Dagur - 27.01.1987, Blaðsíða 1

Dagur - 27.01.1987, Blaðsíða 1
70. árgangur Akureyri, þriðjudagur 27. janúar 1987 17. tölublað HERRADEILD Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599 Veiðideilan við Grænlendinga: 30 milljón króna sala í hættu Á ríkisstjórnarfundi í dag verður tekin ákvörðun um það hvort endurnýjaðar verða Hiti hf.: Rúður brotnar um helgina Um helgina voru brotnar rúð- ur í húsnæði Hita hf. í Draupn- isgötu. Samkvæmt upplýsing- um Jónasar Jóhannssonar, eig- anda Hita, voru tvær rúður brotnar, önnur aðfaranótt laugardags og hin aðfaranótt sunnudags. Sagði Jónas að lög- reglan væri komin í málið og sagðist vonast til að ekki yrði um fleiri rúðubrot af þessu tagi að ræða. „Þarna hafa áreiðanlega börn eða unglingar verið að verki og þau hafa passað sig á því að brjóta aðeins ytra glerið í báðum rúðunum. Það er því ekki verið að brjótast inn heldur er um skemmdarverk að ræða. Það hef- ur verið rólegt í þessu hverfi, en það virðist vera að breytast því það hefur tvisvar verið brotist inn í vídeóleigu hér rétt hjá,“ sagði Jónas. „Það er alltaf svolítið um rúðu- brot, ég held að það líði nánast ekki sú helgi að rúður séu ekki brotnar í bænum,“ sagði varð- stjóri hjá lögreglunni er hann var spurður um rúðubrot í bænum. Aðspurður sagðist hann ekki kannast við aukningu á rúðubrot- um. „Um helgina voru rúður brotnar á einum stað til viðbótar og það er heldur minna en vana- lega.“ HJS löndunarheimildir græn- lenskra rækjutogara hér á landi. Ef ekki næst samkomu- lag við Grænlendingana má búast við að það hafi slæmar afleiðingar fyrir þá aðila sem eiga viðskipti við heimastjórn- ina á Grænlandi. Þegar má segja að nokkur snurða hafi hlaupið á þráðinn í þessum viðskiptum. Valdimar Kristjánsson sér um markaðsöfl- un fyrir fimm íslensk fyrirtæki í Kanada, Bandaríkjunum og Grænlandi. Þessi fyrirtæki eru Sæplast hf. á Dalvík, Vélsmiðjan Oddi á Akureyri, Plasteinangrun hf. á Akureyri, Sjóklæðagerðin í Reykjavík og Skipasmíðastöðin Hörður í Njarðvík. Á síðasta ári seldu þessi fyrir- tæki fyrir 9 milljónir til Grænlands. Inni í þeirri tölu eru ekki 20.000 fiskikassar frá Plastr- einangrun en verðmæti þeirra skiptir einhverjum milljónum. Þessi sala var nær öll til einka- aðila en nú eru góðar líkur á að samningar náist við heimastjórn- ina um kaup á vörum til útgerð- ar. Um 80% allrar útgerðar á Grænlandi er á vegum heima- stjórnarinnar og því eru um- talsverðir hagsmunir í húfi. Valdi- mar sagðist telja að salan til heimastjórnarinnar á þessu ári gæti orðið allt að 30 milljónir frá fyrirtækjunum fimm. Hingað til hafa Danir setið einir að þessum viðskiptum við heimastjórnina þannig að mikilvægt er að klúðra ekki þessum möguleika á að komast inn á markaðinn. „Þessir samningar eru nú í bið- stöðu vegna veiðideilunnar en við vonum að þetta fari að leys- ast,“ sagði Valdimar. ET Miklar endurbætur fara nú fram á togaranum Sléttbak frá Akureyri. í gær átti að hífa gömlu vélina úr skipinu og þurfti mikinn viðbúnað til þess, eins og sést á myndinni. Mynd: rþb Uppgjörsreikningar Hitaveitu Akureyrar: Áætlanir stóðust hjá 87% notenda -190 notendur eiga 2166 krónur inni að meðaltali Nú fyrir skötnmu voru sendir út svokallaðir uppgjörsreikn- ingar frá Hitaveitu Akureyrar, fyrir síðustu sex mánuði ársins 1986. Reikningarnir eiga að jafna út þá skekkju sem orðið hefur í áætlunum um vatns- notkun og því fengu notendur Samherji hf. með fjórðu hæstu launagreiðslumar Þaö er greinilegt af saman- burði yfir þau fyrirtæki