Dagur - 05.03.1987, Side 8
8 - DAGUR - 5. mars 1987
5. mars 1987 - DAGUR - 9
Nemendafundur á föstudegi.
Við göngum gegnum ákveðna þroskabraut frá bernsku til fullorðinsára. Grunnskólakerfið er
miðað við að við fylgjum meðalmennskunni með litlum frávikum, enda gera það flestir.
Skólaskyldan er bæði okkar kvöð og réttindi; þ.e.a.s. þess er krafist af okkur að við hlýtum
henni og um leið eigum við heimtingu á að njóta þeirra mannréttinda sem þessi grunn-
menntun er. En hvað um þá unglinga sem fylgja ekki jafnöldrum sínum eftir í þroska og
þurfa meiri aðstoð en aðrir? Hver eru réttindi þeirra? Ekki fyrir alls löngu frétti ég af því að
rekið væri í Löngumýri 15 einhvers konar skóli fyrir unglinga sem ekki hafa lokið grunn-
skólaprófi - kallað Starfssólinn. F»essi stofnun vakti forvitni mína, því að í allri umræðunni
um unglinga og vandamál þeirra hefur að mestu leyti gleymst að fjalla um þennan hóp; hóp
sem þarf að mæta raunverulegum vandamálum á lífsleiðinni.
Hvað er Starfsskólinn?
Starfsskólinn er sambýli 6 sérkennslu
nemenda og tveggja starfsmanna auk
tveggja stundakennara sem hjálpa
þeim bæöi við nám, í einkalífinu og
úti á vinnumarkaðinum. Pau eru
Magni Hjálmarsson, Elísabet Hall-
dórsdóttir, Valgerður Hrólfsdóttir og
Margrét Rögnvaldsdóttir. Kennslan
fer fram fyrir hádegi og byggist aóal-
lega upp á því að kenna krökkunum
að sjá um sig sjálf á heimili. Fyrir
utan það eru þau í bóklegu námi
tengdu daglegu lífi - leikfimi, handa-
vinnu og tónlist. Eftir hádegi fara
þau til vinnu, öll nema yngsti ein-
staklingurinn. Starfsmennirnir fylgja
þeim eftir út á vinnumarkaðinn, sjá
um að útvega þeim vinnu og veita
aðstoð ef upp koma vandamál á
vinnustað. Fyrir hádegi á föstudög-
um ræsta þau skólann og halda ýmist
hópfund (þar sem síðastliðin vika er
rædd og sambúðarvandamál ef ein-
hver eru), eða fara í stutta vettvangs-
ferð.
En við skulum kynnast krökkun-
um nánar en þau eru eins og áður
sagði 6 talsins:
Nemendur skólans
Helga Helgadóttir er 18 ára gömul.
Hún vinnur á Iðunni við að spýta
mokkaskinn. Hún er í hópbónus á
borði ásámt tveim öðrum stúlkum og
verður því að standa sig. Enda gerir
hún það, hún vinnur hvorki síðri né
léttari störf en hver annar starfs-
maður, að sögn verkstjóra.
Elínborg Tryggvadóttir, 18 ára, fer
einnig til vinnu eftir hádegið, nánar
tiltekið um eittleytið. Hún var sú af
krökkunum sem reið á vaðið hvað
vinnu varðaði. Hún hóf störf í
þvottahúsinu á F.S.A. fyrir rúmu ári
og hefur unnið þar síðan. Nú er Elín-
borg komin með fastráðningu þar.
Að sögn Guðmanns Jóhannssonar,
forstöðumanns þvottahússins, hefur
hún breyst mikið á þessu eina ári,
sjálfstraust hennar hefur aukist jafnt
og þétt og hún er allt önnur mann-
eskja. En Elínborg hefurekki aðeins
breyst sjálf, viðhorf samstarfsfólks
hennar til þroskaheftra hafa einnig
breyst að sögn Guðmanns sem kvað
það þroskandi fyrir alla heilbrigða
menn að vinna með svona fólki og
kynnast því hvað það hefur sjálft
sloppið við. „Ég hef haft margt verra
fólk í vinnu og ég er ánægður með
hana,“ sagði þessi jákvæði maður að
lokum.
