Dagur - 24.09.1986, Blaðsíða 9
24. september 1986 - DAGUR - 9
íþ róttiL
Lið KA í 5. flokki A, Akureyrarmeistari 1986.
Lið KA í 5. flokki B. Akureyrarmeistari 1986. Þjálfari íiðanna er Gunnar
Gunnarsson.
Lið Þórs í 5. flokki C. Akureyrarmeistari 1986, ásamt þjálfara sínum Árna
Stefánssyni. Myndir: KK
Knattspyrna:
Jafnir og skemmti-
legir leikir
- í Akureyrar- og haustmóti 5. flokks
Leikirnir í Akureyrar- og
haustmótinu hjá 5. flokki voru
sennilega jöfnustu og skenimti-
legustu viðureignimar í þess-
um mótum í sumar. KA varð
Akureyrarmeistari í 5. flokki
A og B en Þór varð meistari í
5. flokki C.
Fyrri leikir liðanna í Akureyr-
KAfær
styrk
f tilefni þess að Knattspyrnufélag
Akureyrar hefur unnið sér sæti í
1. deild á ný að ári hefur bæjar-
ráð samþykkt að heiðra félagið
með styrk úr bæjarsjóði að upp-
hæð kr. 100.000.
armótinu fóru þannig, að KA
vann Þór 4:1 í leik A-liðanna en
Þór snéri dæminu við í leik B-lið-
anna og sigraði 2:1. Þór sigraði
einnig í leik C-liðanna, 1:0.
í seinni leikjum liðanna, fóru
leikar þannig að jafntefli varð í
leik A-liðanna, 2:2 og dugði það
KA til að verða meistari. I leik B-
liðanna náði KA fram hefndum
frá fyrri leiknum og sigraði 2:1.
Því réðust úrslitin hjá þessum lið-
um ekki fyrr en í leiknum í haust-
mótinu. í leik C-liðanna vann
Þór örugglega 5:1 og því í báðum
leikjunum.
í haustmótinu fóru leikir þess-
ara liða þannig, að Þór sigraði 4:1
í A-liðanna, KA sigraði Þór í leik
B-liðanna, 7:6 eftir víta-
spyrnukeppni og dugði það KA
til sigurs á Akureyrarmótinu
einnig. Jafntefli 2:2 varð í leik
C-liðanna.
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Ísland-Sovétríkin í kvöld:
Tekst íslenska iiðinu
að standa í Itinum
sókndiörfu Sovétmönnum?
í kvöld leika landslið íslands
og Sovétríkjanna landslcik í
knattspyrnu. Leikurinn er ann-
ar leikur íslands, í B-riðli
Evrópumótsins og fer fram á
Laugardalsveliinum og hefst
kl. 17.30. í fyrsta leik Islands,
gegn Frökkum um daginn varð
jafntefli 0:0, sem verður að
teljast mjög góður árangur hjá
íslenska liðinu.
Lið íslands í kvöld er skipað
sömu leikmönnum og léku leik-
inn gegn Frökkum á dögunum og
eru 9 atvinnumenn í íslenska
hópnum. Þó hefur Sigi Held
landsliðsþjálfari íslands ákveðið
að bæta Viðari Þorkelssyni úr
Fram í hópinn, sem 16. manni.
Er það gert þar sem þeir Gunnar
Gíslason og Sigurður Jónsson,
eiga við smávægileg meiðsli að
stríða. Annars er liðið skipað
eftirtöldum leikmönnum.
Markverðir:
Bjarni Sigurðsson Brann
Stefán Jóhannsson KR
Aðrir leikmenn:
Ágúst Már Jónsson KR
Arnór Guðjohnsen Anderlecht
Ásgeir Sigurvinsson Stuttgart
Atli Eðvaldsson Uerdingen
Guðm. Þorbjörnsson Baden
Guðni Bergsson Val
Ólafur Þórðarson í A
Gunnar Gíslason KR
Ómar Torfason Luzern
Pétur Pétursson ÍA
Ragnar Margeirsson Waterschei
Sigurður Jónsson Sheff.Wed.
Sævar Jónsson Brann
Viðar Þorkelsson Fram
í sovéska liðinu sem kemur til
landsins eru engir aukvisar og
flestir þeirra sem koma, voru
með liðinu í Mexíkó í sumar. Má
þar nefna menn eins markvörð-
inn Dasaev og Oleg Bolkhin. Það
er þó ljóst að Igor Belanov aðal-
markaskorari liðsins kemur ekki,
vegna meiðsla. Engu að síður eru
í liðinu margir snillingar, sem
gaman verður að fylgjst með.
Ekki eru margir á því að ísland
nái að sigra hina sókndjörfu
Sovétmenn en vonandi nær
íslenska liðið góðum leik og um
leið hagstæðum úrslitum.
Hvað beinar útsendingar af
leiknum varðar, þá er það ljóst
að leikurinn verður ekki sýndur
beint í íslenska sjónvarpinu en
verður þó sýndur þar. Áð sögn
Ellerts B. Schram formanns KSÍ
myndi það kosta sjónvarpið ein-
hverjar milljónir að fá að sýna
leikinn beint.
