Dagur - 13.04.1987, Side 16
MIB,
Akureyri, mánudagur 13. apríl 1987
k
Hvad ertu bráðlátur?
cPedí6myndir’
Viltu fá myndirnar þínar
eftir 3, 2 eöa 1 klukkustund?
Til þjónustu reiðubúin.
Hafnarstræti 98 - Akureyri Sími 96-23520.
Röntgendeild FSA:
Sjúklingar
ekkí í hættu
„Tækin geta hrunið hvenær sem er,“
segir Sigurður Ólason yfirlæknir
„Það er rétt að ef við hefðum
ekki svona góða tæknimenn þá
væru þessi tæki ekki í notkun.
Arlegar mælingar Geislavarna
ríkisins hafa sýnt lítils háttar
ónákvæmni í tækjunum en að
tækin séu hættuleg er beinlínis
firra. Skýrslur okkar sýna líka
að fjöldi myndataka í hverju
tilfclli er ekki meiri en eðlilegt
er,“ sagði Sigurður Ólason
yfirlæknir á Röntgendeild FSA
í samtali við Dag.
„Hitt er geigvænlegt að þessi
tæki geta hrunið niður hvenær
sem er og þá erum við alveg
röntgendeildarlaus. Þar með
verða aðrar deildir sjúkrahússins
nánast reknar. Pað sama gerist
auðvitað ef uppsagnir röntgen-
tækna koma til framkvæmda. Ég
vil helst ekki hugsa svo langt,“
sagði Sigurður.
Sigurður sagði að hönnun deild-
arinnar hefði staðið yfir í mörg ár
og væri nú að mestu lokið. Vegna
skorts á fjármagni hafa fram-
kvæmdir hins vegar ekki getað
hafist við innréttingar á húsnæði
því sem staðið hefur tilbúið í
fjögur ár.
Að sögn Sigurðar hefur dregist
úr hörnlu að endurnýja tækin
vegna þess að flutningar hafa
staðið fyrir dyrum lengi og því
ekki talið rétt að koma nýjum
tækjum fyrir í gamla húsnæðinu.
Á vegum Geislavarna ríkisins
er haldið uppi árlegu eftirliti með
röntgenbúnaði á sjúkrastofnun-
um. Búnaður FSA var skoðaður
síðastliðið sumar. Niðurstöður
þeirra mælinga sýndu að búnað-
urinn var ekki í fullu samræmi
við þær reglur sem í gildi eru,
einkum hvað snerti stöðugleika
geislunar.
„Pað er ekkert sent bendir til
þess að sú geislun sem sjúklingar
á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri verða fyrir við rannsóknir, sé
meiri en á öðrum sjúkrahúsum á
landinu, þvert á móti,“ sagði
Sigurður Magnússon forstöðu-
maður Geislavarna ríkisins í
samtali við Dag.
I sumar var einnig gerð athug-
un á framköllunarbúnaði sjúkra-
húsa og reyndust þau tæki á FSA
vera mjög góð.
Auk þessa árlega eftirlits fara á
tveggja mánaða fresti fram mæl-
ingar á þeirri geislun sem starfs-
fólk deildanna verður fyrir. Sú
geislun sem starfsfólk Röntgen-
deildar FSA verður fyrir er undir
landsmeðaltali og alþjóðlegum
mörkum að sögn Sigurðar Magn-
ússonar. ET
Schönanader model ’55 made in Sweden albesta röntgenmyndavélin á FSA.
Við hliðina á gripnum stendur Laufey Baldursdóttir röntgentæknir. Mynd: ET
Þrotabú KSÞ Svalbarðseyri:
Enginn
23 millj.
„Það er ekkert Ieyndarmál að
enginn eigandi hefur fundist að
þessu skuldabréfi,“ sagði Skúli
J. Pálmason, lögfræðingur
Samvinnubanka Islands í
Reykjavík, þegar hann var
spurður að því hvort hann gæti
staðfest að enginn hefði gefið
sig fram sem eigandi að veð-
skuldabréfi með allsherjarveði í
eigum KSÞ Svalbarðseyri.
