar, í
fyrsta lagi fengju bændur greitt
fyrir kjötið innan tveggja mánaða
í stað þess að þurfa að bíða allt
upp í ár eftir greiðslum eins og
áður og í öðru lagi væri með
þessu móti að mestu leyti komið í
veg fyrir birgðasöfnun á kjöti af
fullorðnum og gömlum hrossum,
en sú vara seldist illa hér á landi.
-þá
Svo nefnist fyrirsögn á klausu, er
birtist í Degi á Akureyri 8. ágúst
sl. Þar er fjallað um bréfaskipti er
farið hafa milli hreppsnefndar og
þeirra íbúa í sveitinni sem neit-
uðu að starfa í nefndum, sem
hreppsnefnd ber að kjósa í. Ekki
þarf ég að svara miklu úr pistli
þessum, en vil þó fara um hann
nokkrum orðum.
Blaðamaður Dags segir: „í
bréfinu (þ.e. bréfi hreppsnefnd-
ar) var íbúum einnig gerð grein
fyrir því, að það væru borgara-
legar skyldur þeirra að starfa í
nefndum á vegum hreppsins.“
Þetta er rangt. í bréfi hrepps-
nefndar er tekið fram, að hún líti
svo á, að það sé borgaraleg
skylda o.s.frv. Þar er nokkur
munur á.
Þá er sagt að þeir sem sendu
hreppsnefnd undirskriftalistann
hafi verið skipaðir í nefndir á
vegum hreppsins. Hér er furðu-
lega til orða tekið. Gerir blaða-
maður virkilega engan greinar-
mun á skipunum og kjöri.
Og blaðamaður heldur áfram
og fjallar um undirskriftalista og
tildrög þess að hann var sendur
út: „Var þetta gert í mótmæla-
skyni við lista sem fram kom fyrir
hreppsnefndarkosningarnar í vor
og gerði það að verkum að
hreppsnefndin varð sjálfkjörin."
Þetta var nú meiri klausan. Á ég
að trúa því, að fólkið hafi neitað
að starfa í nefndum á vegum
hreppsins af því að lagður var
fram listi fyrir kosningar í vor?
Ég hefði nú talið öllu eðlilegri
viðbrögð að leggja þá fram annan
lista. Eða er ástæðan sú, að þau
hafi ekki komið sér saman um
fólk á lista og kenni hreppsnefnd
um? Ef til vill langsótt skýring,
en að athuguðu máli líklega ekki
mjög fjarlæg.
Talað er um að sundurlyndi
hafi verið í hreppnum frá því
fyrir hreppsnefndarkosningar
1982, þá hafi komið fram tveir
listar og hreppurinn þá skipst í
tvennt. Ég hef nú fylgst með
sveitarstjórnarmálum í Rípur-
hreppi æði langan tíma. Ef ég
man rétt, þá hafa á tæpri hálfri
öld aðeins fjórum sinnum verið
viðhafðar óhlutbundnar kosning-
ar. Og einhvern veginn rekur mig
minni til þess, að á stundum hafi
ekki allir verið á eitt sáttir og
býsna heitt í kolunum, þó ekki
hafi verið rokið með þann ágrein-
ing í blöðin fyrr en nú.
Arni Gíslason.
Gefur út veggplatta í
tilefni afmælis Reykjavíkur
Fyrr á þessu ári tók Sauö-
krækingurinn Arni Gunnars-
son upþ hjá sér að gefa út
veggplatta í tilefni af 200 ára
afmæli Reykjavíkurborgar.
Arni leit inn á skrifstofu Dags
á Sauðárkróki fyrir skömmu
og hafði þetta um plattann og
myndskreytingu á honum að
segja:
„Konunglegri tilskipan um
kaupstaðarréttindi Reykjavíkur
frá 1786 fylgdu ákvæði um rétt til
notkunar á skjaldarmerki eða
innsigli fyrir viðkomandi stað.
Bæjarfógeti Reykjavíkur, Sig-
urður Thorgrímsson efndi til
borgarafunda um þetta mál á
árunum 1813-14 og í framhaldi af
því var danskur landmælinga-
maður sem hér starfaði á þessum
árum, Hans Frisak að nafni,
fenginn til að teikna innsigli fyrir
Reykjavík og hlaut það viður-
kenningu Hins konunglega kans-
ellís 28. janúar 1815.“
Innsigli þetta sem er í miðju
plattans er teiknað af Ragnari
Lár listamanni eftir upprunalegri
mynd af því sem geymd er á
Landsbókasafninu. Ragnar teikn-
aði einnig þær skreytingar sem á
plattanum eru. Plattinn er úr inn-
brenndu postulíni og að öllu leyti
unninn af fyrirtækinu Blæ í
Reykjavík. Hann er framleiddur
í 300 eintökum en gera má ráð
fyrir að aðeins 250 verði seld.
Vegna þessa litla upplags má
gera ráð fyrir að einhverjir safn-
arar verði höndum seinni að ná
honum, en líklega verður hann
ekki til sölu í verslunum. Platt-
ann er hægt að fá hjá útgefanda í
síma 95-5665.
AKUREYRARBÆR
Félagsstarf aldraðra
Farið verður í stutta ferð um nágrenni Akur-
eyrar, fimmtudaginn 18. sept. kl. 13.15.
Þátttökugjald kr. 400. - Síðdegiskaffi innifalið.
Þátttaka tilkynnist í síma 25880.
Félagsmálastofnun Akureyrar.
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Kennsla í öldungadeild
hefst mánudaginn 15. september.
Allir nemendur komi kl. 18.10 í stofu 25 í bóknáms-
álmu á Eyrarlandsholti.
Skólameistari.
AKUREYRARBÆR
Auglýsing um lausar
íbúðahusaloðir:
Lausar eru til umsóknar 4 einbýlishúsalóðir í
Innbænum, austan Aðalstrætis.
Fyrirhugað er að reisa á lóðunum einnar hæðar
hús með nýtanlegu risi.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu byggingafull-
trúa, Geislagötu 9 á viðtalstíma kl. 10.30-12.00.
Umsóknarfrestur er til 30. september nk.
Akureyri, 10. september 1986.
Byggingafulltrúi Akureyrar.
Tflboð 30% afsláttur
30% afsláttur á herrauliarstökkum
Takmarkað magn
Einnig tilboð á drengjabolum stærðir 8-16.
Verð frá kr. 890.-