Dagur - 15.06.1987, Blaðsíða 7
Umsjón: Kristján Kristjánsson
15. júní 1987 - DAGUR - 7
SL-mótið 1. deild:
jngur og Víðir
arkalaust jafntefli
sl Einarsson rekinn af leikvelli
sagði Baldur Scheving línu-
vörður eftir leik Völsungs og
Víðis sem endaði með jafntefli
0-0.
Já, þessi leikur var með slakara
móti, mikið um langspyrnur og
hlaup. í fyrri hálfleik var fátt um
fína drætti, aðalega barátta á
miðjunni.
í seinni hálfleik vara sama
baráttan á miðjunni og ein og
ein sókn sást. Hörður átti þrumu-
skot af stuttu færi en beint á
Gísla markvörð.
Þegar líða tók á hálfleikinn
færðist meiri harka í leikinn og
var Daníel Einarssyni vísað af
leikvelli fyrir mjög ljótt brott á
Herði, léku Víðismenn því 10
það sem eftir var. Undir lok
leiksins sóttu Völsungar nokkuð
og Birgir Skúlason á gott skot
sem Gísli nær að verja í slá og út.
Lið Völsungs virkaði ekki
sannfærandi í þessum leik og
sóknarleikurinn óskipulagður.
Snævar barðist vel á miðjunni en
aðrir hafa oft leikið betur.
Lið Víðis er baráttulið en á
kostnað knattspyrnunnar. Dóm-
ari var Óli Ólsen og var hann í
sama klassa og leikurinn. ASG
Óskar Ingimundarson þjálfari Leifturs í baráttu við Magnús Magnússon
Breiðabliksmann. Mynd kk
Knattspyrna 2. deild:
Leiftur á toppinn í 2. deild
Leiftur skaust á topp 2. deildar
íslandsmótsins í knattspyrnu á
laugardag, er liðiö lagði Breiða-
blik að velli í Ólafsfirði með
tveimur mörkum gegn engu.
a 3. deild:
jldaöur
Vlagna
tvö mörk án þess að heima-
menn næðu að svara fyrir sig.
Leikmenn HSÞ-b eru stórir og
sterkir en dálítið þungir á sér og
greinilega ekki í mikilli æfingu.
Þeir spiluðu lítinn fótbolta en
fengu sín hættulegustu færi í
leiknum eftir horn, aukaspyrnur
eða löng innköst sem Gylfi
Birgisson tók. Magnamenn voru
mun frískari og fengu fjölmörg
færi. Þeim tókst þó aðeins að
skora eitt mark í hvorum hálf-
leik. Fyrra markið skoraði Heim-
ir Ásgeirsson um miðjan hálfleik-
inn. Magnamenn fengu auka-
spyrnu á miðjum vellinum og Jón
Ingólfsson tók hana strax, sendi á
Heimi, sem komst einn í gegn og
skoraði framhjá úthlaupandi
markverði Mývetninga.
í síðari hálfleik fór að draga
verulega af heimamönnum og
Magnamenn fengu nokkur ágæt
tækifæri til þess að auka muninn.
Þeim tókst þó aðeins að bæta við
einu marki, skömmu fyrir leiks-
lok. Fyrirgjöf kom frá vinstri,.
Jónas Baldursson skaust fram
fyrir nærstöng skoraði með góðu
skoti upp í hornið og úrslitin 2:0.
fyrri hálfleik en strax á 5. mín.
náði Arna Steinsen forystunni
fyrir KR. Hún fékk boltann inn
fyrir vörn KA eftir aukaspyrnu
og skoraði. Annað markið skor-
aði Kristrún Heimisdóttir á
30. mín., af nokkuð löngu færi
beint úr aukaspyrnu. Staðan í
hálfleik 2:0.
Mörkin voru skoruð hvort í sín-
um hálfleiknum og var sigur
heimamanna mjög verð-
skuldaður.
Leiftursmenn léku undan vindi
í fyrri hálfleik en það voru
Breiðabliksmenn sem áttu fyrsta
hættulega færið í leiknum. Á 6.
mín. fékk Jón Þórir Jónsson bolt-
ann óvaldaður á fjærstöng eftir
fyrirgjöf en hann brenndi af í
mjög góðu færi. Hvorugt lið náði
að sýna fallega knattspyrnu, bolt-
inn var að mestu f háloftunum en
það litla samspil sem sást í fyrri
hálfleik kom frá Breiða-
bliksmönnum. Á 28. mín. náðu
heimamenn forystunni með
marki Steinars Ingimundarsonar.
