Dagur - 11.09.1986, Qupperneq 9
1Í. seþtember 1986 - DAGUR - 9
uþ róttiL
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Evrópukeppnin í knattspyrnu:
Islenska liðið hafði í
fullu tré við það franska
íslenska landsliðið í knatt-
spyrnu náði þeim frábæra
árangri að gera jafntefli við
það franska í gær er liðin áttust
við í 3. riðli Evrópukeppninn-
ar. Leikurinn, sem fram fór á
Laugardalsvellinum, endaði
með markalausu jafntefli.
Frakkeru núverandi Evrópu-
meistarar og þeir voru að hefja
titilvörnina í Reykjavík í gær
en tókst aðeins að ná öðru stig-
inu. Þá varð liðið í 3. sæti á
HM í Mexícó í sumar og í
leiknum í gær léku flestir þeir
sömu með franska liðinu og
léku þar. AHir bestu atvinnu-
menn íslands tóku þátt í leikn-
um, auk sterkra leikmanna
sem spila með íslenskum
liðum.
í fyrri hálfleik var nokkuð jafn-
ræði með liðunum en þó voru
Frakkarnir meira með boltann.
Þeir gáfu sér góðan tíma við
- og liðin skildu jöfn 0:0 á Laugardalsvelli í gær
byggja upp sóknir en þær strönd-
uðu flestar á sterkri vörn íslands
og góðri markvörslu Bjarna Sig-
urðssonar.
Liðin fengu sitt hvort mark-
tækifærið í fyrri hálfleik, þar sem
hurð skall nærri hælum. Bjarni
varði glæsilega í horn, hörkuskot
frá Genghini á 13. mín. og hinum
megin átti Arnór þrumuskot rétt
framhjá marki Frakka, eftir góð-
an undirbúning þeirra Ragnars
Margeirssonar og Ómars Torfa-
sonar.
í síðari hálfleik náðu Frakkar
betri tökum á leiknum, ákveðnir
í því að knýja fram sigur gegn
litla íslandi. Þeir gerðu oft harða
hríð að markinu en íslenska
vörnin varðist vel. íslenska liðið
náði nokkrum skyndisóknum en
framherjum íslands gekk erfið-
lega að komast framhjá hinum
firnasterka varnarmanni Frakka,
Basile Boli sem fór á kostum í
leiknum.
Bautamótið í golfi:
Konráð vann
Bautamótið í golfi fór fram að
Jaðri á þriðjudaginn. Leiknar
voru 18 holur með og án for-
gjafar. Rétt til þátttöku höfðu
fólk af veitingahúsum, ferða-
skrifstofum, bílaleigum, blaða-
menn og aðrir sem vinna að
ferðamálum. Keppendur voru
17 talsins.
Veitt voru vegleg verðlaun,
sem gefin voru af Bautanum á
Akureyri.
Sigurvegari með og án forgjaf-
ar varð Konráð Gunnarsson en
hann keppti fyrir Sjallann. Ann-
ars urðu úrslitin þessi:
Án forgjafar:
1. Konráð Gunnarsson 74 högg
2. Árni Jónsson 76 högg
3. Þórarinn B. Jónsson 82 högg
Árni keppti fyrir veitinga-
söluna að Jaðri en Þórarinn fyrir
Ferðaskrifstofu Akureyrar.
2. Árni Jónsson
3. Páll Pálsson
68
68
Páll keppti fyrir Nætursöluna.
Hinn glæsilegi Bautabikar sem er
farandgripur var veittur fyrir sig-
ur í keppni með forgjöf.
Með forgjöf:
1. Konráð Gunnarsson
67
Konráð Gunnarsson vann tvöfalt
Bautamótinu í golfi.
Golfvertíðinni
að Ijúka
- Fjögur mót að Jaðri um helgina
Það verður nóg að gerast að
Jaðri um helgina en þar fara
fram fjögur golfmót. Senn líð-
ur að lokum golfvertíðinnar
þetta árið og því er um að gera
fyrir fólk að taka þátt í þessum
síðustu mótum.
Á laugardag fer fram öldunga-
mót og er það 18 holu keppni,
með og án forgjafar. Mótið hefst
kl. 9 og strax og keppendur hafa
verið ræstir af stað, hefst annað
mót en það er keppnin um Sjóvá-
bikarinn. Það mót er 18 holu mót
Síðustu mínútur leiksins voru
mjög spennandi en franska liðið
náði ekki að skora mark, frekar
en það íslenska og jafntefli því
staðreynd.
Bestir í íslenska liðinu voru
varnarmennirnir Gunnar Gísla-
son, Sævar Jónsson og Ágúst
Már Jónsson, auk þess Ragnar
Margeirsson og Ásgeir Sigurvins-
son. Þá var Bjarni öryggið upp-
málað í markinu.
Franska liðið náði ekki að sýna
sínar bestu hliðar en bestur
leikmanna liðsins var Basile Boli.
