Dagur


Dagur - 14.01.1987, Qupperneq 12

Dagur - 14.01.1987, Qupperneq 12
Rafrnagnsverkstœði Rafvélaverkstæði okkar er opið alla virka daga frá kl.7.30-17.15 Önnumst viðgerðir á störturum, dínamóum og öðrum rafmagnshlutum í bílum Beðið eftir grænu Ijósi „Við erum að láta ísa Arnar núna, svo að hvort sem það verður í kvöld eða eitthvað aðeins seinna þá fer hann á veiðar eins fljótt og hægt er eftir að gefið verður grænt Ijós á það,“ sagði Magnús Sigurðs- son hjá Skagstrendingi á Skaga- strönd. Dagur hafði samband við nokkra aðila á Norðurlandi vestra til að afla frétta af ástand- inu vegna sjómannaverkfallsins. í ljós kom að alls staðar er þess aðeins beðið að lögin verði samþykkt, þá halda bátar og togarar til veiða um leið. Lárus Ægir Guðmundsson hjá Hólanesi á Skagaströnd sagði að þar hefði verið klárað að vinna fiskinn á Þorláksmessu og síðan hefði tím- inn verið notaður til að vinna að ýmsum lagfæringum á húsinu. Lárus Ægir var spurður álits á því að sett yrðu lög til að leysa verk- fallið. „Mér finnst þetta hárrétt og finnst samningamennirnir sýna alveg gífurlegt ábyrgðarleysi þeg- ar þeir lama allt landið út af ein- um togara sem er að veiðum, og að talast ekki við svo dögum skiptir út af slíku, það finnst mér vera algjört ábyrgðarleysi. Pað má eflaust deila um það hvort það er réttmætt að hann sé að veiðum eða ekki, en deilu um slíkt á bara að setja fyrir ein- hvern dómstól sem sker úr um það, en snúa sér að því að tala um það sem þeir eru ráðnir og kjörnir til að tala um. Þannig að þetta eru alveg fráleit vinnubrögð sem þeir hafa viðhaft og algjört ábyrgðarleysi," sagði Lárus Ægir Guðmundsson. G.Kr. Varmahlíð: Nálægö kosninga setti svip á bændafundinn Rafvirki leggur sitt af mörkum við nýbyggingu Borgarbíós. Þar fara sýningar senn að hefjast. Mynd: rpb ístess hf.: Framleiðsla hefst um mánaðamót „Viö eigum eftir dálitla raf- magnsvinnu í sambandi við stýribúnað en afhending hans dróst á langinn. Þegar stýri- búnaðurinn kemur frá Noregi mun verksmiðjan taka til starfa á því sem næst fullum afköstum,“ sagði Pétur Bjarnason, framkvæmdastjóri Istess hf. á Akureyri, en fyrir- tækið hefur nú nánast lokið við að setja upp fóðurverksmiðju í Krossanesi sem mun framleiða fóður til fiskeldis. Að sögn Péturs verður verk- smiðjan ekki starfrækt á vöktum til að byrja með. Framleiðsla á fóðri verður mun meiri en upp- haflega var gert ráð fyrir því markaðurinn hefur stækkað mun hraðar en menn áttu von á. „Við getum varla sagt annað en að afkoman fyrir síðasta.ár sé góð. Við seldum á fjórða þúsund tonn í fyrra fyrir utan tækjabún- að og annað. Þetta er góður árangur miðað við fyrsta starfsár og fyrri spár. Á þessu ári er áætl- að að framleiða á sjöunda þús- und tonn af fóðri í Krossanesi og verður heildarsalan á árinu á átt- unda þúsund tonn. Seiðafóður verður áfram flutt inn og verður það gert meðan ódýrara verður að útvega það þannig en að fram- leiða það innanlands." EHB Bændafundurinn sem haldinn var í Miðgarði sl. sunnudags- kvöld var mjög fjölmennur, á 5. hundrað manns þegar mest var. Fundurinn stóð fram undir morgun, í 8 tíma og haldnar voru hvorki fleiri né færri en 35 ræður. Gegnumgangandi í máli bænda og margra annarra ræðumanna á fundinum var það álit, að aðlögunaratími nýju búvörulaganna væri allt of stuttur og þau þyrftu í heild sinni endurskoðunar við. Þá skoruðu fundargestir á alþing- ismenn kjördæmisins og land- búnaðarráðherra að standa vörð um graskögglaverksmiðj- una í Vallhólma svo hún megi starfa áfram. Á fundinn voru mættir allir þingmenn kjördæmisins, land- búnaðarráðherra og formaður Stéttarsambands bænda. Bar fundurinn mikinn keim þess að stutt er til kosninga. Ekki bætti úr skák að mættir voru alþýðu- flokksmenn með