Dagur - 28.11.1986, Blaðsíða 5
28. nóvember 1986 - DAGUR - 5
„Langaði að vera
lengur í London"
- Gígja Birgisdóttir, fegurðardrottning íslands
- Er það Gígja Birgisdóttir,.
fegurðardrottning íslands?
- Jú, það er hún.
- Sæl vertu, ég heiti Helga og
er blaðamaður á Degi.
- Já, komdu blessuð.
- Nú ert þú búin að keppa
fyrir Islands hönd í keppnunum
Ungfrú heimur og Ungfrú
Skandinavía. Geturðu ekki sagt
mér af þessum keppnum?
- Jú, ég get það. Þetta var
auðvitað ofsalega gaman, sér-
staklega í London þar sem Miss
World fór fram. Þetta eru mjög
ólíkar keppnir. Við vorum pass-
#aðar mjög vel í London. Ef það
komu blaðamenn og ljósmynd-
arar máttum við ekki setjast
niður, þá var hætta á að þeir
sæju eitthvað sem þeim var ekki
ætíað. Það voru öryggisverðir út
um allt, við máttum ekkert fara
nema í fylgd öryggisvarða.
Blaðamenn þarna úti eru hálf
brjálaðir. Þeir dulbjuggu sig
sem þjóna til að komast upp á
ganginn til okkar á hótelinu.
Þeir voru gripnir á hlaupum.
Okkur var líka bannað að taka
myndir í búningsherbergjunum
því við hefðum getað selt þær
fyrir mikinn pening. En þetta
var alveg æðislega gaman og
ekkert erfitt. Við fengum alltaf
nógan tíma til að sofa, hvíla
okkur og spjalla saman. Það var
aðeins einn galli á þessu öllu
saman og hann var sá að mig
langaði ekkert heim aftur.
- Kynntistu mörgum afkepp-
endunum?
- Já, já. Sumum kynntist ég
að vísu ekki neitt, aðallega þess-
a linunm
um spænskumælandi. Það voru
15-20 keppendur sem töluðu
bara spænsku. Svo voru aftur á
móti aðrar sem ég kynntist mjög
vel.
- Kynntistu eitthvað þeirri
sem sigraði?
- Já, já, hún er mjög fín og
mér fannst hún eiga sigurinn
fyllilega skilið.
- Hvernig gengur svona
keppni fyrir sig?
- Það fór ekki nema einn
dagur í keppnina sjálfa, en það
voru æfingar í Albert Hall 2
daga fyrir keppnina. En það fór
um mánuður í heildina hjá mér í
þessa keppni. Fyrir keppnina
fórum við til Macau í Kína í
myndatökur, það er rétt hjá
Hong Kong og þar vorum við í
viku. Það var alveg meiriháttar,
en ég hefði viljað sjá miklu
meira, veðrið var svo gott.
- Pú hefur ekkert getað skoð-
að þig um í Kína?
- Það var allt of lítið. Við fór-
um að vísu að skoða kirkju og
íþróttahöll, en ég hefði viljað
sjá meira. Það er gífurleg stétta-
skipting þarna, fátæka fólkið
bjó í pappahúsum en ríka fólkið
í hálfgerðum höllum.
- Pú hefur ekki vakið athygli
fyrir að vera frá íslandi, þaðan
sem Hófí er?
- Nei, ekkert sérstaka. Jú,
það vissu auðvitað margir hvað
Island var af því að Hófí sigraði
í fyrra.
- Pú hefur ekki fengið tilboð
um fyrirsætustörf í framhaldi af
þessum keppnum erlendis?
- Nei, ég held að það hafi
enginn af þátttakendunum feng-
ið nein tilboð. En ég er að fara
til Hollands í janúar. Ég veit nú
reyndar mjög lítið um þetta, en
það er einhver hótel- og
veitingakeðja búin að bjóða mér
að koma. Þeir eru með einhvers
konar ískeppni, það á að krýna
ísdrottningu og þeir vildu fá feg-
urðardrottningu frá íslandi til að
krýna.
- Hefurðu einhverjum skyld-
um að gegna sem fegurðar-
drottning íslands?
- Nei, það er ekki hægt að
segja það, en það kemur auðvit-
að ýmislegt upp á sem ég þarf að
gera vegna þess að ég ber þenn-
an titil. En það er ekkert skipu-
lagt fyrirfram.
- I hvað fer tími þinn þegar
þú ert ekki að vinna?
- Ég hef nóg að gera. Ég er í
Módelsamtökunum og það fer
mikill tími í æfingar og sýningar.
Það eru stundum 3 sýningar á
dag og það er bæði virka daga
og um helgar. Ég hef það mikið
að gera að ég er aldrei heima hjá
mér, ég hef t.d. aldrei notað
eldavélina.
- Ertu orðin Reykvíkingur,
búin að gleyma gamla heima
bænum?
- Nei, nei, mig langar að
koma norður um helgina og fara
í Sjallann. Það er ekki víst að ég
komist en ég vona það.
- Jæja, Gígja ég tef þig þá
ekki lengur frá vinnunni. Ég
þakka þérkærlega fyrirspjallið.
- Þakka þér sömuleiðis.
Bless, bless.
- Vertu blessuð. -HJS
*--------A
SHARP
örbylgjuofnar
ARCTIC CAT
NÝIR SLEÐAR
El Tigre árg '87,
ca 94 ho...............kr. 418 500. •
Panthera árg. '87,
ca 72 hö., verö meó
rafstarti............ kr. 362 000,-
Cougar árg '87.
ca56 hö.............kr. 319.000,-
Cheetah F/C árg '87,
ca56 hö...............kr. 349 000,-
Cheetah L/C árg '87.
ca 94 hö............kr. 436 000,-
Q Ef þú hættir
. . . að reykja
C?L\ bætir þú
k/ \J heilsu þina
og lifshorfur.
uu
LANDLÆKNIR
Allir ofangreindir sleóar eru með jafnvægis-
stöng
Veró til björgunarsveita
Cheetah F/C árg '87.
ca56 hö.....................kr. 184.800,-
Cheetah L/C árg. '87,
ca94 hö.....................kr 220.600,-
Fullkomin varahluta-
og viðgerðarþjónusta.
VERIÐ VELKOMIN
v/ Hvannavelli
Símar: 24119/24170
Takið eftir
Ytuvinna ★ Jarðvegsskipti ★ Fyllingarefni
Sparið tíma fé og fyrirhöfn.
Til leigu 26 tonna jarðýta í flest verk. Útvegum einnig önn-
urtæki t.d. traktorsgröfu, beltagröfu, dráttarbíla, einnig allt
fyllingarefni. Tökum að okkur stór sem smá verkefni. Vanir
menn, góðar og afkastamiklar vélar.
Hringdu og fáðu upplýsingar.
Friðrik Bjarnason, heimasími 26380, bílasími 985-21536.
Guðmundur Kristjánsson, heimasími 23349, vinnuéími
22333.
Ingimar Eydal leikur fyrir matargesti
föstudags- og laugardagskvöld.
Laugardagskvöld 29. nóv.
Dansleikur
Hljomsveitin Helena fagra
leikur fyrir dansi til kl. 03.00.
Húsið opnað fyrir aðra en matargesti kl. 22.30.
Snyrtilegur klæðnaður áskilinn.
Verið velkomin.
HÓTEL KEA ^ AKUREYRI
Ætlar þú ao kitta
bragðlaukana um helgina
Verið velkomin
Restaurant Laut
sími22525