Dagur


Dagur - 24.09.1986, Qupperneq 12

Dagur - 24.09.1986, Qupperneq 12
Þjónusta fyrir háþrýstislöngur olíuslöngur og barka Pressum tengin á Fullkomin tækni vönduð vinna l Fyrstu dagar slátrunar: Mikill munur á hlutfalli í 0-flokk - „Matið alls staðar það sama,“ seglr yfirkjötmatsmaður Slátrun hefur nú staðið í 5-7 daga víðast á Norðurlandi. Fé virðist yfirleitt vera vænna en í fyrra og er meðalvigt eftir þessa fyrstu daga nokkru meiri en í lok sláturtíðar í fyrra. Það ber þó að hafa í huga að oft er vænsta fénu slátrað fyrst og einnig er töluverður munur milli bæja þannig að þessar töl- ur eru alis ekki endaniegar. Töluverður munur virðist vera milli sláturhúsa á fjölda dilka sem felldur er í hinn svokallaða 0- flokk en í því sambandi ber ein- nig að leggja áherslu á að hér er um fyrstu tölur að ræða frá mis- munandi svæðum. Reglurnar um 0-flokk eða 2. Dalvík: Nýr bæjar- ritari Á fundi bæjarráðs Dalvíkur 12. september var ákveðið að ráða Hjálmar Kjartansson sem bæjarritara frá og með 15. september. Snorri Finnlaugs- son sagði starfinu Iausu 1. júlí en mun starfa til 1. október þegar hann tekur við starfi skrifstofustjóra Sparisjóðs Svarfdæla. Hjálmar Kjartansson er 28 ára gamall ættaður af Vestfjörðum en bjó áður á Suðurlandi. Hann hefur lokið fyrrihlutaprófi í við- skiptafræði frá Háskóla íslands og hefur sinnt ýmsum störfum þ.á m. skrifstofustörfum. Starf bæjarritara er þríþætt. Hann er staðgengill bæjarstjóra, skrif- stofustjóri bæjarins og fjármála- stjóri bæjarins. Dagur óskar Hjálmari alls hins besta í nýju starfi. ET flokk 0 eru nú talsvert breyttar frá því sem þær hafa verið undan- farin ár eða frá því núverandi reglugerð um kjötmat tók gildi árið 1977. Þessar breytingar eru í því fólgnar að þykkt fitulagsins er mæld á einum stað í stað þriggja og eru skiptin á milli 1. fl. og 2. fl. 0 miðuð við 12 mm. Þessar breytingar eru gerðar til að sam- ræmast nýrri reglugerð sem tekur gildi um áramót. Sigurjón Gestsson sláturhús- stjóri á Sauðárkróki sagði meðal- vigt þar, þegar búið væri að slátra 4800 dilkum, 14,95 kg sem væri mjög gott og um hálfu kg meira en í fyrra. Af þessum dilkum fóru 16,65% í 0-flokk en í fyrra voru það 2%. Á Akureyri hefur slátr- un staðið í rúma viku og er með- alvigtin þegar slátrað hefur verið tæplega 5400 dilkum 15,6 kg sem er rúmu kílói meira en í fyrra. Hlutfall 0-flokks eftir þessa daga er 10,3% en að sögn Óla Valdi- marssonar sláturhússtjóra er þetta hlutfall mjög misjafnt milli daga. Hjá Jóhannesi Þórarinssyni sláturhússtjóra á Húsavík fengust þær upplýsingar að eftir 6 daga slátrun væri meðalvigt 14,3 kg en hefði í fyrra verið 13,6 kg. Eftir þessa fyrstu daga hafa aðeins rúm 3% dilka fallið í 0-flokk. Stefán Vilhjálmsson yfirkjöt- matsmaður á Norðurlandi sagði í samtali við blaðið að þessi mikli munur á hlutfalli 0-flokks væri alveg eðlilegur. „Þarna er ekki verið að fara eftir neinni fyrir- fram ákveðinni skiptingu þannig að dreifingin milli gæðaflokka er auðvitað misjöfn eftir bæjum og eftir byggðarlögum og þar af leið- andi eftir sláturhúsum. Mér ber að fylgjast með þessu kjötmati og ég get borið það að það sem ég hef séð í þessum húsum er sam- viskusamlega mælt eftir settum reglum og alls staðar á sama hátt,“ sagði Stefán ET Rækjuveiðibáturinn Björg Jónsdóttir ÞH 321 fékk trollið í skrúfuna í fyrradag við Grímsey. Myndin er tekin þegar báturinn var kominn til hafnar á Húsavík en þangað var hann dreginn. Mynd: im Togarar Ú.A.: Um 800 tonn nú eftir af þorskkvóta - Afli verið lítill að undanförnu „Það hefur verið tregt að undanförnu,“ sagði Einar Ósk- arsson hjá Utgerðarfélagi Akureyringa h.f. er við leituð- um frétta af aflabrögðum togara