Dagur - 19.09.1986, Blaðsíða 11

Dagur - 19.09.1986, Blaðsíða 11
19. september 1986 - DAGUR - 11 II. 1360-1680 (1280-1600) m á 12 mín. prófi: Vika: Vegalengd Mínútur: Sinnum Punktar metrar: sekúndur: í viku: á viku: 7. 2400 19:30 (20:30) 5 15 8. 2400 18:00(19:00) 5 15 9. 1600 10:45(11:30) 3(2) 18 (16'/i) 2400 17:00(17:45) 2(3) 18 (16Vi) 10. 1600 10:00(10:45) 1 21 2400 15:45 (16:45) 4 21 11. 1600 9:30(10:15) 2 26(24 ) 2400(3200) 14:30 (22:00) 3 26(24 ) 12. 1600 9:00 ( 9:45) 1(2) 28(26 ) 3200 20:30 (21:00) 4(3) 28(26 ) 13. 1600 8:30 ( 9:30) 1 32 2400 13:25(14:25) 2 32 3200 19:30 (19:55) 2 32 III. 1680-2080 (1600-2000) m á 12 mín. prófi: Vika: Vegalengd Mínútur: Sinnum Punktar metrar: sekúndur: í viku: á viku: 7. 2400 18:30(19:00) 5 15 8. 1600 10:45(11:30) 3 18 2400 16:30 (17:30) 2 18 9. 2400 14:15 (15:15) 2(3) 24 (25V*) 3200 20:30 (22:00) 2 24 (25VI) 10. 1600 8:30 ( 9:30) 1 32 2400 13:25(14:25) 2 32 3200 19:30(19:55) 2 32 Tafla 5. Þeim sem ná því að fá þoleink- unnina IV. eða V. gott og frábært, á 12 mín. prófinu óska ég til hamingju. Þeim nægir að viðhalda sínu góða líkamsástandi með því að afla sér minnst 30 punkta á viku með einhv?rjum þolæfingum. Það má segja að þeir séu frjálsir og óháðir, sama hvað þeir eru gamlir og hvers kyns. Þeir njóta nú þess erfiðis Almenn punktatafla, þegar a.m.k. 30 punkta þoli er náð, óháð aldri: (Sjá töflu 6.) “ 1 Ef maður kýs að sleppa 12 mín. prófinu, heldur maður bara áfram með þolflokk I þar til 30 punkta takmarkinu er náð í ró- legheitum eftir 16 vikur. Eins og sjá má, tekur það þeim mun styttri tíma að ná 30-32 punkta takmarkinu sem þolið er Vegalengd Mínútur Sinnum Punktar metrar: sekúndur: í viku: á viku: Ganga: 3200 24:00-29:00 8 32 4800 36:00-43:30 5 30 6400 48:00-58:00 4 32 8000 60:00-72:30 3 30 Hlaup: 1600 6:30- 7:59 6 30 2400 12:00:14:59 5 30 2400 9:45-11:59 4 30 3200 16:00-19:59 4 32 3200 13:00-15:59 3 30 Sund: 500 9:00-14:20 8 32 600 11:00-16:30 6 30 800 14:40:22:00 5 32 1000 17:40-27:30 4 34 Tafla 6. betra eftir 6 vikurnar. En við þá sem eiga lengst í land vil ég segja þetta: Fyrstu 6 vikurnar eru það langerfiðasta. Missum ekki kjarkinn! Hvort það tekur okkur 10 vikur alls eða 16 vikur, skiptir ekki máli. Það hefur tekið okkur lengri tíma að missa þrekið. Það sem skiptir máli er að þráast við og uppskera ánægju og betri líðan. Það sem er þó mikilvægast et öllu er að æfa reglulega og stöðugt. Auðvitað getur komið vika og vika, sem ekki er hægt að æfa vegna lasleika eða fjarveru. Þá þarf að byrja aftur eitthvað aftar í prógramminu en frá var horfið, t.d. einni viku aftar, eða fara sér hægar fyrst. Því miður verða framhalds- prógrömm fyrir fleiri íþrótta- greinar, t.d. sund, ekki birtar núna. Ef eftir því verður óskað við blaðið eða mig, er sjálfsagt að verða við því. Það er líka vel- komið að svara spurningum, sem kynnu að hafa vaknað í sambandi við æfingarnar. I næstu grein verður fjallað um hinar bráðnauðsynlegu teygju- .æfingar. Jóhanna Valdemarsdóttir snyrtifræðingur sem þeir hafa lagt í þjálfun. Hér er einungis átt við áhugafólk, en keppnisíþróttafólk æfir að sjálf- sögðu oftast mun meira. Stutt og laggóð tafla handa þessum „frjálsu“ fer hér á eftir fyrir göngu, skokk/hlaup og sund. Gunnar Sólnes: Yfirlýsing Að gefnu tilefni vegna skrifa Dags hinn 17. september sl. um bæjarþingsmálið nr. 131/1981: Rún^r Þór Björnsson gegn Rún- ari Gunnarssyni, Baldri Ellerts- syni og H-100 sf. skal eftirfarandi tekið fram: Mál þetta var þing- fest í Bæjarþingi Akureyrar hinn 30. apríl 1981 og að loknum munnlegum flutningi þess var dómur upp kveðinn hinn 3. des- ember 1982 og hljóða dómsorð svo: Stefndu, Rúnar Gunnarsson og Baldur Ellertsson, persónu- lega og f.h. H-100 sf., greiði stefnanda, Rúnari Þór Björns- syni, in solidum kr. 380.000,00 ásamt 31% ársvöxtum frá 8. febrúar 1980 til 1. júní s.