Dagur - 28.11.1986, Qupperneq 16
Akureyri, föstudagur 28. nóvember 1986
Helgarseðill Smiðjunnar
Rjómalöguð skelfisksúpa
bragðbætt með koníaki.
Hvítlauksristaðir sniglar
með hvítlauksbrauði.
Sjávarréttasalat með brauðteningum.
Piparsteik að hætti Smiðjunnar
með fylltri kartöflu.
Hreindýrakótilettur Baden-Baden
með lyngsósu og rifsberjahlaupi.
Vanilluís á súkkulaðiwisky Mousse.
Kjarni - Vaglir
Jóla-
trén
eru
tilbúin
- sala hefst 14. des.
„Við erum að verða búnir að
höggva þau tré sem seld verða
fyrir jólin,“ sagði Tryggvi Mar-
inósson starfsmaður í Gróðrar-
stöðinni Kjarna við Akureyri.
Eins og undanfarin ár verður'
Kjarni með sölu á jólatrjám í
miðbæ Akureyrar fyrir jólin.
„Það verða 11-1200 tré sem við
seljum og höfðum reyndar gert
árlega. Við kaupum mikið úr
Vaglaskógi og af bændum í Suð-
ur-Þingeyjarsýslu. Helstu tegundir
eru fura, rauðgreni, þynur og
blágreni,“ sagði Tryggvi
Sala á trjám byrjar í Miðbæn-
um og í Kjarna föstudaginn 14.
desember. Ekki var búið að
ákveða verð á trjánum, en í fyrra
var verð frá 280 krónum til 1200
króna. Fór þetta verð eftir teg-
undum
Að Vöglum í Vaglaskógi er
búið að höggva það sem höggva á
fyrir þessi jól og eru það um 1200
tré. Mest af þessum trjám er
selt í heildsölu til aðila víða á
Norðurlandi. Einnig er hægt að
kaupa tré að Vöglum. Sömu sögu
er að segja af verðinu þar og í
Kjarna. Það er ekki búið að fá
verðið á trjánum, en það er
ákveðið af Skógrækt ríkisins.
gej-
Alþýðubankinn opnaði í gær útibú á Blönduósi, en það er til húsa að Húnabraut 13. Við opnun útibúsins afhenti
Stefán Gunnarsson, bankastjóri, ungum Blöndósingi, Jóni Kristófer Sigmarssyni að gjöf sparisjóðsbók með inni-
stæðu frá bankanum. - Starfsmenn Alþýðubankans á Blönduósi eru fjórir. Útibússtjóri er Örn Bjarnason en auk
hans starfa þar Rósa Margrét Sigursteinsdóttir, Birna Sverrisdóttir og Heiðrún Bjarkadóttir. Mynd: G.Kr. - Biðnduösi.
Sæver hf. í Ólafsfirði:
Kavíarframleióslan
hefst fljótlega
Fyrir helgina var sagt frá því að
heyrst hefði að Magnús
Gamalíelsson hf. á Ólafsfirði
sæktist eftir rækjuvinnsluleyfi
sem legið hefur nokkurn tíma
ónotað hjá Sæveri hf. Sigur-
geir Magnússon framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins staðlesti
þetta í samtali við blaðið og
sagði að þeir biðu nú eftir svari
við umsókn, frá ráðuneyti.
Fyrir um tveimur árum sótti
fyrirtækið ásamt tveimur öðrum
aðilum um þetta leyfi en fékk
Borgarbíó:
Nýr salur fyrir jól
„Ég vonast til þess að við get-
um hafið sýningar í nýja saln-
um fyrir jól og mér sýnist það
ætla að ganga. Nú er verið að
klæða loft og veggi, sýningar-
klefinn er nær tilbúinn og í
byrjun næsta mánaðar verður
farið að innrétta. Þannig að
þetta er allt að smella,“ sagði
Sigurður Arnfinnsson fram-
kvæmdastjóri Borgarbíós.
