Dagur - 05.03.1987, Síða 15

Dagur - 05.03.1987, Síða 15
Vlí! 'niaf^ 98? - Bjiébft -*15 Fulltrúaráðsfundur B-listans á Akureyri: „Verðum að vinna vel“ - þó málefnastaðan sé góð, sagði Sigurður Haraldsson, kosningastjóri „Málefnastaða okkar fram- sóknarmanna er góð fyrir þess- ar kosningar, en þó er Ijóst að við verðum að vinna vel. Framboðsmál hafa þróast þannig hér í Norðurlandi eystra að reikna má með 8-9 framboðum,“ sagði Sigurður Haraldsson, kosningastjóri B- listans m.a. á fulltrúaráðsfundi vegna kosningaundirbúnings sem haldinn var á Akureyri á þriðjudagskvöld. Sigurður sagði að þegar hefðu verið haldnir 15 framboðsfundir og hefðu þeir yfir höfuð tekist vel. Af því sem framundan er hjá B-listanum nefndi hann fund á Húsavík 9. mars, þar sem Halldór Ásgrímsson yrði ræðumaður ásamt frambjóðendum B-listans í kjördæminu. Þá er reiknað með fundi á Akureyri 2. apríl, sem Steingrímur Hermannsson, for- sætisráðherra mun mæta á, svo eitthvað sé nefnt. Óákveðið er hvort haldnir verða sameiginlegir kosningafundir með framboðs- listunum. Árshátíð framsókn- armanna á Akureyri verður hald- in 15. apríl og þar mun ekki ómerkari hljómsveit en endur- vakið Bítlavinafélag skemmta og leika fyrir dansi. Nú eru ekki nema um sjö vikur til kosninga og hvað úr hverju verður kosningaskrifstofa B-list- ans opin hvern dag og öll kvöld. Á fundinum á þriðjudagskvöld voru kynnt störf nefnda sem vinna að margvíslegum undir- búningi fyrir kosningarnar og hefur mikið starf þegar verið unnið á þeirra vegum. Yalgerður eina konan sem á möguleika Meðal þeirra sem tóku til máls á fundinum var Svavar Ottesen, sem um áratugaskeið hefur starf- að að kosningaundirbúningi fyrir Framsóknarflokkinn. Hann sagði m.a. að nú væri gengið til kosn- inga við óvenjulegar aðstæður, klofningsframboð Stefáns Val- geirssonar og stuðningsmanna hans úr röðum framsóknarmanna væri staðreynd, auk þess sem for- maður nýja Þjóðarflokksins væri einnig úr röðum framsóknar- manna. Hann sagði vægt til orða tekið að sótt væri að Framsókn- arflokknum úr öllum áttum. Kosningabaráttan yrði því erfið og bregðast yrði við af miklum dugnaði og festu. Hann sagði það sitt mat og fleiri að 2. maður á B- lista, Valgerður Sverrisdóttir, væri engan veginn í öruggu sæti. Benda þyrfti á það að hún væri eina konan í kjördæminu sem hefði einhverja möguleika á að komast á þing og að því skyldi stefnt. Lagður grunnur að nýju vaxtarskeiði Helgi M. Bergs sagði m.a. að núverandi ríkisstjórn hefði lagt grunn að nýju vaxtarskeiði í íslensku þjóð- og efnahagslífi. Þjóðin væri búin að færa miklar fórnir á undanförnum árum, svo hægt væri að ná tökum á fjöl- mörgum málum. Þeirri stöðu sem nú væri náð mætti ekki kasta fyrir róða og eina leiðin væri sú að setja x við B á kjördag. Hann ásamt Guðmundi Stefánssyni lagði áherslu á þá málaflokka Auglýsing frá landbúnaðarráðuneytinu um innflutning á kartöfluútsæði. Frestur til að skila umsóknum um leyfi til innflutnings á kartöfluútsæði rennur út 13. apríl 1987. Landbúnaðarráðuneytið, 2. mars 1987. Sigurður Haraldsson. sem ráðherrar Framsóknar- flokksins hefðu unnið að. Um það væri ekki deilt að vel hefði til tekist. Til dæmis sögðu þeir að Jón Helgason, landbúnaðarráð- herra, væri að vinna viðreisnar- starf í sveitum landsins og þar væri líklega á ferðinni eina leiðin sem gæti bjargað sveitunum. Ekki dygði lengur að reka fram- leiðslustefnu, þar sem ekkert væri spurt að því hvað kostaði að framleiða og hvort tækist að selja framleiðsluna. Um þetta væri raunar allir sammála. HS Viljum ráða lipran mann til lagerstarfa og sendiferða Þarf aö hafa bílpróf. Uppl. á staönum. K. Jónsson & Co hf. Niðursuðuverksmiðjan. Atvinna Getum bætt við starfsfólki í skinnaiðnaði á dagvakt. Æskilegt er að viðkomandi hafi náð tvítugs aldri. Mötuneyti er á staðnum. Kannið tekjumöguleikana hjá starfsmannastj óra. IÐNAÐARDEILD SAMBANDSINS (GLERÁRGÖTU 8 AKUREYRI SÍMI (96)21900 (220) % Ný sending af tvíhnepptum karlmanna- fötum frá -(Píalbe Einnig hin ódýru og vinsælu föt í SOFT-sniði, ein- og tvíhneppt. Ljósir samkvæmisjakkar og Blaiser jakkar í öllum stærðum. Stakir jakkar og buxur, skyrtur, peysur, hálsbindi, þverslaufur og margt fleira í miklu úrvali. Klæðskeraþjónusta. VISA Kjólföt - I f. Smokingföt. errabodins— eftir mali Hafnarstræti 92 (Bautahús suðurendi), sími 26708. (afgreiðslufrestur ca. 4 vikur). w Grattan pöntunarlisti Vor- og sumarlisti 1987 kominn Glæsilegri en nokkru sinni fyrr. Verð kr. 250.00, + póstkrafa ATH: Aðeins 500 listar verða seldir fyrir Norðurland Umboð Akureyri sími 96-23126 ■■nnBiB vrsA Stórkostleg verðlækkun á Blöndu 200 mi kr. 13.50 Kjörmarkaður KEA Hrísalundi

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.