Dagur - 28.04.1987, Qupperneq 9
Umsjón: Kristján Kristjánsson
28. apríl 1987 - DAGUR - 9
Golfvertíðin
að hefjast
- æfingar í öllum flokkum hafnar að Jaðri
eru þeir sem hér segir: Á mánu-
dögum á milli kl. 16 og 17 fyrir 11
ára drengi og stúlkur. Á miðviku-
dögum á sama tíma fyrir pilta og
stúlkur 12-15 ára og á föstudög-
um fyrir 16 ára og eldri, bæði
kyn.
Barnwell hefur þegar opnað
golfverslun sína að Jaðri og er
hún opin á meðan hann er við
sem er flestar stundir dagsins.
Hann hefur gert samning við tvö
stór ensk golffyrirtæki og getur
því boðið golfvörur bæði fyrir
byrjendur og þá sem lengra eru
komnir á mjög hagstæðu verði.
Annað fyrirtækið heitir Titleist
og er með vörur fyrir þá sem
lengra eru komnir en hitt ber
nafnið Fazer og frá þeim hefur
Barnwell enn ódýrari golfvörur
fyrir byrjendur.
Barnwell sagði í samtali við
Dag, að þeir sem væru að byrja í
íþróttinni, flöskuðu margir á því
að byrja ekki á því að fá tilsögn
hjá kennara. Pess í stað byrjuðu
mjög margir að beita kylfunum
rangt en kæmu síðan í kennslu
þegar allt væri komið í óefni. En
það er mun meira verk fyrir
kennara að laga vitleysur í stað
þess að kenna réttu handtökin í
upphafi. Því vildi hann ráðleggja
fólki að verða sér úti um kennslu
strax í upphafi.
r Knattspyrna:
Ami og Kjartan
í landsliðinu
- sem mætir Dönum í kvöld
Landslið íslands í knattspyrnu
skipað leikmönnum 18 ára og
yngri leikur við Dani í kvöld.
Leikurinn er liður í Evrópu-
mótinu og fer hann fram í
Rönne í Danmörku. Auk ís-
lands og Danmerkur, leika
Belgía og Pólland í sama riðli.
Lárus Loftsson þjálfari ís-
lenska liðsins hefur valið 16
leikmenn í leikinn en þeir eru
eftirtaldir:
Markverðir:
Karl Jónsson Þrótti R
Kjartan Guðmundsson Pór Ak
Aðrir leikmenn:
Egill Örn Einarsson Prótti R
Leiðrétting:
Mynda-
brengl
Við upplímingu á blaðinu í gær,
urðu þau mistök að myndatextar
á íþróttasíðu víxluðust. Á bls. 8
var mynd af skíðagöngumönnun-
um Kára Jóhannessyni frá Akur-
eyri og Kristjáni Haukssyni frá
Ólafsfirði sem skipuðu sér í tvö
fyrstu sætin í göngu í flokki 12
ára á Andrésar Andar leikunum
um helgina. Það er Kristján sem
skíðar af krafti á myndinni en
Kári sem hampar verðlaunabikar
sínum. Eru hlutaðeigandi beðnir
velvirðingar á þessum mistökum.
Bjarni Benediktsson Sjörnunni
Helgi Björgvinsson Fram
Pormóður Egilsson KR
Rúnar Kristinsson KR
Valdimar Valdimarsson Stjörn-
unni
Hólmsteinn Jónasson Fram
Ólafur Viggósson Þrótti N
Haraldur Ingólfsson ÍA
Árni Þór Árnason Þór Ak
Steinar Adolfsson Val
Ingólfur Ingólfsson Stjörnunni
Gunnlaugur Einarsson Val
Leifur Hafsteinsson ÍBV
Þeir félagar Árni Þór og Kjartan
eru í hópnuni sem mætir Dönuin í
kvöld. Mynd: KK
Nú þegar sólin fer að hækka á
lofti, fara menn að huga að
sumaríþróttum sínum. Golf-
áhugamenn láta sitt ekki eftir
liggja í þeim efnum, alla vega
ekki ónefndur bæjarverkstjóri
hér á Norðurlandi. David
Barnwell golfkennari Golf-
klúbbs Akureyrar er mættur til
landsins fyrir nokkru og
hefur hafið golfkennslu af full-
um krafti.
Til að byrja með var hann með
æfingar í Höllinni en hefur nú
flutt sig um set og kennir nú á
svæði GA að Jaðri. Hann er með
tíma fyrir alla aldursflokka og
David Barnwell hefur hafið golf-
kennslu að Jaðri.
Sigurpáll Aðalsteinsson fékk lítið að spreyta sig á Norðurlandamótinu í
handknattleik sem lauk á sunnudag. Mynd: rþb
ísland tapaði
fyrir Svíþjóð
- og hafnaöi í 2. sæti
á Norðurlandamótinu í handknattleik
Norðurlandamótið
í körfuknattleik:
ísland
í neðsta
sæti
íslenska körfuknattleikslands-
liðið hafnaði í neðsta sæti á
Norðurlandamótinu sem lauk í
Horsens í Danmörku á sunnu-
daginn. Liðið tapaði öilum
leikjum sínum á mótinu, fyrir
Dönum í síðasta leiknum með
tveimur stigum, eftir að hafa
haft eitt stig yfir þegar 2 sek.
voru eftir. Svíar urðu Norður-
landameistar, þeir sigruðu
Finna í úrslitaleik.
