Dagur - 24.09.1986, Blaðsíða 5
„ Erum stoltir af
þessum nýju tækjum“
- segir Gunnar Gunnarsson, sölustjóri hjá Japis,
sem nú kynnir nýja kynslóð af Panasonic myndsegulböndum
„Japis er alhliða hljómtækja-
verslun. Það má segja að við
séum með hljómtæki í ölluin
verðflokkum og af öUum
gerðum. Einnig erum við með
Með lögum nr. 102 31. des-
ember 1985, um heimUd fyrir
ríkisstjórnina tU að selja
Kröfluvirkjun í Suður-Þingeyj-
arsýslu, var ríkisstjórninni
ennfremur heimUað að selja
Landsvirkjun eignir Jarð-
varmaveitna ríkisins í Bjarn-
arflagi í Skútustaðahreppi í
Suður-Þingeyjarsýslu.
Samningar hafa nú tekist milli
ríkisins og Landsvirkjunar um
sölu á eignum þessum og var
samningur þar að lútandi undir-
ritaður í Reykjavík miðvikudag-
inn 17. september 1986. Samn-
inginn undirrituðu Albert Guð-
mundsson, iðnaðarráðherra og
Þorsteinn Pálsson, fjármálaráð-
herra f.h. ríkisstjórnar íslands og
dr. Jóhannes Nordal, stjórnarfor-
maður og Halldór Jónatansson,
forstjóri Landsvirkjunar f.h.
fyrirtækisins.
Akureyri:
Iðntækni-
stofnun
kynnir
starfsemi
sína
Á morgun klukkan 17.00 verð-
ur haldinn fundur á vegum
Iðntæknistofnunar Islands og
Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar I
Alþýðuhúsinu við Skipagötu
14 á Akureyri. Er þetta liður í
„Hringferðaráætlun Iðntækni-
stofnunar íslands 1986“.
Markmið þessarar áætlunar
Iðntæknistofnunar er að heim-
sækja um 140 fyrirtæki á landinu
og halda fundi um iðnaðarmál.
Með þessu vill stofnunin kynnast
þörfum iðnfyrirtækja og kynna
þá þjónustu sem hún hefur upp á
að bjóða.
Á fundinum í Alþýðuhúsinu
munu aðilar frá Iðntæknistofnun
kynna starfsemi hennar og halda
erindi um iðnað í landinu. Einnig
verður rætt um stöðu iðnaðar og
framtíðarmöguleika. Þeir sem
halda erindi eru, Páll Kr. Pálsson
forstjóri, Örn D. Jónsson verk-
efnastjóri og Haukur Alfreðsson
frá rekstrartæknideild.
í tengslum við þennan fund
verða nokkur iðnfyrirtæki á
Akureyri heimsótt. gej-
breiða línu í myndböndum og
sjónvörpum,“ sagði Gunnar
Gunnarsson, sölustjóri hjá
Japis. Japis var með bás á
heimilissýningunni í Laugar-
Samkvæmt samningnum kaupir
Landsvirkjun eignir Jarðvarma-
veitna ríkisins í Bjarnarflagi
ásamt tilteknum rétti til hagnýt-
ingar jarðhitaorku á þvf svæði.
Landsvirkjun tekur við gufu-
veitunni í Bjamarflagi til eignar
og rekstrar ásamt skuldbinding-
um um afhendingu á gufu til kís-
ilgúrverksmiðjunnar við Mývatn
skv. lögum nr. 80 15. ágúst 1966,
svo og skuldbindingum um gufu-
afhendingu vegna Hitaveitu
Skútustaðahrepps og Léttsteyp-
unnar h.f. skv. samningum við
eigendur jarðanna Reykjahlíðar
og Voga í Skútustaðahreppi.
Kaupverð eignanna er 120
millj. kr. sem greiðist með
skuldabréfi til 15 ára verðtryggt
og eru vextir 3% p.a.
Samningurinn um kaupin tek-
ur gildi hinn 1. janúar 1987, enda>
hafi þá verið gerður gufuöflunar-
samningur milli Landsvirkjunar
og Kísiliðjunnar h.f. til að taka
gildi sama dag.
dalshöll og þar hitti blaðamað-
ur Gunnar að máli.
„Á sýningunni erum við að
kynna nýja kynslóð af mynd-
segulböndum frá Panasonic.
Þetta eru tæki sem kölluð eru
VHS HQ. Sem þýðir „high
quality.“ Við köllum það full-
komið myndgæðakerfi."
- Hver er helsti munurinn á
þessum tækjum og þeim gömlu?
„Munurinn liggur í því að búið
er að endurnýja mikið af rásum,
auk þess er mikið af nýjum
rásum. Þetta gerir það að verkum
að myndgæðin hafa aukist mikið.
Allt gangverkið er orðið vand-
aðra og vinnur betur. Tækin eru
mun minni en gengur og gerist.
Þau eru ekki nema 9,9 cm á hæð
og 38 cm á breidd. Þyngdin er
aðeins 6,7 kg en algengt er að
myndsegulbönd vegi 12-14 kg. Á
þessu sést að mikil framför hefur
átt sér stað í allri uppbyggingu
tækisins.“
Panasonic er með tvær gerðir
af þessari nýju línu í myndsegul-
böndum. Er það NV-G7, sem
kostar 39.850 kr. og NV-G10,
sem kostar 44.950. Dýrari gerðin
er með hreinni kristaltærri
kyrrmynd, hreinni mynd fyrir
mynd og hreina og truflunarlausa
hægmynd. Eru þetta miklir
möguleikar fyrir þá sem þurfa að
„stúdera“ myndina. „Við erum
ákaflega stoltir af þessum nýju
tækjum, enda eru Panasonic
bæði stærstu og fremstu mynd-
bandaframleiðendur heims. Við
höfum því ástæðu til að vera
hamingjusamir þessa dagana,“
sagði Gunnar. -HJS
Flugfiskur 22 fet til sölu.
