Dagur - 30.06.1987, Blaðsíða 9

Dagur - 30.06.1987, Blaðsíða 9
Umsjón: Kristján Kristjánsson 30. júní 1987 - DAGUR - 9 A-lið: Það var mikið um að vera á KA-svæðinu um helgina en þar fór fram Esso-mót KA í mini knattspyrnu 5. flokks, sem stóð frá föstudagsmorgni og fram á seinni part sunnu- dags. Alls mættu 18 lið frá 9 félögum víðs vegar að af land- inu til leiks. Mótið var tvískipt, annars vegar var um keppni A- liða að ræða og hins vegar keppni B-liða og var leikið í tveimur riðlum í hvorri keppni. í keppni A-liða voru 5 lið í riðli en 4 lið í keppni B- liða. Það var lið Týs frá Vest- mannaeyjum sem sigraði í keppni A-liðanna, en í keppni B-liðanna urðu KA-menn hlutskarpastir. B-Iið KA sigraði í keppni B-liðanna. Mynd: KK Bekkpressukeppni: Kraftlyftinga- menn höfðu betur Keppnin fór fram á laugardag- inn, á óvenjulegum stað, nefnilega á Ráðhústorgi. Keppt var í 5 manna sveitum og lauk keppninni þannig að kraftlyftingamenn unnu glæst- an sigur, sigruðu með 117,5 kg mun og hlutu til varðveislu hinn nýja Leiðtogabikar sem íslensk Æfingatæki gaf til keppninnar. Steikjandi hiti var úti og sólin hellti geislum sínum yfir þanda vöðva og strengdar sinar meðan á átökunum stóð, Góð stemmning náðist bæði á meðal keppenda og áhorfenda og virtist sem bæjar- búar kynnu vel að meta þessa nýbreytni sem kraftlyftingamenn stóðu fyrir. Tvö ný Akureyrarmet voru sett, en það voru þeir Friðrik Jósepsson sem lyfti 160,5 kg í 100 kg flokki og Sigurður Gestsson sem lyfti 165,5 kg í 90 kg flokki. Bættu þeir báðir fyrri met um !/2 kg. Keppendur úr báðum liðum dæmdu til skiptis og kom enginn ágreiningur upp og sýnir það að tekið var á í anda drengskapar og bróðurkærleika og mættu aðrir íþróttamenn taka sér slíkt til fyrirmyndar. Auk þess sem Kári Elíson var keppandi var hann einnig kynnir! Vöktu mikla athygli hinar spekingslegu athugasemdir hans um menn og málefni, en góður kynnir er ómetanlegur í uppá- komum sem þessum. LJrslit bekkpressukeppninnar: 1. sæti. Sveit kraftlyftinga: Lkms.þ. Bckkpr. Friðrik Jósepsson 93,0 160,5 Kári Elíson 70,7 155,0 Flosi Jónsson 91,3 145,0 Freyr Aðalsteinss. 78,2 137,5 Páll Árdal 75,1 87,5 Sml. 685,5 2. sæti. Sveit vaxtarræktar: Sigurður Gestsson 86,9 165,5 Pétur Broddason 81,1 125,0 Hörður Harðarson 94,7 112,5 Gunnar Magnúss. 76,2 95,0 Jón Óli Árnason 69,2 70,0 Sml. 568,0 Talsverð forföll voru í liði beggja. Kraftlyftingamenn söknuðu t.d. heimskauta- bangsans, og vaxtarræktarmenn áttu í ntiklum erfiðleikum með að skrapa í sveit og urðu að hafa tvo lánsmenn í liðinu, þá Gunnar og Jón Óla. Næsta bekkpressukeppni er fyrirhuguð seinni hluta sumars eða í haust. Veitt voru glæsileg verðlaun fyrir þrjú fyrstu sætin í hvorri keppni sem gefin voru af um- boðsmönnum Esso á Akureyri og einnig verðlaun sem markakóng- arnir hlutu. Markakóngur í keppni A-liðanna varð Kristinn Hafliðason úr Tý, með 9 mörk. í keppni B-liðanna varð Steinar Guðmundsson úr Fylki marka- hæstur með 8 mörk. Mótið tókst með ágætum og stefnt er að því að gera það að árlegum viðburði. David