Dagur - 13.04.1987, Síða 2
2 - DAGUR - 13. apríl 1987
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR, 530 Á MÁNUÐI
LAUSASÓLUVERÐ 50 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERT TRYGGVASON, EGILL BRAGASON,
GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368),
HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
(Húsavík vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
RÚNAR PÓR BJÖRNSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON,
ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauöárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729)
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
leiðarí_______________________________
Hismið frá kjarnanum
Aldrei fyrr í sögu lýðveldisins hafa jafn margir
verið í framboði til Alþingis og nú. Það hafa
heldur aldrei verið jafn margir listar í kjöri. Kjós-
enda bíður því vandasamt verkefni á kjördag,
verkefni sem jafnframt fylgir mikil ábyrgð. Kjós-
endur standa frammi fyrir því að skilja hismið
frá kjarnanum.
Stjórnmálaflokkarnir keppast við að kynna
stefnuskrár sínar og áhersluatriði fyrir kjós-
endum og gylliboðin eru mörg. Ef enginn væri
að lofa upp í ermina á sér, yrði ísland algert
fyrirmyndarríki að loknum kosningum, burtséð
frá því hvaða stjórnmálaflokkar settust að
völdum. Einhvers staðar er því pottur brotinn.
Skoðanakannanir hafa gefið til kynna að hinn
nýi flokkur Alberts Guðmundssonar muni fá
umtalsvert fylgi í komandi kosningum. Þessar
niðurstöður benda til þess að fyrrverandi iðn-
aðarráðherra hafi tekist ótrúlega vel, með
dyggri aðstoð fjölmiðla, að slá ryki í augu kjós-
enda. Eru menn virkilega tilbúnir til að trúa því,
að yfirlýsing Þorsteins Pálssonar um að Albert
Guðmundsson komi ekki til greina sem ráðherra
að loknum kosningum, hafi skapað nýjan hugs-
unarhátt í íslenskri pólitík? Að Borgaraflokkur-
inn sé stjórnmálaafl með nýjar hugsjónir?
A-flokkarnir, Alþýðubandalag og Alþýðu-
flokkur hafa í kosningabaráttunni einbeitt sér
að því að rífa niður það sem vel hefur verið gert
og koma með yfirboð á öllum sviðum. Þessir
flokkar hafa setið við stjórnvölinn oftar en einu
sinni en gefist upp þegar veruleg vandamál
hafa steðjað að. Hvað hefur gerst í þessum
flokkum á síðustu árum sem gerir þá betur í
stakk búna til að takast á við það vandasama
verkefni að stjórna þessu landi? Það er fátt auð-
veldara en að lofa upp í ermina.
Núverandi ríkisstjórn hefur haldið um stjórn-
taumana af öryggi og festu á mörgum sviðum -
ekki öllum. Hvaða ráðherrar hafa skilað sínu
með sóma á kjörtímabilinu? Sverrir Hermanns-
son á að baki skrautlegan og umdeildan feril
sem menntamálaráðherra, Þorsteinn Pálsson
ber ábyrgð á fjárlagahallanum, Ragnhildur
Helgadóttir á kyrrstöðunni í heilbrigðismál-
unum og Matthías Mathiesen hefur ekki haldið
vel á utanríkismálunum. Þar er ólíku saman að'
jafna við sjávarútvegsmálin, efnahagsmálin,
húsnæðismálin og landbúnaðarmálin í höndum
framsóknarmanna.
Kjósendur ættu að gefa sér tíma til að setjast
niður og meta flokkana að verðleikum. Láta
gylliboðin lönd og leið en dæma út frá verk-
unum. Því skrifað stendur: Af ávöxtunum skul-
uð þér þekkja þá. BB.
viðtal dagsins-
„Ég var alveg tóm og er varla
búin að átta mig á þessu
ennþá. En þetta er búinn að
vera alveg ofsalega skemmti-
legur tími en jafnframt erfíð-
ur,“ sagði Þóra Birgisdóttir,
nýkjörin Fegurðardrottning
Norðurlands, er hún var spurð
hvernig henni hefði liðið eftir
krýninguna. Ég gerðist svo
ósvífín að vekja Þóru morgun-
inn eftir krýninguna, en Þóra
brást Ijúfmannlega við og svar-
aði öllum spurningum af ein-
lægni þrátt fyrir að hún hefði
farið seint að sofa. „Ég ætlaði
aldrei að geta sofnað. Þegar
við komum heim eftir krýning-
una fór öll fjölskyldan inn í
eldhús og við fengum okkur
mjólk og köku og það var
yndislegur endir á góðum
degi.“ Ég spurði Þóru hvort
það hefði ekki verið erfítt að
koma fram, sérstaklega á
sundbol.
„Jú, það var það. Sérstaklega
eftir að stelpurnar sem fóru fyrst
inn sögðu við okkur hinar að þær
hefðu verið mældar út af sumum,
en aðrir tekið þeim mjög vel. En
ég held að meira en helmingur af
fólkinu hafi bara horft á andlitin
og ekkert verið að mæla út
skrokkinn á okkur.“
- En þá er það þessi klassíska
spurning. Hvers vegna tókstu
þátt í keppninni?