Dómari var Alan Ferguson frá
Skotlandi og dæmdi hann leikinn
vel.
Mikill fjöldi áhorfenda var á
vellinum, um 13-14000 manns.
Hér skall hurð nærri hælum við franska markið, en ekkert er gefið eftir hjá Atla og Pétri.
Mynd: KGA.
Knattspyrna:
Lokaslagurinn í 1. og
2. deild um helgina
með forgjöf. Skráningu í þessi
mót lýkur kl. 21 annað kvöld að
Jaðri.
Á sunnudag verður keppt um
nafnlausa bikarinn og er það 18
holu keppni með forgjöf. Rétt tii
þátttöku hafa aðeins þeir sem eru
komnir inn fyrir girðingu að Jaðri
fyrir kl. 8.45 á sunnudagsmorgun
og fer skráning fram um leið og
mætt er fyrir þann tírna.
Fjórða mótið er Nýliðamótið
og sagt frá því annars staðar á
síðunni.
Lokaslagurinn í 1. og 2. deild
karla í knattspyrnu fer fram
um helgina en þá verður leikin
18. og síðasta umferðin. I 1.
deild er Fram með pálmann í
höndunum eftir sigur gegn
Víði á sunnudaginn var en á
sama tíma tapaði Valur fyrir
KR og missti við það efsta sæt-
ið til Framara. í 2. deild er
það Ijóst að KA og Völsungur
leika í 1. deild að ári en hvort
liðið það verður sem vinnur 2.
deildina, kemur í Ijós á sunnu-
daginn.
í lokaumferðinni leika þessi
lið saman, í 1. deild, FH-UBK,
Víðir-ÍBV, KR-Fram, ÍA-Valur
og Þór-ÍBK. í 2. deild leika,
Völsungur-Selfoss, KS-Einherji,
KA-Víkingur, Þróttur-UMFN og
ÍBÍ-Skallagrímur. Leikirnir í 1.
deild fara allir fram kl. 14 á laug-
ardag og leikirnir í 2. deild á
sama tíma á sunnudag.
Leikur FH og UBK er geysi-
lega mikilvægur fyrir bæði liðin,
sem berjast fyrir áframhaldandi
setu í 1. deild. UBK er með 15
stig en FH 18 stig. Ef UBK á að
takast að halda s'æti sínu verður
liðið að vinna leikinn með minnst
þremur mörkum og ef það tekst
fellur FH.
Leikur Víðis og ÍBV skiptir
engu máli fyrir hvorugt liðið,
ÍBV er þegar fallið og Víðir siglir
lygnan sjó. Leikur Þórs og ÍBK
skiptir heldur engu máli á toppi
eða botni. ÍBK missti af mögu-
leika á UEFA-sæti er liðið tapaði
fyrir ÍA um síðustu helgi. Þór
hangir uppi, er með 19 stig en
ÍBK er með 28 stig.
Það er aftur í leikjum ÍA og
Vals og KR og Fram sem úrslitin
í 1. deild ráðast. Fram er í efsta
sæti með 37 stig en KR í því 4.
með 28 stig. Með sigri á Fram á
KR möguleika á UEFA-sæti
næsta ár. Á sama tíma þarf Valur
að vinna ÍA á Skaganum og um
leið íslandsmótið, annað árið í
röð. Valur er í 2. sæti deildarinn-
ar með 35 stig en ÍA er með 30
stig. Það er þó ljóst að Fram næg-
ir jafntefli í leiknum gegn KR til
að verða meistari.
í 2. deild berjast KA og Völs-
ungur um sigur í deildinni. KA
stendur þar mun betur að vígi, er
í efsta sætinu, með 37 stig en
Völsungur er með 35 stig. KA
nægir jafntefli í leiknum við Vík-
ing hér á Akureyri, til að vinna
deildina. Völsungur mætir Sel-
fossi á Húsavík. Víkingur og Sel-
foss eru í 3,- 4. sæti með 31 stig.
KS mætir Einherja á Siglufirði.
KS-ingar hafa 25 stig en Einherji
er með 29 stig. Þróttur og UMFN
leika í Reykjavík og þykir það
nokkuð ljóst að það verður UMFN
sern fylgir Skallagrími í 3. deild.
Þróttur er með 23 stig en UMFN
er með 14 stig. Á ísafirði leika
heimamenn við Skallagrím og
ætti ÍBÍ að eiga sigurinn vísan í
þeim leik. ÍBI er með 15 stig en
Skallagrímur hefur ekki fengið
stig ennþá.
Nýliða-
mót í
golfi
Sídasta nýliðamót sumarsins
hjá Golfklúbbi Akureyrar
veröur haldið á laugardag og
hefst þaö kl. 12 á hádegi.
Keppt verður bæði í karla- og
kvennaflokki, karlarnir leika 18
holur en konurnar 9 holur. Rétt
til þátttöku hafa allir félagar
klúbbsins sem eru með fulla for-
gjöf og hafa ekki leikið golf nema
í tvö sumur.