Dagur - 20.01.1987, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 20. janúar 1987
viðtal dagsins:
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 480 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 50 KR.
RITSTJÓRl OG ÁBYRGÐÁRMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
FRÉTTASTJÓRI:
GYLFI KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERTTRYGGVASON, EGILLBRAGASON,
GESTUR E. JÓNASSON, GESTUR KRISTINSSON
(Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368),
HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
(Húsavík vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
RÚNAR ÞÓR BJÖRNSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON,
ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729)
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASIMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÖRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
leiðari.______________________________________
Ævintýrið um
Öskubusku
Allir þekkja ævintýrið um Öskubusku - um stúlkuna
sem reis úr öskustónni og hófst til mannvirðinga og
valda á skammri stundu.
Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra og formaður
Sjálfstæðisflokksins gerir nú örvæntingarfullar til-
raunir til að rísa úr öskustó þeirri sem hann hefur
setið í frá því hann tók við formannsembættinu í
flokki sínum.
Enn er mönnum í fersku minni hversu erfiðlega
Þorsteini gekk að fá ráðherrasæti í ríkisstjórninni og
þótti hann ekki ganga nógu vasklega fram í því
máli. Það var ekki fyrr en sjálfstæðismenn fundu
lausan bankastjórastól í Seðlabankanum handa
Geir Hallgrímssyni að Þorsteinn komst inn í ríkis-
stjórnina og fékk þar með nokkra uppreisn æru. Inn-
ganga Þorsteins Pálssonar í ríkisstjórnina þótti þó
ekki marka nein þáttaskil á valdaferli hans og félög-
um hans fannst hann alls ekkert afgerandi í emb-
ætti fjármálaráðherra. Krafan um að formaður
Sjálfstæðisflokksins færi nú að sýna einhver tilþrif
var því orðin mjög almenn meðal sjálfstæðismanna.
í síðustu viku lét Þorsteinn loks til skarar skríða.
Aðferðin sem hann valdi vakti vissulega athygli
alþjóðar en mæltist misvel fyrir. Er þar átt við upp-
hlaup hans á Alþingi, er verið var að ræða sjó-
mannadeiluna. Með framkomu sinni vakti formaður-
inn - nýkominn frá París - verðskuldaða athygli á
því sambandsleysi sem er á milli ráðherra og þing-
manna Sjálfstæðisflokksins og þeirri valdatogstreitu
sem þar ríkir. Honum tókst þannig að upphefja sjálf-
an sig að einhverju leyti - á kostnað flokksins.
Þorsteini hefur líklega verið ljóst að betur mætti ef
duga skyldi. í viðtali við DV á laugardaginn reynir
Þorsteinn því enn að upphefja sjálfan sig, en nú á
kostnað samstarfsflokksins 1 ríkisstjórninni, Fram-
sóknarflokksins, og Steingríms Hermannssonar
forsætisráðherra. Þar segir Þorsteinn að ekki megi
taka gagnrýni forsætisráðherra á bankastjóra Seðla-
bankans vegna okurmálsins of alvarlega. Jafnframt
segir Þorsteinn að það sé háttur framsóknarmanna
að hlaupa út undan sér og firra sig ábyrgð í stjórn-
arsamstarfi síðustu mánuðina fyrir kosningar.
Þessi ummæli formannsins er vart hægt að skilja á
annan veg en sem vantraustsyfirlýsingu á Fram-
sóknarflokkinn. Það þykir þó koma úr alhörðustu átt
er formaður Sjálfstæðisflokksins talar um að aðrir
firri sig ábyrgð. Ef einhverjir hafa sýnt ábyrgðarleysi
í stjórnarsamstarfinu að undanförnu, eru það sjálf-
stæðismenn og sér í lagi Þorsteinn Pálsson.
Tilburðir formannsins til að rísa úr öskustónni og
styrkja stöðu sína innan Sjálfstæðisflokksins breyta
engu þar um. BB.
