Dagur - 11.09.1986, Blaðsíða 7
- Finnur þú ekkert fyrir kulda?
„Jú, það er ógeðslega kalt,
það er það versta við þetta.“
- Ætlar þú samt að þrauka til
þrjú?
„Ég verð að minnsta kosti
þangað til klukkan er orðin rúm-
lega þrjú."
„Meira stuð á sumrin“
Tvær hressar, þær Sigurveig
Davíðsdóttir og Ása Arnaldsdótt-
ir, sátu á horni Landsbankans og
horfðu spenntar yfir bílaröðina á
rúntinum.
- Hvað dregur?
„Hérna hittum við aðra krakka
til að tala við.“
- Skreppið þið hingað niður í
bæ frekar heldur en að fara á
böll?
„Við förum oft fyrst í Dynheima
og svo á labbið - og ef það er
kalt förum við snemma heim.“
- Eruð þið alltaf labbandi?
„Já yfirleitt, við þekkjum svo
fáa sem eiga bíl.“
- Verður ykkur aldrei kalt?
„Jú stundum."
- Hvað um húfur og vettlinga?
„Við erum stundum með vettl-
inga, en aldrei húfur - það er svo
halló."
- Eruð þið búnar að sjá marga
sæta stráka hérna?
„Já, alveg helling."
- Hvað grípið þið til bragðs ef
ykkur líst vel á þá?
„Við gerum nú yfirleitt lítið í
því, reynum helst að tala við þá
og kynnast þeim.“ „Blikkum þá,“
sagði einhver.
- Eru þeir flestir á bíl?
„Nei, ekkert frekar.“
- Farið þið oft út um helgar?
„Já, aðallega á föstudags-
kvöldum."
- Hvort er skemmtilegra að
fara í bæinn á sumrin eða vet-
urna?
„Það er miklu skemmtilegra
hérna á sumrin, þá eru fleiri og
líka meira stuð.“
„Fáir nýir á rúntinum"
Oft (og þá meina ég oft) sést blár
Subaru GFT á rúntinum. Undir
stýri situr eigandi vagnsins,
Benedikt Haukur Sveinbjörns-
son, kallaður Benni.
- Ferð þú oft á rúntinn Benni?
„Já, ég er hérna næstum dag-
!ega.“
- Hvað er það sem heillar
svona mikið?
„Það er bara ekkert um annað
að gera en að fara.“
- Er þetta komið upp í vana
hjá þér?
„Það má segja það, maður
keyrir hérna um og hittir vini og
kunningja, heilsar upp á fólk og
kjaftar við það.“
- Áttu engin önnur áhuga-
mál?
„Jú, ég hef áhuga á því aö
hugsa um blómin mín, svo eru
það náttúrlega íþróttirnar, fótbolti
og nú er handboltinn að byrja. Ég
veiði mikið og svo á ég hund.“
- Hvenær byrjaðir þú að fara í
bæinn um helgar?
„Maður byrjaði á skellinöðru
14 ára, próflaus og vitlaus. Svo
tók ég prófið 15 ára og hélt áfram
þangað til ég var 16 ára. Ég hélt
mig mest heima þegar ég var
sextán, en eftir að ég fékk bíl-
prófiö hef ég svo til „verið í
bænum“.
- Hvenær eru flestir hérna?
„Á helgar- og fimmtudags-
kvöldum."
- Er þetta ekki oftast sama
liöið?
„Jú, það er voðalega lítið af
nýjum andlitum, nema þá bara
utanbæjarfólk, maður þekkir það
oftast nær strax úr.“
- Á hvaða aldri eru þeir sem
fara út á lífið um helgar?
„Ætli þeir séu ekki svona frá 13
ára upp í 21 árs.“
- Hvað finnst þér um 13-14
ára krakkana sem stunda bæinn
um helgar?
„Það er nú yfirleitt ekki mikið
um þá svona þegar fer að líða á
kvöldið, eftir tólf. „Labbarnir"
mega auðvitað vera á rúntinum
eins og við.“
- Finnst þér það ekki fara svo-
lítið eftir veðri hvað það eru
margir hérna?
„Jú, það fer mikið eftir veðri. Ef
það er kalt eru t.d. oft margir á
rúntinum, en enginn að labba í
Miðbænum."
- Það virðist fara í taugarnar á
mörgum ökumönnum þegar
hringnum er lokað um þrjúleytið
eftir helgarböll, fer það í taug-
arnar á þér?
„Mér finnst það allt í lagi, þaö
er rétt að gera þetta ef allt torgið
er troðið af fólki.“
- Lendir þú oft í því að keyra
fólk heim eftir böll?
„Já. Það er leiðinlegt en það er
líka leiðinlegt að þurfa að neita
Benedikt Haukur Sveinbjörnsson.
fólki um það.“
- Skemmtir þú þér ekki eitt-
hvað sjálfur?