Báturinn er útbúinn öllum tækjum þ.á.m. t.d. lóran.
Uppl. í síma 21977 og 26428 á kvöldin.
Bifreiðaeigendur -
Bifreiðastjórar
Snjóhjólbarðarnir eru komnir, nýir og sólaðir í
miklu úrvali.
Jafnvægisstillum öll dekk.
Athugið okkar frábæru aðstöðu.
Opið á laugardögum fyrir hádegi.
hjólbarðaverkstæði
Óseyri 2, sími 23084 og 21400.
Landsviriqun
keypti Kröfluvirkjun
24. september 1986 - DAGUR - 5
Herragallabuxur.
Stærðir 30-40. Verð kr. 695.-
Dömugallabuxur.
Stærðir 29-34. Verð 798 kr.
Herraflauelsbuxur.
Stæröir 31-40. Verð kr. 600.-
Kuldaúlpur í mörgum gerðum.
Verð frá kr. 1.498.-
Athugið! Lokað í hádeginu. Opið laugardaga 10-12.
m
Eyfjörð
Hjaltayrargötu 4 simi 22275
jgk, Styrkir til náms í Sambands-
íllf lýðveldinu Þýskalandi
Þýska sendiráðið í Reykjavík hefur tilkynnt íslenskum
stjórnvöldum að boðnir séu fram eftirtaldir styrkir handa
íslendingum til náms og rannsóknarstarfa í Sambandslýð-
veldinu Þýskalandi á námsárinu 1987-88:
1. Fjórir styrkir til háskólanáms. Umsækjendur skulu
hafa lokið a.m.k. tveggja ára háskólanámi.
2. Nokkrir styrkir til að sækja þýskunámskeið sumar-
ið 1987. Umsækjendur skulu hafa lokið eins árs
háskólanámi og hafa góða undirstöðukunnáttu í
þýskri tungu.
3. Nokkrir styrkir til vísindamanna til námsdvalar og
rannsóknarstarfa um allt að fjögurra mánaða skeið.
Umsóknir um styrki þessa skulu sendar menntamálaráðu-
neytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 1. nóvember
nk. Sérstök umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást
í ráðuneytinu.
17. september 1986.
Menntamáiaráðuneytið.
|& Styrkir til náms
1® í Svíþjóð
Sænsk stjórnvöld bjóða fram nokkra styrki handa erlend-
um námsmönnum til að stunda nám í Svíþjóð námsárið
1987-88. Styrkir þessir eru boðnir fram í mörgum löndum
og eru öðru fremur ætlaðir til náms sem eingöngu er unnt
að leggja stund á í Svíþjóð. Styrkfjárhæðin er 3.755
sænskar krónur á mánuði námsárið, þ.e. 9 mánuði. Til
greina kemur að styrkur verði veittur í allt að þrjú ár.
Nánari upplýsingar um styrki þessa fást í menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, en umsóknir
skulu sendar til Svenska Institutet, box 7434, S-103 91
Stockholm og lætur sú stofnun í té tilskilin umsóknareyðu-
blöð fram til 1. desember nk., en frestur til að skila
umsóknum ertil 15. janúar 1987.
17. september 1986.
Menntamálaráðuneytið.
INH
tUTTTPrfrtnrrtg
Styrkir til sérfræði-
þjálfunar í Bretlandi
Samtök breskra iðnrekenda, Confederation of British
Industry, veita árlega nokkra styrki til þjálfunar á vegum
iðnfyrirtækja í Bretlandi. íslendingum gefst kostur á að
sækja um slíka styrki fyrir tímabilið 1987-88, en ekki er vit-
að fyrirfram hvort styrkur kemur í hlut (slands að þessu
sinni. Umsækjendur skulu hafa lokið fullnaðarprófi í verk-
fræði eða tæknifræði og hafa næga kunnáttu í enskri
tungu. Þeir skulu að jafnaði ekki vera eldri en 35 ára. Um
er að ræða tvenns konar styrki: Annars vegar fyrir menn
sem hafa starfað 1-4 ár að loknu prófi en hafa hug á að
afla sér hagnýtrar starfsreynslu í Bretlandi. Eru þeir styrkir
veittir til 1-1 Vz árs og eiga að nægja fyrir eðlilegum dvalar-
kostnaði einstaklings, auk þess sem að öðru jöfnu er
greiddur ferðakostnaður til og frá Bretlandi. Hins vegar eru
styrkir ætlaðir mönnum sem ekki hafa minna en 5 ára
starfsreynslu að loknu prófi og hafa hug á að afla sér þjálf-
unar á sérgreindu tæknisviði. Þeir styrkir eru veittir til 4-12
mánaða og er ætlað að nægja fyrir dvalarkostnaði ein-
staklings en ferðakostnaður er ekki greiddur. - Umsóknir á
tilskildum eyðublöðum skulu hafa borist menntamálaráðu-
neytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 1. nóvember
nk. Umsóknareyðublöð, ásamt nánari upplýsingum, fást í
ráðuneytinu.
17. september 1986.
Menntamálaráðuneytið.