Þóra Birgisdóttir.
„Sjálfstraustið jókst ifið
að taka þátt í keppninni“
- segir Þóra Birgisdóttir, nýkjörin Fegurðardrottning Norðurlands
„Mér fannst þetta ekkert svo
mikil ákvörðun í sjálfu sér. Alice
hringdi í mig og spurði hvort ég
vildi vera með og ég sagði strax
já, ég var því ekkert búin að velta
því fyrir mér hvort ég ætti að taka
þátt eða ekki. En eftir á mundi ég
segja að ástæðan hafi verið
félagsskapurinn og aukið sjálfs-
traust. Ég hef öðlast alveg gífur-
legt sjálfstraust á þessum þremur
vikum sem undirbúningurinn
hefur staðið. Við vorum í aerobic
æfingum og lærðum að ganga og
koma fram. Bara það að vera
með þessum stelpum eykur
sjálfstraustið. Við vorum allar að
keppa að því sama og fást við
sömu vandamálin. Þetta var góð-
ur og skemmtilegur hópur.“
- Enginn rígur þó þið væruð
allar að keppa að því sama?
„Nei, alls ekki. Þegar stelpurn-
ar voru að óska mér til hamingju
á eftir sögðust þær vera ánægðar
með úrslitin og þær meina það.
En það sem mér þótti allra best
var að íris fer líka í íslands-
keppnina. Mér fannst eiginlega
ennþá betra að hún skyldi fara
suður líka heldur en að ég skyldi
vera valin. Ég var búin að hugsa
með mér hvort ég hefði áhuga á að
halda áfram ef ég sigraði og ég
gat ekki hugsað mér að fara ein.
Undirbúningurinn er líka á svo
slæmum tíma, það er í prófunum
og það er því gott að geta verið
tvær saman í þessu héðan.“
- Hvað finnst þér um gagnrýni
og fordóma sem eru ríkjandi
gagnvart fegurðarsamkeppnum?
„Það hafa auðvitað allir rétt á
að hafa sínar skoðanir. Það pirr-
ar mig ekkert nema þegar verið
er að troða þeim upp á mig, ég vil
hafa mínar skoðanir í friði og er
ekki að troða þeim upp á hvern
sem er. Öll gagnrýni á rétt á sér
en mér finnst verst þegar ég veit
af illu umtali um sjálfa mig. Ég
hef ekki heyrt neitt en veit samt
af því, t.d. í skólanum. Það eru
alltaf einhverjir til að hneyksl-
ast.“
- Heldurðu að von um fyrir-
sætustörf verði til þess að stelpur
taki þátt í svona keppnum. Hefð-
ir þú áhuga á fyrirsætustörfum?
# Kapp er
best
Það virðist ætla að sannast
all rækilega með nýstofnað-
an Borgaraflokk að máltækið
„kapp er best með forsjá“, er
ekki út í bláinn. Það fólk sem
blindað af persónudýrkun
ruddist inn á listana er ekki
öfundsvert af hlutverki sínu
þegar það er beðið að skýra
stefnu flokksins. Þetta varð
tíðindamaður S&S áþreifan-
lega var við þegar hann að
gamni sínu leit inn á sameig-
inlegan framboðsfund flokk-
anna í Menntaskólanum á
Akureyri.
# Verndun
lífs?
Fundur þessi var hinn fjörug-
asti og fjöldi fyrirspurna
barst til frambjóðendanna
sem reyndu að svara af bestu
getu. Þetta gekk auðvitað
misvel og til að mynda vafð-
ist það mjög fyrir efsta manni
S-listans að gera grein fyrir
þeim breytingum sem flokk-
urinn vill gera á reglugerð um
fóstúreyðingar og ófrjósem-
isaðgerðir. Þeir vildu jú tak-
marka fóstureyðingar meira
en verið hefur með það fyrir
augum að vernda líf því
vissulega væri fóstur ekki
annað en tilvonandi mann-
vera. Gott og vel. S&S getur
vel fallist á þessa röksemda-
færslu. En þegar sömu rök
voru færð fyrir takmörkunum
á ófrjósemisaðgerðum fóru
að renna tvær grímur á ýmsa,
þar á meðal aðra frambjóð-
endur.
# Skipti mér
ekki af því
Stúlka ein stóð þá upp í saln-
um og vildi fá nánari svör
hvað varðaði ófrjósemisað-
gerðir. Henni þótti það stinga
í stúf við það mikla frelsi sem
flokkurinn þykist boða, að
vilja takmarka rétt fjögurra
barna móður til að fara í
ófrjósemisaðgerð. Þar væri
jú ekki verið að drepa neinn.
„Nú!“ sagði frambjóðandinn í
forundran og kliður fór um
salinn. Það var svo ekki fyrr
en frambjóðandi Alþýðu-
flokksins vék sér að honum
og sagði að þarna væri um
það að ræða að gera konur
(og karla) ófrjóar án þess að
deyða einn eða neinn, að
frambjóðandinn (og þing-
maðurinn tilvonandi sam-
kvæmt nýjustu skoðana-
könnunum) klykkti út með
þessari fleygu setningu: „Nú!
Ja hún má gera það fyrir mér.
Ég skipti mér ekki af því“.