Dagur - 20.01.1987, Page 3

Dagur - 20.01.1987, Page 3
„Sturlumálið“: Fjölmargir átelja vinnubrögð Sverris Fjölmargar ályktanir hafa bor- ist til blaðsins vegna brottvikn- ingar Sturlu Kristjánssonar fræðslustjóra Norðurlands- kjördæmis eystra úr starfi. Nokkurra þeirra hefur þegar verið getið í blaðinu og er skemmst að minnast ályktunar stjórnar Fjórðungssambands Norðlendinga sem getið var um í blaðinu í gær, en þar var „gerræði ráðherra“ vítt, og lýst yfir fyllsta trausti á aðgerð- ir fræðsluráðs. Kennarar í Síðuskóla átelja harðlega vinnubrögð ráðherra í „Saga Akureyrar": Sex sóttu um rítun sögunnar Sex umsækjendur voru um rit- un „Sögu Akureyrar“ en umsóknir voru lagðar fram á fundi Menningarmálanefndar Akureyrar 9. janúar. Þeir sem sóttu um að fá að rita söguna voru: Erlingur Sigurðar- son Akureyri, Friðrik S. Olgeirs- son Mosfellssveit, Jón Hjaltason Akureyri, Stefán F. Hjartarson Uppsölum Svíþjóð, Valgarður Stefánsson Akureyri og f’órunn Magnúsdóttir Reykjavík. Ekki var tekin afstaða til umsóknanna á þessum fundi menningarmála- nefndarinnar. gk-. ályktun sinni. „Við hljótum að krefjast þess að ráðherra dragi þessa uppsögn til baka nú þegar, eða rökstyðji aðgerð sína með öðru en dylgjum og ósannind- um,“ segir í ályktun þeirra. Almennur fundur kennara við GagnfræðaskóJa Akureyrar átaldi harðlega þá aðför að grunnskólastefnu fræðslu- umdæmis Norðurlands eystra sem fram hafi komið í aðgerðum og orðum menntamálaráðherra, m.a. í brottvísun fræðslustjóra umdæmisins úr starfi. Fundurinn lýsti fullum stuðningi sínum við viðleitni fræðsluyfirvalda um- dæmisins að jafna aðstöðu nemenda í landinu að lögum. Fundur kennara við Pelamerk- urskóla átaldi harðlega vinnu- brögð ráðherra í þessu máli. „Pessi aðgerð ráðherrans lýsir takmarkalausri lítilsvirðingu á störfum fræðsluráðs umdæmis- ins,“ segir í ályktun fundarins, og ennfremur: „Fundurinn telur að menntamálaráðherra hafi hér orðið á slík embættisglöp að varði brottvikningu úr embætti.“ Fundur kennara við Lundar- skóla lýsti stuðningi við ályktanir og aðgerðir skólastjórnenda og stjórnar BKNE vegna brott- rekstrar Sturlu Kristjánssonar. „Við styðjum heilshugar þá stefnu í skólamálum umdæmisins sem fræðslustjóri hefur barist fyr- ir og haft forgöngu um,“ segir m.a. í ályktun fundarins. „Það er skoðun starfsfólks, að ákvörðun ráðherra um brottvikn- ingu Sturlu sé áfellisdómur á þá skólastefnu sem allir aðilar er málið varðar hér í umdæminu hafa verið sámmála um,“ segir m.a. í ályktun starfsfólks Fræðsluskrifstofu Norðurlands eystra. „Þannig varði þetta mál ekki einungis Sturlu Kristjánsson og Sverri Hermannsson, heldur sé um að ræða ýmsar grundvall- arspurningar varðandi skólahald í landinu öllu. Þetta varðar því alla skólamenn, foreldra og nemendur," segir ennfremur í ályktuninni. Fundur í Kennarafélagi Menntaskólans á Akureyri lýsti undrun sinni og vanþóknun á þeirri harkalegu ákvörðun menntamálaráðherra að víkja Sturlu úr embætti. Jafnframt krafðist fundurinn þess að ráð- herra gerði ítarlega grein fyrir ástæðum brottrekstrarins á opin- berum vettvangi. Fundur stjórna foreldrafélaga í grunnskólum Akureyrar, haldinn í Glerárskólanum á Akureyri 16. janúar Í987 ítrekar fyrri stuðning frá 4. desember 1986, við stefnu fræðsluráðs og skólastjóra á Norðurlandi eystra í baráttu þeirra fyrir rétti barna okkar til allrar kennslu samkvæmt lögum um grunnskóla. Fundurinn mótmælir jafnframt ákvörðun menntamálaráðherra um að víkja Sturlu Kristjánssyni fræðslustjóra úr starfi. Pað má svo að lokum ítreka að Fræðsluráð Norðurlandsumdæm- is eystra hefur sent frá sér til- kynningu um málið og segir þar m.a.: „Fræðsluráð lýsir yfir fullri ábyrgð á störfum fræðslustjóra enda er hann framkvæmdastjóri ráðsins og hefur starfað í fullu samráði við það. Fræðsluráð ótt- ast að þessi geðþóttaákvörðun ráðherra kunni að stefna í tví- sýnu þeirri skólastefnu sem markvisst hefur verið unnið að og mótuð er í grunnskólalögunum.