Dagur - 13.04.1987, Qupperneq 9
Umsjón: Kristján Kristjánsson
13. apríl 1987 - DAGUR - 9
fslandsmótið í kraftlyftingum:
Magnús Ver vann
besta afrek mótsins
- Aðalsteinn Kjartansson sigraði í 67,5 kg flokki
Magnús Ver Magnússon frá
UIA vann besta afrekið í
karlaflokki á íslandsmótinu í
kraftlyftingum sem fram fór í
Bæjarbíói í Hafnarfirði á laug-
ardaginn. Magnús setti
Islandsmet í hnébeygju í 125
kg flokki, lyfti 365.5 kg en
eldra metið átti Jón Páll Sig-
marsson. Magnús lyfti samtals
915 kg sem er þriðji mesti
þungi sem lyft hefur verið á
móti hériendis. Halldór
Eyþórsson KR setti íslandsmet
í hnébeygju í 90 kg flokki, lyfti
310.5 kg.
Tveir keppendur frá Akureyri
tóku þátt í mótinu, þeir Flosi
Jónsson og Aðalsteinn Kjartans-
son og sigraði Aðalsteinn í 67.5
kg flokki. í kvennaflokki náði
Sigurbjörg Kjartansdóttir bestum
árangri, hún setti þrjú íslandsmet
og jafnaði eitt. Hún lyfti samtals
365 kg sem er besti árangur sem
náðst hefur í kvennaflokki. Nína
Óskarsdóttir setti tvö íslandsmet,
og Sjöfn Jónsdóttir einnig og Eín
Ragnarsdóttir setti eitt met.
Sigurvegarar í einstökum
flokkum urðu þessi, fyrst kemur
árangur í hnébeygju, þá bekk-
pressu, síðan í réttstöðulyftu og
loks í samanlögðu:
Kvennaflokkur:
52 kg flokkur:
Sjöfn Jónsdóttir 100-47.5-105-252.5
56 kg flokkur:
Unnur Jónsdóttir 80-50-100-230
60 kg flokkur:
Nína Óskarsdóttir 100-60-140-300
67.5 kg flokkur:
Sigurbjörg Kjartansdóttir 135-85-145-365
75 kg flokkur:
Elín Ragnarsdóttir 130-70-160-360
Karlaflokkur:
67.5 kg flokkur:
Aðalsteinn Kjartansson 145-65-185-395
75 kg flokkur:
MárÓskarsson 200-110-220-530
82.5 kg flokkur:
Jón Gunnarsson 275-155-280-710
90 kg flokkur:
Halldór Eyþórsson 310.5-157.5-282.5-750.5
100 kg flokkur:
Gunnar Hreinsson 280-160-290-730
110 kg flokkur:
Hörður Magnússon 350-192.5-310-852.5
125 kg flokkur:
Magnús Ver Magnússon 365.5-215-335-915
-JHB/KK
Bikarkeppni HSI:
Stjaman vann Fram
Stjarnan varð bikarmeistari í
handknattleik karla er liðið
sigraði Fram í gær með 26
mörkum gegn 22 eftir fram-
lengdan leik. Eftir venjulegan
leiktíma var staðan 19-19 og
hafði Fram unnið upp þriggja
marka forskot Stjörnunnar á
innan við þremur mínútum.
Stjarnan hafði yfir í hálfleik,
12-9. í framlengingunni voru
Stjörnumenn mun ákveðnari
og sigruðu verðskuldað 26-22.
Sigmar Þröstur átti stórleik í
marki Stjörnunnar og Gylfi og
Sigurjón voru drjúgir í sókninni.
Leikur Fram var ærið köflóttur,
en liðið barðist vel.
Á undan þessum leik léku
Fram og FH til úrslita í bikar-
keppni kvenna og lauk þeim leik
með sigri Fram, 14-13, eftir að
staðan hafði verið 7-2 í hálfleik,
Fram í vil. Sigurmarkið var gert
10 sekúndum fyrir leikslok.
