Dagur - 27.01.1987, Blaðsíða 4

Dagur - 27.01.1987, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - 27. janúar 1987 á Ijósvakanum. SJÓNVARPIÐ ÞRIDJUDAGUR 27. janúar 18.00 Villi spæta. (Woody Woodpecker) Annar þáttur. Nýr flokkur teiknimynda eftir Walter Lantz. Þýðandi Ragnar Ólafsson. 18.20 Fjölskyldan á Fidrilda- ey. (Butterfly Island) Níundi þáttur. Ástralskur framhalds- myndaflokkur fyrir böm og unglinga um ævintýri á Suðurhafseyju. Þýðandi Gunnar Þorsteins- son. 18.55 Sómafólk. (George and Mildred). 12. Ys og þys út af klukku. 19.20 Fréttaágrip á táknmáli. 19.25 Poppkom. Umsjónarmaður Þorsteinn Bachmann. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Fröken Marple. Auglýsing um morð - Fyrsti hluti. (Murder Is Announced) Bresk sakamálamynd í þremur hlutum um eina vinsælustu söguhetju Agöthu Christie. 21.25 í brúðuheimi. (The World of Puppetry) 5. Henk Boerwinkel. 22.25 Kastljós - Erlend málefni. Kosningar í Vestur-Þýska- landi. Umsjónarmaður Guðni Bragason. 23.00 Fróttir í dagskrárlok. SJÓNVARP AKUREYRI ÞRIDJUDAGUR 27. janúar 18.00 Teiknimynd. Gúmmíbirnirnir (Gummi- bears). 18.25 Klassapíur. (Golden Girls) Þessi framhaldsþáttur var á síðasta ári valinn besti bandaríski gamanþáttur- inn og EstelJe Getty besta leikkonan í gamanþætti. 18.50 Myndrokk. 19.20 Fyrsti mánudagurinn í október. (First Monday in October) Bandarísk kvikmynd frá 1981 með Walther Matt- heau, Jill Clayburgh, Barn- ard Huges í aðalhlutverk- um. Ruth Loomis (Clayburgh) er fyrsta konan sem er kosin hæstaréttardómari í Bandaríkjunum, þrátt fyrir töluverða gagnrýni frá hæstaréttardómara (Walt- er Mattheau) sem var ekki samþykkur kjöri hennar. Liggja leiðir þeirra saman í mörgum málum og kemur það í hlut hans að hjálpa henni þegar hún kemst í erfiða stöðu gagnvart embætti sínu. Gamanmynd. Leikstjóri er Ronald Neame. 20.55 Ég lifi. (For those I loved) Bandariskur framhalds- myndaflokkur í þrem hlutum. 2. hluti. Með aðalhlutverk fara Michael York, Jacques Penot, Brigitte Fossey. Átakanleg sönn saga byggð á bók Martin Gray sem komið hefur út í islenskri þýðingu. Sagan hefst haustið 1939 þegar nasistar hernámu Varsjá í Póllandi. Martin Gray (Michael York) lifði ótrú- legu lífi. Hann komst lífs af úr fangabúðum nasista og lifði af allar þær hörmung- ar sem gyðingar máttu þola á þessum tíma. Eftir stríðið finnur hann ham- ingjuna en skjótt skipast veður á lofti. 22.30 íþróttir. (National Basketball Asso- ciation (NBA)). Bandaríski körfuboltinn. Celtic - Philadelphia ’76ers. Umsjónarmaður er Heimir KarLsson. 00.00 Dagskrárlok. RÁS 1 ÞRIÐJUDAGUR 27. janúar 6.45 Veðurfregnir • Bæn. 7.00 Fréttir. 7.03 Morgunvaktin. - Jón Baldvin Halldórsson, Sturla Sigurjónsson og Lára Marteinsson. Fréttir eru sagðar kl. 7.30 og 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Tilkynningar eru lesnar kl. 7.25, 7.55 og 8.25. Guðmundur Sæmundsson talar um daglegt mál kl. 7.20. 9.00 Fréttir. 9.03 Morgunstund barn- anna: „Hanna Dóra“ eftir Stefán Jónsson. Ragnheiður Gyða Jóns- dóttir les (17). 9.20 Morguntrimm • Til- kynningar. 