Elín R. Líndal er hreppstjóri í
Þorkelshólshreppi í Vestur-
Húnavatnssýslu. Hún býr að
Lækjamóti ásamt eiginmanni
sínum Þóri ísólfssyni og þrem
börnum. Hún er verksfjóri á
saumastofu, og nú er hún kom-
in í baráttusæti framsóknar-
manna í kjördæminu fyrir
komandi alþingiskosningar.
Ert þú Húnvetningur að upp-
runa Elín?
„Já, ég er fædd og uppalin að
Lækjamóti.“
- Hvernig bú eruð þið með?
„Við búum aðallega með sauð-
fé, svo erum við með hross og
minkabú."
- Hver er reynsla þín í félags-
málum?
„Það má segja að ég hafi fyrst
byrjað afskipti af félagsmálum í
Reykjaskóla, þá var ég formaður
ungmennafélags sem var þar.
Síðan hafa afskipti mín af slíkum
málum verið lítil nema innan
kvenfélagsins, og afskipti af
pólitík hóf ég ekki fyrr en á síð-
asta ári, þegar það var farið að
orða það við mig hvort ég vildi
taka þátt í skoðanakönnun vegna
væntanlegs prófkjörs framsókn-
armanna í kjördæminu."
- En hvað með hreppstjóra-
embættið. Er það ekki pólitískt
embætti?
„Nei, það er skipað í það af
sýslumanni eftir tilnefningu
sýslunefndar. En svo er ég reynd-
ar varamaður í hreppsnefnd
líka. “
- Hafðir þú starfað innan
Framsóknarflokksins áður en
þetta kom til?
„Nei, ég hef bara stutt hann
sem áhugamanneskja fyrir góðu
mannlífi í landinu.“
- Hvað er það í stefnu flokks-
ins sem höfðar sérstaklega til
þín?
„Mér finnst ákaflega heillandi
það sem segir í stefnuskrá flokks-
ins að það eigi að hafa manngildi
ofar auðgildi, og eftir því er unn-
ið innan Framsóknarflokksins.
En auðvitað er það ekki síst
stefna flokksins í byggðamálum
sem höfðar til mín sem íbúa á
landsbyggðinni. Það hlýtur að
þurfa að koma að því að aðstaða
fólks sé jöfnuð, t.d. að bændur
hafi sömu laun og aðrar stéttir,
og að fólk af landsbyggðinni hafi
sama rétt og aðrir til náms. Það
er þannig núna að þegar við
sendum börnin okkar til fram-
haldsnáms þá má segja að við
verðum að fara að halda annað
heimili, og það sér hver maður
hvað þetta getur kostað heimiiin.
Það þarf með einhverju móti að
koma því þannig fyrir að þessi
ójöfnuður hverfi. T.d. mætti
hugsa sér einhvers konar hús-
næðisstyrki til þeirra sem þurfa
að sækja nám fjarri sinni heima-
byggð.“
- Málefni bænda hafa verið
mikið í brennidepli að undan-
förnu og þá ekki síst búfjárlögin.
Hvert er þitt álit á þeim?
„Það er kannski fyrst og fremst
það að sá aðlögunartími sem lög-
in gera ráð fyrir er allt of stuttur.
Við verðum náttúrlega að vera
framsýn og laga okkur að aðstæð-
um, en halda umfram allt í það
sem við mögulega getum og að
selja ekki eina einustu einingu af
þeim fullvirðisrétti sem við
höfum. Lögin taka heldur alls
ekki nógu mikið tillit til
aðstæðna.“
- Þessa dagana eru aðgerðir
menntamálaráðherra í Norður-
landsumdæmi eystra mikið ti!
umræðu, hvert er þitt álit á því
sem þar er að gerast?