Njarðvíkinqar bestir
Njarðvíkingar sýndu það og
sönnuðu á föstudagskvöld að
þeir eru með langbesta körfu-
knattleiksliðið í ár. Þá unnu
þeir Valsmenn mjög örugglega
í úrslitum bikarkeppninnar,
91:69.
Þetta var fimmta atlaga Njarð-
víkinga að bikarnum og loksins
nú hafðist sigur. Áður hafði
Njarðvíkurliðið tryggt sér bæði
úrvalsdeildar- og Islandsmeist-
aratitilinn.
í bikarkeppni kvenna sigraði
KR ÍBK 65:61 í spennandi leik.
Uppskeruhátíð HKRA
Uppskeruhátíð Handknatt-
leiksráðs Akureyrar fer fram í
Félagsborg, sal starfsmanna-
félags SIS, á morgun, þriðju-
daginn 14. apríl og hefst kl.
17.30.
Veitt verða verðlaun fyrir sigra
á mótum á vegum HKRA á þessu
keppnistímabili. Þau eru Haust-
mót, Vormót og Akureyrarmót í
6. flokki A,B og C, 5. flokki A,B
og C, 4. flokki A og B, 3. flokki
og 2. flokki.
Allir eru hvattir til að mæta.
Aðalsteinn Kjartansson sigraði í sínum flokki á íslandsmótinu í kraftlyfting-
um á laugardaginn.
Ársþing UMSS
Ám*.!
Deilt um fjar-
magnið úr Lottóinu
Ársþing UMSS það 67. í röð-
inni var haldið á Sólgörðum í
Fljótum nýlega. Það sátu 43
fulltrúar frá 7 aðildarfélögum.
Fyrir þinginu lágu umsóknir frá
2 félögum um inngöngu í sam-
bandið og voru þær samþykkt-
ar. Aðildarfélögin eru því orð-
in 14, með nýju félögunum,
sem eru Neisti nýstofnað
íþróttafélag á Hofsósi og í ná-
grenni og íþróttadeild hesta-
manna í Skagafirði.
Miklar umræður urðu um
skiptingu fjármagnsins sem kem-
ur úr Lottóinu milli sambandsins
og félaganna og skoðanir skiptar.
Að lokum náðist samkomulag
sem gildir til eins árs. Samkvæmt
því fer 20% til Ungmennasam-
bandsins, 5% í sérstakan afreks-
mannasjóð og 75% skiptast milli
félaganna eftir ákveðnum
reglum. Þar er m.a. farið eftir
starfsemi félaganna, kennslu-
styrkjum frá UMFI og íbúafjölda
á svæðinu.
Ýmsar tillögur kornu fram á
þinginu, m.a. að athugað verði
með möguleika á að koma á fót
sumarbúðum fyrir börn. Starf-
semi sambandsins var með líku
sniði á síðasta ári og undanfarin
ár.
Gestir frá UMFÍ komu á
þingið; þeir Pálmi Gíslason for-
maður, Sigurður Þorsteinsson
framkvæmdastjóri og Hörður
Óskarsson starfsmaður og einnig
Guðjón Ingimundarson heiðurs-
félagi.
Þau Örn Þórarinsson og- Ingi-
björg Guðjónsdóttir gáfu ekki
kost á sér í stjórn áfram og í
þeirra stað var Sveinbjörn Njáls-
son á Hólurn kosinn formaður og
Ragna Hjartardóttir á Sauðár-
króki meðstjórnandi. Aðrir í
stjórn eru; Helga Gígja Sigurðar-
dóttir Ökrum, Sigfús Jónsson
Fagranesi og Stefanía Guð-
mundsdóttir Hofsósi. -þá
Magnús Eiríksson sigraði í flokki
35-49 ára í Fjarðargöngunni.
Haukur Eiríksson sigraði í tlokki
17-34 ára. Mynd: KK
★ Sturtuklefar.
★ Sturtuhorn.
★ Sturtuvinklar.
★ Sturtuhurðir.
Mjög hagstætt
verð t.d. sturtu-
vinklar verð frá
kr.
10.515.-
BYGGINGAVORUR
Glerárgötu 36
Akureyri, sími 96-21400