Dagur - 20.01.1987, Blaðsíða 9
20. janúar 1987 - DAGUR - 9
_fþróttic
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Dagur
með
mann á
staðnum
Eins og fram kemur á síðunni hér
að neðan hefst Baltic-keppnin í
A.-Þýskalandi á morgun. Dagur
verður með mann á staðnum, og
munu fréttir af gangi mála á mót-
inu frá Kristjáni Kristjánssyni
birtast í blaðinu næstu daga.
Fyrsti leikur íslands er á morgun
gegn A.-Þýskalandi og síðan er
leikur á hverjum degi fram á
sunnudag. gk-.
„Baltic" keppnin i handknattleik:
Island-A. Þýskaland
í fyrsta leiknum
Baltic-keppnin í handknattleik
sem fram fer í A.-Þýskalandi
hefst á morgun. Landsliðin sem
þarna leiða saman hesta sína
eru A.-Þýskaland, V.-Þýska-
land, Sovétríkin, Svíþjóð og
ísland. Mót þetta er geysilega
sterkt og má búast við spenn-
andi og skemmtilegum leikj-
um.
Landsliðin sem þarna leika
eiga öll að baki frábæran árangur
á undanfömum ámm. Gestgjaf-
amir A.-Þjóðverjar urðu Olymp-
íumeistarar í Moskvu árið 1980,
liðið varð í 2. sæti á HM árið
1982 og í 3. sæti á HM í Sviss í
fyrra. A.-Þjóðverjar tóku ekki
þátt í Olympíuleikunum í Banda-
ríkjunum.
Svíar urðu í 5. sæti á Olympíu-
leikunum í Bandaríkjunum og í
4. sæti á HM í Sviss. íslendingar
urðu í 6. sæti bæði á Olympíu-
leikunum í Bandaríkjunum og á
HM í Sviss í fyrra.
V.-Þjóðverjar urðu heims-
meistarar árið 1978 í Danmörku,
liðið lék til úrslita við Júgóslava á
Olympíuleikunum í Bandaríkj-
unum árið 1984 en beið þar lægri
hlut og hafnaði í 2. sæti og þá
varð liðið í 7. sæti á HM í Sviss,
næst á eftir íslandi.
Sovétmenn léku til úrslita gegn
A.-Þjóðverjum á Olympíu-
leikunum í Moskvu árið 1980 en
töpuðu þeim leik og urðu í 2.
sæti. Sovétmenn urðu heims-
meistarar árið 1982 og þá varð
liðið í 10. sæti á HM í Sviss í
fyrra. Sovétmenn mættu ekki á
Olympíuleikana í Bandaríkjun-
um 1984. Pólverjar urðu í 3. sæti
á HM árið 1982 og liðið varð í 13.
sæti á HM í Sviss í fyrra. Pólverj-
ar mættu ekki á Ol. í Bandaríkj-
unum.
íslendingar tóku þátt í Baltic-
keppninni sem fram fór í Dan-
mörku fyrir réttu ári. íslenska
liðið tapaði þá fyrir A.-Þjóðverj-
um með 5 marka mun, fyrir Pól-
verjum með 1 marks mun og fyrir
Sovétmönnum með 12 marka
mun. íslenska liðið vann bæði A
og B lið Dana á mótinu.
Eins og sést af þessari upptaln-
ingu er þetta mót mjög sterkt og
það verður á brattann fyrir okkar
menn að sækja. V.-Þjóðverjar,
Pólverjar og Sovétmenn eru um
þessar mundir að undirbúa lið sín
fyrir B-keppnina sem fram fer á
þessu ári.
íslenska liðinu hefur verið
boðið að taka þátt í öðru geysi-
lega sterku móti sem fram fer í
Júgóslavíu í sumar. Þar verða
einnig nokkur af bestu hand-
knattleikslandsliðum heims. Þau
eru heimsmeistarar Júgóslava,
Rúmenar, Spánverjar, A.-Þjóð-
verjar, Sovétmenn og íslending-
ar.
íslandsmótið í innanhússknattspyrnu:
Reynir og Vorboðinn
komust ekki í 2. deild
Keppni í 3. deild á íslandsmót-
inu í innanhússknattspyrnu
lauk seint á sunnudagskvöld. í
blaðinu í gær var sagt frá
árangri Völsungs á mótinu en
Staðan
3. deild
Urslit leikja um helgina og
staðan í 3. leild íslandsmóts-
ins í handknattleik er þcssi:
UMÍB:UFHÖ 15:26
ÍS-Selfoss 14:21
Viilsungur-UMFN 20:21
Selfoss-UMIB 32:19
Selfoss 8 7-1-0 220:133 15
UMFN 8 6-1-1 220:145 13
UFHÖ 8 6-0-2 169:154 12
ÍH 7 4-0-3 177:144 8
ÍS 8 4-0-4 180:173 8
Völsungur 7 1-0-6 153:159 2
UMÍB 8 1-0-7 152:238 2
Ögri 7 0-0-7 102:234 0
Völsungsliðið var eitt þeirra
þriggja norðanliða sem keppti
í 3. deild.
Hin tvö liðin voru Reynir frá
Árskógströnd og Vorboðinn.