9.35 Lesið úr forystugrein- um dagblaðanna. 9.45 Þingfréttir. 10.00 Fróttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 „Ég man þá tíð". Hermann Ragnar Stefáns- son kynnir lög frá liðnum árum. 11.00 Fréttir. 11.03 Samhljómur. Umsjón: Þórarinn Stefáns- son. 12.00 Dagskrá • Tilkynning- ar. 12.20 Fróttir. 12.45 Veðurfregnir • Til- kynningar • Tónleikar. 13.30 í dagsins önn - Hvað segir læknirinn. Umsjón: Lilja Guðmunds- dóttir. 14.00 Miðdegissagan: „Menningarvitarnir" eft- ir Fritz Leiter. Þorsteinn Antonsson les þýðingu sína (18). 14.30 Tónlistarmenn vik- unnar. Andrew systur. 15.00 Fróttir • Tilkynningar • Tónleikar. 15.20 Landpósturinn. Frá Vesturlandi. Umsjón: Ásþór Ragnars- son. 16.00 Fréttir • Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. 17.00 Fróttir. 17.03 Siðdegistónleikar. 17.40 Torgið - Samfélags- mál. Umsjón: Steinunn Helga Lárusdóttir. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir • Dag- skrá kvöldsins. 19.00 Fróttir. 19.30 Tilkynningar. Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá morgni sem Guðmundur Sæmundsson flytur. 19.35 Spurningakeppni framhaldsskólanna. Fjórða viðureign af níu í fyrstu umferð: Menntaskólinn í Kópavogi - Flensborgarskóli. Stjórnandi: Vernharður Linnet. Dómari: Steinar J. Lúð- víksson. 20.00 Léttsveit austurríska útvarpsins leikur. Petermánnchen-barnakór- inn syngur með. Ernst Kugler stjórnar. 20.40 íþróttaþáttur. Umsjón: Ingólfur Hannes- son og Samúel Örn Erl- ingsson. 21.00 Perlur. Linda Ronstadt og James Taylor. 21.30 Útvarpssagan: „í tún- inu heima" eftir Halldór Laxness. Höfundur les (12). 22.00 Fréttir Dagskrá morgundagsins Orð kvöldsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Evrópsk kórtónlist. Kór Menntaskólans við Hamrahlíð syngur. Þorgerður Ingólfsdóttir stjórnar. 22.40 Úr sögu Kvenréttinda- félags íslands. Sigríður Th. Erlendsdóttir sagnfræðingur flytur erindi á áttræðisafmæli félacjsins. 23.20 íslensk tónlist. 24.00 Fréttir • Dagskrárlok. ÞRIÐJUDAGUR 27. janúar 9.00 Morgunþáttur í umsjá Kolbrúnar Hall- dórsdóttur og Sigurðar Þórs Salvarssonar. Meðal efnis: Tónlistar- getraun og óskalög yngstu hlustendanna. 12.00 Hádegisútvarp með fréttum og léttri tón- list í umsjá Margrétar Blöndal. 13.00 Skammtað úr hnefa. Stjórnandi: Jónatan Garð- arsson. 16.00 í gegnum tíðina. Þáttur um íslenska dægur- tónlist í umsjá Vignis Sveinssonar. 17.00 Allt og sumt. Helgi Már Barðason stjórnar þætti með tónlist úr ýmsum áttum. 18.00 Dagskrárlok. Fréttir eru sagðar kl. 9, 10, 11, 12.20, 15, 16, og 17. Svæðisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni. ÞRIÐJUDAGUR 27. janúar 18.00-19.00 Trönur. Umsjón: Finnur Magnús Gunnlaugsson. Fjallað um menningarlíf og mannlíf almennt á Akur- eyri og í nærsveitum. ÞRIÐJUDAGUR 27. janúar 07.00-09.00 Á fætur með Sigurði G. Tómassyni. Létt tónlist með morgun- kaffinu. Sigurður lítur yfir blöðin, og spjallar við hlustendur og gesti. Fréttir kl. 07.00, 08.00 og 09.00. 09.00-12.00 Páll Þorsteins- son á léttum nótum. Palli leikur uppáhaldslögin ykkar. Afmæliskveðjur, matar- uppskriftir og spjall til hádegis. Síminn er 611111. Fréttir kl. 10.00, 11.00 og 12.00. 