Jón Baldvin í broddi fylkingar, en kratar voru á fundaferðalagi um kjördæmið um helgina og var þetta að sjálf- sögðu langfjölmennasti fundur- inn sem þeir komu á. Fór nokkur tími bænda í að svara krötunum og láta í ljós álit sitt á kunnáttu- leysi krata í landbúnaðarmálum og að þeir yrðu að kynna sér þau mál betur. Varð það til þess að ekki vannst eins mikill tími fyrir þá að ræða um sjálfan vandann og hugsanlega lausn hans. í sam- tölum við fundargesti kom fram að raddir bænda hefðu mátt heyr- ast meira á fundinum á kostnað ræðutíma stjórnmálamannanna, en fundurinn hefði samt verið gagnlegur. Ályktanir fundarins verða birtar í blaðinu einhvern næstu daga. -þá Hlutur Jökuls hf. í afla Stakfellsins: „Eigum rétt á 25% samkvæmt samningi“ - segir framkvæmdastjórinn. Ekki búið að semja um verð Eins og fram hefur komið hef- ur breytingum á togaranum Stakfelli frá Þórshöfn verið frestað um 3 mánuði. Togarinn mun að afloknu verkfalli fara til veiða og er stefnt að því að hann landi 800 tonnum af ís- fiski gegn því að vinnslan greiði umfram venjulegt verð. I einu dagblaðanna var sagt frá því að frystihúsinu Jökli hf. á Raufarhöfn yrði gefinn kostur á því að fá 25% aflans eða 200 tonn gegn því að frystihúsið greiddi um 1,2 milljónir af yfir- borguninni sem þá væri sam- tals rúmlega 6,5 milljónir. Kópasker: Fengur kemur ekki aftur „Þeirra er valdið,“ segir Kristján Armannsson „Hann fer ekki til Kópaskers. Hann fer í þróunarverkefni en það er ekki endanlega ákveðið hvenær eða hvert, en það er verið að vinna í þessu. Eins og staðan er í dag má bóka það að Fengur fer ekki aftur til Kópa- skers,“ sagði Þór Guðmunds- son hjá Þróunarsamvinnu- stofnun. Þetta mun lama útgerð og fisvinnslu á Kópa- skeri, en Sæblik hf. hefur haft Feng á leigu og vonaðist til að fá skipið áfram. Kristján Ármannsson fram- kvæmdastjóri Sæbliks hafði ekkert heyrt frá Þróunarsam- vinnustofnun og komu þessi tíð- indi honum í opna skjöldu. „Peirra er valdið,“ sagði Kristján. „Auðvitað er þetta hlutverk skipsins en maður var búinn að heyra að það tæki svo langan tíma að ákveða hvenær Fengur færi til þróunaraðstoðar að maður bjóst við að fá skipið þangað til. Pess í stað liggur það ónotað á meðan,“ hélt Kristján áfram. Hann sagði þessa ákvörðun leiða til þess að fiskvinnslan yrði hráefnislaus fram í mars. Nýi togarinn, Dreki, verður í slipp út febrúar. Þeir höfðu vonast til að geta leigt Feng þangað til og jafn- vel lengur. Þeim hefði ekkert veitt af því við hráefnisöflunina. Það verður því hráefnisskortur og atvinnuleysi á Kópaskeri á næstunni. Það mun ekki vera nýlunda. „Við erum ýmsu vanir í þeim efnum,“ sagði Kristján Ármannsson, en ljóst var að þessar fregnir komu illa við hann sem von er. SS Þegar þetta var borið undir Hólmstein Björnsson fram- kvæmdastjóra Jökuls hf. sagðist hann ekki kannast við þessar töl- ur enda hefði ekki verið gengið frá neinum nýjum samningum við sig. Hólmsteinn sagðist hins vegar líta svo á að sem fyrr ætti Jökull hf. rétt á 25% aflans úr Stakfellinu samkvæmt samningi. „Við erum alls ekki skuldbundnir af þessari tölu en auðvitað reyn- um við að vera sanngjarnir. Hins vegar veit ég ekki hvaðan þessi tala, 1,2 milljónir, er komin,“ sagði Hólmsteinn. Hann sagðist eiga von á að gengið yrði til við- ræðna um málið á næstunni enda hefðu þeir fullan hug á að fá sinn hluta.aflans. Togari Jökuls hf. Rauðinúpur, var í slipp í Reykjavík fram að verkfalli og þar er skipið nú stopp eins og önnur. Jökull fékk 2. janúar hráefni til vinnslu úr síðustu veiðiferð Stak- fellsins. Þetta dugði til tveggja daga vinnslu en síðan hefur öll vinna legið niðri þó ekki komi til uppsagna hjá fastráðnu starfs- fólki. ET

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.