Dagur - 01.10.1986, Síða 7

Dagur - 01.10.1986, Síða 7
1. október 1986 - DAGUR - 7 Börnin fóru líka að tína fallin laufblöð í poka og átti að pressa þau og þurrka og vinna síðan verkefni í sambandi við haustið þegar þau kæmu aftur á Pálmholt. Ekki var mikið um laufblöð í Kjamaskógi en ein- hver sýnishorn fundust þó. Einn- ig var meiningin að fara í ýmsa hringleiki, ein ég sit og sauma og þess háttar, en ekki var ljóst hvort það ætti við börnin á svona stóru svæði að safnast saman í hring. Galsinn var svo mikill, margt að sjá og gera. Stelpuhnáta kom til mín og bað mig að lyfta sér upp á stóran kassa. Eg varð fúslega við beiðni hennar og uppi á kassanum hafði hún útsýni um víðan völl. Húr. kom sér þægilega fyrir og við hóf- um samræður: - Hvað heitir þú? „Jónína. Og amma mín heitir líka Jónína.“ Beðið eftir svifbrautinni. Nokkrir eldri strákar vildu líka komast að. Jón Þorri var mjög duglegur að klifra í holti að eigin sögn. þegar ég var lítill og það var mjög gaman. Heyrðu, þú ert ofsalega duglegur að klifra er það ekki? „Jú, og sjáðu bara,“ sagði Jón Þorri og lét sig gossa niður. „Ha, ha, ég meiddi mig ekkert." Börnin höfðu mjög gaman af því að klifra í netinu og komast upp fyrir okkur. Þá voru þau stærri en við og heimtuðu mynd af sér þannig að Rúnar var ekki í vandræðum með myndefni. Svifbrautin var geysilega vinsæl. Sumir geystust niður hana, en aðrir þáðu stuðning hjá fóstrunum. „Ég heiti Jónína. Og amma mín heitir líka Jónína,“ sagði þessi hnáta og leit yfir svæðið. lin klifruðu upp netiö uns þau gnæfðu yfir blaðamann og Ijósmyndara. r þctta mjög spennandi leikur. Eins og sjá Börnin fengu brauð og svaladrykk í góða veðrinu og söfnuðu kröftum fyrir næsta leik. - Já, en gaman. Nú ætlar ljósmyndarinn að taka mynd af þér og þá verður amma þín glöð að sjá mynd af þér í blaðinu. Ha, viltu koma niður? „Já, viltu hjálpa mér?“ Það var meira en sjálfsagt og Jónína hljóp ánægð að kaffiborðinu. Þar var boðið upp á brauð og ónefnd- an svaladrykk og senn átti kaffi- samsætið að hefjast. Við hittum stelpu sem var að koma úr skóginum með alls kon- ar blöð í poka. Þrátt fyrir frómar óskir okkar vildi hún ekki gefa okkur að borða úr pokanum og benti skynsamlega á það að ekki ætti að borða laufblöðin. Seinna gaf hún mér þó að smakka og komst ég þá að því að hún hafði á réttu að standa. „Ég þarf að pissa,“ gall í einni stelpunni og fóstran ætlaði að teyma hana bak við tré. En stelpan benti á opið svæði þar sem strákur hafði piss- að skömmu áður og vildi líka pissa þar. Nú fóru allir að drekka og börnin söfnuðu kröftum fyrir næstu lotu. „Sjáðu stórasta bílinn,“ hrópaði einn og benti á dráttarvél sem teygði skófluna upp eftir staur. Þar var verið að koma fyrir rólu og vöktu tilburðir mannanna mikla athygli, enda stóð einn uppi á stauragrindinni og annar í skóflu traktorsins. Við fórum að síga af stað en það féll ekki í góðan jarðveg hjá krökkunum sem sögðu að við mættum ekki fara. Við kvöddum þau samt og þau sneru sér fljót- lega að nestinu aftur, enda hið girnilegasta. Þetta var greinilega mjög ánægjuleg ferð og maður sá það vel að Kjarnaskógur er geysilega skemmtilegt útivistarsvæði. Leik- tæki fyrir börnin, göngustígar, trimmbrautir og æfingaaðstaða fyrir fólk sem hyggst bæta heils- una. Stöðugt er unnið að viðhaldi og endurbótum þannig að umhverfið helst alltaf jafn aðlað- andi. Fyrir utan börnin og starfs- fólkið á Pálmholti voru þarna nokkrir drengir sem höfðu komið hjólandi á svæðið til þess að fara í leiktækin. Einnig voru nokkrir skokkarar á íerli og virtust allir njóta staðarins og blíðunnar og umgengni virtist góð. Að sögn starfsmanns verður sag borið á brautir í haust, til þess að snjó festi betur, en þetta er tilvalið svæði fyrir skíðagöngumenn og víst er að margir bíða eftir snjónum. Svona útivistarferðir eru fastir liðir á dagheimilum. Tína lauf- blöð, fjöruferðir, réttarferðir og alls kyns skoðunarleiðangrar eru snar þáttur í því uppeldi sem börnin fá og bæði skemmtilegt og nauðsynlegt fyrir þau að kynnast sem flestu. Og börnin í Kjarna- skógi kunnu svo sannarlega að meta lífið og tilveruna eins og myndirnar sýna glöggt. SS

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.