12.00-14.00 Á hádegismark- aði með Jóhönnu Harðar- dóttur. Fréttapakkinn, Jóhanna og fréttamenn Bylgjunnar fylgjast með því sem helst er í fréttum, spjalla við fólk og segja frá. Flóamarkaðurinn er á dagskrá eftir kl. 13.00. Fréttir kl. 13.00 og 14.00. 14.00-17.00 Pétur Steinn á rétiri bylgjulengd. Pétur spilar síðdegispopp- ið og spjallar við hlustend- ur og tónlistarmenn. Fréttir kl. 15.00, 16.00, og 17.00. 17.00-19.00 Hallgrímur Thorsteinsson í Reykja- vík siðdegis. Hallgrímur leikur tónlist, lítur yfir fréttirnar og spjallar við fólkið sem kemur við sögu. Fréttir kl. 18.00. 19.00-20.00 Tónlist með létt- um takti. 20.00-21.00 Vinsældalisti Bylgjunnar. Helgi Rúnar Óskarsson kynnir 10 vinsælustu lög vikunnar. 21.00-23.00 Ásgeir Tómas- son á þriðjudagskvöldi. Ásgeir leikur rokktónlist úr ýmsum áttum. 23.00-24.00 Vökulok. Þægileg tónlist og frétta- tengt efni í umsjá Árna Snævars fréttamanns . 24.00-07.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Tónlist og upplýsingar um veður. -hér og þac Þessi móðir er fyrrverandi kókaínneytandi. Hún fylgdist með tvíburunum sínum en þeir eru tengdir við hjartalínurit 24 tíma á dag. Kókmnböm - Afleiðing kókaínneyslu iidiigerr k(>kaint»iútrMki-| vuUt-r »v«*r >í«k*: «vilHnj{*rr, med bjcriemtmtlor# iiiktthiti. Barnið er í lífshættu. Það liggur á sjúkrahúsi í Fort Lauderdale í USA. Litli drengurinn hefur grátið stöðugt síðan hann fæddist. Þegar einhver snertir hann fær hann krampa og skelfur eins og hrísla. Barnið hefur ýmis sjúkleg einkenni, það getur t.d. ekki hreyft tunguna nema lítið eitt og getur ekki sogið móður- mjólkina. Það fæddist fyrir viku og móðirin tók reglulega inn kókaín á meðgöngutímanum. Barnið, sem er lýst hér að framan, er kallað Guillermo. Við hliðina á rúmi þess liggur annað barn, Paul. Paul fær alla sína næringu gegnum slöngur og hann verður að fara við og við í önd- unarvélina. Á hverjum degi verð- ur að tappa vökva af heila litla drengsins til að létta þrýstinginn. Paul er bara eins mánaðar gamall en hefur þegar fengið slag tvisvar. Guillermo og Paul eru tvær afleiðingar af lífshættulegum leik mæðranna með kókaín. En þetta eru ekki einu börnin sem svona er ástatt um því að síðan 1984 hafa hundruð barna uppgötvast sem hafa kókaín í þvaginu. Á einu sjúkrahúsi í Los Angeles hafa komið fyrir á fjórða hundr- að tilfella á þremur árum. Heil- brigðisstéttir í Bandaríkjunum eru sammála um að vandamálið sé ört vaxandi en nokkrum erfið- leikum er bundið að nefna ákveðnar tölur vegna þess að mæður sem neyta kókaíns eru oftast líka í öðrum sterkum vímuefnum eins og áfengi, heró- íni og LSD. Þá er það einnig vandamál að mæðurnar upplýsa læknana ekki að fyrra bragði um hinn hættulega ávana sinn og ekkert kemst upp fyrr en barnið fæðist með einkennin. Alvarlegar afleiðingar Rannsóknir, sem gerðar hafa verið í Bandaríkjunum, sýna að verðandi mæður tefla í mikla hættu með neyslu kókaíns og líkra efna. Hætta á fósturláti er talsverð og eiturefnin berast til