„Það er auðvitað sama í hvaða
kjördæmi maður býr, það hljóta
allir að eiga rétt á þvi að grunn-
Elín R. Líndal í viðtali dagsins:
Manngildi ofar
auðgildi
skólalögin séu framkvæmd eins
og þau eru. Þannig að maður
hlýtur náttúrlega að taka afstöðu
með því að þeim sé framfylgt."
- Fyrir síðustu alþingiskosn-
ingar varð klofningur meðal
framsóknarmanna í kjördæminu,
en nú er ekki um slíkt að ræða,
en eftir prófkjörið varst þú í
fjórða sæti en Sverrir Sveinsson í
þriðja. Voru mikil átök um þessa
breytingu?
„Við Vestur-Húnvetningar töld-
um það rétt að þessi breyting yrði
gerð á listanum, ekki síst fyrir
það hvað reglurnar sem giltu í
prófkjörinu voru illa kynntar.
Um það hvort mikil átök hafi
verið um þessa breytingu get ég
ekki borið þar sem þetta fór auð-
vitað fram innan uppstillinga-
nefndar, en ég tel ekki að um
nein stór átök hafi verið að ræða.
Og af þeirri samstöðu sem ríkir
hér á kjördæmisþinginu met ég
það að framsóknarfólk í kjör-
dæminu muni standa þétt saman í
kosningabaráttunni sem í hönd
fer.“
- Nú hlýtur kosningaslagurinn
að fara af stað á næstu dögum,
eruð þið farin að skipuleggja bar-
áttuna?
„Nei, en ég geri ráð fyrir að við
höldum fyrsta fund núna að
loknu þinginu, áður en við förum
héðan frá Blönduósi. Þannig að
það má kannski segja að kosn-
ingabaráttan hefjist frá og með
þessum degi.“
- Miðað við að Framsóknar-
flokkurinn haldi því að vera
stærsti flokkurinn í þessu kjör-
dæmi, verður að gera ráð fyrir því
að þú þurfir, sem fyrsti varaþing-
maður, að dvelja langdvölum að
heiman. Hvernig leggst það í þig
og þitt heimilisfólk?
„Það er nokkuð sem ég var
búin að gera upp við mig áður en
ég fór út í þetta. Þriðja sætið er
baráttusætið og það gæti alveg
eins farið svo að ég þyrfti að sitja
á Alþingi allt tímabilið. Auðvitað
breytist margt við það að vinnu-
staðurinn skuli vera í Reykjavík,
en ég mun ganga að þessari vinnu
eins og hverri annarri, og að sjálf-
sögðu eru allar ákvarðanir teknar
í fullu samráði við fjölskylduna."
- Ef svo færi að Framsóknar-
flokkurinn fengi þrjá menn
kjörna, þannig að þú yrðir að
sitja allt kjörtímabilið á þingi,
hyggstu þá bregða búi og flytjast
til Reykjavíkur?
„Nei, alls ekki, ég myndi þá
bara vinna mína vinnu í Reykja-
vík og fara svo á milli eins ogþing-
mennirnir okkar gera nú. Eg er
vön miklum akstri og set það
ekkert fyrir mig þó vegalengdirn-
ar séu nokkrar."
- Að lokum Elín, aðal áhuga-
mál þín varðandi uppbyggingu
þíns svæðis í kjördæminu?
„Ég vil leggja áherslu á upp-
byggingu smáiðnaðar bæði í þétt-
býlisstöðunum og í sveitunum.
Þar þarf að vinna skipulega að
þeim málum með hagkvæmnis-
sjónarmið í huga þannig, að ekki
verði farið af stað með vafasama
starfsemi að lítt rannsökuðu
máli. Þetta er meðal annars
möguleiki sem myndi gera mörg-
um kleift að halda sínum jörðum,
þrátt fyrir þá skerðingu sem átt
hefur sér stað. Ég vildi gjarnan
nefna fleira til, en það verður
bara að bíða betri tíma.“
G.Kr.