Dagur - 05.03.1987, Qupperneq 16
Akureyri, fímmtudagur 5. mars 1987
Mótorverkstœði
StOlum alla bfla með
fiillkominni mótorstfllítölvu
Við Tryggvabraut • Akureyri • Sími 22700
„Búið að semja
við Rússana"
- segir Aðalsteinn Helgason
hjá Iðnaðardeild SIS
„Það er búið að semja um sölu
á 150.000 peysum og 140.000
treflum til Sovétríkjanna. Þá
gerum við okkur vonir um að
hægt verði að semja um sölu á
50 til 70 þúsund peysum í
viðbót,“ sagði Aðalsteinn
Helgason, framkvæmdastjóri
uilariðnaðar SÍS þegar hann
var spurður um sölusamninga
Iðnaðardeildarinnar við Sovét-
menn.
Að sögn Aðalsteins er verið að
vinna að viðbótarsamningi við
Sovétmenn og bíða menn átekta
eftir viðræður Steingríms Her-
mannssonar, forsætisráðherra,
við sovéska forsætisráðherrann,
en í þeim viðræðunt bar sölumál
ullarvara á góma og lýsti sovéski
ráðherrann yfir vilja sínum í þá
veru að meira yrði keypt af
íslendingum.
„Við erum auðvitað vongóðir
eftir þessa niðurstöðu fundar ráð-
herranna. Við vitum þó ekki enn
hvaða tegund ullarvara Sovét-
menn munu kaupa; peysur eða
trefla, né heldur hvenær. f>að
ntagn sent þegar hefur verið sam-
ið um er svipað og undanfarin ár.
Verðið á ullarvörum hefur verið
á niöurleið en það tengist mjög
því verði sem við greiðum fyrir
sovéska olíu. En ef safnningar
nást um verulega söluaukningu
þá getum við frekar sætt okkur
við lægra verð en ella,“ sagði
Aðalsteinn. EHB
Gleraugnagler:
Samræmt verð
- þótt samkeppnin sé „frjáls“
Verðlagsstofnun hefur gert
athugun á samkeppnisháttum
og verðmyndun hjá gleraugna-
verslunum. Niðurstaðan er sú
að gleraugnasalar samræma í
nær öllum tilfellum verð á
þessum vörum sín á milli og
brjóta þar með lög um verðlag,
samkeppnishömlur og órétt-
mæta viðskiptahætti.
Félag gleráugnaverslana hefur
gefið út verðlista yfir gleraugna-
gler og látið verslunum í té og
jafnframt beint þeim tilmælum til
félagsmánna að ekki sé vikið frá
verðlistanum. „Virðist tilgangur
sá að takmarka verðsamkeppni“,
segir í fréttatilkynningu Verðlags-
stofnunar.
Athugunin tók til 13 gler-
augnaverslana í Reykjavík,
Kópavogi, Hafnarfirði og á
Akureyri. í 10 af þessum 13
verslunum, þar af báðum gler-
augnasölunum á Akureyri, var
verð á gleraugnaglerjum nánast
það sama í öllum tilfellum, mun-
urinn var frá 1-15 krónur eftir
tegundum. Verslunin Linsan í
Reykjavík skar sig nokkuð úr og
var verðið þar yfirleitt hærra en
annars staðar en tvær verslanir
aðrar í Reykjavík voru ýmist
ofan eða neðan við viðmiðunar-
verðskrá félagsins.
„Gleraugnasalar hafa í gegn-
um tíðina stuðst við verðlagningu
hjá kollegunum á hinum Norður-
löndunum í sambandi við gler-
augnasmíði almennt. Sl. þrjú ár
höfum við verið að dragast aftur
úr þeim í verðlagningunni og
núna erum við komnir langt und-
ir það verð sem gildir á hinum
Norðurlöndunum,“ sagði Karl
Davíðsson hjá Gleraugnaþjón-
ustunni á Akureyri í samtali við
Dag.
„Til dæmis er síðasta viðmið-
unarverðskrá gefin út í septemb-
er ’86 og yfirleitt er ''erðið miðað
við þýsk mörk. Sá gjaldmiðill
hefur hækkað talsvert síðan en
verðið hjá okkur hefur ekkert
breyst. Þannig að þessi sam-
ræmda verðskrá hefur frekar
áhrif í þá átt að halda verðinu
niðri heldur en hitt,“ sagði Karl.
BB.
I gaer tefldi jiigósiavneski stórmeistarinn Ljubojevic fjöltefli við hátt í 50 skákmenn á Akureyri. Fjölteflið fór
frain í Lóni og voru margir áhugasamir áhorfendur mættir á staðinn til að fylgjast með stórmeistaranum.
