Dagur - 13.04.1987, Qupperneq 3
13. apríl 1987 - DAGUR - 3
„Já, ég hugsa að það hafi áhrif.
Þó þessi keppni gefi ekki beint
möguleika á fyrirsætustörfum þá
vekur hún auðvitað athygli á
þeim stúlkum sem eru í henni.
Já, ég gæti vel hugsað mér að
prófa fyrirsætustörf. Annars veit
ég ekki hvort ég er tilbúin að
fórna mtnu námi eða seinka því
til að fara út í slíkt því það yrði
aldrei mitt framtíðarstarf. Ég hef
það ntikinn áhuga á að mennta
mig.“
- Ætlarðu að reyna að feta í
fótspor Gígju Birgisdóttur?
„Ég fer bara suður og stend
mig eins vel og ég get. Ég geri
mér engar vonir þar, mér finnst
líka miklu mikilvægara það sem
ég hef gert hérna í mínum heima-
bæ. Ég kvíði því líka svolítið að
taka þátt í keppninni á Broadway
því þar á maður ekkert fylgi. Ég
fann það best í gærkvöld hvað
það var mikilvægt að finna að
fólkið stóð með manni. Það er
mín skoðun að stelpur í svona
keppnum þurfi að hafa sterk bein
og vera mjög ákveðnar og ég er
ekki viss um að ég hafi nógu sterk
bein.“
- En áhugamálin, nú hefur
komið fram að þú ert með vél-
sleða- og fjórhjóladellu?
„Já, það hefur öll fjölskyldan
það áhugamál. Ég fer oft upp á
fjöll og inn á hálendið með
bræðrum mínum eða kærasta og
mér finnst það ofsalega gaman.
Ég hef gaman af allri útivist. Þeg-
ar ég kom á eina af fyrstu æf-
inguna fyrir keppnina var ég búin
að vera á fjórhjóli allan daginn
og kom með stjörnurnar í augun-
um en stelpurnar skildu ekki
hvernig ég gat haft gaman af
þessu. Annars er þetta ekki aðal-
áhugamálið. Ég sit mikið heima
og sauma og það er mitt aðal-
áhugamál. Ég bý til snið eftir eig-
in hugmyndum og ég ætla í fata-
hönnun eftir stúdentspróf, ann-
að hvort til Frakklands eða
Bandaríkjanna."
- En svona að lokum, hvernig
leist kærastanum á úrslitin?
„Hann var mjög ánægður.
Hann sagði mér að eftir keppnina
hefði hann verið alveg búinn að
vera, hann og öll fjölskyldan voru
miklu spenntari en ég. Á fimmtu-
daginn svaf ég fram eftir inorgni
en frænkurnar fyrir sunnan voru
farnar að hringja og spyrja hvern-
ig ég hefði það, þær voru svo
spenntar en ég svaf bara hin róleg-
asta. Amma gamla mætti líka á
krýninguna og mér skilst að hún
hafi skemmt sér manna best.“
-HJS
Fermingarskeytin:
„Við getum ekki
farið í verðstríð"
- segir Tryggvi Marinósson
„Þeir eru að reyna að ná þess-
um markaði, en ég hef varla
trú á því að þetta geti borgað
sig á þessu verði. Eg held að
þeir átti sig ekki á því hvað
markaðurinn hefur minnkað.
Þegar þetta var hvað mest þá
seldust 10-12 skeyti á hvert
fermingarbarn hjá okkur en nú
eru þau 4-5,“ sagði Tryggvi
Marinósson deildarforingi.
Hann vildi meina að Póstur og
sími væri í harðri samkeppni við
skátana og nefndi sem dæmi
auglýsingarnar með nöfnum
fermingarbarna og kynningu á
símskeytunum sem dreift var í
hús. Undanfarin ár hafa skátarnir
haft þann háttinn á að dreifa list-
um í hús, safna skeytaáskriftum
Fermingarskeytin:
„Ekki samkeppni"
- segir Ársæll Magnússon
þarna eru þeir að fara inn á okkar
verksvið," sagði Ársæll ennfrem-
Ársæll Magnússon umdæmis-
stjóri Pósts og síma segir að
ekki sé hægt að tala um sam-
keppni milli Pósts og síma og
skáta, því hér sé ekki um hlið-
stæð skeyti að ræða. Skeytin
sem þeir selja á 100 krónur eru
stöðluð, með fjórum mismun-
andi textum og falla undir verð
á venjulegum 15 orða skeyt-
um. Einnig getur fólk ráðið
textanum sjálft og borgað í
samræmi við orðafjölda.
„Með stöðluðu skeytunum
þarf fólk aðeins að nefna tegund-
ina, nafnið á bárninu og nafn og
símanúmer sendanda. Þetta léttir
á símaþjónustunni, viðskiptavin-
irnir fá fljótari afgreiðslu og slík
skeyti er hægt að panta fyrirfram.
Þetta gildir aðeins í þessu
umdæmi, þetta er hugmynd sem
ég er að reyna. Ég mun fylgjast
með þessu kostnaðarlega og við-
skiptalega og gefa síðan skýrslu
um niðurstöðuna,“ sagði Ársæll.
„Skátarnir eru með þetta á
öðrum grundvelli en við. Við
erum með þetta sent selda þjón-
ustu og auðvitað verðum við að
fá borgað fyrir þessa þjónustu
gagnvart símnotendum almennt.
Ég hef orðið var við það að
skátarnir hafa auglýst síma og
Hann vildi ekki kannast við
samdrátt í sölu fermingarskeyta.