Jón Ólafur Daníelsson gengur til
starfa í Slippnum eftir hádegi. Að
sögn Páls Jónssonar verkstjóra þar
vinnur hann sæmilega og gæti jafnvel
gert betur með tilsögn en vegna ann-
ríkis fengi hann kannski ekki þá leið-
sögn sem hann þyrfti. Pað skal tekið
fram að Jón vinnur almenna verka-
mannavinnu á venjulegu kaupi.
Hann er 16 ára og ætlar að byrja að
læra á bíl í sumar.
Olgeir Egilsson (Olli) er yngstur af
krökkunum, aðeins 15 ára. Hann
kemur frá Húsavík og er vistaður á
heimili hérna í bænum. Olli er ekki í
neinni launaðri vinnu eftir hádegi
eins og þau hin. Þess í stað er hann
með þeim Magna og Elísabetu í
smfðum, vefnaði og myndlist til
skiptis, fjóra daga vikunnar. Hann
dvelst yfirleitt heima hjá sér á Húsa-
vík um helgar.
Stefán Thorarensen starfar á Kjöt-
iðnaðarstöð KEA eftir mat. Hann
hefur unnið mjög mikið að íþrótta-
málum í tómstundum sínum, æfir
reglulega borðtennis, boccie og
sund. Hann hefur beitt kröftum sín-
um mikið innan íþróttasambands
fatlaðra og er á góðri leið með að
verða lykilmaður þar - t.d. stendur
til að hann fari tii Færeyja í sumar að
halda námskeið í boccie. Stefán er 18
ára.
Sveinn Kristjánsson er 18 ára og
kemur frá Blómsturvöllum sem eru
rétt utan við Akureyri. Hann er
keyrður í Starfsskólann á morgnana
en svo hjólar hann í vinnuna, hjá Bif-
reiðaverkstæðinu Höldur, eftir
hádegi. „Sveinn er ekki fastráðinn en
Stefán vinnur á Kjötiðnaðarstöð KEA.
Elínborg og Olli í eldhúsinu.
- Líður þér vei hérna í Starfs-
skólanunt?
„Já prýðilega."
- Þú ert í vinnu, við hvað vinnur
þú?
„í þvottahúsinu uppi á Sjúkra-
húsi."
- Hvernigfinnst þér að vinna þar?
„Mér finnst það bara prýðilegt."
- Hvað vinnur þú lcngi hvern
dag?
„Frá eitt til fimm.“
hérna rétt utan við bæinn."
- Hvernig finnst þér að vera hérna
í Starfsskólanum?
„Sæmilegt, það getur stundum ver-
ið erfitt og stundum ekki."
- Hvernig líður venjulegur dagur í
lífi þínu?
„Ég sef heima á nóttunni en svo er
ég keyrður hingað á morgnana.
svona um áttaleytið."
- Þú ert hérna í skólanum fyrir
hádegi. hvenær ferðu svo í vinnuna?
mál hans eru að skýrast," sagði Ósk-
ar Pétursson verkstjóri er ég ræddi
við hann um Svein. „Hann getur vel
unnið strákurinn, en það þarf að
passa að hann hafi alltaf eitthvað fyr-
ir stafni, reyndar getur hann verið
alveg ótrúlega lunkinn og rekur
mann stundum jafnvel á gat.“ Óskar
sagði viðhorf sín til sérkennslu ungl-
inga hafa breyst við að kynnast
Sveini, sér hefði opnast nýr heimur.
Hér á eftir fer spjall sem ég átti við
krakkana sjálfa um lífið og tilveruna.
Skemmtilegast að
hlusta á tónlist
- Hvaðan ert þú Helga?
„Ég er frá Akureyri."
