Dagur - 27.01.1987, Blaðsíða 2

Dagur - 27.01.1987, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 27. janúar 1987 -viðtal dagsins. ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI SÍMI: 24222 ÁSKRIFT KR. 480 Á MÁNUÐI LAUSASÖLUVERÐ 50 KR. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: HERMANN SVEINBJÖRNSSON FRÉTTASTJÓRI: GYLFI KRISTJÁNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: BRAGI V. BERGMANN BLAÐAMENN: ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON, GESTUR E. JÓNASSON, GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368), HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, RÚNAR ÞÓR BJÖRNSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729) AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. ieiðarí.______________________________ Sameining Útvegs- og Búnaðarbanka Bankamálin hafa verið mikið til umræðu allt frá því að hrun Útvegsbankans varð stað- reynd í framhaldi af gjaldþroti Hafskips. Bankaráð og bankastjórar Útvegsbankans hafa orðið fyrir harðri gagnrýni vegna þessa máls og það er krafa almennings að úr því verði skorið hverjir bera ábyrgðina. Það er alvarlegur hlutur ef menn komast upp með að skjóta sér undan ábyrgð í gjaldþrotamáli sem kostar þjóðarbúið hundruð milljóna króna. Slíkt grefur undan siðferðisvitund almenn- ings í landinu. Stjórnarflokkanna greindi á um hvaða leið skyldi farin í bankamálunum. Sjálfstæðis- menn vildu að Útvegsbankinn, Verslunar- bankinn og Iðnaðarbankinn yrðu sameinaðir í einn stóran hlutafélagsbanka. Nú er ljóst að sú leið er ekki fær. Framsóknarflokkurinn lagði til að ríkis- bönkunum yrði fækkað um einn með samein- ingu Útvegsbankans og Búnaðarbankans og nú hefur stjórn Seðlabankans einnig lagt til að sú leið verði reynd. Þær viðræður sem þegar hafa farið fram um bankamálin hafa sýnt þann mikla mun sem er á hugmyndafræði Framsóknarflokksins ann- ars vegar og Sjálfstæðisflokksins hins vegar. Sjálfstæðismenn - og sérstaklega frjáls- hyggjuöflin í þeim flokki - hafa sýnt, að raun- veruleg stefna þeirra er sú að reksturinn skuli vera í höndum einstaklinga þegar vel árar en leita skuli á náðir ríkissjóðs þegar syrtir í álinn. Dæmin sem sýna þetta eru mörg. Einkabankarnir ætluðu sér að hagnast á óför- um Útvegsbankans — án tillits til þess hvort önnur leið og æskilegri frá sjónarhóli ríkis- sjóðs væri fyrir hendi. Þetta studdu sjálf- stæðismenn og kröfðust þess að farið yrði að tillögu stjórnenda einkabankanna. Aðferð þeirra hefur nú verið hafnað. Tíminn sem farið hefur í þessar viðræður er orðinn of langur. Það er brýnt að stjórnar- flokkarnir nái samstöðu um aðgerðir í banka- málunum, aðgerðir sem miða að því að gera bankakerfið einfaldara og ódýrara fyrir landsmenn. Sjálfstæðismenn verða að viður- kenna að þeirra tillögur voru ekki fram- kvæmanlegar. Næsta skref er að ná samkomulagi um sam- einingu Búnaðarbanka og Útvegsbanka. Þótt stjórnarflokkana greini á um leiðir að því markmiði, er brýnt að samstaða náist um þetta mál í ríkisstjórninni fyrir kosningar. BB. „Ég vann í skattkerfínu í fímm ár áður en ég kom hingað á ferðaskrifstofuna. Fyrst var ég á skattstofunni fyrir Norður- land eystra í þrjú ár en síðan í tvö ár hjá rannsóknadeild ríkisskattstjóra.“ Síðan 1985 hef ég annast bókhaldið fyrir Ferðaskrifstofu Akureyrar og líkar það starf mjög vel. Hér er ég að vísu ekki í miklum tengslum við hinn almenna viðskiptavin heldur má segja að mín samskipti liggi frekar hjá öðrum ferðaskrifstofum,“ segir Guðmundur Guðmunds- son 24 ára gamall starfsmaður á Ferðaskrifstofu Akureyrar og leikmaður með KA í hand- bolta. - Fylgja þessu starfi mikil ferðalög? „Nei, stelpurnar fá öll ferða- lögin,“ segir Guðmundur og á þar við stúlkurnar frammi í afgreiðslunni. „Nei ég sakna þess ekki. Ég hef ferðast töluvert gegnum árin bæði í sambandi við handboltann og á eigin vegum auk þess sem þessar ferðir sem starfsfólk skrifstofanna fer í eru engar skemmtiferðir." - Hvað finnst þér um stöðu ferðamála á Akureyri? „Mér líst vel á stöðu þeirra mála í dag og þetta er allt á upp- leið. Nýráðinn bæjarstjóri hefur sýnt mikinn áhuga á þessum mál- um og ætlar sér greinilega að gera stóra hluti. Að mínu mati þá á Akureyri að geta orðið ferða- mannastaður íslands númer eitt. Við þurfum að fá fjármagn í bæinn og það fæst með ferða- mönnum,“ - Er það rétt að í vetur sért þú bæði nemandi og kennari í Verk- menntaskólanum? „Já það er rétt. Ef Guð og Bernharð leyfa þá lýk ég stúd- entsprófi þaðan í vor. Auk þess hef ég verið að kenna skattskil og mér hefur líkað það mjög vel enda eru þetta sem betur fer til- tölulega fullorðnir nemendur.