Dagur - 30.06.1987, Page 2
2 - DAGUR - 30. júní 1987
viðtal dagsins
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 520 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 50 KR.
RITSTJÓRAR:
ÁSKELL ÞÓRISSON (ÁBM.)
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGGERTTRYGGVASON, EGILL BRAGASON,
GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368),
HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
(Húsavík vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
RÚNAR ÞÓR BJÖRNSSON, STEFÁN SÆMUNDSSON,
VILBORG GUNNARSDÓTTIR,
ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauðárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729)
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
leiðari_____________________________
Flokkur í vanda
Fullyrða má að miðstjórnarmenn Alþýðu-
bandalagsins hafi átt erfiða helgi er þeir
komu saman til að fjalla um svokallaðar
„Varmalandsskýrslur" þ.e. naflaskoðunar-
skýrslur nokkurra leiðtoga Alþýðubanda-
lagsins. í skýrslum þessum reyna leiðtog-
arnir að finna skýringar á slæmri útkomu
Alþýðubandalagsins í síðustu alþingiskosn-
ingum og leiðir út úr þeim tilvistarvanda
sem flokkurinn á við að stríða.
Allir eru leiðtogarnir málglaðir mjög enda
skýrslurnar samtals um 200 blaðsíður að
lengd. Verkefni miðstjórnarmannanna var
því ærið, ekki einungis að lesa skýrslurnar,
heldur líka að sætta hin ólíku sjónarmið sem
þar koma fram. Ekki skal fullyrt um það
hvernig miðstjórnarmönnum Alþýðubanda-
lagsins tókst til um helgina en fréttir þær
sem borist hafa af fundinum gefa til kynna
að lítt hafi miðað áleiðis.
Alþýðubandalagið beið afhroð í síðustu
alþingiskosningum og er nú minna en Al-
þýðuflokkurinn. í sjálfu sér er því eðlilegt að
flokksforystan reyni að gera sér grein fyrir
orsökunum. Þeir sem fylgjast með stjórn-
málum en standa utan við Alþýðubandalag-
ið þurfa ekki að lesa langar skýrslur til að
skilgreina þann vanda sem flokkurinn á við
að glíma. Undanfarin ár hafa innri deilur og
valdabarátta einstaklinga verið þar alls ráð-
andi og púðrið hefur allt farið í átökin milli
hinna stríðandi afla í flokknum, lýðræðisfylk-
ingarinnar og flokkseigendafélagsins.
Stefnumörkunin hefur setið á hakanum með
þeim afleiðingum að Alþýðubandalagið er
sem nátttröll í heimi stjórnmálanna, staðnað
og miðstýrt afl fámennrar klíku.
Margt bendir samt til þess að sú nafla-
skoðun sem nú er í gangi innan flokksins,
stefni ekki að því marki sem ætla mætti, þ.e.
að breyta um stefnu og skerpa áherslur.
Miklu fremur virðist stefnan sett á að finna
syndaselina, einhverja sökudólga sem
kenna má um ófarirnar. Þegar þeir eru
fundnir verður þeim væntanlega fórnað á
flokksaltarinu og ný forysta valin. Vart
munu þær aðgerðir ná að lægja öldurnar
nema síður sé, hvað þá að afla flokknum
aukins fylgis.
Máltækið segir að brennt barn forðist
eldinn. Forystumenn Alþýðubandalagsins
virðast ekki skilja þá líkingu sem í því felst.
BB.
„Mig hefur alltaf
dreymt um að
eignast góða konu“
- segir Logi Már Einarsson vallarstjóri á Þórsvellinum
Nýráðinn vallarstjóri á Þórs-
vellinum á Akureyri heitir
Logi Már Einarsson. Logi er
Akureyringur, fæddur að
sumarlagi 1964, en hefur þrátt
fyrir ungan aldur komið víða
við eða eins og hann segir
sjálfur: „Maður hefur verið
iðinn við að afla þjóðarbúinu
tekna, þó einkum með störfum
við grunnatvinnuvegina.“ Eftir
miklar fortölur féllst Logi á að
leyfa viðtal, sagðist þó aldrei
hafa verið mikið gefínn fyrir
sviðsljósið. Það lá beint við að
spyrja hann um fyrri störf.
