Dagur - 24.10.1986, Qupperneq 3
24. október 1986 - DAGUR - 3
Landshlutasamtökin funda:
Samræming símakostn-
aðar meðal mála
Sundlaug í Glerárhverfi:
Verður norðan
Glerárskóla
Nýlega var haldinn á Akureyri
fundur formanna og fram-
kvæmdastjóra landshluta-
samtaka í landinu. Samtökin
eru 7 talsins og mættu fulitrúar
frá öllum samtökunum.
Áskell Einarsson fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssam-
bands Norðurlands sagði að slíkir
fundir væru haldnir með reglu-
legu millibili. „Þessir fundir eru
til þess að vinna að þeim málum
sem landshlutasamtökin hafa efst
á baugi hverju sinni. Á þessum
fundum skipta menn með sér
verkum og ákveða hvernig á að
haga vinnubrögðum. Par eru
ákveðnir menn settir í ákveðin
verk. Þessir hópar vinna síðan að
sínum ákveðnu málum og fylgja
þeim eftir,“ sagði Áskell Einars-
son.
Meðal mála sem mikið hafa
verið rædd og skoðuð eru síma-
málin. Áskell sagði að þau mál
væru í miklum ólestri og þyrfti að
taka þau upp aftur. Guðjón Ingi
Stefánsson hefur m.a. fjallað
mikið um þau mál og sagði frá
þeim. í máli hans kom fram að
símagjöld væru ekki í neinu sam-
ræmi við tilkostnað Pósts og
síma. Þess vegna hefði verið
ákveðið að skoða þessi mál og
vinna að þeim í samráði við Póst
og síma. Miðast þetta að því að
samræma símakostnað í landinu.
Sæver h/f Ólafsfirði
Kavíar-
veitemiðjan
að verða
tilbúin
„Þetta er allt að ganga saman
hjá okkur, en um dagsetningar
á byrjun framleiðslu er ómögu-
legt að segja. Ætli það verði
ekki öðru hvoru megin
við manaðamótin næstu. Það á
eftir að leggja hluta af kynd-
ingu í húsið og ekki hægt að
byrja fyrr en það er komið í
lag,“ sagði Garðar Guðmunds-
son hjá Sæveri á Ólafsfirði.
Fyrirtækið Sæver ætlar að fara
út í kavíarframleiðslu og er nán-
ast allt tilbúið til að hefjast
handa. Öll tæki eru komin í hús
og verið að setja upp það sfðasta
af þeim. Tækjabúnaður er tiltölu-
lega lítill miðað við stórar verk-
smiðjur. Traust h.f. hefur hann-
að vinnslulínuna sem notuð
verður, en önnur tæki eru keypt
erlendis frá. Umbúðir eru af
sömu tegund og notaðar eru í
öðrum kavíarverksmiðjum, en
það eru 2 stærðir af glerkrukk-
um. Þessar umbúðir eru frá Sölu-
stofnun lagmetis, en það fyrir-
tæki mun sjá um sölu framleiðsl-
unnar á erlenda markaði.
Hráefni hefur Sæver fengið hjá
ýmsum aðilum. „Við höfum nóg
til að byrja með, en þurfum að
útvega meira þegar framleiðslan
er komin verulega í gang,“ sagði
Garðar. Hann sagði ennfremur
að framleiðslan færi að mestu
Ieiti til útflutnings, „en við skoð-
um þann möguleika að koma
krukkum á innlendan markað. En
það á eftir að skoða hvað gengur
á íslenskum markaði,“ sagði
Garðar. gej-
Guðjón taldi að þetta mál tengd-
ist jafnrétti milli landsmanna og
menn væru að borga fyrir þjón-
ustu, hvar sem þeir væru á land-
inu. Hann tók sem dæmi að það
væri 1050% dýrara að hringja til
Dalvíkur frá Akureyri en innan-
bæjar. „Stefnan er að auka þjón-
ustuna og jafna tilkostnaðinn,"
sagði Guðjón.
Umræður um skipulagsmál
voru líka miklar á fundinum og
talaði Gestur Ólafsson arkitekt
úr Reykjavík um þau mál. Meðal
atriða sem þar komu fram er að
vilji er fyrir því að sveitarstjómum
sé gefið meira vald til ákvörðunar
um eigin skipulagsmál upp að
vissu marki. Skipulagsmál skipt-
ast í 4 aðalflokka. Landsskipu-
lag, svæðisskipulag, aðalskipulag
og deiliskipulag. Á fundinum
kom fram að eðlilegt væri að
sveitarstjórnir hefðu ákvörðunar-
vald í eigin skipulagsmálum upp
að landsskipulagi. Er niðurstaða
þess hóps sem um skipulagsmál
fjallaði sú, að mun hagkvæmara
væri að láta heimamönnum eftir
ákvörðunarvald í þessum málum.
Áskell sagði að þessir fundir
væru einnig til þess að mönnum
gæfist kostur á að hittast og bera
saman bækur sínar. Auk þess að
skipuleggja og nýta þekkingu
starfsmanna landshlutasamtak-
anna. gej-
Bæjarráö fól mér í sumar að
gera tillögu um staðsetningu
væntanlegrar sundlaugar í
Glérárhverfi fyrir arkitekta
að byggja á,“ sagði Sigfús
Jónsson bæjarstjóri á Akur-
eyri.
Sigfús mætti á fund hjá
íþróttaráði Akureyrar og
kynnti þessar tillögur. Gert er
ráð fyrir þvi að sundlaugin verði
staðsett á milli Glerárskóla og
íþróttásvæðis Þórs.
Nokkuð hefur gengið í brös-
um að staðsetja sundlaugina og
voru síðustu tillögur þær, að
sundlaugina ætti að byggja á
hólnum vestan skólans.
„Ég fór á fund íþróttaráðs til
að kynna þeim þessar hug-
myndir. Þetta verður fyrst og
fremst kennslulaug í tengslum
við skólann. Að sjálfsögðu
verður opið fyrir almenning og
íþróttafélög þegar mögulegt er.
Það er sjálfsagt að kynna þessar
hugmyndir fyrir mönnum sem
fjalla um fþróttamál, í stað þess
að þeir lesi um það í blöðunum
að verið sé að byggja íþróitta-
mannvirki," sagði Sigfús. gej-
Húsasmiðjan
um allt land
Það er sama hvort þú býrð á Akureyri, Kópaskeri eða annarsstaðar
á landsbyggðinni þú færð allt til viðhalds og nýbygginga hjá
Húsasmiðjunni. Tveir starfsmenn sinna landsbyggðinni og
taka við pöntunum og ieiðbeina um vai efna. Flutningabílar renna
í hlað hjá okkur og flytja vöruna til þín. Handhægara getur
það varla verið. Hafðu samband við Karl Lilliendahl eða
Júlíus Guðjónsson í síma 91-687700.
HLISA
SMIOJAIM
SunARVOQ 3-S 104 REYKJAVIK S 687700
Húsasmiðjan —
Heimur fyrir
handlagið fólk.