Dagur - 04.02.1987, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 4. febrúar 1987
Tannvemd-
arátak
þessa viku
Þessa viku er í gangi tann-
verndarátak á vegum Heil-
brigðis- og tryggingamálaráðu-
neytisins. I tilefni af því verður
ýmislegt um að vera og m.a.
verða birtar þrjár greinar í
blaðinu til fræðslu um tennur
og tannvernd.
6 og 7 ára börn fá bæklinginn
„Biti milli mála“, í skólanum,
ásamt fræðslu um þýðingu matar-
æðis á tannskemmdir. 12 ára
börn fá afhent endurskinsmerki
með áletruninni „Þínar tennur,
þitt að velja,“ en það er slagorð
tannverndarátaksins þessa viku.
t>á er kominn út bæklingur um
tannvernd, ætlaður verðandi for-
eldrum. Bæklingurinn mun liggja
frammi á mæðra og ungbarnaeft-
irliti svo og fæðingarstofnunum.
Á föstudag, 6. febrúar er aðal-
tannverndardagurinn og þá mun
aðstoðarfólk tannlækna fræða
um tannburstun og tannhreinsi-
áhöld í stórmörkuðum bæjarins.
Hver íslendingur neytir að
meðaltali 60 kg af sykri á ári og
það er heimsmet, við eigum líka
heimsmet í tannskemmdum. Það
er því augljóst að ekki veitir af
tannverndarátaki sem þessu og
það er vonandi að það verði til að
draga úr sykuráti og tann-
skemmdum. íslendingar neyta
árlega 3600 tonna af sælgæti og
hefur neyslan aukist mjög mikið
síðast liðin 25 ár. Árið 1960 borð-
uðum við 487 tonn af sælgæti,
1026 árið 1970 og 1264 tonn árið
1980 og síðan hefur sigið hratt á
ógæfuhliðina. Við drekkum líka
100 lítra af gosi á ári að meðaltali
og það er meira en flestar þjóðir.
Árið 1980 drukkum við 78 lítra,
hver íslendingur, meðan Norð-
menn drukku 59 lítra hver.
Flesta tannsjúkdóma er hægt
að koma í veg fyrir með einföld-
um ráðum og er það mest á valdi
hvers og eins hvort það tekst,
enda hefur hinum Norðulanda-
þjóðunum tekist að fækka tann-
skemmdum um meira en helming
á fáum árum. í því sambandi er
án efa mikilvægast rétt fæðuval
og góðar matarvenjur. Vegur þar
þyngst að neyta holls morgun-
verðar og annarra aðalmáltíða,
að halda neyslu sykurs, sælgætis
og sætra drykkja í lágmarki,
forðast bita milli mála, stunda
rétta tannhirðu og hagnýta kosti
flúors t.d. í tannkremi, fluorskoli
og töflum.
Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytið hefur beitt sér fyrir
vörnum gegn tannskemmdum
undanfarin ár og varði til þess 2Vi
milljón króna á sl. ári. Við þetta
hefur ráðuneytið haft samráð við
fulltrúa frá Tannlæknafélagi
íslands og Tannlæknadeild HÍ og
nú hefur Ragnhildur Helgadóttir,
gefið út reglugerð þar sem þessi
samvinna hefur verið sett í fastari
skorður með stofnun tannvernd-
arráðs. -HJS
>—. — " —-
Auglýsing i Degi
BORGAR SIG
Hvað er góðauglýsing?Allirauglýs-
endur borga fyrir að fá auglýsingu
birta í blöðum. Hvers vegna auglýsa
fyrirtæki þá vöru sína? Jú, til þess
að hún seljist. Þannig er hægt að
láta auglýsingu borga sig. En þaöer
ekki sama í hvaða blaöi auglýst er,
því mörg hafa litla útbreiðslu og fáa
lesendur. Dagur hefur aftur á móti
mikla útbreiðslu og lesendur eru
fjölmargir.
Það borgar sigþví að auglýsa / Degi.
þar eru allar auglýsingar góðar
lýsingar.
uþróttic
Völsungsstelpurnar, hér í leik við Eikina, standa best að vígi í Norðuriandsriðli 1. flokks.
Norðurlandsriðill 1. flokks í blaki:
Yfirburðir Völsungs
- í kvennaflokki en hörkukeppni í karlaflokki
Frá því um miðjan desember
hefur keppni í Norðurlands-
riðli 1. flokks í blaki staðið yfír
og stendur hún yflr fram yfír
20. mars. Þá hefst úrslita-
keppnin og fer hún að þessu
sinni fram á Akureyri. Leikið
er í tveimur riðlum, Norður-
Körfubolti:
Tvíframlengt
á Húnavöllum
- er Skallagrímur sigraði USAH 76:71
Það var hart barist í íþrótta-
húsinu á Húnavöllum á föstu-
dagskvöldið en þar mættust lið
USAH og UMFS í 2. deildinni
í körfubolta. Skallagrímsmenn
fóru með nauman sigur af
hólmi eftir tvíframlengdan
leik.
