Dagur - 28.11.1986, Blaðsíða 3
28. nóvember 1986 - DAGUR - 3
Yfir 100
Ijóð
bárust
- í Ijóðasamkeppni
RUVAK og MENOR
AIIs bárust 102 Ijóð í Ijóðasam-
keppni Ríkisútvarpsins á
Akureyri og Menningarsam-
taka Norðlendinga sem nú er
nýlokið.
Höfundar ljóðanna skiluðu
þeim inn undir dulnefni og alls
stóðu 56 dulnefni fyrir þeim ljóð-
um sem bárust inn. Nú vinnur
þriggja manna dómnefnd að því
að yfirfara ljóðin en dómnefnd-
ina skipa Hólmfríður Jónsdóttir
bókavörður, Jón Már Héðinsson
kennari og Einar Kristjánsson
rithöfundur.
Fimm ljóð verða valin til birt-
ingar, og eitt þeirra verður verð-
launað sérstaklega. Nema þau
verðlaun 5 þúsund krónum.
Á sunnudagskvöld verður aðventu-
hátíð í Glerárskóla á Akureyri og
hefst klukkan 20.30. Þar verður
boðið upp á fjölbreytta dagskrá.
Ræðumaður verður sr. Cesil Har-
aldsson forstöðumaður Öldrunar-
ráðs Akureyrar. Blokkflautukvart-
ett leikur undir stjórn Elínborgar
Loftsdóttur. Þá mun Kirkjukór
Lögmannshlíðarsóknar syngja undir
stjórn Jóns Hlöðvers Áskelssonar.
Einsöngvari á aðventuhátíðinni
verður Margrét Bóasdóttir en hljóð-
færaleik annast nemendur og kenn-
arar úr Tónlistarskólanum.
í lokin verða ljósin tendruð þar
sem hver og einn gefur þeim sem
næst stendur logandi ljós.
Með aðventukveðju.
Pálmi Matthíasson.
Dalvíkurlæknishérað:
Opið hÚS í
Svarfaðardal
Undanfarna vetur hafa félaga-
samtök í Dalvíkurlæknishéraöi
undir forustu öldrunarnefndar
Rauða kross deildar sameinast
um að hafa opið hús einu sinni
í mánuði fyrir lífeyrisþega og
maka þeirra. Hafa þessar sam-
komur notið mikilla vinsælda
þess fólks sem þær hefur sótt.
Nú hefur verið ákveðið að
halda þessari starfsemi áfram
með svipuðu sniði og áður og
verða samkomurnar auglýstar
hverju sinni með dreifibréfi.
Fyrsta opna hús vetrarins verður
í þinghúsinu Grund í Svarfaðar-
dal n.k. sunnudag og hefst kl. 14.
Næst verður síðan opið hús í
janúar og síðan einu sinni í mán-
uði fram í maí.
Þeir aðilar sem að þessu standa
eru: Kvenfélagið Tilraun, Ung-
mennafélagið Þorsteinn Svörfuð-
ur, Kvenfélagið Vaka, Lions-
klúbbur Dalvíkur, Slysavarna-
deild kvenna Dalvík, Hesta-
mannafélagið Hringur, Kiwanis-
klúbburinn Hrólfur, Rauða kross
deild Dalvikur, Kvenfélagið
Hvöt, Lionsklúbburinn Hrærek-
ur, Leikfélagið Krafla, Kvenfélag
Hríseyjar, Lionsklúbbur Hríseyj-
ar og Verkalýðsfélagið Eining.
Það er von þessara félaga að sem
flestir lífeyrisþegar og aðstand-
endur þeirra sjái sér fært að vera
með í vetur. (Frcttatilkynning).
Bryndís Schram, húsmóðir meö meiru:
Geiðu
húðinni ííott.
Fáðu þérmjóllí!”
Fæða hefur bein áhrif á útlit okkar og vellíðan. Húöin þarf t.d. stööuga næringu eins og aðrir hlutar
likamans - og sú næring þarf að koma innan frá. Engin smyrsl geta bjargað málinu ef réttrar fæðu er
ekki neytt. Bryndís Schram, húsmóðir, móðir, fyrrverandi fegurðardrottning íslands og fjölmiðlamaður
með meiru, vandar valið fyrir sig og sína þegar fæðan er annars vegar - og hún veit að
í þeim efnum skiptir mjólkin miklu máli.
Tengsl mataræðis og útlits eru svo margslungin að næstum öll næringarefni fæðunnar, yfir 40
talsins, komaþarvið sögu. Mjólkerótrúlegaauðugaffjölbreyttumbætiefnum. Úrhennifáumviðm.a. kalk
og magníum fyrir tennur og bein, A-vítamín fyrir húðina og einnig mikið af B-vítamínum sem gera
húðinni gott og ekki síður hári og nöglum. Síðast en ekki síst er engum sykri blandað í mjólk og hver
og einn getur ráðið fituinnihaldinu með því að velja um nýmjólk, léttmjólk eða undanrennu.
MJÓLKURDAGSNEFND
Kolfinna Jónsdóttir hefur ásamt
systkinum sínum neytt mjólkurmatar
ríkum mæli. Þannig leggur hún grunn
að heilbrigðu útliti, fallegri
beinabyggingu, góðum tönnum og
sterkum taugum.
Mjolk fyrir alla
eftir dr. Jón Óttar Ragnarsson
Börn og unglingar ættu aö nota allan
mjólkurmat eftír því sem smekkur þeírra
býöur.
Fullorðnirættu á hinn bóginn að halda sig við
fituminni mjólkurmat, raunarviðmagrafæðu
yfirleitt. 2 mjólkurglðs á dag eru hæfilegur
lágmarksskammturævilangt. Mundu að
hugtakið mjólk nær yfir léttmjólk,
undanrennu og nýmjólk.