“ gk-. Húsavík: - en nemur íbúatölu bæjarins Það stefnir í sýningarmet hjá Leikfélagi Húsavíkur á söng- leiknum Sfldin kcmur - síldin fer, eftir systurnar Iðunni og Kristínu Steinsdætur, nú er uppselt á hverja sýningu með margra daga fyrirvara. Á laugardag var 22. sýning á verkinu og þá kom 2454 gestur- inn, en það samsvarar því að þá hafi allir íbúar Húsavíkur séð leikinn. Gesturinn sem þarna fyllti íbúatöluna var Guðmundur Por- grímsson yfirverkstjóri hjá Húsa- víkurbæ, hann var mættur ásamt eiginkonu sinni Guðrúnu Gunn- arsdóttur og voru þau að koma á sýningu í annað sinn. Leikararnir tóku á móti hjónunum í anddyr- inu, sungu lög úr verkinu, buðu þeim á sýninguna og færðu þeim blómvönd. Þessar móttökur komu gestun- um skemmtilega á óvart, Guðrún sagði að hana hefði langað til að sjá verkið aftur því hún hefði skemmt sér konunglega á frum- sýningunni. Henni væri hlýtt til leikfélagsins, mikil vinna lægi á bak við sýninguna og Guðmund- ur bætti við að hann vissi ekki hvernig Húsvíkingar færu að ef þeir hefðu ekki leikfélagið. 1M Guðrúnu og Guðmundi fagnað með blómum og söng. Fleiri hafa séð „síldina" 20. janúar 1987 - DAGUR - 3 Vinningstölur 17. janúar 1987 Heildarvinningsupphæð 8.939.150.00 1. vinningur var kr. 5.644.580.00 Skiptist hann á milli 5 vinningshafa kr. 1.128.916.00 á mann. 2. vinningur var kr. 989.904.00 Skiptist hann á 503 vinningshafa kr. 1.968.00 á mann. 3. vinningur var kr. 2.304.666.00. Skiptist á 12.663 vinningshafa sem fá 182.00 hver. Upplýsingasími 91-685111. Námsstyrkur við Minnesota háskóla Samkvæmt samningi Háskóla íslands viö Minnes- ota háskóla (University of Minnesota) er veittur styrkur til eins íslensks námsmanns á ári hverju. Styrkurinn nemur skólagjöldum og dvalarkostnaöi. Nemendur sem lokiö hafa prófi frá Háskóla íslands ganga fyrir, en jafnframt þurfa þeir aö hafa fengið inngöngu við skólann. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu rektors. Umsóknum skal skilaö þangaö fyrir 2. febrúar nk. Nánari upplýsingar fást hjá námsráðgjafa. Háskóli íslands. Námsstyrkur við lowa háskóla Samkvæmt samningi Háskóla íslands viö lowa háskóla (University of lowa) er veittur styrkur til íslensks námsmanns á ári hverju. Styrkurinn nemur skólagjöldum og hluta dvalarkostnaöar. Til greina kemur að um fleiri en einn styrk veröi aö ræöa. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu rektors. Umsóknum skal skilaö þangað fyrir 2. febrúar nk. Nánari upplýsingar fást hjá nárnsráögjafa. Háskóli íslands. MYNDLISTASKOLINN Á AKUREYRI NÝ NÁMSKEIÐ Almenn námskeið Myndlistaskólans á Akureyri 5. febrúar til 20. maí Teiknun og málun fyrir börn og unglinga. 1. fl. 5-6 ára. Einu sinni í viku. 2. fl. 6-7 ára. Einu sinni í viku. 3. fl. 8-9 ára. Einu sinni í viku. 4. fl. 10-12 ára. Einu sinni í viku. 5. fl. 13-15 ára. Einu sinni í viku. Teiknun og málun fyrir fullorðna. Byrjendanámskeiö. Tvisvar í viku. Framhaldsnámskeiö. Tvisvar í viku. Myndlistardeild. Tvisvar í viku. Auglýsingateiknun. Byrjendanámskeiö. Tvisvar í viku. Grafík. Byrjendanámskeið. Tvisvar í viku. Framhaldsnámskeið. Tvisvar í viku. Málun og litameðferð. Byrjendanámskeiö. Tvisvar í viku. Framhaldsnámskeiö. Tvisvar í viku. Módelteiknun. Byrjendanámskeiö. Tvisvar í viku. Framhaldsnámskeið. Tvisvar í viku. Skrift og leturgerð. Byrjendanámskeiö. Tvisvar í viku. Allar nánari upplýsingar og innritun i síma 24958 virka daga kl. 13.00-17.00. Skólastjóri.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.