Dagur - 24.10.1986, Page 15

Dagur - 24.10.1986, Page 15
24. október 1986 - DAGUR - 15 Enska knattspyrnan: Áhuga- menn - hittast í KA-húsinu Áhugamenn um ensku knatt- spyrnuna og tipparar hér á Akureyri ætla að fara að hitt- ast í KA-húsinu á laugardags- morgnum kl. 10.30 og ræða þar um ensku knattspyrnuna og fara yfir getraunakerfi. Þarna geta menn hist í vetur og rætt um þessa hluti yfir kaffi- bolla. Allir áhugamenn um get- raunir og ensku knattspyrnuna eru velkomnir og þá skiptir ekki máli með hvaða liði menn halda, hvorki hér heima né í Englandi. Kaffi- hlaðborð Foreldrafélag KA verður með kaffihlaðborð á sunnudaginn kl. 14-16.30 í nýja KA-heimilinu. Allir eru velkomnir. Barnastúkan Sakleysið no. 3: Afmælisrit komið út Barnastúkan Sakleysið á aldar- afmæli í ár en hún var stofnuð þann 10. júlí 1886 í Friðbjarnar- húsi á Akureyri. í tilefni afmælis- ins hefur verið gefið út veglegt afmælisrit. í ritinu senda fjölmargir val- inkunnir menn afmælisbarninu árnaðaróskir. Má þar nefna herra Pétur Sigurgeirsson biskup, Hilmar Jónsson stórtemplar, Kristin Vilhjálmsson, Björn Jónsson, Hjálmar Jónsson, Ingi- mar Eydal, Karl Helgason, Eðvarð Ingólfsson, Arnfinn V. Arnfinnsson þingtemplar, Ólaf Hauk Árnason áfengisvarnar- ráðunaut, Ara Gíslason og Svein Kristjánsson. I afmælisritinu er einnig að finna stutt ágrip af sögu Barna- stúkunnar Sakleysisins í saman- tekt Guðmundar Magnússonar. Þá eru birtar myndir úr starfinu o.fl. Hlíðarendi í Bárðardal: Gistiþjónusta fyrir rjúpnaveiðimenn „Okkur datt þetta reyndar ekki í hug, það var spurt eftir þessu,“ sagði Aníta Þórarins- dóttir á Hlíðarenda í Bárðar- dal, er hún var spurð hvernig sú hugmynd hefði komið upp að hýsa rjúpnaveiðimenn, en þar er nú rekin gistiþjónusta fyrir þá. Á sumrin er rekin ferðaþjónusta á Hlíðarenda. Sagði Aníta að núna væri pant- að_ fram í tímann og það hefði verið fullt um helgar síðan rjúpnaveiðitíminn hófst. „Þetta eru Reykvíkingar, það voru fjórir um síðustu helgi og búið að panta fyrir fimm um næstu helgi. Það hefur líka verið spurst fyrir um gistingu fyrir Englendinga.“ Koma útlendingar til íslands að veiða rjúpur? „Já, það virðist vera. Ferða- skrifstofan á Akureyri hefur spurst fyrir um gistingu fyrir sex í einu.“ Rjúpnaveiðitíminn stendur til 22. desember og sagði Aníta að með þessu yrði mun betri nýting á húsnæðinu. Við Hlíðarenda er nokkurt rjúpnaland og Aníta sagði að þau fengju leyfi á næstu bæjum fyrir veiðimenn. „En landið hér er mjög gott, það er mikið kjarr og skógur, en það vantar snjó og rjúpurnar eru því mjög ofarlega enn sem komið er.“ -HJS í tilefni afmælisins hefur einnig verið gefinn út sérstakur afmælis- peningur úr bronsi. Á framhlið er afmælismerki barnastúkunnar en á bakhlið er merki I.O.G.T. Ein- ungis 60 peningar voru gefnir út og enn eru nokkrir eftir. Þeir eru til sölu hjá Sveini Kristjánssyni í síma 24360. Borgarbíó: la í ofi Ste or - frumsýnd á sunnudag Þá er komið að því að Akur- eyringar og aðrir Norðlending- ar fái að sjá Stellu í orlofi, því þessi nýja kvikmynd verður frumsýnd á Akureyri á sunnu- daginn klukkan 17:00. Það er Kvikmyndafélagið Umbi sem stendur að gerð mynd- arinnar, sem