„Jú, jú, með því að tala við vini
og kunningja en ég geri lítið af
því að fara á böll.“
- Er bensínreikningurinn hár
hjá þér?
„Nei, ef maður rúntar mikiö þá
fara eitthvað um 3.000 kr. í bens-
ín á mánuði."
- Ert þú nokkuð í því að
húkka upp labbandi stelpurgóði?
„Ekki nema þá þara stelpur
sem ég þekki - sem biðja um að
fá að koma með á rúntinn."
„Rólegt ennþá“
Seint og um síðir, þegar Ijós-
myndarinn hafði yfirgefið mig,
gekk að mér ungur Þorlákshafn-
arbúi, Björgvin Þór Rúnarsson.
Hann var ólmur í að komast á
blað drengurinn og ég varð við.
bóninni. Hann sagðist hafa verið
einn dag á Akureyri og fannst sá
dagur fullrólegur (mér sýndist
hann ætla að bæta úr því). Vin-
konur hans, sem höfðu dvalið
lengur, sögðu að það væri erfitt
að kynnast Akureyringum.
.... Hann gat þess að lokum að
hann væri sætur. (Þar höfum við
það.)
náttúrlega töluvert af plöntum
í þetta beð, þannig að það var
safnað upp um öll fjöll í það.“
- Eru yfirleitt miklar breyt-
ingar hérna?
„Nei, ekki miklar, nema beð-
ið sem ég nefndi áðan. Annars
er ég kannski ekki búinn að
vera nógu lengi til að svara
þessu.“
- Hafa margir komið hingað
í sumar?
„Já, það er stöðugur
straumur af gömlum, þýskum
kerlingum sem labba hérna
um tvær og tvær og samkjafta
ekki. Svo er dálítið mikið um
barnapíur og púkalega Amer-
íkana - en þeir eru bestir. Það
kemur fyrlr að þeir gefa okkur
kók eða nammi og stundum
spyrja þeir: „Do they make you
work here?“ Sjúklingarnir af
spítalanum koma Ifka stöku
sinnum í hressihringi á hjóla-
stólunum - á ótrúlegum
hraða.“
- Er nokkuð sem þið viljið
koma á framfæri?
„Já, við heimtum nýja kaffi-
stofu, þessi er svo lítil og
gömul, það er ekki einu sinni
rennandi vatn hérna.“
TTl
H5*"
11. september 1986 - DAGUR - 7
spurning vikunnar_______________
Inga Hrönn Einarsdóttir:
Nei, ég fer aldrei í bíó. Horfi
heldur aldrei á vídeó, en stund-
um á sjónvarp, ekki oft samt.
Ástæðan fyrir því að ég fer ekki
í bíó er hreinlega sú að ég
nenni ekki að drífa mig, mér
finnst ekkert leiðinlegt að fara í
bíó. En auðvitað kemur það fyr-
ir að ég fer í bíó og þá ef það
eru einhverjar spes myndir,
góðar, frægar óskarsverð-
launamyndir.
Jóhann Guðmann:
Ég fer frekar sjaldan í bíó. Ég er
líka bara 11 ára, bráðum 12. Ég
hugsa að ég fari meira þegar ég
er orðinn eldri. Ég horfi dálítið
mikið á vídeó og þá á alls konar
myndir.
Guðrún Steinsdóttir:
Ég fer afar sjaldan í bíó, en þó
held ég að bíóið hérna á Akur-
eyri sé mikið að batna, það eru
sýndar nýrri myndir en verið
hefur. Ég fer helst í bíó ef sýnd-
ar eru góðar myndir. Ef myndir
hafa fengið góða dóma í blöð-
unum þá dríf ég mig frekar á
þær. Méf finnst það skipta
dálitlu máli að myndirnar hafa
fengið góða dóma, eða eitthvað
skrifað um þær svo maður viti
eitthvað um hvað þær fjalla.
Sigurjón Baldvinsson:
Það hefur verið svo mikið um
væmnar myndir upp á síðkastið
að mér er alveg sama þó þær
fari framhjá mér. Ég vil fá
almennilegar myndir í bíó, t.d.
grínmyndir. Ég get nefnt Subir-
bia sem dæmi, frábæra grín-
mynd. Svo mættu myndirnar
berast fljótar að sunnan, það er
leiðinlegt að bíða í marga mán-
uði eftir að sjá þær myndir sem
mann langar að sjá.
Jón Filippusson:
Ég hef aldrei farið í bíó á Akur-
eyri, ég er að sunnan. En ég fer
ekki oft í bíó í Reykjavík, mér
finnast myndirnar yfirleitt leiðin-
legar. Ég vil sjá myndir um lífið,
lífið eins og það er, ekki eins og
það á að vera. Og ekkert væl
eins og Húsið á sléttunni og
þess háttar. Lífið er allt öðruvísi
en það er sýnt í bíó.
Ferðu oft í bíó?