Barnwell sigraði með glæsibrag í Arctic opcn um helgina. Mynd: kk Arctic open í golfi: Barnwell og Haraldur sigruðu Um 60 keppendur tóku þátt í Arctic open, alþjóðamótinu í golfi sem fram fór að Jaðri um helgina og þar af 7 erlendir kylfíngar. Leiknar voru 36 hol- ur með og án forgjafar. Keppni hófst kl. 21 á föstu- dagskvöld, leikið var fram eftir nóttu og síðan var keppni fram haldið á sama tíma á laugar- dagskvöld. Á meðal keppenda var ritstjóri hins víðlesna tíma- rits Golf world, ásamt Ijós- myndara sínum. Erlendu keppendurnir létu vel af dvöl sinni hér fyrir norðan og sögðu völlinn að Jaðri þann besta sem þeir höfðu leikið á hér á landi. Mjög vegleg verðlaun voru fyrir sigur í mótinu og einnig voru veitt glæsileg aukaverðlaun fyrir að fara næst par 3 holum báða keppnisdagana. David Barnwell GA sigraði í keppni án forgjafar, lék 36 holur á 146 höggum. í keppni með for- gjöf sigraði Haraldur Júlíusson GA, lék á 135 höggum. Annars urðu úrslit þessi: An forgjafar: 1. David Barnwell GA 146 2. Þórhallur Pálsson GA 160 3. Sigurður Hafsteinsson GR 160 4. Peter Dezeley 160 Með forgjöf: 1. Haraldur Júlíusson GA 135 2. Skúli Ágústsson GA 142 3. Sigurður G. Ringsted GA 143 Fyrri keppnisdag fór Auðunn Þorsteinsson næst holu á 4. braut en þeir Árni Ketill Friðriksson og Magnús Birgisson voru næst holu á 18. braut, báðir 2,49 m frá holu. Seinni keppnisdaginn fór Símon Gunnarsson næst holu á 4. braut, David Barnwell á 11. braut, Hilmar Gíslason á 14. braut og Auðunn Þorsteinsson á 18. braut. Samband íslenska samvinnu- félaga gaf aukverðlaunin og auk þess færði sambandið öllum erlendu kylfingunum teppi að gjöf í mótslok. Tvö lið komust áfram úr hvor- um riðli í fjögurra liða úrslita- keppni. í A-riðli léku Týr, KA, Stjarnan C, Víkingur og Stjarnan A og komust Týr og Stjarnan A í úrslit. í B-riðli léku Huginn, Þór, Völsungur, Fylkir og Afturelding og komust Völsungur og Þór í úrslit. Úrslit leikjanna í úrslita- keppninni urðu þessi: Týr-Stjarnan 2:1 Völsungur-Þór 2:2 Stjarnan-Völsungur 1:0 Þór-Týr 0:1 Stjarnan-Þór 4:2 Völsungur-Týr 1:1 Lokaröðin varð þessi: Týr 3 2-1-0 4:2 5 Stjarnan 3 2-0-1 6:4 4 Völsungur 3 0-2-1 3:4 2 Þór 3 0-1-2 4:7 1 B-lið: í keppni B-liðanna komust einnig tvö lið áfram úr hvorum riðli. í A-riðli léku KA, Aftur- elding, Fylkir og Völsungur og komust KA og Fylkir í úrslit. í B- riðli léku KA C, Týr, Þór og Stjarnan og komust Týr og Stjarnan í úrslit. Úrslit leikjanna í úrslitakeppninni urðu þessi: KA-Fylkir 3:0 Týr-Stjarnan 2:5 KA-Stjarnan 2:1 Týr-Fylkir 3:0 Stjarnan-Fylkir 0:2 KA-Týr 1:0 Lokaröðin varð þessi: KA 3 3-0-0 6:1 6 Stjarnan 3 1-0-2 6:6 2 Týr 3 1-0-2 5:6 2 Fylkir 3 1-0-2 2:6 2 Skúli Ágústsson hafnaði í 2. sæti í keppni með forgjöf. Mynd: kk Haraldur Júlíusson sigraði í keppni með forgjöf og tekur hér við verðlaunum sínum úr hendi Aðalsteins Jónssonar. Mynd: GT A-lið Völsungs varð í 3. sæti í keppni A-liðanna. Mynd: RPB Esso-mót KA í mini knattspyrnu 5. flokks: Týr og KA sigruðu

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.