Staðan eftir venjulegan leik-
tíma var 59:59 og því var
framlengt. Sama jafnræðið var
með liðunum í framlengingunni
og skoraði hvort lið 7 stig. Skalla-
grímsmenn fengu kjörið tækifæri
til þess að vinna leikinn í lok fyrri
framlengingarinnar er þeir fengu
eitt vítaskot að loknum leiktíma.
Þeim brást bogalistin og úrslitin
því 66:66 og því var framlengt á
ný-
I seinni framlengingunni
reyndust Borgnesingarnir sterk-
ari og þeir sigruðu í leiknum
76:71.
Varnarleikur beggja liða var
mjög góður en sóknarleikurinn
að sama skapi slakur. Leikmenn
UMFS eru mun stærri en leik-
menn USAH og var það stærð-
armunurinn fyrst og fremst sem
gerði gæfumuninn í leiknum.
Þetta var þriðji leikur USAH í
2. deildinni í vetur og hafa þeir
allir tapast. Næsti leikur liðsins er
gegn Reyni og fer hann fram á
Húnavöllum 14. febrúar.
lands- og Suðurlandsriðli og
auk þess kemur Þróttur Nesk.
beint inn í úrslitakeppnina.
í karlaflokki leika Öðinn A og
B, Skautar A og B og HSÞ. í
kvennaflokki leika Óðinn,
Völsungur og Eik. Sex leikjum er
lokið í karlaflokki og urðu úrslit-
in þessi:
Skautar B-Óðinn A 0:3
HSÞ-Óðinn B 3:0
Skautar A-Skautar B 3:1
HSÞ-Skautar A 2:3
Óðinn B-Óðinn A 0:3
Skautar B-Skautar A 2:3
í kvennaflokki er tveimur
leikjum lokið og urðu úrslitin
þessi:
Völsungur-Eik 3:0
Óðinn-Völsungur 0:3
Næstu leikir í riðlinum verða á
föstudag og laugardag í íþrótta-
húsi Glerárskóla, allir í karla-
flokki. Á föstudagskvöld leika
fyrst Skautar A og Óðinn B og
síðan Skautar B og HSÞ. Á laug-
ardag leika Óðinn A og HSÞ.
Úrslitakeppnin fer fram dag-
ana 27. og 28. mars og er reiknað
með 4 liðum í úrslitum í karla-
flokki og 3 liðum í kvennaflokki.
Mikil gróska
- í golfinu á Blönduósi
Golfklúbburinn Ós á Blöndu-
ósi hélt sinn fyrsta aðalfund
miðvikudaginn 28. janúar, en
klúbburinn var stofnaður
Kvennaknattspyrna:
Laugamótiö
innanhúss
- fer fram 15. febrúar
Laugamótið í innanhússknatt-
spyrnu kvenna verður haldið
sunnudaginn 15. febrúar á
Laugum í Reykjadal. Hverju
félagi er heimilt að senda fleiri
en eitt lið. Þátttökugjald er
2500 kr. fyrir eitt lið en 4000
kr. fyrir tvö lið.
Þau lið sem hafa áhuga á því að
taka þátt í mótinu eru beðin að
skrá sig hjá Kristjáni Sigurðssyni
í síma 43116 eða 43120 fyrir 11.
febrúar og veitir hann einnig allar
nánari upplýsingar.
Núverandi handhafi Laugabik-
arsins í kvennaflokki er KA en
liðið vann Þór 5:4 í úrslitaleik á
síðasta móti.
25. september 1985.
í skýrslu stjórnar kom fram að
margt hefur þegar verið unnið á
svæði klúbbsins í Vatnahverfi og
enn meira er framundan, eins og
við er að búast hjá svo ungum
klúbbi. Helstu framkvæmdir á
árinu munu verða að taka þrjár
brautir til viðbótar í notkun
þannig að völlurinn verði níu
holur. Byrjað verður á uppbygg-
ingu flata og teiga, girðingavinnu
haldið áfram, grafið upp úr
skurðum o.fl. Þá eru uppi hug-
myndir um að gera gamalt íbúð-
arhús sem er þarna til staðar,
nothæft sem klúbbhús, en samn-
ingum við Blönduóshrepp varð-
andi not af húsinu er enn ólokið.
Mikil umræða varð um nauðsyn
þess að ráðinn yrði starfsmaður
til að annast völlinn, en flest
bendir þó til þess að sökum fjár-
skorts verði það ekki hægt. Á
fundinum voru kynnt drög að
mótaskrá fyrir golftímabilið í ár
og samkvæmt þeim munu verða
haldin 22 mót á vegum klúbbsins
á árinu. G.Kr.