Bréfið, sem er að upphæð 23
milljónir króna, gengur undir
nafninu „huldubréfið“ meðal
kunnugra.
Baldvin Jónsson, lögfræðingur
Áburðarverksmiðju ríkisins,
eigandi finnst að
króna skuldabréfi
staðfesti um daginn að hann
hefði áskilið sér rétt til að rann-
saka þetta mál og fleiri auk þess
sem hann gerði kröfu til riftunar.
Mál þetta er allt hið einkenni-
legasta og hefur vafist fyrir lög-
fræðingum í langan tíma. Bréfinu
var þinglýst 10. desember 1985
hjá embætti sýslumannsins í
Þingeyjarsýslu og það skráð á
nafn Iðnaðarbanka íslands hf.
Frumrit bréfsins var lengi týnt þó
vitað væri um tilvist þess af
nokkrum mönnum en að sögn
fannst það eftir langa mæðu í
Samvinnubankanum í Reykja-
vík. Pað furðulega í þessu máli er
að bæði Iðnaðarbanki og Sam-
vinnubanki neita að gangast við
bréfinu.
Eignirnar, sem veðsettar eru
samkvæmt „huldubréfinu", eru
reykhús, sláturhús, Smáratún 5
n.h., kartöfluverksmiðja og lóðir
á Svalbarðseyri. Engin krafa er
vegna þessa skuldabréfs í kröfu-
lýsingaskrá vegna þrotabús KSP
enda næði hún ekki fram að
ganga þar sem hún er gefin út eft-
ir 1. október 1985, en allar veð-
skuldir teknar eftir þann tíma
hafa verið afmáðar. Ekki er vitað
til þess að skuldabréf þetta hafi
verið selt eða hvort eða hvernig
því hafi verið skipt eða látið fyrir
einhver verðmæti. EHB
Seinkun á afhendingu
Björgúlfs EA:
Stöðin krefst
4ra milljóna
hærri greiðslu
-vegna tafa sem urðuá
að varahlutir bærust.
Mönnum eru í fersku minni
þær seinkanir sem uröu á
afhendingu togara Útgerðar-
félags Skagfirðinga frá skipa-
smíðastöð í Þýskalandi á síð-
asta ári. Seinkanir sem þessar
eru ekki óalgengar þegar
erlendar skipasmíðastöðvar
eiga í hlut og nú á Utgerðar-
félag Dalvíkinga í stappi við
skipasmíðastöð í Hollandi
vegna breytinga á togaranum
Björgúlfi.
Björgúlfur átti að sigla af stað
heim á föstudaginn fyrir rúmri
viku og var búist við skipinu á
veiðar um miðjan mánuðinn.
Vegna tafa sem urðu á að ýmsir
vélarhlutar bærust til stöðvar-
innar hafa orðið talsverðar seink-
anir á að verkinu ljúki. Tafirnar
urðu að sögn Valdimars Braga-
sonar framkvæmdastjóra UD
mest 11 dagar en seinkun verks-
ins er orðin mun meiri en því
nemur.
Vegna þessa alls hefur skipa-
smíðastöðin krafist hærri greiðslu
fyrir verkið en upphaflega var
samið um og er hækkunin um 4
milljónir íslenskra króna. Valdi-
mar er nýkominn að utan þar
sem hann reyndi án árangurs að
ná samningum og á föstudaginn
hélt hann til Hollands að nýju
með lögfræðing í för með sér.
Að sögn Valdimars eru engin
ákvæði um það í lögum að eigandi
skips eigi að bera kostnað af
seinkun sem þessari.
Valdimar sagðist búast við að
vera í Hollandi fram að páskum
en vonaðist tii að skipið kæmist
af stað fyrr. Sú vinna sem eftir
er felst í frágangi á aðalvél.
