Dagur - 28.11.1986, Qupperneq 10
'10 - ÐAGUR --Í2Ö!!ríóVémber' 1986
Til sölu
Suzuki Fox árgerö 1981, skemmdur eftir umferöar-
óhapp.
Bifreiöin er til sýnis hjá Brunabót, Glerárgötu 24.
Tilboðum sé skilaö fyrir miövikud. 3. desember.
Brunabótafélag íslands.
Sönn
jólabók
- Ung-skáld skrifaði fyrir skömi
til móður sinnar:
. í fyrrínótt las ég Betu heimsmeistara.
Ég verð að segja eins og er - að sjaldan hefi ég lesið betri
bók fyrir börn og fullorðna. Hún er einlæg - góð og
glettnislega skrifuð. Jafnvel svo að ég táraðist nokkrum
sinnum af gleði. í allri sinni fegurð er hún nefnilega laus
við alla væmni. - Hún er einfaldlega svo tilfinningarík. “
Kornið - Heimilisútgáfa.
Frá Kjörmarkaði KEA Hrísalundi
Fasteignasala - Sími 26441
Hafnarstræti 108.
Sölumaður: Páll Halldórsson,
heimasími: 22697.
Lögmaður: Björn Jósef Arnviðarson.
Skarðshlíð: 6 herb. íbúð e.h. í tvíbýlis-
húsi.
Hafnarstræti: Eldri húseign 3 hæðir og
ris. Geta verið 2-3 íbúðir.
Aðalstræti: 2ja herb íbúð ca. 40 fm,
ódýr, laus strax.
Austurbyggð: Einbýlishús 2 hæðir og
kjallari.
Alfabyggð: Einbýlishús á 2 hæðum.
Innbyggður bílskúr. 228 fm.
Eiðsvallagata: 3ja herb. íbúð á 2. hæð
ca. 60 fm.
Gránufélagsgata: 5 herb. ca. 150 fm.
Allt sér.
Hafnarstræti: 3ja herb. íbúð á 4. hæð
ca. 75 fm.
Hólabraut: 4ra herb. risíbúð ca. 77 fm.
Hólabraut: 4ra herb. íbúð á 2. hæð ca.
114 fm.
Norðurgata: Efri hæð í tvíbýlishúsi,
150 fm + bílskúr. Skipti á raðhúsi á
Brekkunni.
Verkstæðishús: 250 fm. Selst í einu
lagi eða hlutum.
Steinahlíð: Raðhús, 6 herbergi +
bílskúr. Skipti á minna.
Vantar:
Okkur vantar í raun og veru
allar stærðir og gerðir eigna
á söluskrá.
Hvenær
byrjaðir þú
||U^FEROAR
MENOR:
Kabarett á Blönduósi
Menningarsamtök Norðlend-
inga gangast á laugardagskvöld
fyrir kabarettsýningu á Hótel
Blönduósi og hefst samkoman
kl. 21.
Ýmislegt verður á dagskránni.
Má nefna að þarna leikur jass-
hljómsveit sem skipuð er Norð-
lendingum, sýndur verður
steppdans. Samkórinn Björk
syngur, Jónas og Þorvaldur
Skaptasynir syngja tvísöng,
leikarar Leikfélags Blönduóss
skemmta.
Listmálararnir Örn Ingi Gísla-
son og Guðráður Jóhannsson
sýna málverk. Aðgöngumiðaverð
er kr. 400 og boðið verður upp á
léttar veitingar.
Jasstónleikar í
Jassklúbbur Akureyrar og
Tónlistarskólinn á Akureyri
efna til litríkra jasstónleika í
Alþýðuhúsinu n.k. sunnudag
30. nóv. kl. 20.30
Jassleikarinn víðkunni Paul
Weeden, sem leiðbeint hefur á
viku jassnámskeiði við Tónlistar-
skólann leikur þar ásamt heima-
mönnum og ágætum gestum frá
Reykjavík, þeim Edward J.
Frederiksen básúnu- og hljóm-
borðsleikara, Tómasi Einarssyni
bassaleikara og Alfreð Alfreðs-
syni trommuleikara. Átján
manna Big Band Tónlistarskól-
ans tekur kröftuga sveiflu undir
stjórn Paul, einnig koma fram
jasshljómsveitir, sem æft hafa af
lífi og sál að undanförnu.
Paul Weeden er jassunnendum
að góðu kunnur og hefur hann
blásið lífi í jassstarfsemi á ýmsum
stöðum og vakið áhuga nemenda
og áheyranda, sem frábær hljóð-
færaleikari og leiðbeinandi. Tón-
leikar þessir eiga erindi bæði við
jassáhugafólk og alla sem unna
góðri tónlist.
„Ljónynjur^
— selja aðventukransa
Lionessuklúbburinn Ösp á
Akuréyri gengst í dag fyrir sölu
á aðventukrönsum í göngugöt-
unni.
„Ljónynjurnar" verða á ferð-
inni í göngugötunni frá kl. 13-18
með aðventukransana, en þær
hafa sjálfar útbúið kransana.
Rósa sýnir í Vín
Rósa Eggertsdóttir opnar sýn-
ingu á handofnum ullarteppum
og mottum sunnudaginn 30. nóv.
í Vín Eyjafirði.
Rósa hefur tekið þátt í þremur
samsýningum á Akureyri á veg-
um Nytjalistar.
Sýningin stendur til 7. des. og
verður opin daglega kl. 12.00-
23.30.
íþróttir helgarinnar
Karlalið KA í blaki leikur gegn
HSK í 1. deildinni á laugardag.
Leikurinn fer fram í íþrótta-
húsi Glerárskóla og hefst kl.
14.30.
Körfuboltalið USAH leikur
sinn fyrsta heimaleik í 2. deild-
inni um helgina. Lið HSK sækir
liðið heim að Húnavöllum á laug-
ardag og hefst leikurinn kl. 14.
Tindastóll heldur suður um
helgina og leikur þrjá leiki í
körfubolta, tvo í 1. deildinni og
einn í bikarkeppni KKÍ. I kvöld
leika Tindastóll og UBK í Digra-
nesi kl. 20, á morgun leikur liðið
gegn ÍS í Hagaskóla kl. 14 og á
sunnudag leika ÍS og Tindastóll
aftur en þá í bikarnum. Leikið
verður í Hagaskóla kl. 14.