Dagur - 27.01.1987, Qupperneq 8
8 - DAGUR - 27. janúar 1987
Hvemig notum
við Mtímann
Á hverjum morgni gleypa milljónir launþega í sig bolla af kaffi,
renna augunum í flýti yfir dagblaðið og flýta sér síðan út í borgina til
að verða hluti fjöldans á vinnumarkaðinum. í iðnaðarlöndunum er
tiltölulega auðvelt að kanna skiptingu fólks eftir atvinnugreinum og
fá upplýsingar um laun og vinnutíma - að minnsta kosti að því er
varðar það fólk, sem vinnur utan heimilis. En það er talsvert meiri
vandkvæðum bundið að fá yfirsýn yfir það í hvað fólk eyðir frítíma
sínum.
Grattan
pöntunarlisti
Vor- og sumarlisti
1987 kominn
Glæsilegri en nokkru
sinni fyrr.
Verð kr. 250.00, + póstkrafa
ATH: Aðeins 500 listar
verða seldir fyrir Norðurland
Umboð Akureyri sími 96-23126
Vegna mikillar
sölu vantar
nýlega bíla
í salinn -
Láttu skrá
bílinn og fáðu
góð tilboð.
■ ^CKawasaki
fjórhjól 1987
fyrirliggjandi
☆
Vélsleðar -
Nýir/notaðir.
☆
Fjórhjól notuð á
hagstæðum kjörum.
ÞAU NOTA
ENDURSKINS-
MERKI-enhvaö
gerir þú?
UMFERÐAR
RÁÐ
Hvernig ver fólk hvíldartíma
sínum í hinum ýmsu löndum
jarðar? Petta hefur nú talsvert
verið rannsakað. John Robinson
þjóðfélagsfræðingur við háskól-
ann í Maryland vinnur um þessar
mundir að úrvinnslu gagna, sem
fengist hafa með 10 ára könnun í
11 löndum á því, hvernig fólk ver
frítímanum. Þeir, sem að rann-
sókninni stóðu, fengu þúsundir
fólks á ýmsum aldri og við margs
konar störf til að halda sundurlið-
aða dagbók yfir það, hvað það
tók sér fyrir hendur yfir sólar-
hringinn í heild.
Þær niðurstöður, sem þegar
liggja fyrir, benda til þess, að frí-
tíminn, sá tími, sem ekki er not-
aður til launaðrar vinnu, heimil-
isstarfa, barnagæslu, svefns,
ferðalaga eða verslunar, fari vax-
andi í flestum iðnríkjanna. Af
þeim þjóðum, sem könnunin tek-
ur til, er frítíminn lengstur hjá
Dönum og Hollendingum - að
meðaltali 31 og 28 hundraðshlut-
ar af sólarhringnum. Frakkar
hafa minnstan frítíma, 20%, en
Bandaríkjamenn ná 24%. Það
kom ekki á óvænt, að hjá flestum
fer stærsti hluti frítímans í að
horfa á sjónvarp og samneyti við
vini og kunningja. Japanir nota
40% af frítímanum til að sitja
fyrir framan sjónvarpið og aðeins
10% til samskipta við annað fólk.
Norðmenn, sem eiga álíka mörg
sjónvarpstæki miðað við íbúatölu
nota hins vegar aðeins 15% af
sínum frítíma til að horfa á sjón-
varpið og 30% til samneytis við
aðra. En enda þótt Japanir noti
margan klukkutímann til að
horfa á sjónvarpið, þá eyða þeir
samt sem áður 10% af frítíma
sínum til lesturs, og það er með
því mesta.
í Japan og Frakklandi les fólk
undir 25 ára aldri meira en þeir,
sem eldri eru, segir Robinson.
Það sýnir, að ennþá hefur hið
prentaða orð mikla þýðingu fyrir
börn og ungmenni, þrátt fyrir
Hættulegur
hávaði
Hrotur geta verið hættulegar. Það langa hlé, sem
verður á andardrættinum, getur þegar verst
gegnir valdið dauða.
Þriðji hluti jarðarbúa hrýtur,
segja þeir sem kannað hafa.
Hrotur eru algengari hjá körl-
um en konum og hættulegri en
fram kemur í grínteikningum.
Miklar hrotur geta meðal ann-
ars valdið hækkuðum blóð-
þrýstingi, þreytu og kynlífstrufl-
unum. Auk þess getur myndast
svonefnd öndunargloppa, með
því er átt við að öndunin stöðv-
ast í 10 sekúndur eða lengur,
allt upp í eina mínútu. í versta
tilfelli getur slík öndunarstöðv-
un valdið dauða. Allt þar til á
síðustu árum hafa menn aðeins
talið hrotur félagslegt vanda-
mál, verstu hrotukarlar geta
myndað hávaða í kringum 85
decibel, sem er íneira en leyfist
á vinnustöðum.
Á sjúkrahúsi í Danmörku
fara nú fram tilraunir með
hrotuvarnatæki, þar sem
sveiflutíðni (vibrator) á að fá
þann sem hrýtur til að snúa sér
á hina hliðina þegar hávaðinn
byrjar, og hætta þar með að
hrjóta. Eina ráðið til þess hefur
verið vandasamar skurðaðgerð-
ir í öndunarfærum.
