Dagur - 05.03.1987, Blaðsíða 4

Dagur - 05.03.1987, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - 5. mars 1987 á Ijósvakanum. TÓNLISTARKROSSGÁTAN NO: 73 Lausnir scndist til: Ríkisútvarpsins RÁS 2 Efstaleiti l 108 Reykjavflc Merkt Tónlistarkrossgátan SJONVARP AKUREYRI FIMMTUDAGUR 5. mars 18.00 Knattspyrna. Umsjónarmaður er Heimir Karlsson. 19.05 Ferdir Gúllivers. Teiknimynd. 19.30 Opin lína. Einn fréttamanna Stöðvar 2 fjallar um ágreiningsmál líðandi stundar og svarar spurningum áhorfenda á milli kl. 20.00 og 20.15 í síma 673888. Helgi Pétursson ræðir í þessum þætti um fjölgun sela við landið. 19.45 í sjónmáli. í þessum þætti er rætt við Björn Jósep Arnviðarson, Hólmfríði Sigurðardóttur og Svein Brynjólfsson um skólamál. Þá er rætt við Orra Vigfússon, stjórnar- formann Laxárfélagsins, um laxveiði og loks er rætt við Stefán Hallgrímsson, Bjarna Kristjánsson og Njál Helga Jónsson um styrktarskemmtun Lionsmanna, um helgina, vegna sundlaugarbygg- ingar fyrir fatlaða. 20.55 Mordgáta (Murder She Wrote.) Angela Lansbury leysir enn eina morðgátuna eins og henni einni er lagið. 21.45 Af bæ i borg. (Perfect Strangers.) Balki líst ekki á blikuna þegar Larry tekur upp á þvi að stunda spilavítin í Las Vegas. 22.15 Pappirsflóð. (Paper Chase.) Viðfræg gamanmynd með Timothy Bottoms, Lindsay Wagner og John House- man í aðalhlutverkum. Leikstjóri er James Bridges. Ungur maður hefur nám við lagadeild Harvard háskóla en ástamálin gera honum lífið leitt. 00.00 Dagskrárlok. 0 RÁS 1 FIMMTUDAGUR 5. mars 6.45 Vedurfregnir Bæn. 7.00 Fróttir. 7.03 Morgunvaktin. - Jón Baldvin Halldórsson og Jón Guðni Kristjánsson. Guðmundur Sæmundsson talar um daglegt mál kl. 7.20. 9.00 Fréttir. 9.03 Morgunstund barn- anna: „Mamma í upp- sveiflu" eftir Ármann Kr. Einarsson. 9.20 Morguntrimm • Til- kynningar. 9.35 Lesið úr forystu- greinum dagblaðanna. 9.45 Þingféttir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Ég man þá tíð. 11.00 Fróttir. 11.03 Morguntónleikar. 12.00 Dagskrá Til- kynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Vedurfregnir • Til- kynningar • Tónleikar. 13.30 í dagsins önn. Hvað vilja flokkarnir í fjöl- skyldumálum? 1. þáttur: Alþýðubandalagið. 14.00 Middegissagan: „Áfram veginn" sagan um Stefán íslandi. 14.30 Textasmidjan. Lög við texta eftir Þor- steins Eggertssonar. 15.00 Fréttir • Tilkynningar • Tónleikar. 15.20 Landpósturinn. Frá svæðisútvarpi Reykja- víkur og nágrennis. 16.00 Fréttir • Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Barnaútvarpið. 17.00 Fréttir. 17.03 Tónskáldatími. 17.40 Torgið - Menningar- straumar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.30 Tilkynningar. Daglegt mál. 19.45 Að utan. 20.00 Grænland hefur margar ásjónur. Vernharður Linnet ræðir við Sigurð Oddgeirsson kennara í Narsaq. Fyrri hluti. 20.30 Frá tónleikum Sin- fóníuhljómsveitar íslands i Háskólabíói. Fyrri hluti. 21.35 „Bókmenntanám," smásaga eftir Kristján Karlsson. 22.00 Fréttir Dagskrá morgundagsins. 22.15 Veðurfregnir. 22.20 Lestur Passíusálma (16). 22.30 Uppvakningar. Fjallað um dularfulla svefnsýki sem herjaði á heiminn upp úr fyrri heimsstyrjöld. Byggt á bókinni „Awakenings'* eftir Oliver Sacks. Umsjón: Illugi Jökulsson. 23.10 Kvöldtónleikar: Tón- list eftir Ludwig van Beethoven. 