Dagur - 14.01.1987, Blaðsíða 6

Dagur - 14.01.1987, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 14. janúar 1987 Undanfarið hálft annað ár hefur Sólveig Jónsdóttir ásamt þrem sonum sínum komið fram á skemmtunum á Húsavík og í nærsveitum. Þau mæðginin hafa sungið, leikið á gítar og orgel og drengirnir herma eftir skemmtikröftum við mikinn fögnuð áhorfenda. Solla er fædd og uppalin á Stöðvarfirði en hefur búið á Húsavík síðan 1968, þá stund- aði hún nám við Húsmæðraskólann á Laugum og kynntist eiginmanni sínum Pétri Skarphéðinssyni. Þau eiga fjóra syni, Víðir er 17 ára, Hrannar 13 ára, Pétur Veigar 6 ára og sá yngsti heitir Pálmar og er 2 ára. Það eru þrír eldri synirn- ir sem komið hafa fram á skemmtunum með Sollu en sá yngsti hefur greinilega fullan hug á að fá að syngja með og varla líða mörg ár þar til hann verður kominn á sviðið. - Hefur þú alltaf haft mikinn áhuga á söng Solla? „Alveg ofsalega, ég átti plast- gítar þegar ég var pínulítil, þegar veður var gott sat ég með þennan gítar úti á tröppum og söng og söng ásamt vinkonum mínum. Þegar ég var átta ára gáfu mamma og pabbi mér gítar í afmælisgjöf en ég kunni engin grip, það var engar bækur hægt að fá og enginn kenndi á gítar. Mágkona mömmu bjó á neðri hæðinni, hún spilaði mikið á gítar og söng, ég fylgdist mikið með henni og lærði að spila þannig að ég fylgdist með á hvaða strengi hún studdi, heyrði hljóminn, hljóp síðan út og inn uppi söngl- andi tóninn sem ég hafði heyrt og hætti ekki fyrr en ég hafði náð honum á minn gítar. Sum gripin sem ég nota held ég að séu ekki til hjá öðrum því ég bjó þau til, en hljómurinn er sá sami.“ - Hefurðu aldrei farið í tón- listarskóla? „Ég ætlaði einu sinni að læra á orgel og fór part úr vetri í skól- ann hérna en ég held að það sé vont að kenna þeim sem hafa spilað eftir eyranu, þegar ég var búin að læra æfingarnar hætti ég að horfa á nóturnar og spilaði bara eftir eyranu. Núna langar mig ofsalega í harmoníku, það var aldrei til orgel heima svo ég hafði aldrei tök á að spila á orgel þar.“ - Var mikill tónlistaráhugi heima hjá þér? „Ég á tvo bræður og sá eldri hafði ekki áhuga á tónlist, ég fór alveg óskaplega í taugarnar á honum þegar ég var að spila og syngja." - En þú hefur ekki hætt fyrir hans orð, hefurðu alltaf spilað og sungið jafn mikið? „Já og alltaf með gítarinn, bæði meðan ég var heima og í skólanum, ég var á Eiðum og maður var alltaf spilandi og syngjandi. Á sjómannadaginn þegar ég var átta ára komum við þrjár vinkonur fram á samkomu, mömmur okkar saumuðu rósótta kjóla og við vorum æðislega fínar, ég spilaði á gítarinn og þetta vakti heilmikla kátínu. Ég gat strax spilað auðveld lög og þarna sungum við texta eins og Rasmus og Komdu niður t.d. Þegar ég var krakki fórum við alltaf á sundnámskeið í Eiða og síðar var ég þar á héraðsskólan- um og að Iokum á Laugum en mér leiddist aldrei. Það voru ekki helgarfrí eins og núna, við fórum heim um jólin, það var eina skiptið yfir veturinn. Ef ég fór að hugsa heim eða að langa til að fara heim settist ég bara með minn gítar og fór að syngja, þá komu alltaf einhverjir og voru með og heimþráin gleymdist. Ég held að þeim sem geta dundað við eitthvað svona leiðist aldrei. Pétur er oft að vinna um helgar og þá sit ég við orgelið fram á nótt. Fyrst eftir að ég kom hingað þekkti ég fáa en svo gekk ég f kvenfélagið. Við kvenfélags- konurnar spiluðum og sungum á fundum og á samkomum og ég man t.d. eftir að við komum fram á kvennafrídaginn. Ég fór einnig mikið með eldri strákana í sunnu- dagaskólann.“ - Þú hefur verið mjög virk í starfinu þar. „Já, þar til í vetur að ég tók mér frí, fór aðeins þrjá sunnu- daga á meðan önnur var lasin. Mér fannst það orðið svolítið Pétur Veigar, Hrannar og Víðir. Solla og synir troða upp í Féiagsheimili Húsavíkur.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.