fyrirtækisins að undan- förnu. Einar sagði að í síðustu viku hefði Kaldbakur landað 191 tonni og var megnið af þeim afla karfi, eða 173 tonn og var afla- verðmæti 2,8 milljónir króna. Þá landaði Sléttbakur 69 tonnum, meginhluti þess afla var þorskur og var aflaverðmæti um 1,6 millj- ónir króna. Hrímbakur kom svo til löndunar í gær með 80 tonn og var megnið af því karfi. Að sögn Einars er nú farið að ganga verulega á þorskkvóta togara ÚA. Ekki eru eftir af kvóta nema um 800 tonn, auk þess sem breyta má aflasamsetn- ingu skipanna og fást þá um 1000 tonn til viðbótar. Svalbakur hefur síðan um mánaðamótin júlí/ágúst verið í slipp á Akureyri, skipið hefur verið sandblásið auk þess sem unnið hefur verið að fleiri hlutum um borð og er reiknað með að skipið fari ekki til veiða fyrr en eftir mánuð eða þar um bil. Þá er Kaldbakur kominn í slipp en mála á skipið auk þess sem unnið verður við minniháttar hluti aðra og er reiknað með að skipið fari til veiða áður en langt um líður. Herðubreiðarlindir: Sauðkindin skemmir gróður Bæjarráð Akureyrar: Sagnritari ráðinn til að rita sögu Akureyrar Á fundi Bæjarráðs Akureyrar á fimmtudaginn var samþykkt samhljóða tillaga frá Sigurði Jóhannessyni um að í tilefni 125 ára afmælis Akureyrar árið 1987, verði ráðinn maður til að annast ritun og útgáfu á sögu Akureyrar. I tillögunni felst að Menningar- málanefnd Akureyrar verði falið að sjá um ráðningu söguritara og skipuleggja störf hans. Þá er lagt til að gert verði ráð fyrir fjárveit- ingu til verksins í fjárhagsáætlun bæjarins fyrir árið 1987 og næstu ár. í greinargerð sem tillögunni fylgir kemur fram að „Saga Ákureyrar“ eftir Klemens Jónsson, sem rituð var fyrir u.þ.b. hálfri öld, er eina sam- fellda heimildin um sögu Akur- eyrar frá því tímabili, þótt ýmsar greinar hafi verið ritaðar bæði fyrr og síðar er varða byggð og sögu bæjarins. Þá bendir flutn- ingsmaður á að á undanfömum árum hafi oft verið rætt í bæjar- stjórn og nefndum bæjarins um nauðsyn þess að framhald yrði á ritun sögu Akureyrar en af því hefði ekki orðið af ýmsum ástæð- um. Ofangreind tillaga væri því til- raun til að höggva á þann hnút er þetta varðar og nota 125 ára afmæli Akureyrarbæjar sem tilefni til að hefja framkvæmdir. BB. „Þetta var besta sumar til þessa hvað varðar ferðamenn í Herðubreiðarlindum,“ sagði Hreinn Skagfjörð landvörður á staðnum er hann var spurður um ferðamenn á þessum slóð- um í sumar. Eins og flestir vita eru Herðu- breiðarlindar einn vinsælasti ferðamannastaður á landinu og þangað streyma ferðamenn af öllum þjóðernum til að skoða þá náttúrufegurð sem þar er. Alls komu þangað í sumar 12082 ferðamenn. Þar af voru 4558 ferðamenn sem komu þar við án þess að gista. Gistinætur urðu alls 7524 á móti 5215 í fyrra. Þá komu 3337 sem ekki gistu. gistu. Ferðamenn af 24 þjóðernum heimsóttu Herðubreiðarlindar í sumar og voru Þjóðverjar fjöl- mennastir. Þeir dvöldu 1426 gisti- nætur. íslendingar voru 1426 gistinætur og Frakkar 1102. „Það er óhætt að segja að umgengni sé 100% hjá fólki sem kom til okkar í sumar. Enda held ég að um leið og aðstaða er góð og hreinleg, þá sé umgengni að sama skapi góð. Nú er mjög góð snyrtiaðstaða á staðnum með sturtum og vatnssalernum. Hreinn hefur verið 5 sumur sem landvörður í Lindunum og sagði að gróður hefði verið sér- staklega fallegur í sumar. Hins vegar væru gróðurskemmdir töluverðar og þá aðallega eftir sauðkindina. „Skemmdir eru miklu meiri eftir sauðkindina en af mannavöldum. Ég hef aldrei séð svo miklar gróðurskemmdir eftir sauðkindina eins og nú og má til marks um það segja að öll hvönnin er uppétin eftir féð í sumar," sagði Hreinn. gej-

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.