Dagur - 30.06.1987, Blaðsíða 11
30. júní 1987 - DAGUR — 11
Almannavarnaæfing á laugardag:
Leiðrétting
í blaðinu í gær var sagt frá
leikjanámskeiði íþróttafélags-
ins Þórs sem hófst á Þórsvelli í
gær.
Einhver misskilningur var á
ferðinni varðandi þann aldurs-
flokk sem námskeiðið er ætlað
því sagt var aö það væri fyrir
hörn á aldrinum 9-12 ára. Hiö
rétta er að námskeiðið er ætlað
börnum á aldrinum 6-10 ára og
skráning fer fram í dag. ET
Bílbeltin
hafa bjargað
iJU^TERÐAR
Hópslys sett á svið í Vesturdal
Á laugardag var hópslys sett á
svið í Vesturdal og látið reyna
á hve langan tíma tæki að
koma átján manns á viðeigandi
sjúkrahús. Almannavarnir
ríkisins stóðu fyrir verkefninu
að beiðni Náttúruverndarráðs
en almannavarnanefndirnar á
Kópaskeri og Húsavík tóku
þátt í verkefninu eins og þær
þyrftu að gera ef um alvöruat-
burð væri að ræða. Gengið var
út frá að slysið ætti sér stað kl.
14.15 og kl. 17.30 voru allir
„slasaðir“ komnir á endastöð.
„Ég er ekki búinn að fá loka-
skýrslurnar en hvað varðar þá
þætti sem við þurftum að leysa þá
gengu þeir allir upp,“ sagði
Guðjón Petersen framkvæmda-
stjóri Almannavarna ríkisins í
gærmorgun. „Við vorum að
prófa hvernig hægt væri að ráða
við svona stórslys og ef við gerum
þetta ekki vitum við aldrei hvar
við stöndum. Miðað við 70-80 km
fjarlægð frá sjúkrahúsi má árang-
ur æfingarinnar teljast mjög góð-
ur og við erum þakklátir þátttak-
endum fyrir hjálpina við æf-
inguna.“
Þrír sjúkrabílar og fimm aðrir
bílar voru notaðir við sjúkra-
flutningana, gert var ráð fyrir að
flugvélar væru notaðar til að
flytja stórslasað fólk til Akureyr-
ar og Reykjavíkur og var æfingin
sett upp eins og það hefði verið
gert. Upp undir hundrað manns
tóku þátt í æfingunni að lögreglu
og sjúkraliði meðtöldu.
Þröstur Brynjólfsson yfirlög-
regluþjónn á Húsavík sem vann
að stjórn æfingarinnar sagði að
heilt yfir væri hann ekki óánægð-
ur með árangur hennar. Erfiðast
hefði verið að ná í fólk til starfa
þar sem æfinguna hefði borið upp
á sólbjartan sumardag um helgi
og margir hefðu verið að heiman.
Þó væri ekki óraunhæft að halda
slíka æfingu við þessar aðstæður
því slys gæti einmitt orðið þegar
svona stæði á. Þröstur sagðist
vera þakklátur öllum þeim sem
hefðu varið einum besta degi
sumarsins til að vinna að þessu
verkefni.
Það óhapp varð meðan á
æfingunni stóð að bíll sem sendur
var á flugvöllinn til að ná í neyð-
arhjálpargögn lenti í árekstri
þegar komið var til Húsavíkur.
Engin meiðsl urðu á fólki en bíll-
inn skemmdist töluvert, jeppinn
sem ekið var aftaná skemmdist
minna og var ökufær eftir óhapp-
ið. IM
Vinningstölur 27. júní.
Heildarvinningsupphæð kr. 3.844.869.-
1. vinningur var kr. 1.925.074,-
Aðeins einn þátttakandi var með 5 réttar tölur.
2. vinningur var kr. 576.799.-
Skiptist á milli 149 vinningshafa, 3.871.- kr. á mann.
3. vinningur var kr. 1.343.016.-
Skiptist á milli 4866 vinningshafa sem fá 276 - kr. hver.
Upplýsingasími
91-685111.
Bíllinn sem var að ná i neyðarhjálpargögnin og lenti í árekstri meðan á
æfingunni stóð.
Nýja hellulínan
Gerir þér mögulegt ac! vera þinn eigin hönnudur
Vid leggjum tili
20x20
KROSSSTEINN
10x20
KUBBUR
Dœmi um mynstur
KROSS
KROSS +
STUBBUR
KROSS
10x10
STUBBUR
20x20
HELLA
HELLA +
KUBBUR
+ KUBBUR
+ STUBBUR
MÖL&SANDUR HF.
v/SÚLUVEG - PÓSTHÓLF 618 - 602 AKUREYRI - SÍMI (96)21255
1
Þu teiknar þinar hugmyndir
LAUF