Finnar urðu því í öðru sæti,
Norðmenn í því þriðja, Danir í
fjórða en íslenska liðið rak lest-
ina, hlaut ekkert stig. Árangur
íslenska liðsins veldur óneitan-
lega miklum vonbrigðum en fyrir
mótið var jafnvel búist við því að
liðið myndi blanda sér í baráttu
um titilinn. En það eru ekki alltaf
jólin og við vinnum bara næst.
íslenska unglingalandsliðið
skipað Ieikmönnum 18 ára og
yngri hafnaði í 2. sæti á
Norðurlandamótinu í hand-
knattleik sem lauk á sunnudag.
Leikið var í íþróttahúsinu
Digranesi í Kópavogi. Það
voru Norðmenn sem stóðu
uppi sem sigurvegarar, þeir
unnu alla sína leiki nema gegn
íslandi sem lyktaði með jafn-
tefli.
Síðasti leikur Islands í mótinu
var gegn Svíum og með sigri í
þeim leik hefði íslenska liðið
tryggt sér sigur í mótinu. En
strákarnir þoldu illa pressuna og
töpuðu 19:25 og höfnuðu því í 2.
sæti. Svíar urðu í 3. sæti, Danir í
4. sæti, Finnar í 5. sæti og Færey-
ingar ráku lestina, hlutu ekkert
stig.
Úrslit leikja á mótinu urðu
Aðalsteinsson úr Þór. Sigurpáll
fékk lítið að spreyta sig með lið-
inu og lék aðeins með gegn Fær-
eyjum. Hann spilar sömu stöðu
og Konráð Olavson úr KR en
hann er einn albesti leikmaður
íslenska liðsins og því á brattann
að sækja fyrir Sigurpál.
Valur Ingimundarson var fyrirliöi
körfuboltalandsliösins í Danmörku.
þessi:
Ísland-Danmörk 24:20
Svíþjóð-Færeyjar 36: 9
Noregur-Finnland 27:24
Svíþjóð-Finnland 19:19
Færeyjar-ísland 14:32
Danmörk-Noregur 16:28
Finnland-Færeyjar 33:18
Ísland-Noregur 22:22
Danmörk-Svíþjóð 17:20
Danmörk-Færeyjar 30:16
Finnland-ísland 19:34
Svíþjóð-Noregur 24:26
Finnland-Danmörk 21:31
Noregur-Færeyjar 35:13
Ísland-Svíþjóð 19:25
1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2
Jóhannes sigraði
Sigfús bæjarstjóra
Sigfús Jónsson bæjarstjóri á Akureyri var lítil hindrun fyrir
Jóhannes Atlason í getraunaleiknum um helgina. Jóhannes hafði 6
leiki rétta en Sigfús aðeins 4. Jóhannes heldur því áfrani en hann er
farinn að tala um að þetta sé orðið dálítið þreytandi. Hann hefur
skorað á Sveinbjörn Sigurðsson starfsmann KEA í næstu untferð.
Þeir félagar eiga það sameiginlegt að halda báðir með VVolves í
ensku knattspyrnunni og eru sennilega þeir einu hér á landi sem það
gera enn í dag. Jóhannes sagði að ef hann tapaði þá væri það alla
vega fyrir samherja. Sveinbjörn hefur fylgst ineð góðu gengi Jóa
að undanförnu en hann hyggst stöðva hann um næstu helgi, þó
hann viti að það verði erfitt. En við skulum líta á spá þeirra Wolves-
félaga:
Lokastaðan varð þessi:
Noregur 5 4-1-0 138
ísland
Svíþjóð
Danmörk
Finnland
Færeyjar
99 7
5 3-1-1 131:100 5
5 3-1-1 121: 87 5
5 2-0-3 114:109 4
4 1-1-3 116:129 3
5 0-0-5 67:169 0
Einn Norðlendingur var í
íslenska liðinu, Sigurpáll Árni
Jóhannes
Sveinbjöm
Arscnal-Aston Villa x
Charlton-Luton 1
Chelsea-Leicester 1
Coventry-Liverpool 2
Man.Ltd.-Wimbledon 1
Nott.Forest-Tottenham x
Oxford-Norwich 1
Sheff.Wed.-Q.P.R. 1
Watford-Southampton 1
West Ham-Newcastle 2
Derby-Leeds 1
Oldham-Plymouth 1
Tipparar niunið að skila seðlunum
svo enginn verði nú af vinningi.
1
Arsenal-Aston Villa
Charlton-Luton
Chelsea-Leicester
Coventry-Liverpool
Man.Utd.-Wimbledon
Nott.Forest-Tottenham
Oxford-Norwich
Sheff.Wed.-Q.P.R.
Watford-Southampton
West Ham-Newcastle
Derby-Leeds
Oldham-Plymouth
inn fyrir hádegi á fímmtudögum
x
2
1
x
2
1
1
1
1
1
1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2 1-X-2