„Ég vinn í skinnunum, við að
spýta skinn."
- Hvernig líkar þér það?
„Bara sæmilega."
- Hvað gerir þú aðallega í frí-
stundum þínum?
„Hlusta á tónlist. það er skemmti-
legast."
- Hvað langar þig að gera í fram-
tíðinni?
„Ég veit það ekki... kannski að
fara til útlanda."
Hlusta á allt
- Þú heitir?
„Elínborg Tryggvadóttir."
- Hvaðan ert þú?
„Ég er frá Akureyri."
Skrifstofa skólastjóra.
- Hvernig finnst þér að vera hérna
í Löngumýrinni?
„Bara ágætt.“
- Hvernig gengur sambúðin?
„Hún gengur bara vel.“
- Hvernig líður dagurinn venju-
lega hjá þér?
„Bara vel.“
- Ég á við hvernig hann gengur
fyrir sig, þú vaknar á morgnana,
hvað svo?
„Ég sef heima, svo vakna ég og fer
hingað í skólann um átta leytið og er
í honum fram að hádegi en eftir
hádegi fer ég í vinnuna og svo heim.“
- Hvar vinnur þú?
„Niðri á lðunn.“
- Við hvað?
Magna Hjálmarsson, skólastjóra
Magni Hjálmarsson, skólastjóri.
- FJvernig starfsemi fer fram
í Starfsskólanum og fyrir hverja
er hann?
„Skólinn byggir á ákvæði í
reglugerð um sérkennslu, 3.
grein, lið C um framhaldsnám á
10. og 11. skólaári, en þar segir:
„Ráðuneytið getur haldið uppi
fræðslu og verklegri þjálfun fyr-
ir ungmenni eftir skólaskyldu-
aldur, sbr. ákvæði 52. gr.
grunnskólalaga...“ Þetta er sem
sagt framhaldsnám fyrir sér-
kennslunemendur, en eins og
flestir vita hafa verið starf-
ræktar sérkennsludeildir um
nokkurt árabil við grunnskóla
Akureyrar. Hafa þær verið til
húsa í flestum hverfisskólunum
frá því fyrst var byrjað að vinna
eftir nýju lögunum."
- Hver er forsaga þessarar
stofnunar og hvenær hófst
starfsemin?
„Forsaga þessarar stofnunar
má segja að hefjist með ýmsum
úrræðum sem voru reynd í tvö
eða þrjú ár fyrir þennan aldurs-
hóp: Var þetta kallað einu nafni
framhaldsdeild sérkennslu, þótt
kennslan hafi verið dreifð út um
allan bæ. Vandinn er sá að eftir
að nemendurnir eru komnir á
þennan aldur er erfitt að vinna
þetta innan grunnskólans, því
þar eru markmiðin önnur og
sérhæfðari. Ég kenndi nokkra
tíma í framhaldsdeildinni svo-
kölluðu veturinn ’84/’85 og var
þá jafnframt í starfshópi sem
reyndi að skilgreina námstilboð
sem kæmu að notum fyrir þessa
nemendur. Við skiluðum af
okkur vorið 1985. Kristín Aðal-
steinsdóttir var sérkennslufull-
trúi á Norðurlandi eystra og for-
maöur áðurgreinds starfshóps
og hún hélt síðan áfram að
vinna í málinu ásamt fyrr-
verandi fræðslustjóra. Þau boð-
uðu til fundar með félagsmála-
stjóra, skólanefndarformanni
og fulltrúum frá svæðisstjórn til
að ræða máiefni þessara
nemenda í maí ’85 og eftir þann
fund var myndaður nýr starfs- -
hópur og hann skilgreindi
markmið Starfsskólans að
Löngumýri 15. Sá starfshópur
var skipaður félagsmálastjóra,
skólanefndarformanni og sér-
kennslufulltrúa. Þessir fulltrúar r
unnu málinu fylgi innan sinna
stofnana og fengu samþykki fyr-
ir því að þetta skyldi vera
tveggja ára tilraunastarf. Þetta
gerðist á met tíma og eiga t.
bæjaryfirvöld hrós skilið fyrir t
stuðning sinn. Ég kem síðan inn .
aftur sem forstöðumaður skól-
ans og við hófum svo starfið
haustið 1985.“
- Hvernig er starfsemin
byggð upp?