Óskar þjálfari átti þá ágæt skot á
markið, sem Örn markvörður
varði en hélt ekki boltanum,
Steinar var fyrstur að átta og náði
Siglfirðingar náðu ekki að
fylgja eftir góðum sigri á Vík-
ingum um síðustu helgi, er lið-
ið sótti Eyjamenn heim á
föstudagskvöld í 2. deild
Islandsmótsins í knattspyrnu.
Leikurinn var mjög fjörugur
og bæði lið fengu mörg mjög
góð marktækifæri. Heima-
menn sigruðu með tveimur
mörkum gegn engu og má
segja að KS-ingar hafi verið
KA-stelpurnar tóku mikinn
kipp í upphafi síðari hálfleiks og
sóttu þá stíft. Þær fengu ein tvö
þokkaleg færi fljótlega sem ekki
nýttust. Rétt fyrir miðjan hálfleik
átti Valgerður Jónsdóttir ágætt
skot úr aukaspyrnu sem hafnaði
ofan á slá KR-marksins.
Skömmu síðar skoruðu KR-
að pota honum í markið.
Skömmu fyrir hálfleik skellti Örn
markvörður Breiðabliks Óskari í
teignum en Árni Arason dómari
taldi ekki ástæðu til þess að
dæma vítaspyrnu en var grein-
lega á báðum áttum.
Blikar mættu ákveðnir til síð-
ari hálfleiks og ætluðu sér greini-
lega að jafna leikinn undan rok-
inu. En segja má að Gústaf
Ómarsson leikmaður Leifturs
hafi gefið þeim rothöggið á
52. mín. leiksins er hann skoraði
fallegt mark. Boltinn var gefinn
fyrir frá vinstri á Óskar sem lagði
hann inn fyrir vörn UBK og þar
kom Gústaf aðvífandi, lék á Órn
í markinu og skoraði með góðu
skoti í tómt markið. Það var
virkilega vel að þessu markið
staðið. Breiðabliksmenn reyndu
eftir þetta örvæntingarfulla til-
raun til þess að koma marki á
klaufar aö fara ekki með jafn-
tefli frá Eyjunt.
Jafnræði var með liðunum í
fyrri hálfleik en það voru Eyja-
menn sem náðu forystunni á
26. mín. Ingi Sigurðsson komst
upp kantinn, gaf góða sendingu
fyrir og Bergur Ágústsson var
sem oft áður, réttur maður á rétt-
um stað og skallaði boltann í
markið. Siglfirðingar áttu einnig
sín færi og þeir Björn Ingimars-
stelpurnar þriðja markið. Tekin
var aukaspyrna á miðjum vallar-
helmingi KA og var gefinn hár
bolti inn í teig. Bára markvörður
KA náði boltanum en missti
hann frá sér og Helena Ólafs-
dóttir náði honum og skoraði
þriðja markið. KA-stelpurnar
náðu ekki að minnka muninn.
heimamenn en það sem á markið
kom hirti Þorvaldur af öryggi.
Tíminn rann út og Leiftursmenn
fögnuðu sigri.
Leikmenn Leifturs léku af
krafti í þessum leik og uppskáru
samkvæmt því. Liðið átti allt
ágætan dag og þó ekki hefi verið
mikið um fallega knattspyrnu hjá
liðinu voru mörkin lagleg. Gunn-
laugur Sigurvinsson sem lék í
vörninni fyrir Guðmund Garð-
arsson, sem er meiddur, átti
mjög góðan leik og stóð fyllilega
fyrir sínu.
Ekki et" hægt að hæla neinum í
liði UBK:sem er ekki svipur hjá
sjón og situr nú í einu af neðstu
sæti deildarinnar.
Árni Arason dæmdi leikinn
ágætlega, nema að hann var helst
til fljótur á flautuna, í stað þess
að láta leikinn rúlla.
son og Hafþór Kolbeinsson voru
þar fremstir í flokki en tókst ekki
að nýta þau. Skömmu fyrir
leikhlé átti Ingi Sigurðsson síðan
skot í stöngina á marki KS.