á., 35% ársvöxtum frá þ.d. til 1. júní 1981, 34% ársvöxtum frá þ.d. til uppsögu dóms þessa og síðan með hæstu innlánsvöxtum (dóm- vöxtum) frá þ.d. til greiðsludags, eins og þeir verða á hverjum tíma, og kr. 70.000,00 í máls- kostnað, allt innan 15 daga frá lögbirtingu dóms þessa að við- lagðri aðför að lögum. Lögmaður stefnanda Magnús Þórðarson lét gera fjárnám í eignum dómþola á grundvelli dómsins hinn 17. mars 1983 í eignarhluta dómþola í fasteign- inni nr. 100 við Hafnarstræti og var því þinglýst. Dómskuldin var gerð upp við Magnús Þórðarson í apríl 1984 og lét hann þá aflýsa fjárnáminu. Magnús Þórðarson stóð ekki í skilum við umbjóð- anda sinn, sem leitaði þá til Lög- mannafélags íslands. Gísli Bald- ur Garðarsson hrl. tók að sér mál Rúnars Þórs Björnssonar og komst hann að þeirri niðurstöðu að dómskuldin væri ekki að fullu greidd og í framhaldi af því voru honum greiddar kr. 45.000,00 hinn 2. september 1985 og var þá gefin út fullnaðarkvittun fyrir greiðslu á dómskuldinni. í reynd er staðan sú, að dóm- skuldin er að fullu greidd á lög- formlegan hátt, en tjónþolinn Rúnar Þór Björnsson hefur ekki fengið greiddar þær skaðabætur sem honum voru tildæmdar. Fyr- ir liggur í máli þessu að lögmenn Rúnars Þórs Björnssonar höfðu fullt umboð til þess að taka við greiðslum á dómskuldinni og er hún því að fullu greidd hvað varðar skjólstæðinga mína. Hvort Rúnar Þór Björnsson hef- ur fyrirgert rétti sínum til greiðslu úr ábyrgðarsjóði Lög- mannafélags íslands vegna samn- inga sinna við fyrrum lögmann sinn Magnús Þórðarson er ekki mitt að dæma um. í niðurlagi hinnar dæmalausu greinar sinnar segist blaðamaður- inn hafa þurft að hafa samband við marga aðila og hvergi gengið bónleiður til búðar. Ljóst er þó af greininni að blaðamaðurinn hef- ur ekki talað við neina aðila sem hafa undir höndum upplýsingar um þetta mál, því fyrir utan órökstuddar dylgjur og fleipur þá virðist umrædd blaðagrein skrif- uð af slíkri vanþekkingu að með eindæmum er. Að lokum vil ég taka fram að eins og þessum skrifum er háttað í minn garð og skjólstæðinga minna verður ekki hjá því komist að láta þau sæta kæru til siða- nefndar Blaðamannafélags íslands. Akureyri, 18. september 1986. Gunnar Sólnes hrl. Hvenær byrjaðir þú ----UX m Ij TONUSTARSKOLINN A AKUREYRI Frá Tónlistarskóla Akureyrar Skólinn verður settur í Akureyrarkirkju sunnudaginn 21. september kl. 17.30. Nýir kennarar flytja tónlist. Nemendur, foreldrar og annað áhugafólk fjöl- menni- Skólastjóri. Innritun er hafin í vefrarnámskeiðið sem hefst 29. september. ★ Jazzballet. ★ Jazzleikskóli. . ^ ★ Jazzleikfimi. a ★ Róleg almenn * . leikfimi. I ★ Aerobic. I fjgmsstudió Wnli.v J Tryggvabraut 22 Innritun í síma 24979 frá kl. 18.00-21.00. /ÉRVER/LUn mEO HnnnvpÐnvöPUR ... CtnncL iKcviia Opnum í dag eftir eigendaskipti og gagngerðar breytingar Eins og fyrr munum við kappkosta að veita sem besta og fjölbreyttasta þjónustu í hvers konar handavinnu. Eitt mesta og besta úrval af prjónagarni sérðu hjá okkur. Þetta góða frá PATONS og DOROTHIE BIS meðal annars. Komdu og líttu inn - Kaffí á könnunni. Veitum ellilífeyrisþegum, skólum og stofnunum 10% afslátt. Opið frá kl. 10-6 og 10-12 á laugardögum. Um leið og ég óska nýju eigendunum til hamingju, vil ég þakka viðskiptavinum mínum skemmtilegan tíma og viðkynningu. ÁSTA SIGVALDADÓTTIR. /ERVER/LUn mEO HnnnvRÐftvöRUR ■ ■ ■ Ctnna UoAÍa Jí|É|li| ^;

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.