Búið er að kaupa mjög full-
komin tæki í nýja salinn en auk
þess verður hátalarakerfi í gamla
salnum endurbætt.
Sigurður sagðist reikna með að
um leið og nýi salurinn yrði opn-
aður yrði byrjað að snúa gamla
salnum við. Þar verður sætum
fækkað úr tæplega 300 í um 250
en í nýja salnum verða 120 sæti.
Búið er að kaupa ný sæti og að
sögn Sigurðar vérður allt gert til
að sem best fari urn áhorféndur.
Á efri hæð tengibyggingarinnar
verður fundarsalur stúkunnar og
þar verður möguleiki á að opna
þriðja salinn fyrir um 40 manns.
Að sögn Sigurðar verður ekki
nein sérstök jólamynd í Borgar-
bíói í ár en þess í stað verður
reynt að frumsýna eina eða fleiri
myndir þegar báðir salirnir verða
opnaðir í janúar. Þessar endur-
bætur og stækkun á bíóinu munu
að sögn Sigurðar kosta um 15
milljónir og er það um 2 milljón-
um meira en áætlað var.
ET
ekki. Nú er unnið að því að
skipuleggja fyrirhugaða vinnslu
og sagði Sigurgeir að hafist yrði
handa við framkvæmdir um leið
og jákvætt svar fengist. „Við
reiknum með jákvæðu svari og
höfum verið að undirbúa okkur
undir þetta,“ sagði Sigurgeir.
Vinnslunni er ætlað húsnæði í
frystihúsi fyrirtækisins og sagðist
Sigurgeir reikna með að kostnað-
ur við uppsetninguna yrði á bil-
inu 25-30 milljónir. Sótt var um
leyfi fyrir tveimur rækjupillunar-
vélum hvorri með afkastagetu
upp á um 400 kíló á klukkustund
og hafa þegar borist nokkur til-
boð í vélarnar. Áætlað er að 12-
14 manns komi til með að vinna
við móttöku og vinnslu.
„Við vonum að þetta fari í
gegn því þetta er það eina sem
við sjáum núna til þess að bæta
ástandið í landi. Það sem við-
kemur sjómönnum er að komast
í gott lag en að öllu óbreyttu
stefnir í samdrátt í vinnslu ef
ekkert verður að gert,“ sagði Sig-
urgeir að lokum. ET
Bæjarstjórn Sauðárkróks og Útgerðarfélag Skagfirðinga:
Ekki ákvörðun um hlutafjáraukningu
Málefni Útgerðarfélags Skag-
firðinga voru til umræðu á
fundi bæjarstjórnar Sauðár-
króks fyrr í vikunni. Hörmuðu
bæjarfulltrúar að ekki hefðu
komið fram þau gögn á hlut-
hafafundi á dögunum sem
bæjarstjórn hafði óskað eftir.
Allmiklar umræður urðu
einnig um fyrirsjáanlega hluta-
fjáraukningu í Útgerðarfélag-
inu.