Fyrsti sunnudagurinn hefði frek-
ar gefið vísbendingu um að um
aukningu væri að ræða. Fólk
hefði tekið þessari nýju þjónustu
mjög vel. „Mér finnst það sýna
að við séum þarna á réttri leið
gagnvart viðskiptavinunum,“
sagði Ársæll að lokuni. SS
hjá fólki og haft opna móttöku-
staði, enda rnega þeir ekki taka
skeyti í gegnum síma.
„Þetta er slæmt fyrir okkur því
þetta er fjáröflun sem við treyst-
um á. Þetta er vinnufrek aðferð
og á óþægilegum tíma, fólk er í
fríi og skátarnir sem vinna í þessu
vilja auðvitað helst vera uppi á
fjöllum,“ sagði Tryggvi.
Hann liélt að samdrátturinn
hefði einnig komið illa við Póst
og síma, þetta væri örþrifaráð að
bjóða upp á þessi ódýru skeyti.
Hann sagði einnig að KFUM
hefði verið með skeyti til skamrns
tíma en gefist upp vegna sam-
keppninnar og samdráttarins.
Hann sagði að fólk gæti ráðið
gerð og lengd texta á skátaskeyt-
unum sem kosta 200 krónur, en
100 krónu skeytin hjá Pósti og
síma væru með stöðluðum texta.
„En við getum ekki farið í
verðstríð. Ef við lækkum verðið
getum við bara hætt þessu. Við
tökum ákvörðun urn það eftir
þetta tímabil hvort það sé eitt-
hvert vit í því að halda þessu
áfram,“ sagði Tryggvi að lokum.
SS
Fjölbraut á
Sauðárkróki:
Fram-
sókn með
mesta
fyigið
Á sameiginlegum fundi fram-
bjóöenda í Norðurlandskjör-
dæmi vestra með nemendum í
Fjölbrautaskólanum á Sauð-
árkróki sl. fimmtudag, var birt
niðurstaöa úr skoðanakönnun
sem gerð var meöal nemenda,
um hvaða flokk þeir hygðust
kjósa í komandi kosningum.
Fundurinn var injög vel sóttur
og hinn fjörugasti. Eftir að
einn fulltrúi frá hverjum lista
hafði haldið stutt framsögu-
erindi beindu nemendur
spurningum til frambjóðend-
anna. Fjölmargar fyrirspurnir
komu fram um margvísleg mál
og var ekki laust við að unga
fólkið saumaði svolítið að ein-
stökum frambjóðendum.
Könnunin náði til 68 nemenda,
en alls eru 160 nemenda á
kjörskrá. Framsóknarflokkurinn
hlaut flest atkvæði, 14 eða
20,6%. Alþýðubandalag fékk 10
eða 14,7%. Sjálfstæðisflokkurinn
8 eða 11,8%. Alþýðuflokkurinn
5 eða 7,4%. Listar Borgara-
flokks, Kvennalista og Þjóðar-
flokks 2 atkvæði hver eða 2,8%
og Flokkur mannsins 1 atkv. eða
1,5%. Óákveðnir voru 17, 3 skil-
uðu auðu og 4 sögðust ekki ætla
að kjósa. -þá
Röntgendeild FSA:
Athugasemd
vegna fréttar
AUGLÝSING
UMINNLAUSNARVEF®
VEFÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00
1980-1. fl. 15.04.87-15.04.88 kr. 1.338,78
*lnnlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
Innlausn spariskírteina ríkissjóösferfram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Hafnarstræti 10, og liggja þarjafnframtframmi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, apríl 1987
SEÐLABANKIÍSLANDS
Vegna fréttar í Degi sl. föstudag
um Röntgendeild FSA, viljum
við undirritaðir koma á framfæri
eftirfarandi athugasemdum:
Það er ranglega eftir haft að
ólíklegt sé að framkvæmdir hefj-
ist við nýja Röntgendeild á þessu
ári. Þvert á móti var það sagt að
framkvæmdir yrðu hafnar á
árinu. Þá var einnig rangt sem
eftir var haft um hönnun deildar-
innar. Hið rétta er, að þegar hef-
ur verið unninn stór hluti
hönnunar og lýkur henni á þessu
ári.
Forstöðumaður Tæknideildar
upplýsti blaðamann um röntgen-
tækin, til hvers konar rannsókna
þau væru notuð og hve gömul
þau væru og hve vinnuaðstaða er
slæm. Einnig var meiningin sú,
að vegna aldurs tækjanna og bil-
anatíðni væri ekki hægt að halda
öllu lengur áfram skoðun sjúkl-
inga, án þess að endurnýja bún-
aðinn. Hvað varðar geislahættu
eru tækin skoðuð reglulega af
Geislavörnum ríkisins og er þá
gerð krafa um að geislun sé í lág-
marki. Væri geislun ofan þessara
marka hefðu tækin þegar verið
tekin úr notkun að kröfu yfir-
manns Tæknideildar og Geisla-
varna ríkisins. Ef svo væri ekki,
væri hlutaðeigandi yfirmaður
ekki starfi sínu vaxinn og stæði í
sömu sporum og íslensku-
fræðingur ríkisútvarpsins forðum
daga.
Gunniaugur Jóhannsson, for-
stöðumaður Tæknideildar FSA,
Vignir Sveinsson, skrifstofustjóri
FSA.
Úrval af gjafavöru
Nýjar vörur streyma inn
I feríð velkomin
HAGKAUP Akureyri