Dagur - 20.01.1987, Síða 5
20. janúar 1987 - DAGUR - 5
Vandamál
kæliskápsins
Hann feitur? Nei er það?
William „Kæliskápur" Perry
neitar því algjörlega að aukakíló
finnist á skrokknum hans. „Ég
get ekki fallist á það að ég sé
feitur," sagði hann nýlega í við-
tali við Dag.
William er atvinnumaður í
ameríska fótboltanum, leikur
með Chicago Bears. Forráða-
menn félagsins eru honum ekki
sammála. Þeir vigta hinn þybbna
leikmann tvisvar á dag og halda
því fram að hann sé 342 pund eða
um 170 kíló. Það er um 11 kíló-
um meira en hámarksþyngdin
sem getið er um í samningi
kappans. í yfirstandandi megrun-
arstríði hefur William Perry þurft
að sætta sig við að verða af
40.000 punda bónusgreiðslum á
mánuði. Þjálfarinn hans, Mike
Ditka, hefur hótað að skipta á
honum og einhverjum léttari
manni.
En William er enn í miklu
uppáhaldi hjá Hasbro en það er
fyrirtæki sem framleiðir brúður.
Framleiðsla á svokölluðum
„Kælir“ brúðum hefur gengið
vel. Hver brúða vegur örfá
grömm.
Margur er knár þó hann sé smár. Hafiði heyrt
þetta áður. Hér er þetta ágæta máltæki mynd-
skreytt á skemmtilegan hátt. Golíat var alveg að
koma að körfunni þegar hinn stórkostlegi
leikmaður Davíð úr Boston Celtics stal af honum
boltanum, ruddist upp völlinn og tróð boltanum í
körfuna, áður en aðrir áttuðu sig hvað var að
gerast. Eða kannski bara faðir og sonur að leik.
Hugur og nönd
Arsrit Heimilisiðnaðarfélags
íslands, Hugur og Hönd 1986,
kom út skömmu fyrir síðustu
jól. Þetta er 21. tölublað Hug-
ar og handar, það er 56 blað-
síður prentað að mestu í litum
á góðan pappír.
I ritinu eru fjölmargar greinar
um ýmislegt efni tengt heimilis-
og listiðnaði, af þeim má nefna
grein um þrjá gullsmiði, Jens
Guðjónsson, Hansínu Jensdóttur
og Jón Snorra Sigurðsson, eftir
Rúnu Gísladóttur, grein um
íslenska sauðféð og sérkenni þess
eftir dr. Stefán Aðalsteinsson og
Elsa E. Guðjónsson safnvörður á
Þjóðminjasafni skrifar um nokk-
ur sérstæð krossspor sem varð-
veist hafa á gömlu íslensku
útsaumsverki og hvergi annars
staðar svo vitað sé. Ingólfur
Davíðsson grasafræðingur skrifar
fróðleiksmola úr gróðurríkinu og
Þórir Sigurðsson um tóvinnu-
kennslu Margrétar Líndal í
Laugarnesskólanum.
Framan á kápu er mynd Krist-
jáns Péturs Guðnasonar af Bjarg-
fugli Jens Guðjónssonar, silfur á
íslenskum steini.
Auk þess að vera félagsrit er
Hugur og hönd selt til áskrif-
enda. Einnig fæst það í lausasölu
hjá íslenskum heimilisiðnaði og í
nokkrum bókaverslunum.
Afgreiðsla Hugar og handar er
að Laufásvegi 2, 101 Reykjavík.
Jesendahornið___________________
Góð þjónusta fyrir ferðalanga
FeröalaAgur skrifar:
Mig langar til að vekja athygli á
skemmtilegri nýjung fyrir þá sem
búa úti á landi og ætla til útlanda
á næstunni.
Ég þarf oft að fara utan starfs
míns vegna. Kunningi minn að
vestan benti mér á nýjan mögu-
leika í gistingu á höfuðborgar-
Sjallagestur skrifar:
Nú er ég svo sár og reið að ég
verð bara að fá útrás!
Ég tilheyri þeim hópi Norð-
lendinga sem glöddust ákaflega
þegar fréttir bárust af því að Fats
Do'mino væri á leið til landsins
öðru sinni og myndi halda þrenna
tónleika í Sjallanum á Akureyri.
Ég hugsaði með mér: „Loksins,
loksins. Þar kom að því. Nú þarf
maður ekki lengur að fara í helg-
arpakka til Reykjavíkur til að sjá
þessa gömlu garpa, sem alltaf eru
að heimsækja Íandann. Þökk sé
Ólafi Laufdal!“
Á fimmtudaginn hringdi ég svo
í Sjallann, ég ætlaði nefnilega að
tryggja mér miða í tíma. Én ég
varð fyrir miklum og sárum von-
brigðum. Mér var nefnilega tjáð
að Fats Domino kæmi til með að
halda 9 tónleika á landinu að
þessu sinni - og haldið ykkur nú:
Gamli garpurinn spilar í Broad-
way á föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöldi; í Sjallanum á
mánudags-, þríðjudags- og mið-
vikudagskvöldi og síðan aftur í
Broadway á fimmtudags-, föstu-
Af hverju
frí?