(Vindcnskah for alle. - Þýð. Þ.J.)
af erlendum vettvangL
Frítími okkar fer vaxandi. Rannsóknir sýna, að flestir nota mikinn hluta
hans til að horfa á sjónvarp. Engir eru þó iðnari við það en Japanir.
myndbandavæðingu og þess hátt-
ar. Robinson komst einnig að
raun um það, að karlar, sem
vinna utan heimilis, eiga sér fleiri
frístundir en konur, sem vinna
utan heimilis. Og hvað það snerti
skipti þjóðerni, aldur eða
atvinnugrein ekki máli. Það er
greinilega ennþá staðreynd, að
konur eyða meiri tíma við barna-
gæslu og heimilisstörf. Athuganir
Robinsons sýna þó hægfara
breytingu á þessu sviði, þannig
að í iðnríkjunum hefur vinna
kvenna við heimilisstörf minnkað-
en karla vaxið frá því sem var á
sjöunda áratugnum.
Vinnutíminn í iðnríkjunum
hefur vissulega styst, en hvort
frítíminn nýtist að sama skapi
betur til hvíldar, - um það má
deila.
Fram til þessa hafa ekki marg-
ar athuganir snúist um saman-
Öskrið -
og losnið
við stressið
Nú geta allir öskrað úr sér streit-
una, án þess að eiga á hættu að
nágranninn banki í vegginn eða
kalli á lögregluna. Ný uppfinn-
ing, sem nefnist Scream Muffler
(öskurdeyfir) gerir öllum kleift
að öskra eins og þá framast lystir
- í vinnunni, heima hjá sér eða í
strætisvagninum, án þess að
nokkur heyri.
Öskurdeyfirinn líkist helst
greipaldini úr silfri, en með opi
sem passar fyrir munninn á þeim,
sem öskrar. Upp í þetta er svo
óhætt að öskra, því að innan er
gripurinn fóðraður með efni, sem
gleypir hljóðið. Tekin er ábyrgð
á, að það þaggi niður jafnvel
hvellustu hljóð.
Enda þótt uppfinning þessi
kunni að virðast hlægileg, þá
gegnir hún sínu hlutverki, segir
uppfinningamaðurinn, Diane
Berkowitz. Hún segir, að þegar
hafi selst yfir 10.000 öskurdemp-
arar bæði til einstaklinga og fyrir-
tækja.
Hluturinn kostar 10 dollara, og
það er að mati Diönu Berkowitz
ekki mikið miðað við það sem
annars er eytt í pillur og áfengi til
að losna við streituna. o»ýð. þ.J.)
/
Iskaldir
drykkir án íss
Nú verður fljótlega engin þörf
fyrir kæliskápinn, þegar þarf að
kæla öl eða gosdrykki, segir í
New Science. Fyrir skömmu
tókst mönnum í Bandaríkjunum
að framleiða gosdrykkjadós, sem
gat kælt gosdrykkinn á nokkrum
sekúndum. í dósunum verður
örlítið minna af gosdrykk en
burð á t.d. veiðimönnum og
verslunarfólki. En við saman-
burð á því, hvað Frakkar tækju
sér fyrir hendur miðað við indí-
ánaþjóðflokk í Perú, kom í ljós
að indíánarnir notuðu mun meiri
tíma til að ræða saman eða bara
til að hvíla sig. Hér má þó ekki
líta framhjá því, að þeir búa við
heitara loftslag.
Eins og aðrir íbúar iðnríkjanna
eru Frakkar líka neytendur í frí-
tíma sínum, segir Allen Johnson
mannfræðingur frá Kaliforn-
íuháskóla, sem stjórnaði rann-
sókninni. Enda þótt tennisleikur
og hljómleikar auki á fjölbreytni
lífsins, þá verður frítíminn stund-
um svo yfirhlaðinn að hann verð-
ur þjakandi. í frítíma sínum hafa
mennirnir tækifæri til að verða
mannlegastir. Og er það ekki
það, sem við öll keppum að.
(Videnskab for alle 12/86. - Þýð. Þ.J.)
verið hefur, en hann verður aftur
á móti alltaf ískaldur. Innan í
þessari kælidós er hylki með
samanþjöppuðu koldíoxíði. Um
leið og dósin er opnuð opnast fyr-
ir gasið, sem samstundis dreifir
sér og breytir hitastiginu, svo að
það snarlækkar. Hylkið breytist í
„ístening", og á 90 sekúndum er
sódavatnið orðið ískalt. (Þýð. þ.j.)
Tölvur eru
líka fyrir
ungböm
Hefur nýlega bæst ungbarn í fjöl-
skylduna? Sé svo, þá er kannski
tímabært að flytja tölvuna inn í
barnaherbergið. Það er að
minnsta kosti skoðun Victoriu
Williams, skólaeftirlitsmanns í
Texas. Rétti tíminn til að byrja
að kenna á tölvuna er, þegar
barnið er komið heim af fæðing-
ardeildinni.
Það er hægt að forrita vélina
þannig, að hún gefi frá sér
tónlist, klukknahljóm og ýmis
önnur hljóð, og á meðan barnið
er upptekið af þessum hljóðum
getur móðirin sinnt heimilisstörf-
unum, segir kennarinn Williams.
Og hún hefur einmitt nýlega sent
frá sér bók, sem ber heitið
„Kenndu barninu þínu að nota
tölvu“. Fyrstu þrjá mánuðina í
lífi barnsins má nota tölvuna til
að sýna litskreytingar og flatar-
málsmyndir, sem efla sjónskyn
barnsins. Þegar barnið er orðið
átta mánaða getur það sjálft farið
að stjórna vélinni. Það getur ýtt á
ákveðna takka og fengið alls kon-
ar andlit á skjáinn. En hver er
annars tilgangurinn með því að
byrja svona snemma? - Ef barnið
finnur svo fljótt sem mögulegt er,
að það hefur stjórn á tækninni,
verður því síðar auðveldara að
bjarga sér í þjóðfélaginu, er álit
Williams. (Þýtt. - þ.j.)