Dagur - 05.03.1987, Síða 6

Dagur - 05.03.1987, Síða 6
6 - DAGUR - 5; TrHáré f967 i i Akureyri: Oskudagurinn ávallt jafn skemmtilegur söngur, búningar, sælgæti, tunnukóngur „Allir hlæja á öskudaginn/ ó hvað mér finnst gaman þá/ Hlaupa lítil börn um bæinn/ bera poka til og frá." Þcssi lífseigi söngur hljóm- aði skært í gær sem og gjarnan á öskudaginn. Krakkarnir ril'u sig upp eldsnemma, klæddu sig í búninga, máluðu sig og tóku síö- ustu söngæfinguna. Síðan var haldið af stað. Skyldi einhver hafa lokað verslun sinni á öskudaginn eins og einu sinni og frægt er orðið? Vonandi ekki. Margir krakkar byrjuðu um hálf átta að fara í fyrirtæki og syngja fyrir ntann- skapinn. Þá sá ég aö þó nokkur straumur var á Lögrcglustööina fyrir kl. 8, enda lögreglumenn ávallt vel birgir af sælgæti á öskudaginn. Upp úr kl. 9 voru allar verslanir og miðbærinn yfirfull af syngjandi krökkum í skrautlegum búningum. Heilu dagheimilin stormuðu um bæinn í halarófu. Ekki má gleyma tunnubar- smíðunum. Að sjálfsögðu var kötturinn sleginn úr tunnunni og tunnukóngurinn verðlaunaður. Öskudagurinn er einn af skemmtilcgustu dögunum í lífi barnanna og þau nutu hans greinilega óspart. Ekki spillti sælgætið gleði þeirra og auðvitað hafa allir burstað tennurnar vel á eftir því þótt alls kyns fyrirbæri komist á kreik á öskudaginn eiga Karíus og Baktus ekki heima þar. SS

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.