Dagur - 28.04.1987, Qupperneq 8
8 - DAGUR - 28. apríl 1987
Laus staða
Laus er til umsóknar hálf dósentsstaöa i matvælafræði við
efnafræðiskor raunvísindadeildar Háskóla íslands. Aðal-
kennslugreinar eru matvælaefnagreining, og gæðamat og
matvælalðggjöf.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf
umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og
störf, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu
6, 150 Reykjavík, fyrir 20. júní n.k.
Menntamáiaráðuneytið. 24. apríl, 1987.
Stanslaust fjúr
úmntarufflákoMr
I Ibizaferðum Polaris er stanslaust fjör allan sólar-
hringinn enda eru ferðimar miðaðar við þarfir þeirra
hressu og Iffsglöðu. Farið er í ökuferðir og siglingar, á
sjóskíði og seglbretti, I fótbotta og hjólatúra og ævin-
týraþorstanum er svalað á diskótekum og nætur-
ktúbbum.
Skrautlegur hópur sóldýrkenda þyrpist til Ibiza á
sumri hverjuþví þar er rigning nánast óþekkt fyrirbæri
og svalandi hafgolan dregur úr mesta hitanum.
Gististaðir Polaris, Jet Bossa og Migjorn, eru við
hina frægu Playa d’en Bossa strönd, rétt við sjálfa
Ibizaborg, einhverja litrfkustu ferðamannaborg Evrópu.
Og það besta við Ibizaferðir Polaris er verðið, sem
er ákaflega hagstætt. Dæmi: 17 dagar og fjórir í fbúð
á Migjorn kosta aðeins frá kr. 30.700,-
SkellPuþérwð!
FERDASKRIFSTOFAN
POLAR/S
Kirkjutorgi 4 Sími622 011
Minningarorð
Séra Benjamín Kristjánsson
á Laugalandi
Fæddur 11. janúar 1901 - Dáinn 3. apríl 1987
Séra Benjamín Kristjánsson fyrrverandi
sóknarprestur í Grundarþingum og
prófastur Eyjafjarðarprófastdæmis
andaðist 3. apríl sl. og var jarðsettur að
Munkaþverá 11. apríl.
Hann var næstelstur tólf systkina á
Ytri-Tjörnum í Eyjafirði, sonur Krist-
jáns Benjamínssonar bónda og hrepp-
stjóra og Fanneyjar Friðriksdóttur frá
Brekku, konu hans og þar ólst hann upp
í hinni stóru og samhentu fjölskyldu.
Benjamín ólst upp á tímum orfs og
hrífu, á meðan enn heyrðist enginn
véladynur í sveitum þessa lands. Hann
lifði sjálfur sannindin um nauðsyn lík-
amlegrar orku til að vinna fyrir sér og
sínum, svo sem verið hafði um allar
aldir, allt þar til vélvæðing festi rætur.
Og löngu áður en ég kynntist honum
sem sóknarpresti í Eyjafirði hafði ég
heyrt af honum sögur, sem miklum
vaskleikamanni við hin ýmsu störf, er
hann enn var í föðurgarði og var m.a. til
þess tekið hver afburða sláttumaður
hann hefði verið. Og hann var vaskur á
fleiri sviðum, snemma bókhneigður og
námfús með afbrigðum. Varð því náms-
brautin fyrir valinu, strax á ungl-
ingsárum. Hann treysti gáfum sínum og
dugnaði til utanskólanáms að verulegu
leyti, enda lítill auðurinn þá í fjölmenn-
um ættargarði hans á Ytri-Tjörnum.
Stúdent varð hann 1924 og guðfræð-
ingur 1928. Hafði hann þó um hríð
stundað háskólanám í Kaupmannahöfn.
Að guðfræðinámi loknu lá leið séra
Benjamíns vestur um haf og var hann
prestur í Winnipeg næstu fjögur árin en
vígðist til Grundarþingaprestakalls í
Eyjafirði, haustið 1932, átti fyrst heima
á Ytri-Tjörnum en síðan á Syðra-
Laugalandi, sem um þær mundir var
gert að prestssetri. Asamt prestskap
hafði séra Benjamín löngum á hendi
kennslu við Húsmæðraskólann á
Laugalandi og vann einstaklega mikið
fyrir þá stofnun.
Séra Benjamín Kristjánsson var vin-
sæll prestur og naut óblandinnar virð-
ingar í sóknum sínum, bæði sem kenni-
maður, fræðimaður og rithöfundur.
Hann var í senn afkastamikill, fjölhæfur
og vandvirkur, enda til margra trúnað-
arstarfa kjörinn, utan kirkju og í mörg-
um efnum svo sem sjálfsagður andlegur
foringi í Eyjafirði. Til hans var leitað
þegar vanda þurfti til hins talaða orðs á
mannamótum og honum var öðrum bet-
ur treyst til að halda á penna til sóknar
og varnar þegar inálefni færðust á rit-
völlinn.
Eiginkona séra Benjamíns var Jónína
Björnsdóttir frá Karlsstöðum í Fljótum,
mikilhæf kona og hin ágætasta húsmóð-
ir. Sonur hennar og stjúpsonur prests er
Björn Ingvarsson yfirborgardómari í
Reykjavfk, sem snemma var þroska-
mikill gerðarmaður. Hann kvæntist
Margréti Þorsteinsdóttur frá Reyðar-
firði og eignuðust þau þrjá syni. Fóstur-
dóttir prestshjónanna er Þóra Björk
Kristinsdóttir hjúkrunarfræðingur og
húsmóðir, hinn besti kvenkostur, gift
Jósef Þorgeirssyni framkvæmdastjóra á
Akranesi. Þau hjón eiga einnig þrjá
syni.