sem greiða hæstu meðallaunin til starfsmanna sinna, að útgerð- arfyrirtæki eru þar nær ein- göngu í öllum efstu sætunum. Efst trónir Rækjustöðin á ísa- firði og í 4. sætinu er Samherji hf. á Akureyri. Samkvæmt niðurstöðum Frjálsrar verslun- ar hefur fyrirtækið greitt rösk- lega 2,1 milljón króna í með- allaun á starfsmann á árinu 1985. í þessum samanburði er þó tekið fram, að miðað sé við starfsmann sem vinnur fullt starf í eitt ár. Einnig geti verið um að ræða Störf hluta úr árinu en þá dreifast ársverkin að meðaltali yfir allt árið. Sú er oft raunin á, t.d. hjá þeim sem starfa við loðnuveiðar og einnig vinnslu loðnunnar. Þannig er ekki víst að nokkur sjómaður sé með þær árs- tekjur sem koma fram á listunum, því hann tekur mið af því að menn vinni allt árið. En hvað um það, starfsmenn Samherja eru í fjórða efsta sæt- inu og af öðrum norðlenskum fyrirtækjum sem ofarlega eru má nefna Hólmadrang hf. á Hólma- vík í 9.sæti með 1837 þúsund í mcðallaun, Skagstrending hf í ll.sæti með 1734 þúsund, Sigl- firðing hf. í 17. sæti með 1552 þúsund, Súlur hf á Akureyri í 19. sæti með 1524 þúsund, þá Útgerðarfélag KEA (Snæfell í Hrísey) með 1250 þúsund og er í 31.sæti, Útgerðarfélag CJlafs- fjarðar hf. í 33. sæti með 1241 þúsund, Útgerðarfélag Dalvík- inga hf.(Björgvin) í 38.sæti með 1180 þúsund og Útgerðarfélag N.-Þingeyinga í 40.sæti með 1173 þúsund kr. í meðallaun á árinu 1985. Sjálfsagt er hægt að finna ýmsa aðra fyrirvara á þessum lista en þá sem blaðið Frjáls verslun til- tekur, en þannig lítur hann út hvað varðar norðlensk fyrirtæki. HS nú annað hvort senda hærri reikninga en venjulega eða til- kynningar um inneign. Af 3050 notendum HA fengu 197 senda inneignartilkynningu. Af þessum 197 eru 7 mjög stórir notendur svo sem SÍS og er með- altalsinneign þeirra um 120.000 krónur. Hinir 190 almennu not- endurnir eiga hins vegar að meðal- tali 2166 krónur inni hjá hitaveit- unni. Vextir verða reiknaðir á inneignirnar þar til upphæðin verður greidd út eða dregin frá næsta reikningi. Notendur verða að tilkynna hvorn kostinn þeir velja. Ester Guðbjörnsdóttir skrif- stofustjóri hjá hitaveitunni sagði í samtali við blaðið að áætlanir hefðu nú staðist mun betur en í fyrra enda væri reynslan af mæla- kerfinu nú orðin eitt og hálft ár. Árið 1985 var vatnsnotkun áætl- uð of eða van hjá um 20% not- enda. Búast má við að vatnsnotk- un hafi nú verið áætluð of lítil hjá álíka mörgum og greiddu of mik- ið og samtals gerir það 400 not- endur eða um 13%. Desemberreikningar hitaveit- unnar voru um 300 krónum lægri en reikningar hinna ellefu mán- aðanna að meðaltali. Ester sagði að stöðugt væri fylgst með hita- stigi affallsvatns og einnig dæl- ingu og vegna fyrirsjáanlegrar minnkunar í notkun hefðu reikn ingar í október og nóvember ver ið lækkaðir nokkuð. EJ Krossanes: 2400 tonn eftir verkfall Frá því sjómannaverkfalli lauk hafa þrjú skip landað loðnu í Krossanesi samtals um 2300 tonnum. Verksmiðjan er um 5 sólarhringa að vinna úr þessu hráefni. Þórður Jónasson landaði síð- astliðið miðvikudagskvöld tæp- lega 706 tonnum. Pétur Jónsson landaði síðan á fimmtudag tæp- um 805 tonnum og sama dag landaði Súlan um 802 tonnum. Á laugardag var bræla á loðnu- miðunum sem nú liggja skammt austur af Berufirði. Skipin lögð- ust þá inn á firðina og lönduðu þar smáslöttum. í gær fóru skipin síðan aftur á veiðar og ef veiðar ganga vel má jafnvel búast við mein lo^-nu í Krossanes í kvöld. ET

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.