“ - Er ekkert skrítið að vera nemandi og kennari í sama skólanum? „Nei, nei. Ég finn ekki svo mikið fyrir því að ég sé nemandi þar sem ég stunda nám utan- skóla. Nemendum mínum þóti það hins vegar sumum skrítið þegar ég kom og settist við hlið- ina á þeim í prófum. Þau verða hins vegar að venjast þessu fyrir vorið því þá tek ég mun fleiri próf en ég gerði nú fyrir jólin." - Var þetta draumastarfið þitt sem barn, vinna við viðskipti? „Já það má segja það. Þegar ég var krakki þá rak faðir minn gömlu Eyrarbúðina og þar var ég öllum stundum. Mig langaði allt- af til að verða sjoppueigandi og hafði til að mynda voðalega lítinn áhuga á að verða slökkviliðsmað- ur eða lögregluþjónn. Nú þegar faðir minn síðan var verslunarstjóri í Kjörmarkaðin- um í Glerárgötunni þá fékk ég enn frekari nasasjón af þessu og þótti mjög spennandi." - Svo við snúum okkur að handboltanum. Er það eina íþróttin sem þú hefur komið nálægt. „Nei nei. í yngri flokkunum tók maður náttúrlega þátt í fót- boltanum líka. Einu sinni hef ég orðið svo frægur að lenda í öðru sæti á íslandsmóti. Það var í gamla daga í fjórða flokki. Þá lék maður með stjörnum eins og Gunnari Gíslasyni og Erlingi Kristjánssyni. Þetta sama sumar náði ég þeim merka árangri að verða markahæsti bakvörður landsins, að minnsta kosti í þess- um aldursflokki. Einnig verð ég að minnast á mjög skemmtilegt keppnistíma- bil sem ég átti í körfuboltanum. Þannig var að við vorum einu sinni fengnir nokkrir handbolta- strákar til að keppa á íslandsmóti í körfubolta fyrir hönd KA. Við unnum Þórsara og vorum sendir í úrslit. Með okkur fór Mark Cristiansen Bandaríkjamaður sem þjálfaði Þórsarana. Það ber að taka fram að við gátum um það bil ekkert í körfubolta en hins vegar höfðum við stærðina með okkur. Þarna voru menn eins og Erlingur Kristjánsson og Ragnar Gunnarsson Skriðjökull. Þegar við vorum að leika ein- hvern leikinn þarna í úrslitunum, með Mark Cristiansen á bekkn- um þá komu þeir að spjalla við hann allir Bandaríkjamennirnir sem þá léku hér á landi þar 'af tveir svertingjar. Okkur þótti það ekki lítið fyndið að hafa fimm Bandaríkjamenn á bekknum hjá okkur. Þegar maður fór að nálgast meistararaflokkinn þá kom að því að maður þurfti að velja á milli handbolta og fótbolta. Þar sem ég þyki nú ekki með sprett- harðari mönnum þá tók ég þann kostinn að snúa mér að handbolt- anum. Ég hóf að leika með meistara- flokki KA 17 ára gamall og hef leikið þar síðan ef frá eru talin tvö ár sem ég lék með Víkingi, þar af annað undir stjórn Bogdans. Bogdan hefur haft gífurleg áhrif á handboltann hér á landi enda má nú segja að allir þjálfar- ar í fyrstu deildinni að undan- skildum Geir Hallsteinssyni hafi leikið undir hans stjórn. Bogdan er frábær þjálfari enda hefði hann aldrei fengið að kom- ast upp með þessi „karakter- morð“ sín ef svo væri ekki.“ - Ertu ánægður með gengi KA í vetur? „Nei ég er sennilega einn af fáum sem er ekki nógu ánægður. Ég tel að við eigum að geta betur. Við erum búnir að tapa þremur leikjum heima og það eru allt leikir sem við hefðum átt að vinna. Við höfum hins vegar orð- ið fyrir mikilli blóðtöku og þar er fyrst að nefna Erling Kristjáns- son sem er sennilega einn sterk- ast leikmaður okkar fyrr og síðar. Það hafa hins vegar komið menn í staðinn og ég er sann- færður um að næstu ár verða mikið blómaskeið hjá KA í hand- bolta, jafnvel strax næsta vetur.“ - Er handboltinn áhugamál númer eitt eða er þetta vinna? „Þetta er bæði áhugamál og vinna. Þegar leiðinn sækir á mann þá er þetta ekkert annað en vinna. En auðvitað væri mað- ur ekki í þessu ef maður hefði ekki gaman af. Félagsskapurinn sem fylgir þessu er ómetanlegur og eftir því er maður að sækjast. Það versta í þessu er að maður má helst ekki eiga konu og barn. Það fer allur tíminn í handbolt- ann.“ - Hvað með önnur áhugt mál? „Ég hef mikinn áhuga á pólitík. Ég er ekki flokksbundinn en fylgist mjög vel með og les Dag upp til agna.“ ET „Með fimm Bandaríkja- menn á bekknum" - Guðmundur Guðmundsson handknattleiksmaður og starfsmaður FA í viðtali dagsins

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.