Skákirnar stóðu fram eftir kvöldi þannig að við vitum ekki hvernig okkar mönnum gekk, en eins og flestum er
kunnugt gekk Ljubojevic bölvanlega á IBM mótinu í Reykjavík. Mynd: kwi
Gífurlegar nautakjötsbirgðir hjá Sláturhúsum KEA:
„Gæti valdið erfiðleikum
við slátrun næsta haust“
- segir Óli Valdimarsson sláturhússtjóri
Hjá sláturhúsum KEA á Akur-
eyri, Dalvík og Svalbarðseyri
eru nú til gífurlegar birgðir af
nautakjöti og kýrkjöti, alls um
300 tonn að sögn Óla Valdi-
marssonar sláturhússtjóra.
„Þetta er afar slæm staða,“
sagði Óli í samtali við Dag og
sagðist ekki muna eftir öðrum
eins birgðum af nautakjöti hjá
KEA.
Á Akureyri eru birgðirnar um
250 tonn en afgangurinn er að
mestu leyti á Dalvík því litlar
birgðir eru á Svalbarðseyri.
Ástæðan fyrir þessu gífurlega
magni af kjöti er mikil slátrun á
kúm vegna niðurskurðar í mjólk-
urframleiðslu að undanförnu. Óli
sagðist telja að kýrkjötið væri um
það bil helmingur birgðanna. Á
síðasta ári var framleiðsla á ali-
kálfakjöti einnig á hámarki þann-
ig að þetta tvennt hjálpast að.
Birgðir af alikálfakjöti voru strax
um mitt síðasta ár orðnar um 100
tonn.
800 tonnum af frönskum kartöflum smyglað í fyrra?
„Erurn að rannsaka málið“
Óli sagði að kýrkjötið væri
fyrst og fremst ætlað til vinnslu
enda væri það mjög erfitt í sölu,
ekki síst eftir umfjöllun fjölmiðla
á síðasta ári. Hins vegar sagði Óli
að hér væri um að ræða óvenju
gott kýrkjöt því miklu væri slátr-
að af ungum gripum.
- segir Hermann Guðmundsson, fulltrúi
„Viö erum aö rannsaka máliö
og tökum þessa ábendingu
alvarlega eins og aðrar ábend-
ingar sem við fáum,“ sagöi
Hermann Guðmundsson, full-
trúi tollgæslustjóra í Reykja-
vík, þegar hann var spurður
um það hvernig stæði á því að
í viðskiptaráðuncytinu væri
skráður innflutningur franskra
kartaflna í fyrra 400 tonn en
innanlandsneysla á sama tíma
er talin nema 1200 tonnum.
Að sögn Hermanns hafa toll-
verðir ekki orðið varir við til-
raunir til að smygla frönskum
kartöflum í frystigámum innan
um annað grænmeti. Þó væri ekki
hægt að sjá annað af fréttum en
að menn teldu að einhver fótur
gæti vcrið fyrir þessu. Milli 60 og
70% starfsmanna tollgæslunnar í
Reykjavík heföu með höndum
margvíslegt eftirlit með vöruinn-
flutningi og vissulega væri meg-
inhluti þessa innflutnings í
gámum.
„Innflutningspappírar ganga
hér í gegnum skrifstofurnar og
tollverðir velja úr það sem þeir
vilja láta skoða. Því næst tekur
viðkomandi deild við pappírun-
um, ýmist starfsmenn í vöruskál-
um eða starfsmenn úr aðalskrif-
stofunni við Tryggvabraut. Það
er ákveðinn tollaflokkur fyrir
hverja vörutegund fyrir sig,' í
þessu tilviki fryst grænmeti sem
hefur mismunandi tollnúmer.
Eftirlit hjá okkur er fólgið í því
að vara sé rétt tollflokkuð og að
rétt magn vöru sé uppgefið í
hverjunt tollflokki. Ef nokkrar
tegundir grænmetis koma saman
í einum gámi þá er eftirlit okkar
að fylgjast með því hvort magn
og vörutegundir komi heim og
saman við tollskýrslu,“ sagði
Hcrmann.
Fegar Hermann var spurður að
því hvort meiriháttar leit færi nú
fram vegna þessara ábendinga
sagði hann: „Ég myndi nú ekki
orða það þannig en við reynum
að sinna þessu. Við munum gefa
innfluttu, frystu grænmeti aukinn
gaum. Við erum ekki bundnir
þagnarskyldu í ákveðnum málum
þegar misferli á sér stað og við
tcljum okkur hafa upplýsinga-
skyldu gagnvart fjölntiðlum en
segjum ekkert nema við séum
spurðir." EHB
„Vandamálið hjá okkur er
fyrst og fremst plássleysi því allar
frystigeymslur eru fullar. Við
urðum að hætta að slátra naut-
gripum í haust vegna þessa og nú
bíða um það bil 80 gripir, sem
samtals eru 13-14 tonn, slátrun-
ar,“ sagði Óli.
Óli sagði að erfiðlega gengi að
selja fryst nautakjöt og þess
vegna væri nú reynt að slátra
bara eftir hendinni og selja kjötið
jafnóðum. Vegna þessa jukust
birgðirnar ekki í ágúst.
„Ég er að vona að það fari að
ganga á birgðirnar en þetta gæti
þó valdið erfiðleikum við slátrun
næsta haust,“ sagði Óli að
lokum. ET