Dagur - 24.09.1986, Síða 6

Dagur - 24.09.1986, Síða 6
6 - DAGUR - 24. september 1986 Heimsókn í Sláturhús KNÞ Kópaskei Á Kópaskeri er Sláturhús KNÞ, sláturhússtjóri er Gunn- ar Páll Ólason. Þegar blaða- maður Dags mætti í sláturhús- ið og spurði eftir sláturhús- stjóranum var sagt að hann væri auðvelt að finna, hann væri alls staðar. Hins vegar var blaðamaðurinn varaður við að ná tali af sláturhússtjóranum því það vantaði fólk til starfa, sérstaklega fláningsmenn og mundi sláturhússtjórinn umsvifalaust setja blaðamann- inn til þeirra starfa. Þetta fór þó ekki alveg eftir, Gunnar Páll svaraði nokkrum spurn- ingum ljúfmannlega, fann slopp og húfu fyrir gestinn og bauð honum að skoða sig um í húsinu. Sagðist því miður ekki mega vera að því að fylgja gestinum um því það vantaði menn í fláninguna og hann yrði að fara sjálfur að hjálpa til. Svona eiga verkstjórar að vera. Gunnar Páll Ólason sláturhússtjóri. „Hér er fyrsta flokks aðstaða, 1980-81 var tekið í notkun nýtt kerfi, svonefndur fláningsbekk- ur. Við getum lógað 1500 á dag en þessa dagana er afkastagetan aðeins 1300 vegna þess að okkur vantar tvo fláningsmenn til að ná fullum afköstum. I haust var byrjað að slátra 11. sept. og ef allt gengur að óskum verðum við búnir 9. okt. Það er unnið frá átta á morgnana til sjö á kvöldin. Áætlað er að lóga 26.500 fjár þar af 2000 af fullorðnu fé. Þetta eru svipaðar tölur og í fyrra en þó er heldur fleira fullorðið fé í ár. Á næsta ári mun verða fækkun á sláturfé vegna niðurskurðarins í Kelduhverfi í haust.“ - Þú ert bóndi, hvernig líður bóndanum að láta slátra öllu þessu fé? „Sláturhússvinnan er mín aukabúgrein og þetta er bara viss liður í bændastarfinu. Við berum engar svoleiðis tilfinningar til skepnanna, ölum börnin okkar upp með þá staðreynd fyrir aug- En Gunnar Páll var fyrst spurður um vöntun á starfsfólki. „Já, það vantar fólk, hins veg- ar er dagamunur á því hve marga vantar. Þessari vinnu er nánast eingöngu sinnt af fólkinu úr sveit- unum og á þessum tíma þarf það að sinna göngum og fleiri slíkum haustverkum en vinnur hér þegar tími gefst til. Til dæmis vinna 94 hér í dag en stöðurnar eru 106. Núna eru hérna ansi margir krakkar sem fara í skóla á næstu vikum, en þá verður orðið minna að gera við búskapinn svo fleira fólk fæst til starfa." - Er erfitt að fá fólk til starfa vegna góðs atvinnuástands á Kópaskeri? „Sláturtíð stendur aðeins í um fjórar vikur á ári og ekki er hægt að ætlast til að fólk á Kópaskeri sé atvinnulaust aðra tíma ársins til þess að það geti stundað vinnu á sláturhúsinu.“ - Hvernig er aðstaðan til slátr- unar hjá ykkur? um að féð fari í sláturhúsið. Þó eigum við okkar uppáhaldskind- ur heima og einstaka bændur lóga ekki uppáhaldsskepnunum sínum, láta þær verða ansi gaml- ar en ég held að það sé enginn kostur.“ IM Tómas og Egill taka innan úr. Jón Stefánsson, Ari Þór Jónsson og Þórarinn Sveinsson merkja kassa undir Iifur.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.