Dagur - 24.09.1986, Blaðsíða 7
24. september 1986 - DAGUR - 7
Ný aðferð tíl
fítumælinga
Jónas Þorgrímsson vinnur við
að fitumæla kjötið og til þess
notar hann sérstakan fitumæli
sem hann segir að Andrés
kjötmatsformaður hafi hannað
og þessi mælir hafi verið tek-
inn í notkun í öllum sláturhús-
um í haust.
Á þessum nýja mæli eru tveir
armar, öðrum þeirra er stungið á
tólfta rif á síðunni á skrokknum,
hinn armurinn stingst í gegnum
síðuna og þá er hægt að lesa
þykkt hennar á millimetra-
kvarða. Þykktin má vera 12 mm
annars fer kjötið í O-flokkinn,
fituflokkinn. Þessi nýi mælir auð-
veldar mjög flokkun kjötsins.
Jónas lítur út fyrir að vera þaul-
vanur störfum á sláturhúsi og er
því spurður hvað hann hafi unnið
við slátrun í mörg haust og
hvernig honum líki. Ekki vill
Jónas gefa upp fjölda þeirra
hausta sem hann hefur unnið á
sláturhúsinu en segist hafa byrjað
fjórtán ára. „Maður er leiður á
þessum fjandans færibanda-
hávaða, sérstaklega þegar hann
blandast saman við Rás 2. Ég
þarf að hafa athyglina við mæl-
inguna og þá verður hávaðinn
þreytandi."
- Hefur vinnan við slátrunina
ekki breyst mikið síðan þú byrj-
aðir?
„Ég byrjaði á því að vinna í
frostinu, mesta breytingin varð
þegar færibandakerfið var tekið
upp, þá var farið að vigta kjötið
strax en áður var það vigtað
morguninn eftir.“
- Er ekki alltaf heilmikið líf og
fjör í sambandi við sláturhúss-
vinnuna?
„Flestir sem vinna hérna fara
heim á föstudagskvöldum svo að
á fimmtudagskvöldum er höfð
nokkurs konar aukahelgi.“ IM
Ingibjörg Jóhannesdóttir, skoðar og snyrtir
skrokkana og líkar það alveg Ijómandi vel.
Guðfinna, Málfríður og Hlaðgerður skilja inn-
yflin sundur.
Starfsfólkið í eldhúsinu, Gunnþóra Jónsdótt-
ir, Þóra Jónsdóttir, Karólína Jónsdóttir og
Hulda Karlsdóttir.
Fláning. Myndir: IM
Jónas Þorgrímsson fitumælir.
Bragi Jónsson klippir hornin af
hausunum.
likar best í þvottahúsinu
Á neðrí hæðinni á sláturhúsinu
á Kópaskeri var Hjördís VU-
hjálmsdóttir frá Hrauntúni í
Núpasveit við að pakka lifur.
Hjördís hefur unnið á slátur-
húsinu síðan 1973 og mUli slát-
urtíða vinnur hún í kjötiðj-
unni. Þar var hún verkstjóri í
fjögur ár, þar til kjötiðnaðar-
maður hóf störf í fyrra.
Fyrst er Hjördís spurð hvernig
henni líki sláturhússvinnan.
„Mér líkar hún sæmilega, þetta
er svolítið erfitt en mismunandi
eftir því í hvaða verki maður er.
Núna vinn ég aðallega í þvotta-
húsinu og held að mér líki það
best.“
- Segðu mér frá kjötiðjunni,
hvað er framleitt og fyrir hve
stórt markaðssvæði?
„Við búum til pylsur, sperðla,
kæfu og hangikjöt og erum að-
eins að byrja að framleiða álegg.
Markaðssvæðið er frá Þórshöfn
til Ásbyrgis nema að mikið af
hangikjötinu hefur farið til
Reykjavíkur.“
- Kjötiðjan á Kópaskeri hefur
fengið á sig gott orð fyrir slátur-
gerð, hver fann upp svona góða
uppskrift?
„Ég held að sá sem stjórnaði
fyrst, Kristján Benjamínsson,
hafi unnið að þróun uppskriftar-
innar og það gengur ágætlega að
selja slátrið." IM