Faðir í Innbænum hringdi:
Ég get ekki orða bundist vegna
aðgerða kennara og skólastjóra
þegar þeir felldu niður kennslu á
föstudag til fundahalda og til að
mótmæla brottrekstri Sturlu
Kristjánssonar fræðslustjóra. Ég
hef ýmislegt við þetta að athuga.
í fyrsta lagi þetta: Er þetta
fordæmið sem þið viljið hafa fyrir
börnunum og unglingunum,
nemendum ykkar? Að hlaupast
sífellt undan skylduverkunum?
Við borgum skatta í þessu landi
til að halda uppi skólakerfi - ekki
ólöglegum fríum.
í öðru lagi vil ég nefna það að
varla hefur Sverrir Hermannsson
rekið þennan mann að ástæðu-
lausu. Ég hef verið ríkisstarfs-
maður lengi og ég veit hvað ég er
að tala um - það er enginn starfs-
maður ríkisins rekinn án gildra
ástæðna. Sturla var starfsmaður
ráðuneytisins hér fyrir norðan og
honum bar að halda sig við þau
fyrirmæli sem honum eru gefin af
sínum yfirboðara. Fyrst hann gat
ekki hlýtt þeim var ekki um ann-
að að ræða en að láta manninn
fara.
Ég veit að ég tala fyrir hönd
þúsunda foreldra hér þegar ég
segi: Kennarar áttu ekki að taka
sér frí þennan dag og stéttin hef-
ur ekki vaxið í áliti við þetta
frumhlaup.
svæðinu. Ég hef venjulega farið
til Reykjavíkur og gist þar á ein-
hverju hótelanna. Síðan hef ég
vaknað fyrir allar aldir og mætt á
Hótel Loftleiðir til að taka rút-
una til Keflavíkur. Þessi kunningi
minn benti mér á að hótelin
hefðu sprottið upp eins og gor-
kúiur um land allt á undanförn-
dags- og laugardagskvöldi.
Já takk, kærlega. Það á sem
sagt að bjóða Akureyringum og
nágrönnum upp á tónleika á virk-
um kvöldum en Reykvíkingar
sitja einir að helgartónleikunum.
Ég lýsi hér með vanþóknun
minni á þessu fyrirkomulagi. Svo
mikið er víst að ég læt ekki bjóða
mér þetta og hef ákveðið að sitja
heima. Það er vinnudagur daginn
eftir alla tónleikana hér hjá þorra
fólks og auk þess skilst mér að
aðgöngumiðinn sé jafndýr á tón-
leikana í Sjallanum og Broad-
way.
Ég ætla bara að vona að fleiri
fylgi fordæmi mínu og láti ekki
bjóða sér þetta.
um misserum og nú væri t.d.
komið hótel í Keflavík. Og ég
ákvað að prófa.
Ég verð að segja það, að ég var
mjög ánægður með þá þjónustu
sem þarna var veitt. Hótel Kefla-
vík er eingöngu með tveggja
manna herbergi, nýtískuleg, með
síma og sjónvarpi og svoleiðis.
Að fenginni þessari reynslu finnst
mér miklu þægilegra að fara til
Keflavíkur sama dag og ég kem
suður og gista þar. Starfsmenn
hótelsins sjá svo um að vekja
mann og skutla manni upp á
flugvöll, án þess að taka krónu
fyrir það aukalega.
Starfsmaðurinn í móttökunni
sagði mér að þeir myndu fylgjast
með fluginu og ef seinkun yrði
gætu þeir fylgst með því og vakið
mann seinna sem henni næmi.
Þetta kalla ég góða þjónustu og
vil vekja athygli á henni. Það er
allt of oft kvartað yfir því sem
miður fer en færri sögum fer af
hinu.
Fats Domino
Kona hringdi og sagðist óánægð
með þá ákvörðun forráðamanna
Sjallans að láta Fats Domino
spila á mánudag, þriðjudag og
miðvikudag. Betra væri að fá
kappann yfir helgi eins og þeim
fyrir sunnan er boðið upp á.
Svona stórviðburðir ættu að eiga
sér stað um helgi og því er spurt:
Af hverju mun Fats Domino
spila í Sjallanum á virkum
dögum?
Námskeið
Raddstyrking, raddbeiting, slökun, djúpöndun,
framsögn, tjáskipti, samskipti, sjálfsþekking.
Þetta eru þeir þættir sem við leggjum aðaláherslu á
í námskeiðum okkar. Er þetta ekki eitthvað fyrir þig?
Þórey Eyþórsdóttir, talmeinafræðingur.
Þráinn Karlsson, leikari.
Innritun og upplýsingar í síma 25774 næstu daga.
Fats Domino í Sjallanum:
„Þetta læt ég
ekkí bjóða mér“