24.00 Fréttir • Dagskrárlok. FIMMTUDAGUR 5. mars 9.00 Morgunþáttur Meðal efnis: Tvennir tímar á vinsældalistum, tónleik- ar um helgina, verðlauna- getraun og Ferðastund með Sigmari B. Haukssyni. 12.00 Hádegisútvarp í umsjá Margrétar Blöndal. 13.00 Hingað og þangað um dægurheima með Inger Önnu Aikman. 15.00 Jass og blús. Vernharður Linnet kynnir. 16.00 Tilbrígði. Þáttur i umsjá Hönnu G. Sigurðardóttur. 17.00 Hitt og þetta. Andrea Guðmundsdóttir kynnir lög úr ýmsum áttum. 18.00 Hlé. 20.00 Vinsældalisti rá: tvö Gunnar Svanbergsson kynnir tíu vinsælustu lög vikunnar. 21.00 Gestagangur hjá Ragnheiði Davíðs- dóttur. 22.00 Rökkurtónar. Stjómandi: Svavar Gests. í þættinum verður rætt um söngvarana Tom Jones og Lorettu Lynn, sem bæði eru börn kolanámumanna. 23.00 Norðurslóð. Adolf H.E. Petersen kynnir tónlist frá Norðurlöndum. 24.00 Dagskrárlok. Fréttir eru sagðar kl. 9, 10,11,12.20,15,16 og 17. Rl KISUTVARPIÐ AAKUREYRI Svæðisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni. FIMMTUDAGUR 5. mars 18.00-19.00 Má ég spyrja? Umsjón: Finnur Magnús Gunnlaugsson. M.a. er leitað svara við spurningum hlustenda og efnt til markaðar á Mark- aðstorgi svæðisútvarps- 5. mars 07.00-09.00 Á fætur með Sigurði G. Tómassyni. 09.00-12.00 Páll Þorsteins- son á léttum nótum. Tapað fundið, opin lína, mataruppskrift og sitt- hvað fleira. 12.00-14.00 Á hádegismark- aði með Jóhönnu Harðar- dóttur. Fréttapakkinn. Flóamarkaðurinn er á dagskrá eftir kl. 13.00. 14.00-17.00 Pétur Steinn á réttri bylgjulengd. 17.00-19.00 Hallgrimur Thorsteinsson í Reykja- vík síðdegis. 19.00-20.00 Tónlist með létt- um takti. 20.00-21.30 Jónína Leós- dóttir á fimmtudegi. Jónína tekur á móti kaffi- gestum og spilar tónlist að þeirra smekk. 21.30-23.00 Spurninga- leikur Bylgjunnar. Jón Gústafsson stýrir verðlaunagetraun um popptónlist. 23.00-24.00 Vökulok í umsjá Karls Harðarson- ar fréttamanns. 24.00-07.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. hér og þat Hér kemur sönn lífsreynslusaga og gefum við Hermi Dekiere strax orðið: „Ég var að éta bátinn minn og hló eins og vitfirringur. Petta var á miðju ballarhafi og stormurinn skók laskaða segl- skútuna. Ég hamaðist við að tyggja'seiga og salta viðarbútana. Munnvatnið byrjaði að streyma og það vann bug á sárustu hung- urverkjununt. Ég var búinn að vera tvö ár á sjó og átti aðeins örfáa daga eftir til Ástralíu og Ijúka þar með ferð minni umhverfis hnöttinn. En á þessari stundu virtist það óvinnandi að ég kæmist lifandi heim. Ég bað til Guðs. Fyrir 22 mánuðum var ég ham- ingjusamasti maður á jörðinni þegar ég lagði af stað frá Darwin í Ástralíu á 25 feta skútu, Hori- zon II. Ég sigldi yfir Indlandshaf og fyrir syðsta odda Afríku. Meira en eitt og hálft ár var liðið þegar ég komst í gegnum Panama- skuröinn og setti stefnuna heim til Ástralíu yfir risastórt Kyrra- hafið. Pá skullu ósköpin á. Ég lenti í fárviðri sem stóð yfir í þrjá daga. Stormurinn öskraði og öldurnar byltust fjallháar og ógnandi. Þessa daga var ég niðri í káetu því ekki var stætt uppi. Skútan datt niður og þeyttist í loft með öldunum eins og snarbiluð lyfta. Ég hélt að þessi litli bátur minn myndi fljótlega kurlast niður í tannstöngla. Eitt sinn fór hann alveg á hvolf en rétti sig við af sjálfsdáðum. Eftir þrjá daga sjatnaði storm- urinn, mastrið var brotið, allt á rúi og stúi. Ég þakkaði Guði