Dagur - 15.06.1987, Side 5

Dagur - 15.06.1987, Side 5
15. júní 1987-DAGUR-5 _lesendahorniá_ Hugleiðingar um dýravernd í Degi þann 3. júní s.l. ritar unn- andi Andapollsins um hættu þá er fuglalífi þar stafi af köttum sem mæti á svæðið til að afla sér matar. Minnist bréfritari á í því sambandi mismunandi réttháa ketti sem vaktmaður hafi hand- samað og dæmt annan til dauða, en náðað hinn, þar sem eigandi hans var að sögn bréfritara opinber starfsmaður. Við lestur þennan vakna ýmsar spurningar. Var hér um að ræða merkta heimilisketti og ef svo var hver gefur þá þessum vaktmanni sem trúlega er starfsmaður Akur- eyrarkaupstaðar vald til að aflífa merkta ketti án samráðs við eig- endur þeirra? Nú er mér ekki kunnugt um að kattahald sé bannað á Akureyri, né reglur séu til um útivist þeirra, eða takmarkaðan aðgang að vissum svæðum í bæjarlandinu. Ekki er heldur vitað til að kettir séu neitt réttminni en önnur dýr sem heimilt er að hafa innan bæjar- takmarkanna. Frá örófi alda hafa kettir og fuglar lifað saman án þess að hin- ir síðarnefndu væru í útrýmingar- hættu, enda er það jafnan svo að jafnvægi helst á milli dýrateg- unda, ef þau eru látin afskipta- laus. Pær dýra- eða fuglategundir sem hafa eyðst eða eru í hættu, hafa allar hlotið þau örlög af völdum manna, en ekki dýra. Hinu er ekki a^ leynæað alltaf eru til menn sem* telja sig betur geta stjórnað gangi náttúrunnar, en sá er í upphafi skapaði hana. Telja þeir að það sé stórmál ef köttur drepur nokkra fuglsunga, en sýnu minna þó maðurinn drepi nokkur þúsund, svo sem sjá mátti í DV sama dag er kjúklinga- bóndi nokkur drekkti 4000 hænu- ungum vegna þess eins að mark- aður var ekki nægilega hagstæð- ur. Já það hefði nú ekki veitt af vaktmanni þar, eða hvernig var þetta nú annars með hann Jón og séra Jón. Þá hlýtur sú spurning að vakna hvort það sé í anda dýraverndar eða mannúðar að safna saman fuglum með skertu frelsi og jafn- framt möguleiþum á að verja sig á eðlilegan hátt í þeim eina tilgangi að hafa þá til sýnis fyrir þá sem ekki nenna að skoða þá í sínu eðlilega umhverfi. Dýravernd er ekki að útrýma einni tegund á kostnað annarrar og minnast skulu menn þess líka að kötturinn er ekki sá eini sem veiðir. Nægir þar að minna|t á laxvéiðimanninn sem veiðir sér til gamans (eða er hann kannski svangur) og í leiðinni drekkir hann nokkrum hundruðum ána- maðka. Eða verða kannski vakt- menn bæjarins sendir til að skjóta á laxveiðimenn til að vernda aumingja laxinn. Já þá verður nú betra að vera opinber starfsmaður. Opinber starfsmaður og kattaeigandi. Lesendur athugið Að gefnu tilpfni skal það tekið fram að lesendabréfum verður að fylgja fullt nafn og heimilisfang þess er skrifar. Ef viðkomandi vill ekki að nafn hans birtist með bréfinu er sjálfsagt að verða við þeirri ósk, en engu að síður verð- ur fullt nafn að fylgja bréfinu til ritstjórnar. Nafnlaus bréf verða ekki birt undir nokkrum kringumstæðum. lJá er þeim tilmælum vinsam- legast beint til þeirra sem senda inn greinar í blaðið að skila þeim vélrituðum. Sau mastofan Sif, Aðaldal er til sölu eða leigu Vélakostur fyrir 6-8 störf, getur hentaö fyrir ýmiss konar framleiðslu. Saumastofan er í góöu húsnæði sem fáanlegt er á hagkvæmum kjörum. Upplýsingar gefnar í símum 96-43555, 43584 og 43551. Ný símanúmer Frá og með 15. júní Farpantanir ........... 22000 Leigu-,pg sjúkraflug . 27900 Skrifstofur ........... 27901 Verkstæði ............. 27902 fluqfélaq norðurlands hf. Akureyrarflugvelli SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA Á NORÐURLANDI EYSTRA Sambýli Starfsmaður óskast frá næstkomandi hausti. Upplýsingar gefur forstöðumaöur í síma 26960 kl. 12-16, og á skrifstofu svæðisstjórnar Stórholti 1. Norðlendingar Fundur og umræður í Felagsheimilinu á Blönduósi fimmtudaginn 18. júní kl. 20.30. Dagskrá: 1. Samvinnuhreyfingin í nútíð og framtíð, erindi: Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Sambandsins. 2. Markaðsmál íslensks landbúnaðar, erindi: Magnús G. Friðgeirsson, framkvæmdastjóri búvörudeildar Sambandsins. 3. Umræður og fyrirspurnir. Kaupfélag Húnvetninga Sölufélag flustur-Húnvetninga Til hamingju með afmælið Akureyri! Eins og þér er kunnugt á Akureyri 125 ára kaupstaðarafmæli á þessu ári. í því tilefni bjóðum við upp á sérstakan afmælisafslátt á allri Sjafnarmálningu. Útimálning: 12-40 Itr. 15% afsláttur 41 - eða meira 20% afsláttur Innimalning: 50 - 200 Itr. 10% afsláttur 200 - eða meira 15% afsiáttur Tilboðið stendur til 15. ágúst. Byggingavörudeild .Glerárgötu 36 — sími 21400_

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.