Dagur - 27.01.1987, Blaðsíða 12
Akureyri, þriðjudagur 27. janúar 1987
Ljósritunarveiar
Búðarkassar
Reiknivélar
Hljómdeild
Sjónvarp Akureyri:
Hrísey:
Lárus Ægir Guömundsson
framkvæmdastjóri Hólaness
flutti aðalræðu dagsins, og rakti í
stuttu máli sögu fyrirtækisins og
byggingasögu viðbyggingarinnar.
Hólanes hf. hóf starfsemi sína 31.
október 1944 og árið 1968 keypti
það frystihús Kaupfélags Skag-
strendinga. Eftir það má segja að
farið hafi að ganga vel rneð rekst-
urinn sem hafði verið erfiður á
meðan tvö frystihús voru starf-
rækt á staðnum.
Þegar ráðist var í þær fram-
kvæmdir sem nú er senn lokið,
höfðu verið uppi hugmyndir um
að byggja nýtt frystihús og sagði
Lárus Ægir að með þeim fram-
kvæmdum sem nú væri verið að
Ijúka væru þeir hjá Hólanesi
komnir með nútíma frystihús og
gætu í tímans rás tekið við afla
Kaffistofan gefur lítið eftir bestu veitingasölum og hún var þéttsetin gestum
sem nutu góðra veitinga í boði Hólaness hf. Mynd: G.Kr.
annars togara ef vildi, en hráefni
til frystihússins kemur nær ein-
göngu með togaranum Arnari.
I nóvember ’84 var ákveðið að
hafist skyldi handa við viðbygg-
inguna að vori ’85, og var bygg-
ingin orðin fokheld í desember
það ár. Viðbyggingin er 250 fer-
metrar á þrem hæðum og tengj-
ast tvær neðri hæðirnar eldri
hluta hússins en á efstu hæðinni
er fyrrnefnd kaffistofa sem helst
líkist veitingasal á góðu hóteli
auk þess sem þar er gert ráð fyrir
eldhúsi, saunabaði, búningsklef-
um og hvíldarherbergi til afnota
fyrir starfsfólk fyrirtækisins.
Áætlaður kostnaður við fram-
kvæmdirnar er nú um 36 milljón-
ir en reiknað er með að þegar
öllu verður lokið muni kostnað-
urinn verða á bilinu 42 til 44
milljónir. Vinnslugeta hússins
eykst um átta til tuttugu tonn á
dag eftir því hvað verið er að.
vinna, en á síðasta ári tók Hóla-
nes á móti ca. 3500 tonnum auk
700 tonnum af hörpudiski.
Byggingameistari við breyting-
arnar var Eðvarð Hallgrímsson
og hafði hann yfirumsjón með
öllum framkvæmdum.
Bæjarstjórn Húsavíkur:
Hitaveitan hækkar
Á fundi bæjarstjórnar Húsa-
víkur sl. fimmtudag var sam-
þykkt samhljóða að hækka
gjaldskrá hitaveitunnar um
10% frá 1. febrúar nk.
Einnig var samþykkt sam-
hljóða að hækka vatnssölu um
mæli um 23% frá og með 1.
jan.’87 en það er sama hækkun
og verður á fasteignamati milli
ára.
Að loknum ótrúlega löngum
umræðum um gjaldskrármál
sundlaugarinnar var samþykkt
samhljóða ný gjaldskrá fyrir
sundlaugina og ný gjaldskrá fyrir
skíðamannvirki í Húsavíkur-
fjalli, tímbilið 1. jan.-31. maí ’87.
Hver miði í sundlaugina mun
frá 1. feb. kosta kr. 55.- fyrir full-
orðna, en miðinn kostar nú kr.
45.- afsláttarmiðar, lOstk. hækka
í 450,- kr. úr 320,- kr., en verð
fyrir börn helst óbreytt 20,- kr.
miðinn og 130,- kr. 10 stk.
Gjaldskráin fyrir skíða-
mannvirkin hækkar um 0-5%.
Frítt veröur áfram fyrir börn
yngri en 6 ára, lítil eða engin
hækkun verður á kortum barria
en kort fullorðinna hækka um
5%. IM
Myndlyklamir
streyma í hús
- sumir þurfa að breyta loftnetum
Nú er afgreiðsla á myndlyklum
í fullum gangi hjá Akurvík og
munu hátt í 200 lyklar hafa
verið seldir og fleiri eru vænt-
anlegir. Reiknað er með að
búið verði að afgreiða allar
eldri pantanir í byrjun febrúar
og síðan verði hægt að afgreiða
nýjar pantanir jafnóðum. En
ekki eru allir jafn vel settir þótt
þeir séu komnir með mynd-
lykil í hendurnar því í sumum
tilfellum þarf að breyta loftnet-
um.
í kjölfar þessara tíðinda hefur
dagskrá Sjónvarps Akureyrar
breyst til muna, lengst og batnað.
Eftir að þeir fóru að senda út
truflað hafa þeir fengið allt annað
og betra efni frá Stöð 2. Meðan
útsendingar voru ótruflaðar stóð
þeim fátt til boða og dagskráin
var einhæf af þessum sökum.
Bjarni Hafþór Helgason sjón-
Kaldbakur
landaði
185 tonnum
Kaldbukur EA 301 landaði í
gær 185 tonna afla eftir 10
daga veiðiferð. Afiinn var að
mestu þorskur.
Skipið fer aftur á veiðar í dag.
Síðar í vikunni má búast við Sval-
baki til hafnar. ET
varpsstjóri gat þess að nú fyrst
væri dagskráin að komast í eðli-
legt horf og ætti eftirspurnin að
fara að aukast nú þegar fólki
stæði almennileg dagskrá til
boða.