Siglfirðingar komu mjög
ákveðnir til síðari hálfleiks og
fengu nokkur gullin tækifæri. En
þeir voru miklir klaufar að nýta
þau ekki og þar fyrir utan var
Þorsteinn Gunnarsson í miklu
stuði í marki ÍBV og bjargaði liði
sínu á mikilvægum augnablikum.
Á lokamínútu leiksins bættu
Eyjamenn síðan við öðru marki.
Héðinn Svavarsson sem var
nýkominn inn á sem varamaður
átti þá skot á mark KS eftir horn-
spyrnu, sem hafnaði í varnar-
manni og af honum í markið.
Mark Duffield var bestur
KS-inga í Eyjunt en einnig áttu
þeir Hafþór og Björn ágæta
spretti en hefðu mátt nýta færi
sín betur.
Bestir Eyjamanna voru þeir
Þorsteinn markvörður og Bergur
Ágústsson.
KR sigraði KA í 1. deild kvenna:
örkin eftir aukaspyrnur
Knattspyrna 2. deild:
KS-ingar fóru illa
með færin í Eyjum
_ Knattspyrna 4. deild:
Öruggur sígur
Svarfdæla
Leikmenn HSÞ-c hófu keppni í F-riðli 4.
dcildar á íslandsmótinu í knattspyrnu
meö glæsibrag, á laugardag. Þá lögðu
þeir Æskuna að velli á Laugum í Reykj-
adal með þremur mörkum gegn einu.
Leikmenn Æskunnar voru ákveönari i
byrjun leiksins og síðan komust heima-
menn meira inn í leikinn og tóku síðan öll
völd í síðari hálfleik. Æskan hafði yfir 1:0
í hálflcik og var markið sjálfsmark leik-
manns HSÞ-c.
í síðari hálfleik skoruðu þeir Þórarinn
Jónsson, Aðalsteinn Baldursson þjálfari
liösins og Böðvar Jónsson hver sitt mark-
ið fyrir HSÞ-c og öruggur sigur í höfn.
Einn leikmanna Æskunnar fékk að líta
rauða spjaldið um miðjan síðari hálfleik.
Góð byrjun
hjá HSÞ-c
UMFS sigraði Neista örugglega í leik lið-
anna á Hofsósi á laugardag í E-riðli 4.
deildar á íslandsmótinu í knattspyrnu.
Skoruðu Svarfdælir sem höfðu mikla yfir-
burði mestan hluta leiksins, fjögur mörk
gegn engu marki lieimamanna.
Svarfdælir skoruðu tvö mörk í hvorum
hálfleik. Björn Friðþjófsson skoraði tvö
markana og þeir Garðar Jónsson og Birgir
Össurason sitt markið hvor.
Vaskur
sigraði Austra
Vaskur sigraði Austra frá Raufarhöfn er
liðin áttust við laugardag í F-rlðli 4. deild-
ar á íslandsinótinu í knattspyrnu. Alls
urðu mörk Vasks fimm en Austra tókst
ekki að svara fyrir sig þrátt fyrir að hafa
fengið tvö víti.
Jón Berg Hjaltalín og Donald Kelly
skoruðu tvö mörk hvor og Siguröur
Skarphéðinsson eitt inark.
Kormákur
hafði betur
Kormákur sigraði Árroðann með þremur
mörkuin gegn tveimur á laugardag.
Leikurinn sem var liður í 4. deildar
keppninni í knattspyrnu og fór farm á
Hvammstanga.
Staðan í hálfleik var 2:2 en í seinni hálf-
leik náðu heimamenn að skora sigur-
ntarkið. Mörk Kormákurs gerðu þeir
Bjarki Haraldsson sem gerði 2 og Jakob
Atlason. Mörk Árroðans gerðu þeir
Ingólfur Þorstcinsson og Sigurður
Stefánsson.
Knattspyrna 2. flokkur:
Þór - ÍBK
- í kvöld kl. 20
Þór og ÍBK leika í kvöld í A-riðli 2.
flokks á Islandsmótinu í knattspymu.
Leikurinn fer t'ram á Þórsvellinum og
hefst kl. 20. Búast má við spennandi og
skemmtilegum leik.