Um 1940 flutti ég og fjölskylda mín í
næsta nágrenni prestshjónanna á Syðra-
Laugalandi og vorum við nágrannar all-
mörg næstu árin. Góðir voru grannarnir
í þeirri sveit, bændur á næstu bæjum og
fjölskyldur þeirra. Þar var lifað og starf-
að í anda samhjálpar og samvinnu og
mikilla framfara. Allir áttu kindur, kýr
og hesta, tún stækkuðu með ári hverju,
flæðiengin gáfu kúgæft hey og ýmsir
bændur drýgðu tekjur sínar með torf-
ristu til einangrunar í hús. Aldrei varð
þurrð á umræðuefnum þar sem tveir eða
fleiri hittust við kaffiborð eða í kaup-
staðarferð, svo fjölþætt voru hin dag-
legu viðfangsefni, svo mörg og ólík
áhugaefnin. Enginn þurfti að trénast í of
einhæfum störfum. En ef einhverjum
leiddist gat hann tekið sér far til Akur-
eyrar með mjólkurbílnum. Mjólkurbíl-
ar sveitanna voru svo sem engar hrað-
lestir, en samt sem áður lestir síns tíma,
flytjandi mjólk og nær allar aðrar vörur,
fólk og póst. Þar blönduðu menn geði,
deildu fréttum. Einn var sá húsráðandi í
allri sveitinni, sem engan átti bústofninn
og fyrir löngu var hættur að bera ljá í
jörð og það var séra Benjamín Krist-
jánsson prestur á Syðra-Laugalandi.
Gott var að heimsækja nágranna mína
og þeirra er heiðurinn af því að hafa um
langa tíð talist meðal bestu bænda þessa
lands. í engu er á þá hallað þótt hærra
virtist undir loft á prestssetrinu,
umræðuefni víðfeðmari og háttvísi fág-
uð í samræðum. Fræðandi frásagnir lágu
lausar á tungu prests og jákvæðar
umræður um menn og málefni voru ein-
kennandi í prestsstofunni á Syðra-
Laugalandi. Mér fannst, að hver og einn
hlyti að ganga betri maður af fundi
þessa gáfaða og víðsýna kennimanns, en
hann kom.
Séra Benjamín Kristjánsson var mik-
ill ræðumaður í kirkju og utan, flutti
mál sitt á eilítið sérstæðan hátt, sem
sumum féll ekki í fyrstu. Hann var
vandvirkur í ræðugerð, sem á öðrum
sviðum, stundum e.t.v. örlítið fjarrænn
og fræðimannlegur, einnig í fyrstu, pers-
ónulegum kynnum. En í raun var hann
hartahlýr og mikill drengskaparmaður
að allri gerð. Því kynntust þeir vel, sem
minni máttar voru.
Meðal ritverka séra Benjamíns Krist-
jánssonar voru fjögur bindi af Vestur-
íslenskum æviskrám. Miklu hafði hann
safnað til þess verks að auki og er það í
handriti. Dvöl hans vestra mun hafa
vakið með honum áhuga á þessari sögu-
ritun. Eyfirðingabækurnar hans geyma
mikinn fróðleik um margvísleg efni og
til merkari verka hans eru, íslenskir
guðfræðingar 1 og Saga prestaskólans.
Auk þess var hann sískrifandi í blöð
og tímarit því áhugi hans var margþætt-
ur, maðurinn ágæta vel ritfær og bar-
áttuglaður ef svo vildi verkast.
Séra Benjamín Kristjánsson lét af
prestskap í árslok 1967. Þá fluttu þau
hjónin til Reykjavíkur, þar sem Jónína
Björnsdóttir andaðist 9. desember 1977.
Þá hafði prestur verið vanheill um
skeið. Hann dvaldi nú öðru hverju hjá
Þóru Björk fósturdóttur sinni á Akra-
nesi, einnig hjá séra Bjartmari Krist-
jánssyni bróður sínum og Hrefnu Magn-
úsdóttur konu hans á Syðra-Laugalandi,
en síðustu árin dvaldi séra Benjamín á
Kristnesspítala og andaðist þar.
Séra Benjamín Kristjánsson var
landskunnur lærdómsmaður, ástsæll
klerkur og sífrjór hugsjónamaður. Eng-
inn brást fljótar eða betur við en hann,
þegar ég á blaðamannsferli mínum leit-
aði til hans og margar ágætar greinar á
hann í Degi frá þeim tíma. Ég hef verið
að bíða eftir því, að einhver af mörgum
vinum hins látna, eyfirska prests, ritaði
kveðju- og þakkarorð í norðlenskt blað
í minningu hans. Kannski eru menn
tæplega búnir að átta sig á því enn, að
nú ritar séra Benjamín ekki lengur það
sem rita þarf á eyfirskum vettvangi, svo
sem mönnum áður þótti sjálfsagt.
En við leiðarlok er mér hjarta næst að
minnast hins gáfaða og góða Eyfirðings,
sem opnaði mér víðari sýn á svo mörg-
um sviðum, en ég hafði áður öðlast og
fyrir það vil ég fyrst og síðast þakka.
Blessuð sé minning séra Benjamíns
Kristjánssonar.
Erlingur Davíðsson
§M§ik,
Vorum að táa upp sendingu af
K&NER
dömuskónum vinsælu
í breiddum.
6 gerðir.
Sendum í póstkröfu.
SÍMI
(96)21400