tekin vár í Reykja- vík, Keflavík og Kjós sl. sumar. Stella í orlofi er kvikmynd í léttari kantinum og segir frá ungri húsmóður sem fer í orlof upp í sveit. Með henni er sænsk- ur maður sem hún álítur vera mann sem er í viðskiptasam- böndum við eiginmann sinn, sem er ungur maður á uppleið og stundar ullarvöruviðskipti. Raunin er sú að sá sænski er kominn til landsins til að fara í meðferð hjá SÁÁ. Margt drífur á daga Stellu í orlofinu og margt spaugilegt gerist á hvíta tjaldinu. Stella í orlofi var frumsýnd um síðustu helgi í Reykjavík við geysilega góðar viðtökur. Er því ekki að efa að Norðlendingar hafa gaman af að sjá Stellu í orlofi. Með helstu hlutverk í mynd- inni fara Edda Björgvinsdóttir, sem leikur Stellu, Gestur Einar Jónasson sem leikur Georg mann hennar og Þórhallur Laddi Sig- urðsson sem leikur Salómon Svía. i n h*ri ý rffl i i n nh ffl I LlHJHt ffjjTÍ ff LÍJ Lil 1113 jm ffl f ■n n nn ALGJÖR SERSTADA í HÚSBYGGINGUMÁNORÐURLANDI Þessi fjölbýlishús verða byggð við Hjallalund Akureyri Fyrstu 22 Ibúðirnar verða afhentar 1. desember 1987. Helstu nýjungar eru: • HÚSVABÐARlBÚÐ • BltAREYMSLA [ kjallara, eitl bílastæði á hverja ibúð • LYFTUR verða úr bflageymslu upp á hæðirnar. Komið og kynnið ykkur verð og teikningar á skrifstofu okkar Sunnuhlíð 10, allavirkadagamilli kl. 13og 17, sfmi 26277. Eða hringið f sfma 26172 (vinna), 24719 (Sigurður-heima), 23956 (Heimir, heima). ’byggir sf. ODbyggir sf. ODbyggir sf. ODbyggir sf. t Gullbrúðkaup eiga í dag heiðurshjónin Sigríður Pálína Jónsdóttir og Har- aldur Sigurgeirsson. Þau fá bestu óskir í tilefni dagsins heim í Spítalaveg 15 á Akureyri. Konur Við minnumst kvennafrídagsins í Húsi aldraðra á Akureyri 24. okt. kl. 20.30. Dagskrá: Hugmyndafræði kvenna .. María Jóhanna Lárusdóttir. Launamál kvenna ............. Guðrún Óskarsdóttir. Brjótum múrana ........... Valgerður Bjarnadóttir. Gamanmál ...................... Elín og Jóhanna. Kristín Halldórsdóttir svarar fyrirspurnum. Fundarstjóri: Hilda Torfadóttir. Kaffi og vöfflur. Hittumst hressar. KVENNALISTINN Auglýsing Frá fjárveitinganefnd Alþingis Fjárveitinganefnd Alþingis mun sinna viðtðlum vegna afgreiðslu fjárlaga 1987 frá 27. okt.-14. nóv. nk. Beiðnum um viðtöl við nefndina þarf að koma á framfæri við starfsmann nefndarinnar, Runólf Birgi Leifsson, í síma 11560 eftir hádegi eða skriflega eigi síðar en 7. nóvember nk. Skrifleg erindi um fjárveitingabeiðnir á fjárlögum 1987 þurfa að berast skrifstofu Alþingis fyrir 14. nóvember nk. elia er óvíst að hægt verði að sinna þeim. Fjárveitinganefnd Alþingis. Óskum eftir góðum starfsmanni á lager og við útkeyrslustörf. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknir er greini aldur og fyrri störf sendist á afgreiðslu Dags merkt: „Lagerstarf“ fyrir 1. nóvember. Rafmagnsiðnfræðingur Rafveita Akureyrar vill ráða rafmagnsiðn- fræðing til starfa við rafmagnseftiriit. Umsóknum, ásamt upplýsingum um umsækj- anda, skal skila eigi síðar en 15. nóv. nk. til raf- veitustjóra, sem einnig veitir nánari upplýsingar um starfið. Upplýsingar varðandi laun fást hjá starfsmanna- stjóra Akureyrarbæjar.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.