Bjarni Hafþór sagði einnig að
á nokkrum stöðum hefði borið á
því að lofnet væru ekki nógu góð
þannig að myndlykillinn fengi
ekki nægan styrk til að afrugla
útsendinguna. Þetta hefði til
dæmis komið upp á þar sem
útsendingin er tekin í gegnum
myndbandskerfi í fjölbýlishús-
um.
Hjá Akurvík fengust þær upp-
lýsingar að sums staðar kæmi
myndlykillinn ekki að notum þar
sem um innilofnet væri að ræða
en á öðrum stöðum væri það allt
í lagi. Þá skiptir máli hvernig úti-
loftnet menn eru með því nauð-
synlegt er að hafa svokölluð
breiðbandsloftnet. Þeir hjá
Akurvík hafa lítinn tíma til að
kippa þessu í liðinn fyrir fólk en
Bilun s.f. og Björgvin Leonards-
son hafa boðist til að taka þetta
verk að sér.
Aðspurður sagði Bjarni Haf-
þór að þeir hefðu látið fólk sem
fékk myndlykil í þessum mánuði
greiða áskrift fyrir febrúar, en
ekki afganginn af janúar.
Áskriftargjaldið er 950 kr. á
mánuði og á í framtíðinni að
borga það 20. hvers mánaðar,
mánuð fyrirfram og fær fólk þá
númer fyrir þann mánuð.
Útsendingar standa yfir í rúm-
lega 200 klukkustundir á mánuði.
SS
Þrátt fyrir góða veðrið undanfarið hafa endurnar á Andapollinum ekki úr
miklu að moða og slógust því um hvern bita sem drengirnir hentu til þeirra.
Mynd: RÞB.
Verður Snæ-
fellið selt?
Um mánaðamótin verður byrj-
að að skoða tilboð sem bárust í
endurbætur á Sólfelli EA 640
sem Njörður hf. í Hrísey gerir
út. Þá er líka verið að ræða um
endurbætur eða sölu á togar-
anum Snæfelli EA 740 sern er í
eigu Utgerðarfélags KEA í
Hrísey. Heyrst hefur að líkur
séu til þess að Snæfellið verði
selt og nýr togari keyptur í
staðinn.
Kristján Ólafsson fulltrúi hjá
Kaupfélagi Eyfirðinga sagði það
mál á umræðustigi og ekki hægt
að segja til um það strax hvort sú
leið verði farin. „Við erum að
fara í viðræður við Norðmenn í
næstu viku og við vitum ekki
hvað út úr þessu kemur, en það
er verið að skoða þessi mál af
fullri alvöru,“ sagði Kristján.
Hann sagði að verið væri að
ræða það við Útgerðarfélag KEA
og Njörð hf. hvernig best væri að
haga þessum málum. En um
mánaðamótin mun a.m.k. skýr-
ast hvað kemur út úr tilboðunum
sem bárust í viðgerð og endur-
bætur á Sólfellinu. SS
KEA áfram í
hópi þeirra stærstu
Kaupfélag Eyfirðinga er enn
sem fyrr á lista yfir stærstu
fyrirtæki landsins miðað við
veltu. Það er í sjöunda sæti
með rúmlega 3,7 milljarða kr.
veltu á árinu 1985. Mestu veltu
hefur Sambandið, eða 11,8
Hólanes hf. stækkar
Síðastliðinn laugardag var
formlega tekin í notkun við-
bygging frystihússins Hólaness
á Skagaströnd. Af því tilefni
bauð fyrirtækið til kaffísam-
sætis í stórglæsilegri katfístofu
frystihússins, þar sem ræður
voru fluttar og boðið upp á
kaffí og meðlæti.
milljarða, þá SH með 7,4
milljarða, Landsbanki íslands
með tæplega 6,4, Flugleiðir
með tæplega 5,8, Olíufélagið
með 4,2, SÍF með tæplega 4
milljarða og síðan KEA. Næst
þar á eftir kemur ÁTVR og
Islenska álfélagið.
Af öðrum norðlenskum fyrir-
tækum sem ofarlega eru á þess-
um lista, sem blaðið Frjáls vers'l-
un birtir árlega, má nefna Kaup-
félag Skagfirðinga og Fiskiðju
Sauðárkróks í 31. sæti með veltu
upp á 1,1 milljarð, Útgerðarfélag
Akureyringa í 40. sæti með 878
milljón kr. veltu 1985, Kaupfélag
Húnvetninga og Sölufélag V,-
Hún. í 53. sæti og Slippstöðina í
78. sæti með 454 milljón kr.
veltu.
Þegar litið er á það hverjir eru
stærstu vinnuveitendur kemur í
ljós að Reykjavíkurborg er þar í
fyrsta sæti með meðalfjölda
starfsmanna tæplega 5 þúsund,
Ríkisspítalar koma næst með
2460, Póstur og sími með um 2
þúsund, Sambandið í 4. sæti með
1590 starfsmenn. Þá koma Flug-
leiðir, Landsbankinn, Varnarlið-
ið og Kaupfélag Eyfirðinga í 8.
sæti með 1098 starfsmanna með-
alfjölda á árinu 1985. Akureyrar-
kaupstaður er síðan í 13. sæti
með 566 starfsmenn, Útgerðar-
félag Akureyringa í 17. sæti með
460 að meðaltali, Sjúkrahúsið á
Akureyri í 20. sæti með 398 og
Kaupfélag Skagfirðinga og
Fiskiðja Sauðárkróks í 27. sæti
með 325 starfsmenn að meðaltali
árið 1985. Slippstöðin er í 36.
sæti með 270 starfsmenn.
HS