fóstursins í gegnum fylgjuna. Nýfædd „kókaínbörn“ eru léttari en önnur börn og þau þjást af ýmsum hættulegum sjúkdómum. Eitt af þeim einkennum sem þjá þessi börn er óværð og þau gráta óeðlilega mikið. Læknarnir vita ekki ennþá hvernig best er að meðhöndla kókaínbörnin. Það eina sem þeir geta gert er að vefja börnin inn í þykk ullarteppi. Þetta er gert til að börnin skaði sig ekki. Stund- um eru gefin róandi lyf en tauga- kerfi barnanna er það mikið skemmt að mörg Iyf verka ekki á þau. Lítið að gera „Ég veit ekki hvað er verst,“ sagði dr. Richard Beach, en hann annast mörg börn með þessum einkennum. „Það er ekki mikið hægt að gera, til eða frá. Svo eru mæðurnar stór hluti vandans. Það má ekki skilja þær eftir einar og það verður að fylgjast með þeim dag og nótt. Annars er mik- il hætta á að þær haldi áfram að nota eiturlyf.“ Læknarnir eru á þeirri skoðun að ýmis einkenni eitrunar eigi eftir að koma í ljós hjá þessum börnum síðar á lífsleiðinni. En þar sem vandinn er tiltölulega nýr af nálinni er ekki gott að segja til um hvernig þessi ein- kenni munu lýsa sér. Það eina sem er vitað með vissu er að börnin bíða alvarlegt tjón á heilsu sinni þegar í móðurlífi. # Ritskoðun Gaman var aö Geisla á sunnudagskvöldið. Þar var rætt um bann við ofbeldis- og klámmyndum í kjölfar her- ferðar lögreglunnar í Reykja- vík. Níels Árni Lund er skipaður eftirlitsmaður í þessari grein, hann rennir augum í gegnum öll var- hugaverð myndbönd og tek- ur þau út sem hann telur skaðleg börnum og ungling- um. Þetta ferst honum örugg- lega vel úr hendi enda hefur hann starfað mikið að æskulýðsmálum. Ekki vildi skáldið Sjón viðurkenna það, taldi þetta ritskoðun af versta tagi. Fólk ætti að ráða því hvað það vildi horfa á og hvað ekki. Hófust síðan deil- ur um listrænar ofbeldis- myndir þar sem menn eru afhausaðir á sem eðlilegast- an hátt. Fór Sjón mörgum fögrum og háfleygum orðum um þessa göfugu list á með- an Níels varð æ fölari. Hann greip þá til þess örþrifaráðs að segja frá því að í sumum þessara mynda er fólk líflátið í raun og veru. Aumir atvinnuleysingjar eru hirtir upp og farið með þá til Suð- ur-Ameríku. Þar er þeim síð- an slátrað fyrir framan myndavélarnar. Þessu hélt Níels fram en Sjón sagði þetta lygi og sagðist hafa heimildir fyrir því. Hvað sem kann að reynast rétt í þessu þá þykir mér full gróflega vegið að atvinnuleysingjum að fara með þá til Suður- Ameríku þar sem þeir eru afhausaðir í þágu listarinnar. Ég vil bara ekki trúa þessu Níels. bandalags- hyski Athygli vakti þegar Zverrir Hermannzzon skírði alþýðu- bandalagsmenn á Norður- landi eystra upp á nýtt og kallaði alþýðubandalags- hyski. Mörgum þótti þetta fyndið, aðrir urðu sárir, en fleirum þótti þetta barnalegt eins og svo margt annað i ræðu ráðherra. En ef málin eiga að þróast á þessum nót- um verður svo að vera, á jafn- réttisgrundvelli þó. Þá verður að skíra aðra flokka upp á nýtt, t.d. aiþýðuflokksaf- styrmi, framsóknarflokks- pakk, sjálfstæðisflokksskít- seyði og kvennalistalufsur.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.