„Það er nú erfitt að skýra það
í fáum orðum. Kannski er ein-
faldast að segja að starfsemin sé
blanda af því sem gerist á heim-
ili, í skóla og á vinnustað. Síðan
er stór þáttur fólginn í útvegun
og aðlögun vinnu á hinum
almenna vinnumarkaði."
- Að hverju er stefnt?
„I almennri markmiðslýsingu
skólans stendur þetta: „Megin-
markmið Starfsskólans eru þrjú
og eru skilgreind þannig:
a) Að gera nemendur færa
um sjálfstæða búsetu.
b) Að gera nemendur færa
um þátttöku á almennum
vinnumarkaði.
c) Samhliða þessu hefur skól-
inn alhliða uppeldisleg
markmið, er taka til almennrar
þekkingar, félagslegrar hæfing-
ar, örvunar til allra dáða og efl-
ingar sjálfstrausti. “
Þannig má segja að sé verið
að takast á við að búa nemend-
ur undir lífið sjálft og ekki síst
styðja þá í að stíga fyrstu
skrefin.“
- Sjáið þið árangur erfiðis
ykkar?
„Vissulega er árangur sýni-
legur í því að vel hefur gengið
að fá vinnu fyrir nemendur.
Tíminn verður síðan að leiða í
ljós hve varanleg sú ráðstöfun
er. Eins mætti telja upp fleira
sýnilegt, en við sem vinnum að
skólanum höfum nýlega óskað
eftir því við skólanefnd að hún
láti gera úttekt á verkinu og
meti árangur. Öðruvísi er varla
hægt að tala um marktæka til-
raunastarfsemi."
- Hvað verður svo um
krakkana þegar þau fara
héðan?
„Eins og er búa þau hjá for-
eldrum og gera það sjálfsagt
enn um hríð, flest a.m.k.
Ástæða er til að þakka þær
góðu viðtökur sem þau hafa
fengið hjá verkstjórum og sam-
starfsfólki á vinnustöðum, en
segja má að vinnustaðirnir taki
við af starfi skólans. Menn læra
víðar en í bóklegum skóla og
kannski fræðir hinn aimenni
skóli of lítið um hversdagslífið
utan sinna veggja. Sú vinnu-
miðlun og vinnuvernd, sem
inn hefur sinnt þyrfti að halda
áfram í einhverri mynd, hvort
sem þessi skóli leggst af eða
ekki."
Guðmann og Elínborg fyrir utan þvottahús FSA.
- Hefur þú eitthvert tómstunda-
gaman?
„Já, ég hlusta á útvarp."
- Áttu þér einhverja uppáhalds
útvarpsþætti?
„Nei, ég hlusta á allt."
- Hvað ætlar þú að leggja fyrir þig
í framtíðinni?
„Mig langar til að verða hjúkrun-
arkona."
Stundum erfitt
stundum ekki
- Þú heitir Sveinn?
„Já, Sveinn Kristjánsson."
- Hvar átt þú heima?
„Ég á heima á Blómsturvöllum
„Ég þarf að vera kominn fyrir
eitt."
- Klukkan hvað ferð þú svo aftur
úr vinnunni?
„Það er yfirleitt um hálffjögur."
- Hvað er það skemmtilegasta
sem þú gerir?
„Ég veit það ekki. ætli það sé ekki
að gera við útvörp og segulbönd. Svo
er líka dálítið skemmtilegt að reyna
að ná sem flestum stöðvum á
útvarpstæki."
- Ertu þá með gott loftnet?
„Ég er búin að koma mér upp
sæmilegu loftneti heima. Það er vír
Sjá næstu síðu.