fyrir að hafa þó nægan mat. En eftir 20 daga þvæling um hafið varð ég matarlaus. Vindurinn bar mig í áttina til Ástralíu en ég reiknaði það út að ferðin tæki 3 vikur. Strax eftir einn dag var ég svo hungraður að ég tók hníf minn og skóf hrúðurkarla af kjöl skútunn- ar og sauð mér í matinn. Tveimur vikum síðar var ég í tærasta hluta Kyrrahafsins. Engir hrúðurkarl- ar, enginn matur. Ég hafði verið stæltur 6 feta og 110 kílóa maður en var nú rýr oe ræfilslegur, búinn að missa 30 kíló. Hvílíkur sársauki! Allir vöðvar emjuðu og ég var að missa kjarkinn. Eg reyndi að herða upp hugann og skipaði sjálfum mér að þrauka. Ég þreif viðarbúta af dekki skútunnar og tuggði þá eins og geðveiklingur og í sömu andrá skall á annar stormur. Það er kannski hugarburður, en mér fannst viðurinn koma munnvatn- inu af stað og mér leið skár í maganum. Ég hló með sjálfum mér af tilhugsuninni um það að fólk sæi mig núna, í gatslitnum buxum og skeggjaðan, alveg eins og klipptur út úr skipsskaða- mynd. Dagar og nætur liðu hjá í þoku uns allt í einu að ég sá strönd Ástralíu. Ég brotnaði saman og grenjaði eins og krakki. Það næsta sem ég man eftir var að skútan var komin í tog og ég var um borð í strandgæsluskipi. Þar fékk ég humar sem ég hámaði í mig hráan og sprautaði safanum yfir mig. Ég át eins og skepna. Loksins var ég kominn heim, heill á húfi eftir þrekraunina.“ # Iþróttahús KA! Eins og flestir vita komu KA- menn sér upp stórgtæsilegu félagsheimili á síðasta ári. KA-húsið hefur orðið mikil lyftistöng fyrir félagsstarfið og er þarna um að ræða stór- merkilegt framtak, og hrein- asta afrek. Félagssvæði KA er nú að verða eitthvert hið glæsileg- asta sem þekkíst hérlendis en sagan er sko ekki aldeilis öll. Næst á dagskrá hjá hinum stórhuga forráðamönum félagsins er bygging eigin íþróttahúss. A aðalfundi félagsins sem haldinn verður annað kvöld mun Jón Hjalta- lín Magnússon verkfræðlng- ur og formaður HSÍ fjalla um byggingu íþróttahúsa og fjár- mögnun. Um það er rætt f fullri alvöru að framkvæmdir við fþróttahús KA hefjist strax á næsta ári. Húsið verð- ur að öllum Ifkindum byggt sunnan KA-hússins og mun tengjast við það. • Mikill áhugi Það er ijóst að íþróttaáhugi á Akureyri er einhver hinn mesti sem þekkist á landinu, sem sést best á þeim fjölda sem sækir heimaleiki KA og Þórs í handbolta, körfubolta og fótbolta. Fyrstudeildarlið KA er með langmestan áhorf- endafjölda allra handknatt- leiksliða landsins. Ekki er óalgengt að áhorf- endur á heimaleiki liðsins séu 7-800 talsins. Það er sennilega tfu sinnum meiri fjöldi en sést á fyrstudeildar- leikjum f Laugardaishöllinni. # Þórsarar upp! Áhorfendur eru lífsspursmál fyrir félög úti á landi því eins og gefur að skilja fylgir því óhemju kostnaður að þurfa að fara margar ferðir til Reykjavíkur. Reikna má með að hver ferð kosti lið frá Akureyri um 50 þúsund krónur. Tíu ferðir kosta því 500 þúsund. Ef gista þarf á hótelum eykst kosnaðurinn vitanlega enn. Það er þvi ekki aðeins spurn- ing um gildi þess fyrir hand- knattleik á Akureyri ef Þórs- urum tekst að vinna sér sæti f 1. deild, heldur er þetta spurning um fjárhæðir líka. Hætt er við að mikið harma- kvein heyrist frá Reykja- víkurfélögunum ef þau sjá sig tilneydd að fara heilar tvær ferðir út á land!

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.