„Það tíðkast hvergi í heimin-
um að leikir séu sýndir beint
innanlands nema uppselt sé á þá
fyrirfram. Og ísland verður ekki
fyrst landa til að taka upp á því.
Hér á landi er allra veðra von og
KSÍ þarf mikinn fjölda áhorfenda
á völlinn til þess m.a. að ná end-
um saman við rekstur sambands-
ins,“ sagði Ellert B. Schram.
Knattspyrnuáhugamenn á
landsbyggðinni verða því að láta
sér nægja að hlusta á lýsingu af
leiknum í útvarpi.
Knattspyrna:
Lið UMSS keppir á
landsmótinu á Húsavík
Keppni í einum af fjórum riðl-
um í undankeppni í knatt-
spyrnu fyrir Landsmót UMFÍ
sem fram fer á Húsavík næsta
sumar fór fram í Borgarnesi
um síðustu helgi. Þar tryggði
lið Ungmennasambands
Skagafjarðar ásamt liði frá
Ungmennasambandi Kjalar-
nesþings sér þátttökurétt í úr-
slitakeppninni á Húsavtk. Lið
UMSS skipað blöndu úr
Tindastóli og Höfðstrendingi
og þar af einungis fjórum af
fastamönnum Tindastólsliðsins
í sumar tók nokkra áhættu
með því að leika báða sína
leiki í keppninni sama daginn.
Keppni í þessum riðli undan-
keppninnar átti upphaflega að
fara fram á Hvammstanga í ágúst
sl. á vegum USVH. En að ósk
hinna þátttökuliðanna sem þá
voru á kafi í deildakeppni
íslandsmótsins var keppninni
frestað. Við frestunina dró
USVH sig út úr keppninni og var
þá UMSB falin framkvæmd
hennar.
Fyrsti leikurinn fór fram á
föstudagskvöld er UMSB, skipað
leikmönnum úr Skallagrími og
HV og UMSK, sem tefldi fram
liði ÍK, leiddu saman hesta sína.
Leiknum lauk með jafntefli 1:1
og þóttu Borgfirðingar heppnir.
Lið UMSS mætti síðan til keppni
á laugardag með tólf útileikmenn
og þrjá markverði. Fyrri leikur-
inn var gegn UMSK og var hon-
um flýtt eins og kostur var að
beiðni Guðjóns Guðmundssonar
þjálfara ÍK, en kona hans lá á
fæðingardeildinni. Leikurinn var
fremur jafn allan tímann þó ÍK
væri heldur meira með boltann.
Það voru samt Skagfirðingar sem
náðu fljótlega forystunni með
marki Þórhalls Ásmundssonar,
en undir lok fyrri hálfleiks náðu
sunnanmenn að jafna úr víta-
spyrnu. Það var svo 5 mínútum
fyrir leikslok sem UMSK skoraði
sigurmarkið og vann leikinn 2:1.
Þrem klukkustundum síðar var
svo UMSS mætt til leiks á ný og
nú gegn Borgfirðingum. Skag-
firðingarnir náðu að leika sama
leikinn og fyrr um daginn er
Magnús Jóhannesson skoraði um
miðbik fyrri hálfleiks af stuttu
færi.
Eyjólfur Sverrisson bætti
við marki í upphafi seinni hálf-
leiks úr þröngu færi rétt innan
vítateigs. Borgfirðingar náðu
skömmu síðar að minnka muninn
og virtust ákveðnir í að jafna
Þorsteinn Ólafsson hefur verið
ráðinn þjálfari 3. deildar iiðs
Magna í knattspyrnu næsta
keppnistímabii. Þorsteinn er
ekki ókunnugur í herbúðum
Magna, því hann þjálfaði liðið
í fyrra og var liðið þá mjög
nálægt því að vinna sér sæti í 2.
deild.
Liðinu gekk ekki eins vel í
sumar undir stjórn júgóslavneska
leikinn sem hefði dugað þeim til
að komast á landsmótið á Húsa-
vík næsta sumar. En Páll Brynj-
arsson gerði vonir þeirra að engu
er hann 15 mínútum fyrir leikslok
tók boltann viðstöðulaust á lofti
af liðlega 30 metra færi og þrum-
aði í markið. Þar með var allur
vindur úr Borgfirðingum og urðu
þeir að sætta sig við 3:1 sigur
UMSS. Þar með höfðu Skagfirð-
ingarnir náð takmarkinu, þátt-
tökuréttinum í knattspyrnu-
keppni Landsmóts UMFÍ á
Húsavík næsta sumar. En það
voru þreyttir menn sem komu í
Skagafjörðinn seint á laugardags-
kvöld eftir að hafa leikið knatt-
spyrnu í þrjá tíma fyrr um
daginn. -þá
þjálfarans Mile Krsta Stanojev
og hafnaði í 6. sæti í B-riðli.
Þorsteinn var aðstoðarþjálfari
Björns Árnasonar hjá Þór í sum-
ar og þjálfaði einnig 2. flokk
félagsins.
Magnamenn eru mjög ánægðir
með að hafa fengið Þorstein til
starfa á ný og horfa björtum aug-
um til framtíðarinnar.
Þjálfaramál Magna:
Þorsteinn ráðinn
þjálfari Magna
- í knattspyrnu næsta keppnistímabil