Dagur - 15.06.1987, Page 8
8 - DAGUR - 15. júní 1987
AðaHundur
Dagsprents hf.
verður haldinn fimmtudaginn 18. júní kl. 16.00 að
Strandgötu 31.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Stjórnin.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Einholt 8e, Akureyri, þingl. eigandi Karl Sigurðs-
son, ferfram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107, 3. hæð,
Akureyri föstud. 19. júní kl. 16.15.
Uppboðsbeiðandi Bæjarsjóður Akureyrar
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Hafnarstræti 86b, Akureyri, talinn eigandi
Snæbjörn Magnússon, fer fram i dómsal embættisins Hafnar-
stræti 107, 3. hæð, Akureyri föstud. 19. júní kl. 16.45.
Uppboðsbeiðandi Bæjarsjóður Akureyrar.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Kaupvangsstræti 21 n.h., Akureyri, þingl. eigandi
Rafsegull h.f., fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti
107, 3. hæð, Akureyri föstud. 19. júní kl. 17.15.
Uppboösbeiðandi Innheimtumaður ríkissjóðs.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Móasíða 9d, Akureyri, þingl. eigandi Pálmi
Björnsson, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107,
3. hæð, Akureyri föstud. 19. júní kl. 17.30.
Uppboðsbeiðendur eru Bæjarsjóður Akureyrar og Brunabóta-
félag íslands.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Hafnarstræti 97, Akureyri, þingl. eigandi Huld
Jóhannesdóttir, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti
107, 3. hæð, Akureyri föstud. 19. júnf kl. 13.45.
Uppboðsbeiðendúr eru Sigurður G. Guðjónsson hdl., Gunnar
Sólnes hrl. og Iðnaðarbanki (slands h.f.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Skarðshlíð 12d, Akureyri, þingl. eigandi Einir
Þorleifsson, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107,
3. hæð, Akureyri föstud. 19. júní kl. 14.45.
Uppíoðsbeiðendur eru Gunnar Sólnes hrl. og Ólafur B. Árna-
son hdl.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Stórholt 9, neðri hæð, Akureyri, þingl. eigandi
Birgir Antonsson, fer fram í dómsal embættisins Hafnarstræti
107, 3. hæð, Akureyri föstud. 19. júní kl. 15.15.
Uppboðsbeiðandi Innheimtumaður ríkissjóðs.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
79% nemenda á háskólastigi
eða í námi eriendis koma
frá höfuðborgarsvæðinu
Fjórðungssamband Norðlend-
inga hefur útbúið töflur sem
sýna skiptingu nemenda eftir
námsstigum og landshlutum
haustið 1985. Töflurnar eru
byggðar á nemendaskrá 1985
sem birt hefur verið í Hagtíð-
indum og í þeim kemur margt
athyglisvert fram.
Ef litið er á skiptingu nemenda
á framhaldsskólastigi eftir
landshlutum sést að 57%
nemenda eiga lögheimili á höfuð-
borgarsvæðinu en á því svæði búa
54,7% landsmanna. í öðrum
landshlutum búa 45,3% þjóðar-
innar en þaðan koma' 43%
nemenda.
Samkvæmt þessum töflum fara
69% árganganna 16-19 ára á
höfuðborgarsvæðinu í framhalds-
nám en landsmeðaltalið er
nokkru lægra eða 61,2%. Af
landsbyggðinni er minnst hlutfall
á Vestfjörðum, 42,6%, en mest á
Norðurlandi eystra og Vestur-
landi, um 56,5%. Fyrir árgang-
ana 20-25 ára er landsmeðaltalið
Skriðjöklar á Húsavík:
„Á landsmót" - mynd-
band gert við lagið
Hressileikinn var í fyrirrúmi á
Húsavík í síðustu viku er verið
var að taka landsmótslagið upp
á myndband. Það mátti sjá
Skriðjökla í stuði víða um
bæinn en þeir flytja lögin „Á
landsmót,“ og „Mamma tekur
slátur,“ á plötu sem Samver
gefur út í samvinnu við lands-
mótsnefnd.
Höfundur beggja laganna og
textanna er Bjarni Hafþór Helga-
son. Á myndbandinu með lands-
mótslaginu koma Skriðjöklar
fram sem fjölskylda sem er að
koma á landsmótið á Húsavík
eins og fjöldi fjölskyldna mun
væntanlega gera í næsta mánuði.
Guðni Halldórsson fram-
kvæmdastjóri landsmótsnefndar
sagðist hafa trú á að landsmóts-
lagið ætti eftir að verða vinsælt og
það væri samkvæmt markmiðum
nefndarinnar að hafa hressileik-
ann í fyrirrúmi yfir landsmót-
inu í heild.