Reynir lék í C-riðli ásamt Víkingi
Ól., Leikni F. og Grindavík og
urðu úrslit í leikjum Reynis
þessi:
Reynir-Víkingur Ól. 10:2
Reynir-Leiknir F. 3:3
Reynir-Grindavík 5:7
Það var lið Grindavíkur sem
sigraði í riðlinum og vann sér um
leið sæti í 2. deild að ári.
Vorboðinn lék í D-riðli ásamt
ÍBÍ', Sindra og Leikni R. og urðu
úrslit í leikjum Vorboðans þessi:
Vorboðinn-ÍBÍ 7:5
Vorboðinn-Sindri 9:4
Vorboðinn-Leiknir R. 7:9
Leiknir frá Reykjavík sigraði í
öllum sínum leikjum í riðlinum
og vann sér sæti í 2. deild að ári.
Einnig var keppt í 2. deild og
tveimur riðlum úr 4. deild eins og
komið hefur fram. í lokin er rétt
að rifja það upp hvaða lið það
voru sem unnu hvern riðil í
hverri deild og færðust upp um
deild og hvaða lið það voru sem
urðu í neðsta sæti og féllu um
deild.
2. deild:
Leiftur sigraði í A-riðli en
Stjarnan varð í neðsta sæti. KA
sigraði í B-riðli en Austri E. varð
í neðsta sæti. ÍBV sigraði í C-riðli
en Valur Rf. varð í neðsta sæti.
Víðir sigraði í D-riðli en Neisti
hafnaði í neðsta sæti.
3. deild:
Árvakur sigraði í A-riðli en
Árvakur hafnaði í neðsta sæti.
Höttur sigraði í B-riðli en Hrafn-
kell Freysgoði hafnaði í neðsta
sæti. Úrslitin í C- og D-riðli eru
hér að ofan.
4. deild:
í C-riðli 4. deildar sigruðu
Svarfdælingar með glæsibrag og
Augnablik í D-riðli.
Stórmót íþróttafréttamanna: ,
KR sigraði IA
í úrslitaleik
Stórmót Samtaka íþrótta-
fréttamanna í innanhússknatt-
spyrnu fór fram á Akranesi á
sunnudaginn. Þar léku þau lið
sem urðu í 7 efstu sætunum í 1.
deildinni í knattspyrnu í sumar
og auk þess mættu íþrótta-
fréttamenn með lið til keppni.
Leikið var í tveimur riðlum og
komust tvö efstu liðin úr hvorum
riðli í undanúrslit. í A-riðli léku
ÍBK, Fram, Valur og lið íþrótta-
fréttamanna. Valsmenn sigruðu í
riðlinum og Fram varð í 2. sæti. í
B-riðli léku KR, Þór, Víðir og
í A. KR-ingar sigruðu í B-riðli og
Skagamenn urðu í 2. sæti.
KR sigraði Fram í öðrum
undanúrslitaleiknum og Skaginn
sigraði Val í hinum leiknum og
þurfti vítaspyrnukeppni til þess
að knýja fram úrslit í þeim leik.
Það voru því KR og ÍA sem léku
til úrslita. KR-ingar sigruðu í æsi-
spennandi leik með fimm mörk-
um gegn þremur.
Árni Stefánsson og félagar komust
ekki í undanúrsiit á Skaganum.
„íþróttamaður Norðurlands":
Skilafresturinn
framlengdur
Undanfarna daga hefur Dagur
boðið lesendum sínum að taka
þátt í kjöri blaðsins á „íþrótta-
manni Norðurlands 1986“.
Þátttaka hefur verið nokkuð
góð og var skilafrestur upphaf-
lega til 18. janúar.
Ákveðið hefur verið að lengja
frestinn sem gefinn var til þess að
skila inn kjörseðlum til 25.
janúar. Lesendur skrifa fimm
nöfn á seðilinn og senda hann til
blaðsins. Þrír þátttökuseðlar
verða dregnir út og hljóta eigend-
ur þeirra hljómplötuvinning að
launum.
Lesendur, fyllið út seðilinn og
takið þátt í kjöri blaðsins á
„íþróttamanni Norðurlands
1986“.
Iþróttamaður
Norðurlands 1986
Nafn íþróttamanns: Iþróttagrein:
1. ___________________ _________
2. ___________________ _________
3. ___________________ _________
4.
5.
Nafn: ___________________________________Sími __________
Heimilisfang: __________________________________________
Sendið til: íþróttamaður Norðurlands 1986
c/o Dagur Strandgötu 31 600 Akureyri
Skilafrestur til 25. jan.
Unglingameistara-
mótið í karate
Laugardaginn 7. febrúar fer
fram unglingameistaramót
íslands í karate og er það í
fyrsta sinn sem það mót fer
fram. Keppendur verða eitt-
hvað yfir 100 talsins, úr 11
félögum.
Mótið fer fram í íþróttahúsi
Seljaskóla og hefst kl. 14. Mótið
er opið unglingum og börnum
yngri en 17 ára. Mótshald þetta
er til komið vegna gífurlegrar
grósku í unglingastarfi félaganna
og er reiknað með að þetta verði
fjölmennasta karatemót sem
haldið hefur verið hérlendis.