Dagur - 28.11.1986, Blaðsíða 7
2#.önóVéffib^r'1,98é' - ÖÁé'Úfl: - 7
„í mörgum hjónaböndum
hindrar fólk þroska hvors
annars.
Til er það fólk sém finnst það
vera kúgað eða afmáir sinn eigin
persónuleika til þess að hlýða
maka sínum og vera honum
sífellt til geðs. Það trúir því
kannski ekki til að byrja með, en
ef þetta fólk kemst í gegnum
breytingarnar eða skilnaðinn, hef-
ur það þroskandi áhrif. Kona
nokkur var t.d. í mörg ár heima
og þjónustaði manninn sinn. Eft-
ir skilnaðinn varð hún að fara út í
atvinnulífið og fékk fljótlega
starf sem nú orðið hefur svo
mikla þýðingu fyrir hana að hún
sér það sjálf að skilnaðurinn hef-
ur verið þroskandi hvað hana
varðar. Við höfum séð mörg slík
dæmi. Okkur finnst líka margt
fólk finna nýjar og jákvæðar
lausnir á því að geta bæði búið
með börnum sínum - og nýjum
maka. Það minnkar við sig vinnu,
flytur á milli staða eftir þörfum
o.s.frv. Pað er ekki lengur um að
ræða eina sjálfgefna lausn, það er
að segja að börnin verði hjá
mömmu og hitti pabbann
ákveðnar helgar. Nú finnur fólk
nýjar lausnir."
- Hvað með þau 15-20% sem
ekki komast klakklaúst í gegnum
kreppuna?
„Hjá þeim er enn sjálfur
grundvallarvandinn óleystur, þau
eru bitur yfir að hafa verið svikin
og blekkt."
- En ef fólk í mikilli kreppu
þarfnast hjálpar og meðbræðurn-
ir og systurnar eru ekki til staðar
eða duga ekki til, hvert á fólk þá
að snúa sér?
„Því miður er sú aðstoð sem
veitt er í slíkum tilvikum fremur
léleg eins og er í okkar samfé-
lagi,“ segja Bente og Gunnar.
„Geðdeildirnar senda þig heim
með svefntöflur í bréfpoka og
setja þig á biðlista. Þegar þú
kemur til baka eftir tvær, þrjár
vikur er kreppan þegar lokuð
innra með þér og þú hefur ekki
þrek til að róta í því öllu saman á
nýjan leik. Margir hika við að
leita til félagsmálastofnana og
fjölskylduráðgjöfin getur ekki
tekið við öllum. Á þessum stöð-
um finnst karlmanninum hann
oft vera í erfiðri aðstöðu vegna
þess að meirihlutinn af starfsfólk-
inu er kvenkyns.
Karlmaðurinn verður líklega
að vera mjög seigur ef hann á að
hafa krafta til að fást við reiða
eiginkonu og tvo kvenráðgjafa í
einu,“ álítur Gunnar.
Fyrir fólk sem á börn geta sál-
fræðideildir verið lausnin.
„Þau sem halda því fram að
þetta fari illa með börnin, ættu að
fá aðstoð,“ segir hann. „Fólk fær að
beita börnunum eins og snjó-
plógi. Það er svo annað mál að
aðstoðinni er fyrst og fremst
beint að foreldrunum."
Bæði Bente og Gunnar binda
vonir við göngudeildir fyrir geð-
vernd sem opnaðar hafa verið
víðs vegar um landið.
„Það er raunverulega hlutverk
þeirra að leita uppi erfiðleikana,“
finnst þeim.
„Þetta er mikilvægt þegar það
er haft í huga að ekki er um að
ræða neinn bata á meðan grund-
vallarvandinn er fyrir hendi.
Það er því miður ekki þannig,
eins og margir virðast álíta, að
tíminn lækni öll ?ár. í raun og
veru þjáumst við allt of mörg af
sálrænum áverkum sem ekkert
hefur verið gert við. Við þrauk-
um fram að næstu kreppu, en þá
brýst allur þessi innibyrgði sárs-
auki upp á yfirborðið, jafnvel af
enn meira krafti en í fyrra
skiptið. Þannig ætti þetta ekki að
þurfa að vera ef hjálpin kæmi
þegar hennar er þörf.“
(Kvinna nú 2/S5. Þýð: G.H.)
Fiat eigendur
athugið!
Alls konar
aukahlutir fyrir Uno
og fleiri gerðir
Fiat foíla.
Möldursf.
Varahlutaversiun
Draupnisgötu 1 sími 21715.
Kotárgerði og
Stekkjargerði
Efri hluta
Oddeyrar.
Hluta af Oerða-
hverfi II
frá næstu
mánaðamótum.
Leikfélag
AÁureyrar
í fyrsta sinn
í 13 ár
á Norðurlandi
íslenski
Dansflokkurinn
föstud. 28. og
laugard. 29. nóv.
Aðeins þessar
2 sýningar
Marblettir
Sunnud. 30. nóv. kl. 20.30.
Síðasta sýning fyrir jól
Dreifar af
dagsláttu
Sunnud. kl. 15.00 í Alþýðuhúsinu
Síðasta sinn
Miöasala i Anni, Skipagötu er opin
frá kl. 14.00-18.00, simi 24073.
Símsvari allan sólarhringinn.
Opnaður á ný
^ með hinni stórkostlegu
Elvis-sýningu Liberty
|jyiountain 27., 28. og 29.
nóvember nk.
Nú má enginn sannur EIvis-
aðdáandi láta sig vanta á
EIvis Presjeykvöld í
Sjallanum því þetta verður
ógleymanlegt kvöld.
Kvöldverður og skemmtun
kr. 1.950.- Miða- og
borðapantanir í Sjallanum.
ÍHljómsveit Ingimars
ÍEydal leikur fyrir
dansi.
Það er milljón
í fyrsta vinning
Þetta er minni vandi en margir halda!
Fimm einföld ráð:
1. Fáðu þér Lottómiða á viðurkenndum sölustað.
2. Fylltu út samkvæmt leiðbeiningum á bakhlið.
3. Skilaðu inn á næsta sölustað og fáðu kvittun um leið
og þú borgar.
4. Berðu saman kvittunina og valtölurnar.
5. Fylgstu með beinni útsendingu í Ríkissjónvarpinu
næsta laugardag.
Happatölurnar eru komnar á kreik.
Láttu þær ekki framhjá þér fara!