IM
Guðni Halldórsson ásamt hressum Skriðjöklum.
Mynd: IM
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Óseyri 1a, Akureyri, þingl. eigandi Þór h.f., fer
fram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107,3. hæð, Akureyri
föstud. 19. júní kl. 14.30.
Uppboðsbeiðendur eru Innheimtumaður ríkissjóðs og Bruna-
bótafélag íslands.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Tjarnarlundur 5b, Akureyri, þingl. eigandi
Snæbjörn Guðbjartsson o.fl., fer fram í dómsal embættisins
Hafnarstræti 107,3. hæð, Akureyri föstud. 19. júní kl. 15.30.
Uppboðsbeiðandi Bæjarsjóður Akureyrar.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
á fasteigninni Draupnisgata 5, Akureyri, þingl. eigandi Gunnar
Kristdórsson, ferfram í dómsal embættisins Hafnarstræti 107,
3. hæð, Akureyri föstud. 19. júní kl. 16.00.
Uppboðsbeiðandi Bæjarsjóður Akureyrar.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
aðeins 29% en fyrir höfuðborgar-
svæðið er það 36%. Af lands-
b^ggðinni er lökust aðsókn í nám
á efri stigum á Suðurnesjum og
Vestfjörðum en mest er hún á
Norðurlandi eystra, 25,7%.
Um 79% allra nemenda á
háskólastigi eða í námi erlendis
koma frá höfuðborgarsvæðinu,
en þess má geta að nám erlendis
er í langflestum tilvikum á
háskólastigi. Þetta er 22 prós-
entustigum hærra hlutfall en hlut-
ur höfuðborgarsvæðisins er á
framhaldsskólastigi. Lands-
byggðin hefur hins vegar aðeins
21% nemenda á háskólastigi eða
í námi erlendis en er með 43% af
heildarfjölda á framhaldsskóla-
stigi. Hér vantar því greinilega
mikið upp á til þess að jafnvægi
ríki.
Um 57,5% þeirra nemenda af
höfuðborgarsvæðinu sem stunda
nám á framhaldsskólastigi sækir
háskólanám eða nám erlendis en
aðeins 20,6% af hliðstæðum
nemendahópi af landsbyggðinni.
Landsmeðaltalið er 41,7% og ef
landshlutar utan höfuðborgar-
svæðisins ætluðu að ná því þyrftu
að bætast við 1293 nemendur en
það samsvarar tvöföldun á fjölda
nemenda frá landsbyggðinni sem
nú stundar nám á háskólastigi
eða er í námi erlendis. JHB
Verðbólgan
komin í 20%
Kauplagsnefnd hefur reiknað
vísitölu framfærslukostnaðar
miðað við verðlag í júníbyrjun
1987. Reyndist hún vera
199,48 stig, eða 2,0% hærri en
í maíbyrjun 1987.
Af þessari 2% hækkun stafa
um 0,4% af hækkun á verði mat-
vöru - þar af um 0,3% vegna
hækkunar á verði landbúnaðar-
afurða 1. júní sl. — 0,1% stafar af
hækkun húsnæðisliðs, 0,3% af
hækkun á verði bensíns úr
kr. 28,00 í kr. 30,60, rúmlega
0,5% af hækkun á verði tóbaks
og áfengis 14. maí sl. og um 0,7%
stafa af hækkun á verði ýmissa
vöru- og þjónustuliða.
Síðastliðna tólf mánuði hefur
vísitala framfærslukostnaðar
hækkað um 1?,2%. Hækkun vísi-
tölunnar um 2,0% á einum mán-
uði frá maí til júní svarar jafn-
framt til 26,8% árshækkunar.
Undanfarna þrjá mánuði hefur
vísitalan hækkað um 4,7% og
jafngildir sú hækkun 20,1% verð-
bólgu á heilu ári.
Leiðrétting
í blaðinu á föstudaginn er frétt
um könnun á stöðu kvenna í
fyrirtækjum á Akureyri. Þau
mistök urðu að vitlaus fyrirsögn
var sett við fréttina, fyrirsögnin
átti við allt aðra frétt um könnun
sem jafnréttisráð gerði á fjölda
kvenna í ráðum, stjórnum og
nefndum á vegum ríkisins. Er
beðist velvirðingar á þessum
leiðinlegu mistökum. Þá er í
fréttinni sagt að samnorræna
verkefnið „Brjótum múrana“
hafi verið í gangi á þessu ári en
það er ekki rétt því það fór af
stað árið 1985 ög er fjögurra ára
verkefni. Er því ætlað að auka
fjölbreytni í starfsvali kvenna og
rn.a. auka hlut kvenna í stjórnun,
en ekki eingöngu til þess eins og
segir í fréttinni. HJS