Jón Friðriksson (F) greindi frá
því að ákveðið hefði vcrið að
hlutafjáraukning sveitarfélag-
anna austan Vatna færi að þessu
sinni eingöngu fram í gegnum
Hraðfrystihúsið á Hofsósi. Taldi
hann rétt að leiða hugann að því
hvort svipað ætti ekki að vera
upp á teningnum hér, þar sem
frystihúsin eru stærstu hagsmuna-
aðilarnir í félaginu. Knútur
Aadnegard (S) sagðist álíta að
staða frystihúsanna á Sauðár-
króki væri þannig að þau væru
ekki í stakk búin að taka á sig
hlut bæjarins í hlutafjáraukningu
í félaginu. Óttaðist hann að ef
hlutafé félagsins yrði ekki aukið
nægjanlega nú þyrfti af þeim sök-
um fljótlega aftur að auka það og
þá mun meira. Magnús Sigur-
jónsson (F) sagði það skoðun
sína að á næstu árum ætti Sauðár-
króksbær að draga úr eignarhlut
sínum í ÚS að því tilskildu að
aðrir eignaraðilar gætu aukið
sína hlutdeild í félaginu. En besti
kosturinn væri sá að útgerðin og
fiskvinnslan sameinuðust í eitt
öflugt fyrirtæki. Hörður Ingi-
marsson bæjarfulltrúi K-listans
sagði að Útgerðarfélaginu hefði í
langan tíma verið stjórnað af
frystihúsunum enda væru þau
mestu hagsmunaaðilarnir, en
Sauðárkróksbær, stærsti hluthaf-
inn, hefði lengi verið minnihluta-
aðili. Snorri Björn bæjarstjóri
tók til máls og tók fram að þrátt
fyrir þá umræðu sem þarna hefði
átt sér stað væri ekki um það að
ræða að bæjarstjórn Sauðárkróks
myndi skjóta sér undan í þessu
máli, eins mikilvægt og útgerðar-
félagið væri bæjarfélaginu. Bæjar-
fulltrúum kom saman urn að ekki
yrði hægt að taka hlutafjáraukn-
ingu í ÚS til gagngerrar
umfjöllunar fyrr en umbeðin
gögn lægju fyrir. í franihaldi af
þessu má geta þess að framhalds-
hluthafafundar í ÚS er áforntað-
ur 8. desember nk. -þá
Útvegsmenn
á Noröurlandi:
Skoða
fisk-
martaði í
Englandi
„Ég fékk þessa hugmynd í
tengslum við þær umræður
sem fram hafa farið um vænt-
anlega fiskmarkaði hér á landi.
Þess vegna fékk ég kostnaðar-
áætlun fyrir ferðina og hafði
síðan samband við aðila á
Ólafsfirði og Húsavík um að
fara og skoða það sem gerist á
slíkum mörkuðum erlendis,“
sagði Hilmar Daníelsson sem
hefur séð um gámaútflutning á
fiski fyrir útgerðarmenn á
Dalvík.
Það verða 14 manns sem fara
til Englands á laugardaginn til að
kynna sér fiskmarkaði í Grimsby
og Hull. Þar munu þessir aðilar
fylgjast með löndun úr íslenskum
skipum og fylgjast með fiskinum
frá uppskipun í gegnum allt
kerfið, þar til uppboði er lokið.
„Það er nauðsynlegt að þeir
aðilar sem að útflutningi standa
viti hvernig svona vinnubrögð
fara fram. Þetta á ekki síst við
um Dalvíkinga sem eru einu
fiskimennirnir við Eyjafjörð sem
hafa stundað fiskútflutning í
gámum að undanförnu," sagði
Hilmar.
Hann sagði ennfremur að
markaður færi vaxandi fyrir aðrar
fisktegundir en þorsk í öðrum
löndum og benti sérstaklega á
Frakkland og Þýskaland. Hyggst
Hilmar efna til ferðar þangað
fljótlega, til að kanna fiskmark-
aði þar.
Hópurinn kemur væntanlega
heim næsta miðvikudag. • gej-
Fundu
væng-
brotinn
fálka
„A mánudaginn fengum við
tilkynningu um fálka úti á
Sléttu. Það hringdi í okkur
maður sem sagðist hafa fundið
fálka sem var eitthvað las-
burða,“ sagði Davíð G. Gunn-
arsson lögreglumaður á Rauf-
arhöfn.
Lögreglan sótti fálkann og
hlúði að honum eftir bestu getu.
Haft var samband við Ævar Pet-
ersen hjá Náttúrufræðistofnun
Háskólans og bað hann um að
fálkinn yrði sendur suður.
Farið var með fuglinn til Húsa-
víkur þar sem hann þurfti að bíða
eitthvað eftir flugi, því ekki gat
hann flogið sjálfur. Nú mun hinn
vængbrotni fálki vera kominn í
hendurnar á mönnum sent vanir
eru umönnun slíkra dýra og er
meiningin að koma fuglinum til
fullrar heilsu að nýju. gej-