„Ja, það er nú ýmislegt skal ég
segja þér,“ svaraði hann heldur
drjúgur í bragði. „Ég hef unnið á
frystihúsi, stundað róðrá í mann-
skaðaveðrum, verið í byggingar-
vinnu, kennt í Barnaskóla Akur-
eyrar auk þess sem ég hef að
mestu leyti séð um gatnafram-
kvæmdir í bænum síðustu árin.
Af þessari upptalningu sést að ég
hef unnið við flest annað en það
sem telst til virðingarstarfa.“
- Hvernig líkar þér á Þórsvell-
inum?
„Það er mjög fínt að vinna hér.
Það væri hins vegar skemmtilegra
ef vellirnir væru betri en þeir eru
óvenju illa farnir nú.“
- Hvað gerirðu helst?
„Þetta er að miklum hluta
almenn umhirða, vökvun, sláttur
o.s.frv. Einnig erum við alltaf
eitthvað að sá og planta auk
ýmislegs annars sem til fellur. Þá
fer líka drjúgur tími í að smala
óþekkum börnum útaf.
Akkúrat þessa stundina erum
við að setja niður runna sem eiga
að virka sem skjólbelti. Það er að
vísu mín skoðun að mun mikil-
vægara hlutverk þeirra sé að verj-
ast nískum áhorfendum."
Á leið til viðgerða.
Myndir: mþþ
Vallarstjórinn segir undirsátum sínum fyrir verkum.
# Eintal við
sálfræðing
Piltur nokkur, sem stund
lagði á stærðfræðinám við
Háskólann varð einhverju
sinni eins og gengur ástfang-
inn mjög. Stúlkan sem trufl-
aði rannsóknir hans á föllum,
afleiðum og heildum og hvað
þetta alit saman heitir, var
sálfræðinemi og las gjarnan
á sömu lesstofu og pilturinn.
Til að gera langa sögu stutta,
þá hvorki gekk né rak í máli
pilts og stúlku framan af
vetri. Svo var það á svo-
kölluðum 1. des. dansleik
stúdenta að heldur betur fór
að ganga og segir sagan að
dansaður hafi verið vanga-
dans allt til loka ballsins. Ein-
hver talaði að vísu um mikil
þrengsli á dansgólfinu. Hvað
um það stúlka fór heim með
pilti og segir sama saga að
þar hafi hún dvalist i ágætu
yfirlæti í átján tíma samfleytt.
Varð piltur glaðvær, hress og
kátur sem aldrei fyrr að
afloknu átján tima spjalli
þeirra. Varð þá til þessi vísa:
Maður sig lagði í líma
að lækna sinn hugarsting
og átti í átján tíma
eintal við sálfræðing.
# Magnast
hugarstingur
Adam var eins og margir vita
ekki lengi í Paradís (hvað ætli
hann hafi samt verið lengi
nákvæmlega?). Ekki kom sái-
fræðingurinn í fleiri átján
tíma „viðtalsheimsóknir,“ og
gerðist stærðfræðineminn
þunglyndur nokkuð um skeið
og mátti vart líta í bækur
sínar. Með hjartað lamað af
sorg, eins og einhvers staðar
stendur, varð til þessi vísa:
Heyrast raunir mikiar manns
magnast hugarstingur
enginn kemur inn til hans
eins og sáifræðingur.
Segir þá ekki fleira af stærð-
fræðinema þessum, nema
hvað sögur herma að hann
hafi að mestu náð sér eftir
sálfræðimissinn, tekið próf
sín með sóma og uni hag sín-
um bærilega