Áhöfn Björgúlfs hefur dvalist í
Hollandi í tíu daga og mun bíða
þess að verkinu ljúki. ET
Deildafundir Kaupfélags Eyfirðinga:
Eðlileg veltuaukning
- en afkoman versnaði
Velta Kauplelags Eyflrðinga
þróaðist með eðlilegum hætti á
síðasta ári, eða jókst um
23,3% á sama tíma og talið er
að verðbólgan hafi verið
22-27%. Launagreiðslur námu
592 milljónum króna og var
aukning þeirra frá fyrra ári
rösklega 34%. Vegna þessa
hefur afkoma kaupfélagsins
versnað milli áranna 1985 og
1986, en ekki er ennþá Ijóst
hver heildarniðurstaðan
verður. Stafar það af því að
ekki verður vitað hvaða áhrif
lækkun vaxtakostnaðar mun
hafa á móti hækkun launa-
kostnaðar fyrr en við lokaupp-
gjör, sagði Valur Arnþórsson,
kaupfélagsstjóri m.a. á sam-
eiginlegum deildafundi Akur-
eyrar- og Glerárdeildar fyrir
helgina. Hann sagði það
umhugsunar- og áhyggjuefni
að velta félagsins hefði ekki
aukist að raunvirði á árunum
1982-1986, sem líklega stafaði
fyrst og fremst af samdrætti í
hinum dreifðu hyggðum.
Valur nefndi nokkra þætti sem
hefðu dregið veltuaukninguna
niður í krónum talið, s.s. olíu-
verðslækkun og lækkað gengi
Bandaríkjadollars. Þá var óeðli-
lega lítil veltuaukning hjá sjávar-
afurðadeild vegna bilunar Snæ-
fells í 4 mánuði. Aukning varð á
veltu í þjónustu, einkum vegna
„veltusprengingar“ hjá Hótel
KEA vegna stækkunar þess.
Á verslunarsviði varð veltu-
þróun viðunandi en afkoman
hins vegar ákaflega misjöfn eftir
verslunum og sagði kaupfélags-
stjóri greinilegt að halda þyrfti
áfram að hagræða rekstrinum.
Stóru búðirnar koma best út og
þola hina gífurlegu samkeppni,
en viðvarandi hallarekstur er á
minni búðunum. Pær búðir sem
besta afkomu hafa eru Hrísa-
lundur, þrátt fyrir lágt vöruverð,
Byggðavegur og Svarfdælabúð.
Matvörudeildin var í heild vel
yfir strikinu, en þar hafa átt sér
stað miklar skipulagsbreytingar.
Stórbætt aðstaða byggingavöru-
deildar olli verulega meiri veltu-
aukningu en reiknað var með,
eða 45,8%. Hallarekstur var á
kjöt- og kartöfluiðnaði á Sval-
barðseyri en verslunin var á núlli.
í iðnaði var veltuaukningin
34,7%, en ekki nema 10,5% í
sjávarútvegi, bæði vegna bilunar
Snæfells og því að seldur var
meginþorri skreiðarbirgða og
Frá sameiginlegum deildafundi Akureyrar- og Glerárdeildar um helgina.
minna verð fékkst fyrir en reikn-
að hafði verið með.
Valur sagði, að þó birgðastaða
félagsins hefði lagast þegar á
heildina væri litið, þá væri meira
en milljarður bundinn í birgðum.
Nokkurt birgðavandamál er í
landbúnaði, einkum á nautakjöti
og 7-8 mánaða birgðir eru til af
ostum hjá Mjólkursamlagi KEA.
„Ég hef það á tilfinningunni að
þetta sé á uppleið hjá okkur.
Þetta ætti hins vegar að vera okk-
ur lærdómsrík áminning unt það
að kaupfélagið er ekki eilíf og
sjálfvirk stofnun, sem sífellt get-
ur hlaðið á sig pinklum, heldur
fyrirtæki sem þarf sjálft að sjá sér
farborða efnahagslega,“ sagði
Valur Arnþórsson. HS